Morgunblaðið - 11.09.2004, Side 4
4 D LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
börn
framhald ...
HANN FANN
LYKTINA AF
HUNANGINU
YKKAR
MMMM!!
SLURP!!
NÚ HLÝT
ÉG AÐ
KOMAST...
ÞAÐ ER BETRA
AÐ HAFA ÁNA Á
MILLI OKKAR!
VÁ! ÁIN
ER FULL AF
FISKI!
ÉG ER
SVANGUR
Kalvin & Hobbes
SÉRÐU ÁLA, SKJALDBÖKUR
EÐA BLÓÐSUGUR NEIBB, ÞETTA ER
MISHEPPNAÐUR
LEIÐANGURKALVIN & HOBBES
HVERNIG
ER VATNIÐ?
ALVEG ÍSKALT!
ÉG FINN EKKI
FYRIR FÓTUNUM
EF ÉG HREYFI MIG
BARA UM 1 cm Á
HVERJUM 10 MÍN.
ÞÁ ER ÞETTA Í LAGI
VERSTI HLUTINN VIÐ ÞETTA ER
ÞAÐ ÞEGAR SUNDSKÝLAN
BLOTNAR. HÚN RÉTT SNERTIR
VATNIÐ, VERÐUR RENNBLAUT OG
SÍÐAN LOÐIR
HÚN VIÐ
MANN
ÞANNIG AÐ
MANNI
VERÐUR
ÍSKALT
AF HVERJU LÍKUR
ÞÚ ÞESSU EKKI
AF OG STEKKUR?
ERTU AÐ GRÍNAST?
LOSTIÐ MUNDI
DREPA MIG, ÞAÐ
ER BETRA AÐ GERA
ÞETTA HÆGT
ÞAÐ ER MIKLU BETRA AÐ
LJÚKA ÞESSU BARA AF
ÞAÐ HEFUR
EINHVER MISST
ÞIG ÞEGAR ÞÚ
VARST KRAKKI
SJÁÐU BARA!
VARÚÐ!
NEI! NEI!
NEI!
BRR! KANNSKI
VAR ÞETTA
RÉTT HJÁ ÞÉR
EN VIÐ FÁUM
ALDREI AÐ VITA
ÞAÐ, ER ÞAÐ
NOKKUÐ?!?
Krakkarýni:
Kóralína
Spennandi
og hræðileg
SARA Ósk Þrúðmarsdóttir
er 12 ára nemandi í Lang-
holtsskóla. Hún er mjög klár
og dugleg að teikna, en henni
finnst einnig mjög skemmti-
legt að lesa og klárar hverja
bókina á
fætur ann-
arri.
„Mig
vantaði ein-
mitt ein-
hverja bók
að lesa og
mamma lét
mig bara fá
þessa bók og sagði að ég
ætti svo að skrifa um hana
og að það myndi verða sett í
Morgunblaðið og ég hlakkaði
geðveikt mikið til,“ segir
Sara Ósk.
„Sagan var skemmtileg og
mjög spennandi en mér
fannst hún stundum svolítið
ruglingsleg en það var ekkert
mikið. Annars var þessi bók
mjög fín og ég legg til að allir
sem hafa áhuga á spennu
lesi hana.
Uppáhaldspersónan mín í
sögunni er auðvitað Kóralína
af því að hún er aðalsöguper-
sónan í bókinni og svo fjallar
allt um hana og maður kynn-
ist henni mest og svo er hún
líka hugrökk og sniðug.
Mér finnst eftirminnileg-
ustu atriðin vera þrjú. Þau
eru þegar „hin mamma“
hennar Kóralínu læsir Kór-
alínu inni í glerskáp þar sem
eru þrjú önnur börn sem eru
dáin. Og svo þegar Kóralína
hendir svarta kettinum í
andlitið á hinni mömmunni
og svo er það þegar höndin á
hinni mömmunni dettur ofan
í brunninn og Kóralína lokar
brunninum.
Hin mamman er hræðileg-
asta persónan í sögunni því
hún er norn sem tók lítil börn
og þóttist vera önnur
mamma þeirra. En sum
börnin sem hún tók trúðu því
ekki og þá læsti hún þau inni
í skáp og þar dóu börnin úr
hungri. Og svo var það líka
svo óhugnanlegt að hin
mamman var með skjanna-
hvítar hendur með ótrúlega
löngum og blóðrauðum nögl-
um.
Mér fannst bara alls ekki
neitt vera leiðinlegt í þessari
bók. Hún var öll skemmtileg
nema kannski byrjunin, þá
var ekkert skemmtilegt, en
svo þegar ég var búin að lesa
fyrstu blaðsíðuna fór hún
strax að verða skemmtileg.“
Lausn á þraut
Karl númer sex
er þyngstur.