Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNUSAMBAND Evr-
ópu, UEFA, ætlar að kanna hugs-
anleg eignatengsl milli Chelsea og
CSKA Moskvu eftir að liðin drógust
saman í riðil í Meistaradeild Evr-
ópu í gær. Svo gæti farið að annað
hvort liðið þyrfti að draga sig út úr
Evrópukeppninni.
Rússneski auðkýfingurinn Rom-
an Abramovich, sem keypti Chelsea
í fyrra, á hlut í rússneska olíu-
fyrirtækinu Sibneft, sem er að-
alstyrktaraðili CSKA Moskvu. Ætla
lögfræðingar UEFA að kanna
hvort of mikil hagsmunatengsl séu
á milli félaganna, því ef svo fer er
þeim ekki heimilt að mætast í Evr-
ópukeppninni. Lög Evrópusam-
bandsins kveða á um að ef sami ein-
staklingur eigi meira en
helmingshlut í tveimur félögum
megi þau ekki mætast. Romban
Abramovich er góður vinur Jevgeni
Giner, forseta CSKA Moskvu, en
hann er einnig fyrrverandi eigandi
Sibneft og á stóran hlut í fyrirtæk-
inu, sem er fimmta stærsta olíu-
fyrirtæki Rússlands. Fyrri leikur
Chelsea gegn CSKA fer fram 20.
október en sá seinni 2. nóvember.
UEFA
rannsakar
Chelsea
NÝTT knattspyrnumannvirki í
Garðabæ var vígt í gær en þar er að
finna fyrsta keppnisvöll á landinu
sem lagður er gervigrasi. Einnig er
þar að finna æfingavöll og tvo
sparkvelli auk hefðbundins grasvall-
ar, áhorfendastúku og vallarhúss.
Ásdís Halla Bragadóttir, bæj-
arstjóri í Garðabæ, afhendi mann-
virkin formlega til rekstrar en áður
höfðu yngri flokkar Stjörnunnar
gengið í skrúðgöngu inn á völlinn og
söngvarinn Bergþór Pálsson tók
lagið.
Vígsluleikurinn var leikur Stjörn-
unnar og KR í Landsbankadeild
kvenna sem endaði með 1:1 jafntefli
í hörkuleik. Harpa Þorsteinsdóttir
kom Stjörnunni yfir á 63. mín. og að-
eins mín. síðar var Vönju Stefanovic
vikið af leikvelli fyrir að brjóta á
Hörpu sem var komin ein inn fyrir
vörn KR. Það var svo Guðlaug Jóns-
dóttir sem jafnaði fyrir KR.
Fyrsti gervigras-
keppnisvöllur landsins SUNDMAÐURINN Örn Arnarsonhefur ákveðið að ganga á ný til
liðs við sitt gamla félag, Sund-
félag Hafnarfjarðar, eftir að hafa
æft og keppt undir merkjum
Íþróttabandalags Reykjanesbæjar
undanfarin tvö ár en hafði áður
verið í herbúðum SH frá blautu
barnsbeini.
Frá félagsskiptunum var geng-
ið í fyrradag. Örn hyggst fara til
Lyngby í Danmörku í næsta mán-
uði og vera þar við æfingar í vet-
ur.
Örn hefur átt erfitt uppdráttar
síðustu mánuði vegna þrálátra
meiðsla í öxl, sem meðal annars
komu í veg fyrir að hann gæti
tekið þátt í sinni eftirlæt-
isgreinum, 100 og 200 m bak-
sundi, á Ólympíuleikunum í
Aþenu á dögunum.
Örn Arnarson aftur í SH
Örn Arnarson
FÓLK
MIÐHERJINN Erick Dampier
var í fyrradag sendur frá Golden
State Warriors til Dallas Maver-
icks en liðin leika í NBA-atvinnu-
mannadeildinni í körfuknattleik.
Að auki fóru þeir Evan Esch-
meyer, Dan Dickau og Steve Log-
an frá Golden State til Dallas.
Warriors fær í staðinn þá Edu-
ardo Najera, Christian Laettner
og réttinn til þess að semja við Lu-
is Flores og Mladen Sekularac.
SEBASTIAN Deisler, leikmaður
Bayern München, er tilbúinn að
leika aftur fyrir þýska landsliðið
en Deisler lék lítið með Bayern á
síðustu leiktíð vegna alvarlegs
þunglyndis. „Ég er tilbúinn að
snúa aftur í landsliðið. Ég þarf að
byrja að hugsa um HM 2006 og ég
myndi elska að spila vináttuleikinn
gegn Brasilíu 9. september,“ sagði
Deisler.
