Morgunblaðið - 13.10.2004, Qupperneq 4
/ 0,1
2
0234444 5 ,
6 ,
-#,
78 ,
9
.
:!,
7# , ,
;
<
= > 7 /)
2>5
9
0,1
2
0?<4444
0334444
033@444
AB44444
AA<0444
SÁ markaður sem hraðast vex um
þessar mundir innan bílaheimsins er
markaður fyrir jepplinga. Það er því
ekki að undra að allflestir bílafram-
leiðendur framleiði bíla af þessu tagi
eða hafi þá á teikniborðinu. Hyundai
hefur boðið fram Santa Fé í nokkur
ár og hann er væntanlegur með and-
litslyftingu seinna í haust. Og nú er
kominn á markað Tucson, minni bíll,
sem fellur betur inn á markaðinn sem
keppinautur Toyota RAV4 og jafnvel
hina stærri Honda CR-V, Nissan X-
Trail og Ford Escape, og kemur
þangað fullmótaður. Tucson er 4,32
m á lengd, eða 10 cm lengri en Toyota
RAV4 en 10 cm styttri en Ford Es-
cape, 13 cm styttri en X-Trail og 24
cm styttri en Honda CR-V.
Meira innanrými en í Santa Fé
Hann er auðvitað umtalsvert minni
en Santa Fé en það kemur þó mest á
óvart að innanrými fyrir farþega er
meira, og var þó sjaldnast kvartað
undan þrengslum í Santa Fé. Hið
mikla farþegarými í Tucson er þó á
kostnað farangursrýmisins, sem er
langminnst af fyrrnefndum keppi-
nautum. Í sölubæklingi er farangurs-
rýmið gefið upp fyrir að vera 644–
1.856 lítrar (með 5 og 2 sæti í notkun).
Þarna má láta blekkjast því gefið er
upp mál á farangursrýminu sam-
kvæmt bandarískum staðli en ekki
evrópskum. Sjá má í Auto Katalog,
sem Auto motor und Sport gefur út,
að samkvæmt VDA-staðlinum evr-
ópska er farangursrýmið 325–805
lítrar og munar þar allverulega á töl-
um.
Hyundai gerir sér vissulega grein
fyrir því að Tucson og Santa Fé eru
farnir að skarast og þess vegna er
augljóst að Santa Fé, sem þó er ekki
nema 18 cm stærri en Tucson, stækki
í framtíðinni meðan sá síðarnefndi
stendur þá líklega í stað.
Skemmtilegur með V6 vél
Tucson er boðinn með þremur
gerðum véla, þ.e. 2,0 lítra bensín- og
dísilvél og 2,7 lítra V6-bensínvél. Síð-
astnefndi bíllinn var prófaður á dög-
unum en hann er kannski sísti sölu-
bíllinn hér á landi, en þó líklega sá
skemmtilegasti.
Tucson er laglega hannaður bíll og
eftirtekt vekur mikið brot í vélarhlíf-
inni, stórar rúður og svört plasthlíf
sem umlykur allan bílinn og ver hann
fyrir steinkasti og hnjaski. Á breiðum
framstuðurum eru innfelld þokuljós
og heildarsvipur bílsins er jeppaleg-
ur og sterklegur.
Að innan virðist allur frágangur og
smíðagæði með besta móti en ennþá
heldur Hyundai sig við hart og
óspennandi plast í mælaborði. Ál-
stokkur í kringum miðstöðvarrist og
hljómtæki setur þó laglegan svip á
innréttinguna og allir stjórnrofar
virka sterklegir og traustir viðkomu.
Ökumaður og farþegi í framsæti
hafa gott pláss, ekki síst höfuðrými,
og þá er mikið rými fyrir þrjá farþega
í aftursætum. Það er síðan til fyrir-
myndar hvernig fella má aftursætis-
bökin flöt ofan í gólfið og búa þannig
til slétt og mikið farangursrými, þar
sem jafnvel má fleygja sér í svefn-
poka yfir nótt.
