Morgunblaðið - 13.10.2004, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2004 C 5
bílar
Kauptu næsta bílinn þinn beint frá
Kanada - Allar tegundir bíla á sölu
www.natcars.com
SNJÓKEÐJUR FYRIR
Dalvegur 16a • 201 Kópavogur
Sími 544 4656 • Fax 544 4657
Vörubíla
Traktora
Vinnuvélar
Pústþjónusta BJB ehf.
Flatahraun 7 - 220 HAFNARFIRÐI - Sími 565 1090
Sala, smíði og ísetning á pústkerfumÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT
Mikið úrval af notuðum dekkjum
13 - 14 - 15 - 16 - 17 og 18 tommu.
Eigum einnig nýja og
notaða sólaða hjólbarða
Eldshöfða 6 s. 567-6860
BÍLLINN
CITROËN hefur í samstarfi
við Valeo í Frakklandi kynnt
nýtt stopp-start- kerfi sem
fyrst verður boðið í Citroën
C3 en síðar meir einnig í
Citroën C4. Menn muna
kannski eftir slíku kerfi í VW
Lupo með 3ja l dísilvélinni.
Búnaðurinn er einnig þekktur
úr tvinnbílum, eins og t.d.
Toyota Prius, og er grunn-
urinn að sparneytni þeirra.
Prius er með japanskt stopp-
start-kerfi frá Denso.
Kerfið virkar þannig að það
drepur á bílnum þegar vélin
er í lausagangi, t.d. á rauðum
umferðarljósum. Hún fer síð-
an strax í gang aftur um leið
og stigið er á eldsneytisgjöf-
ina. Við þetta dregur úr elds-
neytisnotkun um allt að 10% í
dæmigerðum borgarakstri og
dregur jafnframt úr loft-
mengun, ekki síst í þéttri
borgarumferð.
Stop-start-kerfið er í raun
sambyggður rafall og start-
ari. Talið er að það hækki bíl-
verð um u.þ.b. 50.000 kr. en
það ætti að vera fljótt að
borga sig í minni eldsneyt-
iseyðslu og minni mengun,
sem sums staðar er líka
skattlögð.
Citroën
með stopp-
start-kerfi
Start-stop-búnaður frá Valeo.
BJÖRN Sverrisson er einn af þekkt-
ari þúsundþjalasmiðum þessa lands
og hefur hann gert upp ófáa fornbíl-
ana með handverki og þekkingu sem
sumir telja að hætta sé á að glatist
verði ekki gripið til aðgerða.
Björn byrjaði fyrst að fást við
bílaviðgerðir árið 1956 og hefur ver-
ið mikið til að síðan. Nokkuð mörg
ár eru síðan hann fór að gera upp
gamla bíla. Nú síðast lauk hann við
endursmíði á Studebaker bíl árgerð
1930 sem var í eigu afa Ólafs Arnar
Haraldssonar, fyrrverandi alþingis-
manns. Móðir Ólafs Arnar stóð fyrir
því að bíllinn yrði gerður upp og
studdu börn hennar hana í því.
Björn var í mörg ár að gera upp bíl-
inn og vann hann að endurgerðinni í
frístundum. Bíllinn var afar illa far-
inn þegar Björn fékk hann til sín.
Það var ekkert hægt að kaupa í bíl-
inn og varð hann því að handsmíða
alla hluti sem þurfti að endurnýja,
t.d. skottlokið og fleiri hluti í yfir-
bygginguna. Pétur Jónsson, sem
annaðist fornbíla fyrir Þjóðminja-
safnið, tók upp vélina í bílnum.
Hvernig yfirbygging er kúpuð
Ólafur Örn hefur einmitt haft orð
á því að verkkunnátta af því tagi
sem Björn býr yfir sé á undanhaldi
og hætt við því að hún glatist sé
henni ekki haldið við með kennslu.
Björn segir að það sé rétt að það séu
ekki margir nú orðið sem kunni
handtökin við þetta. „Þegar ég var
að gera upp bíl Ólafs Arnar komu til
mín tveir ungir bílasmiðir. Annar
þeirra hafði heyrt talað um hvernig
yfirbygging væri kúpuð, þ.e.a.s.
hvernig búnir eru til kúptir hlutir,
eins og t.d. skottlok. Hinn hafði aldr-
ei heyrt minnst á það hvernig það
væri gert. Aðferðin er sú að slá stál-
ið til á þurrum sandi. Í dag er þetta
ekki lengur gert, heldur eingöngu
skipt um hluti. Ég hef gert þetta í
fjölda ára og ef handverk af þessu
tagi á ekki að týnast niður þarf að
miðla þessu áfram,“ segir Björn, en
bætir við að það séu vissulega fleiri
en eingöngu hann sjálfur sem kunni
handverkið.
Sjálfur á Björn Ford 1930 árgerð
og var hann því boði feginn þegar
minjasafn í heimabæ hans, Sauðár-
króki, falaðist eftir bílnum til að hafa
hann þar til sýningar. Björn á líka
Willys jeppa árgerð 1946 sem hann
gerði upp og nýlega lauk hann við að
gera upp fyrsta bílinn sem hann
eignaðist sem er Chevrolet her-
trukkur árgerð 1942. Björn seldi
þennan bíl austur á Voga á Vatns-
leysuströnd vorið 1957 en síðan var
hann seldur austur á firði þar sem
hann var notaður m.a. við síldarsölt-
un. Björn fann bílinn austur á Hér-
aði fyrir nokkrum árum og fékk
hann gefins. „Þetta voru skemmti-
legir endurfundir. Hann var orðinn
æði mikið slitinn og nánast hand-
ónýtur. Ég hef verið sjö til átta ár að
eiga við hann. Bíllinn stendur inni á
verkstæði hjá mér en ég veit ekki
hvað verður um hann,“ segir Björn.
Handverk sem er að glatast
Chevrolet-hertrukkurinn var fyrsti bíllinn sem Björn eignaðist.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Það tók Björn sjö ár að gera upp hertrukkinn sem hann fékk gefins.
Björn Sverrisson (t.v.) og Björn Jónsson við nýuppgerðan Studebaker 1930.