FINNSKI skíðastökkvarinn
Matti Nykänen, sem hefur lengi
verið á villigötum, hefur verið
handtekinn grunaður um morðtil-
raun. Er Nykänen grunaður um að
hafa stungið 59 ára gamlan kunn-
ingja sinn með hnífi sl. þriðjudag í
sumarhúsi skammt frá bænum
Nokia. Kona Nykänens er einnig
grunuð um aðild að morðtilraun-
inni og eru þau hjónin bæði í
gæsluvarðhaldi. Maðurinn sem
ráðist var á er á sjúkrahúsi en
ekki talinn í lífshættu.
EVERTON hefur hafnað tilboð-
um frá Newcastle og Manchester
United í ungstirnið Wayne Roo-
ney. Tilboð Manchester United
hljóðaði upp á 2,6 milljarða króna
en tilboð Newcastle var upp á 3
milljarða króna. Everton vill fá að
minnsta kosti 3,8 milljarða króna
fyrir Rooney, sem hefur að und-
anförnu verið meira í sviðsljósinu
utan vallar en innan.
BILL Kenwright, stjórnarfor-
maður Everton tilkynnti í gær að
félaginu hefði tekist að afla fjár til
leikmannakaupa og má því búast
við að David Moyes, knattspyrnu-
stjóri liðsins, bæti nokkrum leik-
mönnum við hópinn áður en fé-
lagaskiptaglugganum verður lokað
eftir fjóra daga. Kenwright sagði
einnig að óvíst væri hvort Wayne
Rooney væri enn leikmaður Ever-
ton eftir helgina.
ARSENAL er á eftir tveimur
leikmönnum sem leika á Spáni.
Arsenal hefur þegar boðið 350
milljónir króna í framherja Val-
encia, Miguel Angel Angulo og
fylgist einnig grannt með hinum
18 ára gamla Jesus Navas hjá Se-
villa.
WALTER Samuel, argentínski
varnarmaðurinn sem Real Madrid
keypti í sumar frá AS Roma fyrir
jafnvirði 2,5 milljarða króna,
meiddist í leik Real Madrid og
Wisla Kraká í fyrrakvöld í þriðju
umferð Meistaradeildarinnar með
þeim afleiðingum að hann verður
a.m.k. þrjár vikur frá keppni.
Orðrétt segir Guðmundur umArnór; „Mér finnst að það
hefði átt að vera ábyrgð hans fé-
lagsliðs heima að skila honum, leik-
manni með þó þessa hæð, sem betri
varnarmanni, sem gæti spilað vörn
sem dugar í alþjóðlegum handbolta.
Þann þátt vantar klárlega í hans leik.
Það eru svona atriði sem ég verð að
horfa til og ég get ekki leyft mér að
horfa bara á sóknarleikinn hjá við-
komandi.“
„Það hefur aldrei verið vafi í huga
okkar sem fylgst höfum með Arnóri
alast upp sem handknattleiksmanni
síðan hann var smástrákur að hann
hefur alltaf verið sterkari í sókn en
vörn,“ segir Jóhannes. „Á undan-
förnum árum hefur hins vegar verið
unnið í því á markvissan hátt að
bæta hann sem varnarmann. Á síð-
ustu leiktíð lék Arnór í hlutverki
bakvarðar með KA-liðinu og tókst
það í flestum tilfellum vel. Í þeim
leikjum sem ég hef séð frá Ólympíu-
leikunum þá hef ég ekki séð marga
tvítuga stráka leika í vörn. Ég efast
ekkert um það að Arnór eigi eftir að
bæta varnarþáttinn í leik sínum þeg-
ar fram líða stundir. Ég bara skil
ekkert hvað Guðmundi gengur til
með að „sketsa“ mig á þennan hátt,
ég bara átta mig alls ekki á því. Ég
hef ekki haldið uppi gagnrýni á hans
störf umfram það að einhvern tím-
ann á síðasta vetri þá missti ég út úr
mér að Arnór ætti skilið að vera í
landsliðshópnum,“ segir Jóhannes
sem greinilega sárnar gagnrýni Guð-
mundar.
„Ég skil ekki af hverju hann er
gangrýna mig fyrir að skila Arnóri
ekki inn sem fullsköpuðum varnar-
manni í alþjóðlegum handknattleik
aðeins tvítugum að aldri, það gerist
bara yfirhöfuð ekki í alþjóðlegum
handknattleik,“ segir Jóhannes og
rifjar upp um leið að Guðmundur
hafi á sínum tíma m.a. leikið í lands-
liðinu með Sigurði Gunnarssyni, Sig-
urði Sveinssyni, Atla Hilmarssyni,
föður Arnórs, og þeir hafi nærri því
ekkert leikið í vörn. „Hvað þykir
Guðmundi um þjálfun þeirra á sínum
tíma?“ spyr Jóhannes.
