Sunnudagsblaðið - 12.04.1959, Blaðsíða 11

Sunnudagsblaðið - 12.04.1959, Blaðsíða 11
187 af andlitinu á henni; hún neri sam an höndunum í örvæntingunni. Loks kom læknirinn með lyfja- flösku í hendinni. — Fáið húsbónda yðar þetta, mælti hann og rótti stúlkunni flöskuna. — Fn ég, hvað á ég að fá! hróp- aði stúlkan í dauðans angist. — Fáið yður eitt glas af vatni, það mun nægja. Þér eruð veikar af hræðslu. Eiturkökur hafið þér engar þórðað. Hafðu aldrej hönd á því, sem þú ekki átt. Smælki „Heimilisfang yðar?“ spúrði dómarinn. „Það er breytt, er nú Langiveg- ur 25 í stað Langivegur 10“. „Og fæðingardagur yðar?“ „Hann er sá sami og áður“. —o—• „Góðan daginn, langt síðan við höfum sézt, kunningi“. „Það læt ég vera“, svaraði hinn. »Ég sá þig með konunni þinni í bíó í gærkvöldi'*. „Má vera — en góði segðu ekki konunni minni frá því“. —o— Á ökuferð: „Nú sitjum við lag- lega í því! Bíllinn er benzínlaus og að minnsta kosti 10 kílómetrar að næstu benzínstöð. Ég veit sann- arlega ekki hvað við eigum að taka okkur fyrir hendur!“ Hún: „Þú ætlazt þó ekki til Þess að ég geri sjálf uppástungu um það“. „Þú getur sjálf ákveðið brúð- kaupsdaginn okkar“, sagði ungi maðurinn, „nema hann má bara ekki vera að föstudegi“. „Ertu hjátrúarfullur?“ spurði brúðarefnið. !>Nei, en þá þarf ég að mæta í bridgeklúbbnum". BUWNUPAGS1LA8IB Farið vel með magann Greinin byrjar á bls. 183. gegna, hafa vísindamenn ekki enn þá orðið fullkomlega áskynja um alla þýðingu hans. Ýmsir menn hafa komizt mætavel af þótt megn ið af magapoka þeirra hafi verið skorið burtu. Og þúsundir manna, einkum krabbameinssjúklingar, hafa lifað góðu lífi um langan tíma við hæfilegan aðbúnað, eftir að allur magapokinn hefur verið numinn brött. Af öllum „maga“ sjúkdómum er magasárið hinn kunnasti og sá er menn óttast mest. Flestir lækn- ar setja nú orðið þessa veiki í sam- band við andlega vanlíðan. Maga- sárin eru að úlíti líkt stækkuð mynd af sárum þeim, er stundum koma í munnhol manna. Þau eru frá fimm til tuttugu millimetrar að þvermáli, og fylgja þeim oftast sárar þrautir milli brjóstbeins og nafla. Stundum koma sárin í sjálfan magapokann. En oftast verða þau þó á skeifugörninni, rétt utan við mynni magapokans, magaportið. Talið er að þau orsakist af starf- semi magapokans. Magapoki sjúklings með maga- sár hefur starfað of ört. Hann hef- ur framleitt of mikinn magasafa og dregið sig saman tíðara en heil- brigt er. Þessar samdráttarhreyf- ingar opna magaportið of ört og við það berst mikið magn af sýr- um út í þarmana. Nú hefur skeifu görnin ekkert slím sem heitið get- ur, sér' til verndar og er því auð- velt fyrir sýrurnar að éta sig inn í slímhúð hennar og mynda sár. Eirtkum eru það tvenns konar aðferðir, sem viðhafðar eru til þess að lækna magasár. Algeng- asta aðferðin er sú, að draga úr ofstarfi magapokans með tilteknu mataræði og lyfjum sem ónýta sýrurnar. Hin er á þann veg að hindra ofstarfið með uppskurði, lyflækningu eða ráðleggingum, en þó er hvorug aðferðin örugg. Áhrifaríkasta aðferðin til þess að varna magasafanum að erta slímhúð skeifugarnarinnar er sú, að neyta mikillar fæðu sem sýr- urnar hefðu nóg að gera að fást við í staðinn. Danskir læknar eru þeirrar skoðunar að bezt sé að gefa magasárssjúklingum græð- andj fæðu. Frá fornu fari hefur þeim verið ráðlagt að drekka mik- ið af mjólk, því hún þynnir og ó- nýtir sýrurnar. í seinni tíð hafa ýmsir erlendir læknar hallazt að þeirri skoðun að enn betra sé að borða oft en lítið í einu, af venjulegum mat, heldur en að stunda sultarfæði. Tilraun var nýlega gerð í Englandi á hópi magasársSjúklinga og varð reyndin sú, að þeir sem fengu tíð- ar máltíðir af venjulegu fæði læknuðust fljótar en hinir sem einnig voru látnir borða oft, en aðeins léttmeti. Sjúklingur með sár í skeifu- görninni getur að minnsta kosti huggað sig við eina staðreynd, sem er sú, að hann fær að líkindum aldrei magakrabba. Því þótt eng- um sé ástæða til þess kunn, er það vissa, að minnst sjötíu af hundr- aði magakrabbatilfella verða í magapoka með of litlum sýrum og of litlum samdráttarhreyfing- um, sem vitanlega eru gagnólíkir magapokum þeim, er valda garna- sárum. Ef til vill væri það ekki ófyrir- synju að vísindamenn þeir, er leggja sig í líma við að finna að- ferðir til að lækna magasjúkdóma, vildu kynna sér háttu sægúrkunn- ar nokkru nánar. Því hún kann eina óbrigðula aðferð. Hún lætur sem sé engin andleg áhyggjumál valda sér magameinum. S'é hún ert, fleygir hún bara magapokan- um frá sér og syndir sína leið. Síðar meir fær hún sér nýjan maga.

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.