Bíllinn virkar allur mjög þéttur og
stífur í akstri og fjöðrunin er stinnari
en í Santa Fé stóra bróður. Vel hefur
verið hugað að hljóðeinangrun í þess-
um bíl, sem er með því besta í jepp-
lingaflokknum. Tucson er ekki sér-
lega þungur bíll eða stór og verður
þess vegna fyrir vikið kvikur og
þokkalega skemmtilegur akstursbíll
með V6-vélinni. Hann er sagður 10,5
sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km á
klst. og við vélina er tengd fjögurra
þrepa sjálfskipting með handskipti-
vali. Vélin skilar bílnum skemmtilega
áreynslulaust áfram og með henni
verður hann afar þægilegur sem
borgarbíll. Eini ókosturinn er sá að
eyðslan er að meðaltali um 13,2 lítrar
í borginni, sem er fljótt að telja í
buddunni þegar bensínlítrinn er
næstum helmingi dýrari en hann ætti
öllu jöfnu að vera.
Lágt undir lægsta punkt
Eins og Santa Fé er byggður á
sama undirvagni og Sonata-fólksbíll-
inn er Tucson byggður á breyttum
undirvagni Elantra. Fjórhjóladrifið
er sítengt. Við venjulegar aðstæður
fer mestallt aflið til framhjólanna en
búnaður í drifkerfinu skynjar veg-
grip og breytingu sem verður á því og
getur þá miðlað aflinu til afturhjól-
anna. En þar fyrir utan er hægt að
læsa drifinu þannig að aflið dreifist
jafnt á báða ása. Hann er þó tæpast
til stórræðanna utan vega enda varla
ætlað slíkt hlutverk. Það eru t.a.m.
ekki nema 19,5 cm undir lægsta
punkt bílsins en keppinautarnir eru
með 20 cm veghæð eða þaðan af
meiri. Hálfur cm er kannski ekki
stóri munurinn en hann getur samt
skipt sköpum.
Miðað við búnað, ekki síst vél- og
drifbúnað, er óhætt að segja að verð-
ið á Tucson komi þægilega á óvart.
V6 bíllinn er m.a. með diskabremsum
allan hringinn, kældum að framan,
spólvörn, sex líknarbelgjum, þoku-
ljósum að framan og aftan, 16 tommu
álfelgum, rafdrifnum rúðum að fram-
an og aftan, hita í sætum o.sv.frv. V6
bíllinn kostar 2.690.000 kr., sem er
300.000 kr. lægra verð en á RAV4
með fjögurra strokka, 150 hestafla
vél, og 652.000 kr. lægra en á Ford
Escape með 200 hestafla V6 vél, en
vissulega verður að taka með í reikn-
inginn að Escape er umtalsvert
stærri bíll.
Og þar sem meira en helmingur af
öllum nýjum bílum í landinu eru á
leigusamningum af einhverju tagi
skal þess getið að mánaðarlegar af-
borganir af rekstrarleigu á Tucson
V6 í 36 mánuði eru 48.480 kr.
Fullmótaður í harða samkeppni
REYNSLUAKSTUR
Hyundai Tucson
Guðjón Guðmundsson
Sítengt aldrif en 19,5 cm eru undir lægsta punktinn.
Morgunblaðið/Golli
Tucson er 10 cm lengri en söluhæsti jepplingurinn, Toyota RAV4.
Afturhlerinn opnast upp.
Allt er slétt og fellt innandyra og rýmið meira en búast hefði mátt við. gugu@mbl.is
V6 – sú sama og í Santa Fé, skilar bílnum sportlegum eiginleikum.
4 C MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Vél: Sex strokkar, 2.756
rúmsentimetrar,
24 ventlar.
Afl: 175 hestöfl við 6.000
snúninga á mínútu.
Tog: 241 Nm við 4.000
snúninga á mínútu.
Gírskipting: Fjögurra
þrepa sjálfskipting með
handskiptivali.
Drif: Sítengt aldrif.
Hröðun: 10,5 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km/klst.
Hámarkshraði:
180 km/klst.
Lengd: 4.325 mm.
Breidd: 1.795 mm.
Hæð: 1.730 mm.
Eigin þyngd: 1.669 kg.
Farangursrými:
325-805 kg.
Burðargeta: 554 kg.
Fjöðrun: McPherson
gormafjöðrun að
framan og aftan.
Hemlar: Diskar að framan
og aftan, kældir að fram-
an, ABS með EBD.
Eyðsla: 13,2 l innanbæjar,
10 l í blönduðum akstri.
Lægsti punktur: 19,5 cm.
Verð: 2.690.000 kr.
Umboð: B&L.
Hyundai
Tucson 2.7 V6