Sunnudagsblaðið - 12.04.1959, Blaðsíða 16

Sunnudagsblaðið - 12.04.1959, Blaðsíða 16
192 SUNNUDAGSBLAÐIÐ JAPÖNSK FLUG- FREYJA. Næturgestur nr. 1.000,- 000 á Hótel Víking 1 Osló innritaóist á hóteli'ð kl. 18.00 iaugardaginn fyrir páska og var það japönsk flugþerna, Naomi Tokiwa að nafni. Mikill viðbún- aður var á hótelinu til þess að taka sem bezt á móti milljónasta gestin- um, en hann átti að hljóta ókeypis fæði og gistingu og ýmsa aðra fyrirgreiðslu sem óskað væri. Það kom líka í ljós að japanska flugfreyjan, sem starfar á flugleið SAS um Norð- urpólinn, ætlaði að þessu sinni að dveljast í Osló vikutíma. —o— DJÖFULLINN ER DAUÐUR. Agnar Mykle hefur skrifað leikrit, er hann nefnir „Djöfullinn er dauöur“ og verður það sýnt í Kaupmannahöfn á næstunni. — Sjálfur er Mykle nú farinn til Jap- an þar sem hann ætlar að kynna sér brúðuleik- hús. Áður en hann lagði upp í Japansförina dvald ist hann um tíma í Kaup- mannahöfn vegna vænt- anlegra sýninga á leik- ritinu „Djöfulinn er dauð ur“. —o—• FERÐAÚTVÖRP BÖNN- UÐ í FLUGVÉLUM- Loftferðaeftirlitið í Kaupmannahöfn hefur aðvarað flugmenn um að þeir leyfi farþegum sín- um að hafa meðferðis ferðaútvörp í flugvélarn- ar. í tilkynningu loft- ferðaeftirlitsins segir meðal annars, að komið hafi í ljós, að ferðatækin geti haft truflandi áhrif á leiðsögutæki flugvél- anna, og því ruglað loft- siglingafræðingana í rím- inu. Ekki er kunnugt um að slík aðvörun hafi ann- ars staðar komið frarp og í Svíþjóð og Noregi er því meira að segja haldið fram, að þetta sé tilefnis- laus ótti hjá Dönum, enda séu ferðaútvörpin það lít il, að þau geti á engan hátt truflað leiðsögutæki flugvéla. —o— ALLT LOKAÐ f 5 DAGA. Það er víðar langt páskafrí en á íslandi. í Noregi er laugardagurinn fyrir páska orðinn lög- boðinn frídagur, og þar er nú 45 stunda vinnu- vika gengin í gildi. Marg ir munu hafa orðið fyrir óþægindum núna um páskana, því að þetta var í fyrsta sinn, sem verzl- anir voru lokaðar þar all- an laugardaginn fyrir páska og sömuleiðis veit- ingahús. Einungis voru opnar nokkrar brauða- og mjólkurbúðir ' stuttan tíma, svo og lyfjabúðir. SUNNUDAGSBLAÐIÐ Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ingólfur Kristjánsson. Stórholti 17. Bími 16151. Boz 1127. AFGREIÐSLA: Hverfisfötu 8—10. Sími 14900. Prentsmiðja AlþýOublaOsixu.

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.