Morgunblaðið - 13.10.2004, Side 8
8 C MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
VOLVO fór nokkuð aðrar leiðir en
margir aðrir framleiðendur þegar
fyrirtækið endurnýjaði minnsta bíl-
inn sinn, S40, fyrir u.þ.b. ári. Í stað
þess að bíllinn stækkaði, eins og yf-
irleitt er raunin þegar nýjar kynslóðir
líta dagsins ljós minnkaði hann í öll-
um málum. Það var samt ekki stærsta
breytingin og ekki heldur útlitsbreyt-
ingin sem þó er umtalsverð. Nei,
mesta breytingin er sú að með nýjum
S40 hefur Volvo smíðað einhvern sinn
besta alhliða bíl nokkru sinni. Dísil-
vélin nýja frá Volvo er skemmtilegri
en flestar mun stærri bensínvélar og
boðar hún skemmtilega tíma, ekki
síst að ári þegar þungaskattur hefur
verið afnuminn og notkun nútíma-
legra dísilvéla gerður raunhæfur
kostur fyrir almenning hér á landi
eins og annars staðar á byggðu bóli.
Styrkur samrunans
Styrkur samrunans skín af S40.
Volvo er, sem kunnugt er, undir regn-
hlíf PAG, (Premium Automotive
Group), sem er lúxusarmur Ford.
Undirvagninn kemur líka frá móður-
fyrirtækinu og hann er aðalsmerki
nýs S40 ásamt vélum. Áður hefur ver-
ið fjallað hér um bílinn með nokkrum
gerðum bensínvéla en nú víkur sög-
unni að dísilvélinni, en fyrstu bílarnir
með tveggja lítra olíubrennaranum
eru komnir til landsins.
Við fyrstu sýn virðist allt með
felldu; vélin er rétt innan við tveir lítr-
ar að slagrými og skilar 136 hestöfl-
um, og fyrst um sinn fæst hann ein-
göngu með fimm gíra handskiptingu.
Vélin er fremur hávær í lausagangi,
eins títt er um dísilvélar, en gangur-
inn er samt ekki grófur. Sem sagt; allt
eins og vera ber, nema eitt; togið í
þessum fremur litla og létta bíl er
hreint með ólíkindum. Hröðunin á
fyrstu metrunum er ekkert til að hrópa
húrra fyrir, frekar en í flestum dísilbíl-
um, en það er samt ekkert hik – for-
þjappan kemur strax inn, enda nýjustu
dísilvélar- og forþjöpputækni beitt
með svokölluðu breytilegu loftflæði
forþjöppunnar og svo auðvitað nýjustu
kynslóð samrásarinnsprautunar. En
það er hið ótrúlega mikla togafl sem
vélin skilar sem vekur ómælda
ánægju. Togið er mælt 320 Nm strax
frá 2.000 snúningum sem er litlu minna
en frá 3ja lítra dísilvélum í millistórum
jeppum. Það er líka hreint unaðslegt
að finna stöðuga vinnsluna frá vélinni
og þetta mikla tog gerir það að verkum
að maður sleppur við mun færri gír-
skiptingar en ella. Sem er kostur því
ljóður á ráði þessa annars skemmti-
lega bíls er fimm gíra handskipti kass-
inn, sem mætti gjarnan vera liprari og
styttra á milli gíra. Það getur verið
pirrandi að þurfa að bisa við að koma
bílnum í bakkgír.
Lítil eyðsla
Undirritaður er löngu kolfallinn
fyrir nýjustu dísilvélunum og Volvo er
þar einna fremstur í flokki með þessa
hátæknivæddu vél, sem er öll úr áli og
þess vegna léttari en vélar af svip-
aðari stærð. Þrátt fyrir mikið afl er
þetta með sparneytnustu vélum með
meðaleyðslu upp á aðeins 5,6 líta á
hundraðið. Þegar við jöfnuna bætist
síðan undirvagn sem er með meiri
hliðarstífleika og kvikari stýringu en
keppinautarnir þá er útkoman ekkert
annað en mjög athyglisverð.
