Morgunblaðið - 29.09.2004, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Kynntu þér tilboð okkar
á bílaleigubílum
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað
Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Við erum í 170 löndum
5000 stöðum
T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Milano, Alicante ...
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is
Minnum á Visa afsláttinn
B
ílaframleiðendur hafa ávallt
lagt mikla áherslu á að hafa
sem glæstasta umgerð við
sitt sýningarsvæði og á því
var engin breyting nú. Margir voru
samt á því að fátt óvænt hefði borið
fyrir sjónir að þessu sinni. Allt sner-
ist um frumsýningu á nýrri kynslóð
Ford Focus, sem er einn mesti sölu-
bíllinn í Evrópu. Breytingin er minni
en búast hefði mátt við en þeim mun
meiri í undirvagni, sem hann deilir
nú með Volvo S40 og Mazda3. Fram-
endinn minnir orðið á Mondeo en
snotur frágangur á afturhluta bílsins
vekur athygli.
Það var líka vitað að Mazda ætlaði
að kynna Mazda5 fjölnotabílinn og
Honda sömuleiðis sex sæta FR-V
fjölnotabílinn. Mazda var sá fram-
leiðandi sem átti mestum vexti að
fagna á árinu 2003 og það sem af er
árinu er salan á Mazda í heiminum
meiri en á sama tíma í fyrra. Mazda5
er óvenjulegur að því leyti að hann
er með rennihurðum á báðum hlið-
um, sem yfirleitt er ekki að finna
nema í stærri gerðum fjölnotabíla.
Hann er með breytanlegu sætafyr-
irkomulagi og verður fáanlegur sex
til sjö sæta eftir mörkuðum. Hann
verður fáanlegur með tveimur bens-
ínvélum og tveimur dísilvélum sem
eru sérstaklega hannaðar fyrir Evr-
ópu. Mazda5 er lítið eitt stærri en
helstu keppinautarnir; VW Touran,
Toyota Corolla Verso og Renault
Grand Scenic. Mazda5 kemur vænt-
anlega á markað hérlendis næsta
sumar.
Fyrir tveimur árum kynnti Mazda
aflmikla gerð af Mazda6 í hugmyn-
daútfærslu og núna var bíllinn sýnd-
ur í endanlegri gerð. Hann kallast
Mazda6 MPS. Bíllinn er fjórhjóla-
drifinn og með forþjöppuvél. Hann
er aflmesti fólksbíll sem Mazda hef-
ur sett á markað. Vélin er 2,3 lítra og
skilar 260 hestöflum og 380 Nm togi.
Hann er sagður hraða sér í hundr-
aðið á 6,6 sekúndum.
Honda sýndi FR-V sem er fjöl-
notabíll í sama stærðarflokki og
Mazda5. Fyrir er Honda Stream
sem er öllu stærri. FR-V er byggður
á sama undirvagn og CR-V jeppling-
urinn og er rennilegri en títt er um
fjölnotabíla í þessum stærðarflokki.
Óvenjulegt er líka að hann er sex
manna með tveimur sætaröðum og
fetar þar í fótspor Fiat Multipla.
Miðjusætið fram í er á sleða og hægt
að renna því aðeins aftar og það er
jafnframt með festingum fyrir
barnabílstól. Kosturinn við sex sæta
bíl er að hann dugar flestum fjöl-
skyldum og skilur eftir dágott far-
angursrými að auki. Bíllinn verður
fáanlegur með 1,7 l, 125 hestafla vél,
og 2,0 lítra, 150 hestafla ásamt 2,2 l
dísilvél, 140 hestafla. Eins og við
mátti búast var mest umleikis hjá
frönsku framleiðendunum, Renault,
Peugeot og Citroën. Renault kynnti
smábílinn Modus, sem nýlega fékk
fimm stjörnur í árekstrarprófun
Euro NCAP, og Peugeot kynnti
1007 smábílinn með tveimur raf-
stýrðum rennihurðum. Citroën var
hins vegar með frumkynningu á
mikilvægum bíl í C-flokki, Citroën
C4. Eins og nafnið gefur til kynna er
þetta bíll mitt á milli C3 og C5 og er
því í sama stærðarflokki og Ford
Focus, Toyota Corolla og VW Golf.
Línurnar í bílnum minna á C3 en
bíllinn er allur stærri um sig. Hann
er líka með ýmsar nýjungar sem
virðast spennandi. Þannig er stýr-
ismiðjan í raun hluti af mælaborði
bílsins. Ástæðan er sú að þótt stýr-
inu sé snúið stendur stýrismiðjan
kyrr og þar með hinir ýmsir stjórn-
rofar sem eru í stýrinu. Bíllinn var
kynntur í þriggja og fimm dyra út-
gáfum sem eru ólíkar innbyrðis.
Fimm dyra bíllinn er með dropalaga
formi en þriggja dyra bíllinn er með
þverhníptan afturenda og stóra
vindskeið. Honum er líka ætlað að
taka við af Xsara sem rallíbíll Citro-
ën. Einnig má búast við honum í
spennandi götuútfærslum. Citroën
sækir líka aftur á bak í tíma hluti
eins og framljósin, sem fylgja hreyf-
ingum stýrisins og lýsa betur í
beygjum. Slík ljós voru fyrst kynnt í
DS bílnum fyrir áratugum. C4 verð-
ur boðinn með 4 útfærslum af bens-
ínvélum frá 90 til 180 hestafla og
þremur dísilvélum, frá 92 til 138
hestafla. Brimborg mun væntanlega
kynna bílinn í byrjun mars á næsta
ári. Búast má við að hann verði á
svipuðu verði og Ford Focus.
Miklar breytingar hafa orðið á
framleiðslulínu Audi á síðustu mán-
uðum. Menn muna eftir nýjum A6
og A8 og nú var komið að því að
kynna nýjan A4 með samskonar
framsvip og á stærri bílunum. Jafn-
framt eru framljósin ný sem og aft-
urljósin og bíllinn er orðinn 4 cm
lengri og farangursrýmið að auki
meira. Þá er komin ný vélalína í A4
sem byrjar á 1,6 l bensínvél, 2,0 og
1,8 Turbo (163 hestafla) og tvær
FSI-vélar, 2,0 lítra, 200 hestafla og
3,2 lítra, 255 hestafla. Flaggskipið
S4 er sem fyrr 344 hestafla.
Þrennra dyra útgáfan af C4 er sportleg og ólík fimm dyra bílnum. Mazda5, fjölnotabíll með tveimur rennihurðum.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Sex sæta Honda FR-V er í sama stærðarflokki og VW Touran.
Mikið um dýrðir í París
Þessi Jeep Rescue er sérhannaður fyrir björgunarsveitir. Hann er með inn-
rauðu leitarljósi, sem skynjar hita, og alls kyns útbúnaði. Hummer hugmyndabíll – pallbíll með hurðum á pallinum vakti athygli.
Ferrari F430 er arftaki 360 Modena. Hann er með V8 vél, 490 hestafla og á að ná 100 km hraða á 4 sekúndum.
Bílasýningin í París stendur nú
sem hæst en hún er haldin
annað hvert ár. Fjölmargar
nýjungar voru kynntar sem
skipta máli hér á landi og
Guðjón Guðmundsson grein-
ir hér frá því helsta.
Nýr hugmyndabíll frá Alfa, Competizione, var sýndur í París.