Morgunblaðið - 11.09.2004, Qupperneq 2
2 D LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
börn
Nafn: Bergljót
María Sigurð-
ardóttir
Aldur: 12 ára
Skóli: 7.GHG í
Austurbæjarskóla
… með munninum
Mér finnst
skemmtilegast að
tala með munnin-
um. Líka að tyggja
tyggjó í skólanum.
…með eyrunum
Að hlusta á bullið í vinum mínum með
eyrunum. Mér finnst líka skemmtilegt að
hlusta á tónlist með eyrunum, helst þá
Hnakkarokk og hipphopp.
…með augunum
Að horfa á bíómyndir og tölvuskjáinn
með augunum, t.d bloggsíður vina minna.
…með höndum og fótum
Að spila á gítar með höndunum. Líka að
vera á MSN. Með fótunum finnst mér
skemmtilegast að hjóla.
Nafn: Hrefna
Namfa Finns-
dóttir
Aldur: 8 ára
Skóli: 3.ÁH Öldu-
selsskóla
…með munninum
Mér finnst
skemmtilegast að
syngja með
munninum. Mér
finnst líka gaman
að tala með
munninum. Það er
líka gott að borða jógúrt með munninum.
…með eyrunum
Mér finnst skemmtilegast að hlusta á pí-
anó og kisur með eyrunum. Ég er að læra á
píanó og þess vegna þarf ég að hlusta á lög.
Það er líka gaman að hlusta á kennarann í
skólanum.
…með augunum
Mér finnst skemmtilegast að horfa á
ævintýramyndir með augunum. Líka finnst
mér skemmtilegt að horfa á myndir og taka
myndir og video.
…með fótunum
Mér finnst skemmtilegast að dansa með
fótunum. Snúsnú er líka mjög skemmtilegt,
þá er hægt að hoppa og snúa með hendinni.
Hvað finnst þér
skemmtilegast?
Ef þig langar að birtast í krakka-
kynningu hér í Barnablaðinu, þá er
ekkert auðveldara en að svara þessum
sömu spurningum og senda okkur á
barn@mbl.is. En þú þarft líka að senda
mynd af þér og merkja hana vel og
senda bæði á barn@mbl.is og pix@-
mbl.is. Síðan máttu eiga von á því að
birtast í blaðinu. Hlökkum til að kynn-
ast þér!
Mér finnst
skemmti-
legast að …
Krakkakynning
UM DAGINN hélt Þjóðdansafélag Reykja-
víkur opið hús fyrir börn og unglinga sem
langar að prófa íslensku gömlu dansana og
þjóðdansa frá öðrum löndum. Nú eru vetr-
arnámskeiðin nefnilega að hefjast og allt
að fara á fullt í dansinum, enda eins gott
að byrja að æfa sig því næsta sumar fara
krakkarnir til Finnlands að dansa.
Ég fer létt með þennan dans! Hringdansar eru ýkt skemmtilegir.
Ætli þetta sé íslenskur dans?
Morgunblaðið/Þorkell
Þetta er sko gaman!
Vinstri saman vinstri, hægri …
JÆJA, hversu góð eruð þið í stafsetningu? Nú reynir á það í þessum
litla verðlaunaleik. Hér er málið að finna 6 stafa nafn á grænmeti
nokkru sem gerir mann sterkan. Ef þið vitið það ekki nú þegar, þá
takið þið fyrsta stafinn í orðunum sem hér eru myndir af, raðið þeim í
rétta röð og þá finnið þið leyniorðið.
Skrifið orðið í reitina, klippið leikinn út og sendið okkur ásamt
nafni, aldri og heimilisfangi fyrir 18. september. Þá gætu þrjú ykkar
orðið svo heppin að fá DVD-diskinn Toy Story í verðlaun. Jibbý!
Heimilisfangið er:
Morgunblaðið
Börn – Verðlaunaleikur 18/09/04
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Verðlaunahafar
Fyrir hálfum mánuði var spurt
um gamalt íslenkt mánaðarheiti,
og lausnin var HEYANNIR,
eins og svo mörg ykkar vissu.
Þrjú ykkar voru dregin út til að
fá geisladiskinn Bárður og Birta
í Sjaggdad. Og það eru:
Ásdís Rúna
Guðmundsdóttir, 8 ára
Goðalandi 11
108 Reykjavík
Bjarni Theodórsson, 6 ára
Esjugrund 35
116 Reykjavík
Snædís Logadóttir, 6 ára
Furugerði 15
108 Reykjavík
Til hamingju krakkar! Þið get-
ið sótt vinningana ykkar í af-
greiðslu Morgunblaðsins á skrif-
stofutíma, eða hringt og fengið
þá senda heim.
Verðlaunaleikur vikunnar
ÞÁ lærum við tvö ný tákn sem þýða „stelpa“ og „strákur“.
Það er stelpan sem sýnir stelputáknið og strákurinn stráka-
táknið. Munið að örvarnar sýna hreyfingu og allir svo að nota
tákn með tali!
Tákn vikunnar
Það geta allir lesið af hverju þessi fína mynd er. Hún er
eftir Fríðu Theodórsdóttur, 8 ára fjöllistakonu af Kjal-
arnesinu. Við þökkum Fríðu fyrir að vera alltaf svona
dugleg að senda okkur efni.