Morgunblaðið - 21.08.2004, Side 5
ÓL Í AÞENU 2004
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 5
DAGUR Sigurðsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins, gekk nið-
urlútur af leikvelli eftir tapleikinn
á móti S-Kóreumönnum í gær. „Við
komumst einhvern veginn aldrei
inn í leikinn og vorum skrefinu á
eftir þeim nær allan tímann. Það
verður bara að segjast eins og er
að Kóreumennirnir voru betri á
öllum sviðum, hvort sem það var
markvarsla, varnarleikur, sókn-
arleikur eða hraðaupphlaup. Við
fórum afar illa með færin en samt
vorum við lengst af leiksins vel inni
í honum. Við vorum búnir að stilla
upp öllum leikjunum í riðlinum
sem hálfgerðum úrslitaleikjum og
ekki vantaði að menn ætluðu sér
að standa sig. Þessi neisti, sem þú
getur ekkert pantað, kviknaði því
miður ekki hjá okkur Mér fannst
þetta sísti leikur okkar í keppninni.
Við áttum erfitt gegn hröðum
hreyfingum þeirra og það var erf-
itt að spila gegn framliggjandi
vörninni.“
Nú er staðan sú að þið mætið
Rússum í hreinum úrslitaleik. Get-
ið þið rifið ykkur upp eftir þennan
lélega leik af ykkar hálfu?
„Já, það getum við alveg. Við er-
um ólseigir og við ætlum að berjast
til síðasta blóðdropa. Það er allt
eða ekkert hjá okkur. Við erum
búnir að sjá leiki þeirra í keppn-
inni og þeir okkar svo það eru eng-
in leynivopn eftir. Rússar hafa í
gegnum tíðina reynst okkur erfiðir
mótherjar. Þeir eru ólympíu-
meistarar og við vitum alveg
hversu sterku liði þeir hafa á að
skipa. Þetta verður strembinn leik-
ur gegn þeim en það er ómögu-
legt.“
Voru betri á öllum sviðum
seinni hálfleik og þegar svo er þá
reynir maður að spila boltanum og
opna fyrir félagana. Ég hefði
kannski átt að byrja fyrr á að fara
maður á mann en ég er einhvern
veginn sú tegund af leikmanni sem
geri meira af því að búa til færin
heldur en að skjóta sjálfur á mark-
ið.“
Nú liggur ljóst fyrir að þið mæt-
Ólafur skilaði sínu og vel það enhann skoraði 10 mörk í 11
skotum og var langbesti leikmaður
Íslands. Þú virtist
eini maðurinn í lið-
inu sem fann leiðina
framhjá markverði
Kóreumannanna. Maður spyr því:
Af hverju skaustu ekki meira?
„Þeir voru framarlega á mér í
ið Rússum í úrslitaleik um að kom-
ast áfram. Hverju verðið þið að
breyta til að eiga möguleika gegn
þeim?
„Fyrst og fremst að nýta færin
okkar og spila vörnina líkt og við
náðum upp á móti Slóvenum. Nú
verðum við bara að ýta þessum leik
til hliðar og einblína á Rússaleik-
inn. Við eigum varla skilið að kom-
ast áfram miðað við frammistöðuna
í dag en mér finnst að hver og einn
leikmaður verði að hugsa þannig að
við verðum að grípa tækifærið ef
það gefst. Við þurfum allir að bæta
okkur heilmikið og ef við gerum
það þá eigum við alveg möguleika á
að vinna Rússana,“ sagði Ólafur.
Okkar aðal líf-
æð er vörnin
„VIÐ vorum að enda sóknir okkar alveg skelfilega og þar skildi helst
á milli í leiknum. Menn verða bara að leggjast yfir myndböndin og
sjá hvað þeir eru að gera. Við getum ekki ætlast til að vinna leiki ef
við klúðrum færunum á þennan hátt. Þá var vörnin okkar mjög léleg
og við réðum lítt við Yoon. Okkar lífæð er vörnin. Ef hún bilar eins og
gerðist í dag þá fáum við engin ódýr mörk úr hraðaupphlaupum,“
sagði Ólafur við Morgunblaðið eftir ósigurinn gegn S-Kóreu í gær.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Ólafur Stefánsson eftir leikinn gegn Suður-Kóreu
m af
r.
mp-
nn
iða
gn
afði
gri á
it-
æri
ð
n á
-
ti
Morgunblaðið/Golli
hindrun fyrir Kóreumenn: Rúnar Sigtryggsson, Ólafur Stefánsson, Sigfús Sigurðsson og Jalesky Garcia.