„Ég gat ekki séð í leikjum Íslands
á Ólympíuleikunum að okkar marg-
reyndu varnarmönnum, þótt góðir
séu, tækist á köflum nógu vel upp í
varnarleiknum.
Guðmundur hefur aldrei haft sam-
band við mig of rætt við mig á fag-
legum nótum um þjálfun Arnórs eða
annarra leikmanna sem hafa verið á
mínum snærum. Því kemur það mér
í opna skjöldu að hann skuli kjósa að
senda mér tóninn með þessum hætti.
Ég hef alla tíð borið mikla virð-
ingu fyrir störfum Guðmundar og
haft mætur á honum bæði sem leik-
manni og síðar þjálfara. En mér er
alveg fyrirmunað að skilja hvað hon-
um gengur til með þessari gagnrýni
á þjálfun Arnórs á síðustu árum.
Ég skal þó axla þessa ábyrgð á
óförum íslenska landsliðsins í
Aþenu, en finnst eigi að síður ómak-
lega að mér vegið. Ég ítreka að ég
ber virðingu fyrir Guðmundi sem
þjálfara og vil að hann haldi áfram
með landsliðið. En ég vil hins vegar
að hann sendi skilaboð af þessu tagi
til mín á faglegan hátt, ekki sem eit-
urpillu í fjölmiðlum,“ segir Jóhannes
Bjarnason, þjálfari bikarmeistara
KA í handknattleik.
Jóhannesi Bjarnasyni, þjálfara KA, þykir Guðmundur
Guðmundsson landsliðsþjálfari vega ómaklega að sér
Varnarmenn ekki full-
skapaðir um tvítugt
„ÉG skil ekki hvernig Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari
getur ætlast til þess að tvítugur strákur, jafn hæfileikaríkur og Arn-
ór er, komi sem fullskapaður varnarmaður inn í alþjóðlegan hand-
knattleik ekki eldri en hann er. Mér er bara alveg fyrirmunað að
skilja þessi ummæli hans um þjálfun Arnórs,“ segir Jóhannes
Bjarnason, þjálfari KA og þjálfari Arnórs Atlason síðastliðin sex ár
og vísar í viðtal við Guðmund landsliðsþjálfara sem birtist í Morg-
unblaðinu í gær. Þar segir Guðmundur m.a. að ástæða þess að
hann kaus að velja ekki Arnór í landsliðið fyrir Ólympíuleikana væri
sú að Arnór sé ekki nægilega sterkur varnarmaður.
BANDARÍSKA karlalandsliðið í
körfubolta sigraði Spán, 102:94, í 8-
liða úrslitum á Ólympíuleikunum í
gær. Bandaríska liðið getur þakkað
Stephon Marbury, leikstjórnanda
New York Knicks, sigurinn en hann
átti stórleik. Marbury skoraði 31 stig
en enginn bandarískur leikmaður
hefur skorað jafnmörg stig í leik á
Ólympíuleikunum. Charles Barkley
skoraði 30 stig fyrir Bandaríkin
gegn Brasilíu á ÓL 1992 í Barcelona.
Fyrir leikinn gegn Spánverjum
hafði Marbury verið harðlega gagn-
rýndur af fjölmiðlum í Bandaríkj-
unum fyrir slaka frammistöðu á Ól-
ympíuleikunum. „Þegar ég kom til
Aþenu hafði ég ekki spilað alvöru
körfubolta í allt sumar og það hafði
áhrif á spilamennsku mína í fyrstu
leikjunum. Ég hef tekið nokkrar
aukaskotæfingar að undanförnu og
þær hafa gert mér gott,“ sagði Mar-
bury eftir leikinn.
Sigur Bandaríkjanna var sann-
gjarn en Bandaríkin voru með for-
ystu nær allan tímann en þetta var
besti leikur liðsins í Aþenu hingað
til. Spánverjar komu fullir sjálfs-
trausts í leikinn en þeir höfðu sigrað
í öllum leikjum sínum í riðlakeppn-
inni. Spánverjar léku ekki jafn vel
og þeir geta og leikmenn Bandaríkj-
anna refsuðu þeim fyrir það. Allen
Iverson skoraði 16 stig fyrir Banda-
ríkin.
AP
Richard Jefferson (15), Lamar Odom (14) og Carmelo Anthony (8) fagna eftir leikinn gegn Spáni.
Marbury
hetjan