Morgunblaðið - 13.10.2004, Síða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
480 8000
SELFOSSI
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
480 8000
Dodge Ram 3500
Gummings TD, árg 2003,
ek. 29 þ. km, rauður, ssk.,
dísil, hlaðinn aukabúnaði.
Verð 4.390 þús.
Suzuki Grand Vitara
XL-7, 03/04 ek 20 þ. km,
silfur, 5-gíra, 7-manna,
dísil turbo, krókur o.fl.
Verð 2.890 þús.
Nissan Patrol Gr diesel
turbo, árg 1995, ek. 265
þ. km, d-grænn, 5-gíra,
33" álf., mikið yfirfarinn.
Verð aðeins 990 þús.
Jeep Grand Cherokee
Limited, árg 2002, ek. 40
þ. km, silfurgrár, ssk., 4,7 l,
leður, krókur, cd. Einn með
öllu. Verð 3.600 þús.
VW Golf Comfortline
1600, 12/98, ek. 75 þ. km,
silfur, 5-dyra, 16" álfelgur,
saml., r-r.
Verð 790 þús.
Toyota Land Cruiser 90
GX New 07/03, ek. 29 þ.
km, kampavínsbrúnn, 5-
gíra, 8-manna, álf. o.fl.
Verð 4.200 þús.
SP-Fjármögnun býður, eins og fleiri
fjármögnunarfyrirtæki, upp á
rekstrarleigu, einkaleigu eða bíla-
samninga. Rekstrarleigan hefur
einkum hentað fyrirtækjum en
einkaleiga og bílasamningar einstak-
lingum. Í fyrra voru 47% allrar ný-
bílasölunnar fjármögnuð með þess-
um gerðum samninga.
Nú hefur SP-Fjármögnun riðið á
vaðið með að útvíkka einkaleigu-
samningana með því að taka iðgjöld
lögbundinna ökutækjatrygginga og
kaskótrygginga inn í mánaðarlegar
greiðslur. Samstarf hefur tekist með
SP-Fjármögnun og Tryggingamið-
stöðinni á þessu sviði, en nýlega
breytti TM allri uppbyggingu á ið-
gjaldaskrá sinni sem gerir útreikn-
inga einfaldari. Breytingin býður
upp á að einfalt sé að láta trygginga-
iðgjöldin fylgja mánaðarlegum leigu-
greiðslum, leigutökum til hagræðis
og sparnaðar. Við breytingu á ið-
gjaldauppbyggingu TM voru allir
bónusar afnumdir og breytast ið-
gjöld því ekki þótt tryggingataki
verði fyrir óhappi á bíl sínum. Þess í
stað er innheimt viðbótariðgjald að
fjárhæð kr. 15.000 sem dreift er á 12
mánuði í einkaleigusamningnum.
Þetta viðbótariðgjald er innheimt
einu sinni fyrir hvert tjón sem verð-
ur í skyldutryggingunni.
Margir eru nú með sín trygginga-
iðgjöld í útgjaldadreifingu hjá sínum
banka og jafnvel enn fleiri á
greiðslukorti. Vaxtakostnaður
leggst ofan á iðgjöldin ef þeim er
dreift á greiðslukort, sem er frá 6 til
12%, en enginn aukakostnaður er ef
iðgjaldið fylgir einkaleigusamningn-
um. Þannig má komast hjá 4.200-
7.257 kr. kostnaði af tryggingaið-
gjaldi sem er 70.000 kr. á hverju ári.
Tryggingar inn í mánaðargreiðslur
Morgunblaðið/Þorkell
Nú er hægt að fella tryggingar inn í mánaðargreiðslur í einkaleigu.
!"#
$ %
#& ' !
()%
( #
# !
)#*##+ ' '
!#' !,*# -! !# .#
B&L frumsýnir um næstu helgi
nýju BMW 1 línuna, sem er jafn-
framt fyrsti fimm dyra bíllinn frá
BMW eða Sport hatch. Nýja línan
markar því að vissu leyti tímamót
hjá BMW, sem hefur fram að þessu
ekki sótt orðspor sitt til fjölskyldu-
vænna 5 dyra bíla.