Það eru auðvitað margir samverk-andi þættir sem orsaka svona
tap en við komum okkur ítrekað í
prýðilegar stöður í
sóknarleiknum,
sköpuðum okkur
fullt af góðum fær-
um, en nýttum þau
ekki. Þegar spilað er
gegn andstæðingum í þessum gæða-
flokki, sem Kóreubúar voru búnir að
sýna að þeir væru í með því að sigra
Rússa og standa í öðrum mótherjum
sínum, er ekki hægt að leyfa sér
þetta. Það er sama hvert liðið er, ef
það skorar ekki úr dauðafærunum
vinnur það ekki leikina. Síðan var
markvarslan hjá okkur því miður af-
ar lítil og það hafði líka mikið að
segja,“ sagði Guðmundur.
Hann kvaðst hafa haft góða til-
finningu fyrir leiknum framan af.
„Við fórum reyndar ekki vel af stað
en ef undanskildar eru allra fyrstu
mínúturnar, þá var byrjunin góð, við
vorum með forystuna nokkrum sinn-
um og fengum nokkur tækifæri til að
komast tveimur mörkum yfir. En við
nýttum okkur það ekki, þegar við
áttum möguleika á að stíga skrefin
sem skiptu öllu máli, voru þau ekki
stigin. Í staðinn létum við markverð-
ina þeirra verja frá okkur í upplögð-
um færum, og það kom síðan aftur í
bakið á okkur. Kóreubúarnir byrj-
uðu leikinn frekar hægt, keyrðu ekki
upp hraðann eins og þeir gerðu í hin-
um leikjunum, og þess vegna fannst
mér að við værum með ákveðið tak á
þeim í fyrri hálfleiknum.“
Grimmdin og viljinn
ekki fyrir hendi
„Svo var hræðilegt að fá á sig þrjú
mörk, manni fleiri, seint í fyrri hálf-
leiknum og sá kafli var ákveðinn
vendipunktur í leiknum. Það var
skelfilegur kafli, og við gátum ekki
sakast við neina nema okkur sjálfa.
Mér fannst að sumir leikmanna okk-
ar væru ekki nægilega grimmir, ég
var búinn að leggja á það áherslu að
við yrðum að fara strax í gírinn á
móti þessu liði og taka hraustlega á
móti því, en grimmdin og viljinn voru
greinilega ekki fyrir hendi. Ég er
ekki að segja að menn hafi ekki ætl-
að sér að spila þannig en einhvern
veginn skiluðu þessir þættir sér ekki
inn í leik okkar.
Eftir Slóveníuleikinn hélt ég að við
værum komnir á rétta braut, hann
var mjög vel leikinn, og í raun voru
leikirnir við Spán og Króatíu líka að
miklu leyti prýðilega spilaðir af okk-
ar hálfu. Þess vegna eru vonbrigðin
yfir þessari frammistöðu enn meiri.“
Íslenska liðið þarf að sigra Rússa í
síðasta leik sínum í riðlakeppninni til
að komast í átta liða úrslitin og Guð-
mundur sagði að þar yrði allt lagt í
sölurnar. „Við erum búnir að skoða
Rússana mjög vel og vitum að hverju
við göngum. Þeir spila alltaf sína 5/1
vörn en hafa lent í sínum vanda-
málum hérna í Aþenu, eins og gegn
Kóreubúum sem leystu þeirra varn-
arleik mjög vel og sigruðu þá. Við
munum fórna öllu sem við eigum í
þann leik,“ sagði Guðmundur Þ.
Guðmundsson.
Guðmundur Þ. Guðmundsson um
tapleikinn gegn Suður-Kóreu
Fórum
afspyrnu
illa með
dauðafærin
„ÞETTA eru gríðarleg vonbrigði, mér fannst við ekki nægilega
grimmir í þessum leik og stærsti þátturinn sem fór úrskeiðis hjá
okkur var sá hversu afspyrnu illa við fórum með dauðafærin okkar,“
sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknatt-
leik, við Morgunblaðið eftir ósigurinn gegn Suður-Kóreu, 34:30, á
Ólympíuleikunum í Aþenu í gær.
Víðir
Sigurðsson
skrifar
frá Aþenu
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur Þórður Guð-
mundsson í hita leiksins.