Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 1
2004  FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A  UEFA ætlar að kanna tengsl Chelsea og rússneska liðsins CSKA Moskvu / C4  Draumalið Bandaríkjanna lagði Spán- verja og er komið í undanúrslit á ÓL / C4  Guðjón Valur Sigurðsson lék allar mín- útur leiks landsliðsins í Aþenu / C3 FH vann glæsilegan sigur á skoska liðinu Dunfermline í gærkvöld með tveimur mörkum gegn einu og er liðið komið í þriðju umferð Evr- ópukeppni félagsliða, á sam- anlagðri markatölu, 4:2, þar sem liðin gerðu jafntefli á Laugardals- vellinum í fyrri leiknum, 2:2. danski leikmaðurinn Tommy Nielsen skor- aði sigurmarkið FH í gærkvöldi á síðustu mínútu leiksins. Leikurinn í járnum FH þarf því að komast í gegnum þriðju umferð til að komast í riðla- keppnina, sem er með svipuðu sniði og Meistaradeild Evrópu. „Þetta var auðvitað frábært. Þeir voru töluvert betri fyrsta hálftímann en eftir það var leikurinn í járnum. Við höfum sýnt það, bæði í fyrra og í sumar, að það er frábær karakter í þessu liði og einnig í síðasta leik á móti Skagamönnum þar sem við lentum 2:0 undir og við sýndum það aftur í kvöld. Þetta er bara stórkostlegur ár- angur fyrir FH-inga og alla Hafn- firðinga. Skotarnir voru auðvitað súrir, því í heildina voru þeir sterk- ari í leiknum en á móti kemur að við vorum óheppnir að vinna ekki fyrri leikinn. Ég held að for- ráðamenn þeirra hafi verið búnir að panta sér miða á dráttinn á morgun þannig að þetta gat ekki verið betra,“ sagði Heimir í samtali við Morgunblaðið að að loknum hin- um frækilega sigri. „Þetta eru eflaust stærstu úrslit íslensks félagsliðs, alla vega í sögu okkar félags. Þetta er bara stór- kostlegt að fá fleiri leiki gegn al- vöru liðum,“ sagði Leifur Garð- arson, aðstoðarþjálfari FH-liðsins. Stórkostlegur áfangi fyrir Hafnfirðinga Tommy Nielsen ■ Frábært/C2 Um tíu mínútna seinkun varð á því að hægt var að hefja keppni í úrslit- um 200 m hlaups karla á Ólympíu- leikvanginum í Aþenu í gærkvöld. Fjölmennur og hávær hópur áhorf- enda neitaði með öllu að gefa hljóð til þess að hægt væri að hefja hlaupið. Vildu áhorfendur mót- mæla því að þjóðhetjan og Ólymp- íumeistarinn í 200 m hlaupi frá því Sydney, Kostas Kederis, keppti ekki í greininni. Hann mætti ekki ítrekað í lyfjapróf fyrir leikana og var því gert að gefa þátttökuna frá sér eftir að leikarnir hófust. Margir Grikkir höfðu keypt sér aðgöngumiða á frjálsíþrótta- keppnina í kvöld með margra mánaða fyrirvara til þess að verða vitni að því að Kenteris verði tign sína sem þeir misstu síðan af. Með framkomu sinni sýndi þessi stóri hópur áhorfenda þátttakend- unum í úrslitahlaupinu mikla óvirð- ingu. Sumir keppenda létu þetta fara í skapið á sér. Frankie Freder- icks, Namibíu, sem keppti í síðasta sinn á Ólympíuleikum var á meðal þeirra sem líkaði ekki fram- koma Grikkjanna. Áhorfendur töfðu upphaf 200 m hlaupsins JOSE Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, mætir sínum gömlu fé- lögum í Porto í riðlakeppninni í Meistaradeildinni í knattspyrnu en dregið var í riðlana í gær. Paris Saint-Germain og CSKA Moskvu eru með Chelsea og Porto í H- riðli. Mourinho gerði sem kunnugt er Porto að Evrópumeisturum á síðasta tímabili en yfirgaf félagið í sumar til þess að taka við Chelsea. Riðlakeppnin hefst 14. og 15. sept- ember. „Við verðum að vera ánægðir með riðilinn okkar. Það er ljóst að við eigum fyrir höndum áhugaverða leiki og okkur hlakkar til,“ sagði Peter Kenyon, stjórn- arformaður Chelsea. Forráðamenn Manchester Unit- ed og Arsenal geta verið ánægðir með mótherja sína í Meistaradeild- inni en United og Arsenal ættu að eiga greiða leið í 16-liða úrslitin. Arsenal er