Það hefur áður verið fjallað um
framsækna hönnun í S40, að utan en
ekki síst að innan. Efnisvalið er í sér-
flokki, eins og t.a.m. sætaáklæði og
allt plastefni í mælaborði. Það er líka
rúmt um ökumann og farþega í fram-
sæti en með nýrri hönnun er pláss í
aftursætum þrengra en í forveranum.
Sérstaklega er áberandi hve lítið höf-
uðrými er þar og þrengsli við að setj-
ast inn í bílinn að aftan. En þetta eru
smávægilegir gallar í samanburði við
kosti bílsins; og ef út í það er farið þá
eru það yfirleitt minnstu farþegarnir,
börnin, sem sitja aftur í og ekki væsir
um þau.
Hagstætt verð
Fyrir nokkrum árum skrifaði
merkur Borgfirðingur um bíla í dag-
blað á Íslandi og lauk hann jafnan
pistlum sínum með því að svara
spurningunni: „Myndi ég kaupa
hann?“ Suma bíla myndi undirritaður
aldrei kaupa en Volvo S40 með dís-
ilvélinni er núna efstur á óskalistan-
um og ástæðurnar eru aðallega þrjár;
ómótstæðileg dísilvél, mikil smíða-
gæði og falleg hönnun og loks hag-
stætt verð. Volvo hefur nefnilega tek-
ist það sem margir hafa áður reynt og
flestir án árangurs; að smíða gæðabíl
án þess að slá nokkuð af kröfunum en
um leið að stilla verðinu í hóf. Ódýr-
asta gerð S40 er með 1,8 lítra bens-
ínvél og er stútfullur af nytsamlegum
búnaði og kostar 2.495.000 kr. Dísil-
bíllinn með fimm gíra beinskiptingu,
(sögð sex gíra á upplýsingablaði frá
Brimborg), kostar 2.920.000 kr. og
fyrir þann pening fæst mikill aksturs-
bíll, laglega hannaður og vel smíðað-
ur.
Dísilvél fyrir nýja tíma – á Íslandi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Volvo S40 er með skemmtilegri akstursbílum og verðið er hagstætt.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Innanrýmishönnunin er öðruvísi; frískleg og vandað til verka.
Það er líka stíll yfir lugtunum. Volvo S40 kostar tæpar 3 milljónir en fæst aðeins beinskiptur.
REYNSLUAKSTUR
Volvo S40
Guðjón Guðmundsson
Þetta er ein aflmesta dísilvélin af þessari stærð; 320 Nm tog.
gugu@mbl.is
Vél: Fjórir strokkar, sam-
rásarinnsprautun, breyti-
legt loftflæði forþjöppu.
Afl: 136 hestöfl við 4.000
snúninga á mínútu.
Tog: 330 Nm við 2.000
snúninga á mínútu.
Hröðun: 9,6 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km/klst.
Hámarkshraði:
210 km/klst.
Gírskipting: Fimm gíra
handskipting.
Lengd: 4.468 mm.
Breidd: 1.770 mm.
Hæð: 1.452 mm.
Eigin þyngd: 1.433 kg.
Hjólhaf: 2.640 mm.
Eyðsla: 5,6 lítrar í
blönduðum akstri.
Staðalbúnaður: ABS,
EBD, EBA, sex loftpúðar,
SIPS-hliðarárekstrarvörn,
WHIPS-bakhnykksvörn,
spólvörn með stöð-
ugleikastýringu, tölvu-
stýrð loftkæling með hita-
stýringu, lofthreinsikerfi,
fjarstýring í stýri fyrir
hljómtæki, rafdrifnar rúð-
ur og útispeglar, upphituð
framsæti, 16" álfelgur.
Verð: 2.920.000 kr.
Umboð: Brimborg.
Volvo S40
2.0D