Sunnudagsblaðið - 26.01.1958, Page 11

Sunnudagsblaðið - 26.01.1958, Page 11
SUNNUDAGSBLAÐIÐ 39 ÞEGAR. ég var aö alast upp í Re.ykjavík bjó amma mín hjá okk ur mömmu og var hún alltaf heima við, en mamma varð að vinna úti fyrir heimilinu við kola- burð og vatnsburð. Eitt kvöld um vetur kom ég heim klofvotur úr Læknum, en amma sat við prjóna sína og raul- aði eíns og hún var vön. Vísan, sem hún raulaði að þessu sinni, vor svona: Ævi mín er undra rík armæðunni vaíin færi betur ég lægi lík leir og moldu grafin. Amma leit upp frá prjónunum og sagði við mig: „Mikið ertu blautur, Söfli minn. bú he'fur vaðið í Tjörninni núna.“ . „Nei, amma mín, í Læknum, en ekki Tjörninni,“ ansaði ég. „En segðu mér nú sögu, amma mín.“ „Ég skal segja þér sögu, ef þú kemur þurr heim á morgun.“ Ég lofaði því, en stóð nú samt ekki við það. Og svo hóf amma söguna, sem var á þessa leið: Þegar ég var ung stúlka í sveit a Norðurlandi, var stúlka á sama bæ og var hún vinkona mín. Á bænum var myndarlegur maður °g 1‘elldu þau hugi saman. Þau giftust og fóru að búa austur á Héraði og byrjuðu að búa þar á sem vísbendingu um almætti bæn- arínnar. Það geraist margir furðulegir blutir á öllum tímum og alls stað- ar ~ en sagan um Alice Keppel °f: konungshjónin er án efa eitt því furðulegasta, sem dænrii eru um. Frásögn éftir SÖRLA iítilli jörð inni við afrétt. Þau eignuðust dreng, sem . Ilaraldur hét. Þegar liann var tíu ára, dó faðir hans, en móðir drengsins reyndi að basla fyrir honum um sumarið, en um haustið andaðist hún líka, svo að hann stóð uppi einn og allslaus. Þá kom hrepspsnefndin til skjal anna og seldi búið, en það hrökk ekki fvrir skuldum. Þá var erfitt að ráðstafa Haraldi og var hann boðinn upp og sleginn þeim, sem lægst bauð, og þangað var farið með hann, en þar leið honum illa. Vorið eftir var hann sendur í smalamennsku, og mun það ekki hafa verið nein sældarvist, því að þá raulaði hann þessa vísu: Rennvotur á rassinum rölti ég eftir kindunum, fáklæddur á fótunirm finnst mér borð á maganum. Þegar hann kom heim fékk hann sinn vanálega löðrung. Um þetta leyti var margt um mann- inn á bænum, því að Ameríku- aaenf ar, sem voni að koma fólkl frá 'íslandi. voru þar á ferð. Har- aldur spurði dóttur bóndans, hvað væri um að vera. Hún sagði, að þau ætluðu öll til Ameríku. Hann spurði þá, hvort hann ætti að fara líka, en hún sagði, að það væri aldrei farið með sveitarómaga til Ameríku! Nú var Haraldur orðinn vega- laus á ný, og varð hreppsnefndin að ráðstafa honum. En riú gerði enainn böð í hann, svo að hrepps stiórinn varð að taka hann heim tll sín. Þar lefð lionum vel ogfékk rióg áð ‘böfða, én 'líka rióg að vinna. Þegar Haraldur átti að fermast, voru engin föt til á hann, og .voru þá fengin að láni föt frá næsta bæ, Þegar hann var komirm í fötin, voru þau alltof lítil á hann, en hann varð að vera ,í þeim samt. En nú vantáði skóna á fæturna. Þá kom dóttir hreppstjóraris og gaf honum sauðskinnsskó með rósaleppum, sem hún hafði prjón- að sjálf, og var þetta fyrsta gjöf- in, sem Haraldur fékk. Þegar búið var að ferma Harald fór hann að vinna alla vinnu og var bráðduglegur, svo að hrepp- stjórinn fór að greiða honum kaup. Hreppstjónrm hét Ólafur, en dóttir hans Guðrún. Á bænum, sem hét Gil, var vinnumaður, sem hét Tjörfi og vinnpkona, sem Pál- ína hét, en húsmóðurin hét Eríða. Þegar Haraldur var tvítugur var hann trúlofaður Guðrúnu hrepp- stjóradóttur, en Ttjörfi vinnumað ur hafði ætlað sér hana, því að hann var bóndasonur en ékki sveit arómagi. Vorið sem Haraldur vatð 20 ára, en Guðrún 19 ára, kom Tjörfi að þeim í faðmlögum og hljóp! þegar með það í húsbóndann, sem varð æfareiður Haraldi fyrir j það, að hann sltyldi láta sér detta í hug annað eins og það að hann fengi hreppstjóradótturina, — hann sem alinn væri upp á sveitinni; hann skyldi strax hypja sig brott af heimilinu og aldrei framar koma f jmir hans augu! Haraldur gat náð tali af unn- ustu sinni og sagt henni hvemig komið var. Þau hétu hvort öðru tryggðum allt til dauðani eg o&i þau skýldu ná saman þótt síðar .yrði, hvað sem Jiað kostaði. Svo skildu þáu. Nú hugsar Haraldur sér að fara

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.