með Panathinaikos, PSV Eindhoven og Rosenborg í E- riðli og Man. United er með Lyon, Sparta Prag og Fenerbache í D- riðli. „Ég er ánægður með riðilinn okkar. Við sleppum við að þurfa að ferðast mjög langt en við mæt- um tveimur liðum sem United hef- ur aldrei spilað við áður, Lyon og Sparta Prague,“ sagði Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Unit- ed. „Við höfum aldrei unnið Meist- aradeildina og við verðum að gera það til að sanna að við erum á meðal bestu liða í heimi,“ sagði Danny Fiszman, talsmaður Arsen- al. Liverpool er með Deportivo de La Coruna, Mónakó og Olympia- kos í A-riðli. Sanchez kom í mark 47,63 sekúnd-um eftir að hann lagði af stað. Danny McFarlane, Jamaíku, varð annar á á 48,11 sekúndum og Frakk- inn Naman Keita varð þriðji á 48,26. Bandaríkjamenn sem lengi hafa átt bestu menn í þessari grein og oftar en aðrar þjóðir átt gullverðlaunahafa í 400 m grindahlaupi urðu að gera sér fjórða og áttunda sætið að góðu. „Þetta er stærsta stund lífs míns,“ sagði Sanchez eftir að hann hafði kastað mæðinni. „Nú hef ég uppskor- ið ríkulega eftir allt erfiði undanfar- inna ára. Það er engu líkt að hafa náð takmarki sem stefnt hefur verið að árum saman. Þetta er ekki bara stór stund fyrir mig heldur alla íbúa Dóm- iníska lýðveldisins og það er frábært fyrir mig að vita til þess að ég varð fyrstur til þess að vinna gull á Ólymp- íuleikum fyrir þjóð mína.“ Þrefalt í 200 metrum og tvöfalt í langstökki Bandaríkjamenn unnu þrefaldan sigur í 200 m hlaupi karla á Ólympíu- leikunum og var þetta í annað sinn sem þeir hirða öll verðlaunin í frjáls- íþróttakeppninni, það gerðist einnig í 400 m hlaupi karla. Bandaríski meist- arinn Shawn Crawford kom fyrstur í mark á 19,79 sek., sem setur hann í áttunda sæti afrekslistans í greininni frá upphafi. Um leið setti hann per- sónulegt met. Berard Williams varð annar á 20,01 og ólympíumeistarinn í 100 m hlaupi, Justin Gatlin, varð þriðji á 20,03. Aldursforseti kepp- enda, Namibíumaðurinn Frankie Fredericks, nældi sér í fjórða sæti með kröftugum endaspretti, kom í mark á 20,14, sjónarmun á undan Francis Obikwelu frá Portúgal sem fékk sama tíma. „Ég er að sjálfsögðu í sjöunda himni með þennan sigur eftir að hafa orðið í fjórða sæti í 100 metra hlaup- inu. Þjálfari minn getur verið stoltur því ég og landi minn Justin Gatlin æf- um saman undir hans stjórn og nú komum við heim með tvenn gullverð- laun, þetta getur ekki verið betra,“ sagði Crawford. Ekki nóg með að Bandaríkin ynnu þrefaldan sigur í 200 m hlaupi heldur vann þjóðin tvöfaldan sigur í lang- stökki karla. Dwight Phillips hreppti gullverðlaunin, stökk 8,59 metra. John Moffit varð annar með 8,47 og Joan Lino Martines, Spáni, hlaut bronsverðlaunin með 8,32, einum sentímetra lengra en James Beck- ford, Jamaíku, er varð að gera sér fjórða sætið að góðu. Moffitt skaust upp í annað sætið í 5. umferð. Ross Gall FH vann glæsilegan sigur á skoska liðinu Dunfermline í gærkvöld, 2:1. Hér er Tommy Nielsen, sem skoraði sigurmark FH á lokamínutu leiksins, í baráttu við Craig Brewster. Sanchez brást ekki bogalistin FELIX Sanchez frá Dóminíska lýðveldinu vann gullverðlaun í 400 m grindahlaupi karla á Ólympíuleikvanginum í Aþenu í gær. Sigur hans kom fáum á óvart þar sem Sanchez hefur verið fremsti grinda- hlaupari heims á þessari vegalengd undanfarin ár og bætti nú ól- ympíugulli í safn sitt þar sem einnig er að finna gull frá heimsmeist- aramóti og Ameríkuleikum. Sanchez skráði nafn sitt á spjöld sögunnar með sigrinum því hann varð fyrsti íþróttamaður frá Dóm- iníska lýðveldinu sem vinnur gull á Ólympíuleikum. Mourinho fer til Porto ■ Drátturinn/C2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.