Fyrir breiðan hóp
BMW sækir innblástur fyrir 1
línuna fyrst og fremst til fólks á
aldrinum 20 til 40 ára. Þar sem
þessi aldurshópur er afar breiður
hvað lífsstíl og áherslur varðar, þá
var einstaklingurinn í öllum sínum
fjölbreytileika hafður til hliðsjónar
við hönnun línunnar. „Þetta er fyrst
og fremst ósvikinn BMW, tækni-
lega fullkominn og með framúrskar-
andi aksturseiginleika,“ segir Karl
Óskarsson, sölustjóri BMW. „En
þetta er jafnframt fjölskylduvænn
bíll. ISOFIX festingar geta fylgt
öllum farþegasætum bílsins, farang-
ursrýmið er rúmt auk þess sem 1
línan er á „flat-run“ öryggisdekkj-
um, en hægt er að aka á þeim allt
að 250 km á 80 km/klst þótt
springi.“
Með verulega sérstöðu
Tengi fyrir iPod MP3 spilara og
sérstakur start/stopp hnappur sem
kemur í stað bíllykils er meðal
þeirra nýjunga sem BMW kynnir
með nýju 1 línunni. „Tengið er jafn-
framt hægt að nýta fyrir aðra MP3
spilara eða fartölvu. Af öðrum stað-
albúnaði má nefna DSC stöðug-
leikastýringu með spólvörn og akst-
urstölvu. Þá er úrval aukabúnaðar
afar breitt, en hugsunin þar að baki
er sú, að kaupandinn ákveði sjálfur
hvernig endanleg útfærsla verður,
en ekki framleiðandinn í óteljandi
undirgerðum. Megin-sérstaða 1 lín-
unnar liggur þó eins og hjá öðrum
línum frá BMW í afturhjóladrifinu
og jafnri 50/50 þyngdardreifingu,“
bendir Karl á. „Hvort tveggja er
lykilatriði fyrir aksturseiginleikana,
auk þess sem jöfn þyngdardreifing
skiptir miklu fyrir akstursfærni í
snjó og hálku.“
Í þremur útgáfum
Ólíkt öðrum BMW línum, þá
keppir nýja 1 línan ekki eingöngu
við aðra lúxusbíla í sínum stærð-
arflokki, eins og t.a.m. Audi A3,
heldur einnig við bíla úr öðrum
flokkum, eins og. VW Golf Comfort-
line eða Sportline og sambærilegar
útgáfur af Toyota Corolla. Fyrst
um sinn verður 1 línan í þremur út-
gáfum eða 116i (115 hö) og 120i (150
hö) og 120d (163 hö) sem er með
dísilvél. 120 útgáfurnar eru jafn-
framt 6 gíra eða með 5 þrepa sjálf-
skiptingu. „Það er síðan til marks
um styrk BMW í rannsóknum og
þróun að dísilvélin er aflmeiri en
bensínvélin í 2,0 ltr. vélarstærðinni.
Bráðlega munu síðan 118i og 118d
útgáfurnar bætast við,“ segir Karl
og bætir við að verðið á BMW 1 lín-
unni sé frá 2.490 þúsund kr.
Ný BMW
1 lína
frum-
sýnd
A. WENDEL ehf. hefur um langt skeið
boðið uppá úrval vinnuvéla og verk-
færa á borð við jarðvegsþjöppur, valt-
ara, malbikunarvélar og vatnsdælur
fyrir jarðvegsverktaka, en einnig salt-
dreifara og snjótennur fyrir þá aðila
sem eru í vetrarþjónustu á vegum.
Á dögunum var Vegagerðinni af-
hent tæki sem ekki hefur sést áður
hér á landi en það er steinbrjótur af
gerðinni Kirpy BPS 200. Brjóturinn
er festur aftan á dráttarvél og drifinn
af aflúrtaki vélarinnar sem þarf að
vera um 150 hestöfl með skriðgír. Í
brjótnum er tromla með áfestum
hömrum sem snýst á móti aksturs-
stefnu vélarinnar. Þegar hamrarnir
lenda á grjótinu og þeyta því upp á
móti steðja sem er inni í tromluhús-
inu, molnar grjótið niður. Með því að
stilla bilið á milli steðjans og hamr-
anna má ráða brotstærð steinanna.
Einnig hefur ökuhraði töluverð áhrif á
stærð efnisins aftur úr brjótnum.
Notkun brjótsins er mjög hagkvæm
þar sem oft má notast við það efni
sem fyrir er, t.d. grjót úr vegköntum
og úr yfirborði vega þar sem það er
malað á staðnum. Kirpy-steinbrjót-
urinn er fáanlegur í fjórum stærðum.
Steinbrjótur fyrir dráttarvél
VALDIR hafa verið sjö bílar sem
berjast um titilinn Bíll ársins í Evr-
ópu 2005. 58 manna dómnefnd
hafði úr vöndu að ráða þegar skor-
ið var niður úr 32 bílum í úrslitabíl-
ana sjö, en þeir eru: BMW 1-línan,
Citroën C4, Ford Focus, Opel/
Vauxhall Astra, Peugeot 407, Ren-
ault Modus and Toyota Prius. Til-
kynnt verður um Bíl ársins í Evr-
ópu 2005 um miðjan nóvember.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Ford Focus.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
Citroen C4.
Morgunblaðið/Jim Smart
Toyota Prius.
7 í úrslitum um
Bíl ársins í Evrópu
Morgunblaðið/Golli
Fyrstu BMW1 eru komnir til landsins.
BANDALAG íslenskra bílablaða-
manna kynnir nk. föstudag hvaða
bíll hlýtur titilinn Bíll ársins 2004 á
Íslandi. Tólf bílar keppast um tit-
ilinn í fjórum flokkum og hefur
dómnefnd haft þá til prófunar og
skoðunar. Tilkynnt verður um valið
í Ásmundarsafni í Sigtúni kl. 17 og
afhendir Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra verðlaunin, hið svo-
nefnda Stálstýri, sem er farand-
gripur til vörslu í eitt ár.
Bandalag íslenskra bílablaða-
manna heldur úti vef um kosningu
á Bíl ársins 2004. Slóðin er billars-
ins.is. Þar geta áhugasamir valið
sinn bíl sem Bíl ársins og þar er
ennfremur að finna ýmsar upplýs-
ingar um valið, samstarfsaðila,
dómnefnd og tilnefnda bíla, svo fátt
eitt sé nefnt.
Val á Bíl ársins á Íslandi