Sunnudagsblaðið

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Sunnudagsblaðið - 01.11.1959, Qupperneq 9

Sunnudagsblaðið - 01.11.1959, Qupperneq 9
varðveita á hinn ágætasta hátt alla þá hluti er lagðir voru í kurg- aninn. Á hinn bóginn olli klaka- hellan hinum mestu erfiðleikum fyrir þá, er að uppgreftrinum stóðu. Þannig urðu þeir að dæla heitu vatni niður í gröfina, til þess að þíða hinn meira en tvö þúsund ára gamla ís, áður en þeim þýddi að koma til skjalanna með graftól sín og rannsóknir. Nú var ekkert vatn til á staðnum og varð að sækja það um óravegu. En fyr- ir þrotlaust erfiði og seiglu tókst einnig að leysa þetta vandamál, og nú var loks hægt að snúa sér að því að ná upp hinu mikla og margvíslega innihaldi grafarinn- ar. í einum hinna ríkmannlegustu kurgana fundust lík af karli og konu. Bæði voru líkin smurð, og vegna þessarar „hraðfrystingar“ höfðu þau geymzt vel. Grafræn- ingjar höfðu að vísu komizt nið- ur í grafhýsið, fyrr á öldum, en þeir höfðu greinilega haft hrað- ann á, og því ekki náð að gera teljandi skaða. Augljóst var að konan hafði verið af evrópskum kynstofni, en karlmaðúrinn Mongóli. Hafði hann verið drepinn með kylfu- höggi, en auk þess hvirfilfleginn ' og höfuðkúpan opnuð. Liggur beinast við að halda að hér hafi verið um að ræða höfðingja er fallið liafi í stríði. Hann var náuð- rakaður, en svo einkennilega hef- ur verið um búið, að við graf- lag'ninguna heiur honum verið bundið gerviskegg úr hrosshári. Hitt var þó enn merkilegra, að hann var búinn miklu og fjöl- breyttu hörundsflúri. Þannig voru báðir handleggir, hérðar, nokkuð af brjósti hans og' annar fótur, al- . sett einkennilegum dýramyndum. Flest þeirra- -eru að-vísu úr liug- myndaheiminum einum, en inn- _anux±i;:'fiiiiiast eðli'Iégái? inynd-^i - STJNNUDAGSBLAÐIÐ ' ir, m. a. af geithafri og þó ótrú- legt megi virðast, er þarna mynd af stórum fiski, sem auðsjáanlega á að vera styrja. Líkin höfðu verið lögð í kistur, sem holaðar voru út úr risavöxn- um lerkitrjám. Og þær hafa varð- veitzt svo vel, að enn má sjá hvert einasta axarfar í viðnum. Er því líkast sem trén hefðu verið til- höggin fyrir nokkrum mánuðum síðan, en ekki tvö þúsund árum. Bæði inni í timburgrafhýsinu og utan við það var hrúgað upp alls konar góssi, — og allt sem lík- í’æningjarnir höfðu eftir skilið, var svo áð segja alveg óskemmt. Skrá yfir alla þessa muni, myndi ná yfir’margar blaðsíður, því til þessarar jarðsetningar hafði ekkert verið sparað. Hér voru vágiiar, húsgögn, hestar og reiðtygi, klæðnaður og dýrindis ábréiður. Hér lágu hlið við hlið einföld og frumstæð áhöld og glæsileg listaverk. Það var aðeins ein tegund vöru, sem hér var spar lega með farið, sem sé gripir úr málmi'. Gull og silfur höfðu ræningj- arnir haft á brótt með sér, en yf- ii-leitt vantar hér einnig alla ein- ' faldari hluti úr málmi. Ef klak- inn hefði ekki varðveitt allt sem hér er úr tré, beini, leðri, flóka og fataefnum, væri naumast um áð' ræðá éinn einasta hlut, er veitt gæti fræðslu um jarðsetningu þessa höfðingjá né mikla og merki lega list Skýþa. Munir ' úr tré eru langflestir. Hér er að finna beizli, múla, söðla og önnur reiðtygi, og eru þau langflest prýdd snilldarlegum út- skurði. í höfuðatriðum eru reið- tygin af sömu gerð og þau, sem enn erú notúð. Er ljóst af því, að þegar frá eru 'táli-n ístöð og spor- ar, hafa meiiri verið búnir að finna upp og teknir að nota nærri sams koriár reiðskap, þrjú til fjög- -ur hundruð ániin fyrir fæðingu “>■ 601 Krists, og reiðmenn vorra tíma. En skreyting á þessum áhöldum ofan úr Altaífjöllum er langtum meiri. Meðal þeirra muna einstakra sem mest ber á, er marglitt vegg- teppi afar stórt. Er það m rgir metrar á hæð og hefur að líkind- um hangið í tjaldi höfðingjans. Á því getur að líta ríðandi mann. Hann hefur svart og snyrtilegt hár, laglegt og hermannlegt yf- irskegg. Treyja hans er skærbiá, en gulur hálsklútur með dökkum deplum blaktir aftur af herðum hans. Reiðbuxur og fótabúnaður er hvort tveggja gulleitt með blá- um röndum. Hesturinn er fagur- vaxinn með vel klippt fax og fléttað tagl. Hann er með beizli, tauma, bringuólar, hnakk og reiða. Fram undan þessum glæsi- búa riddara og reiðskjóta hans tígulegum, situr kona 1 hásæti. Er hún klædd síðri skikkju í bláum og gulum lit, og heldur á tré eða grein í hendi sér, með bláum, rauðum og grænum blómum. Allt teppið er sett saman af slíkum myndköflum og unnið úr marglitum flóka, sem var aðal- vinnsluefni hirðingjanna. ■ Annars eru marglitar flókasam- setningar í tölu hinna fegurstu og séi'kennilegustu listmuna, sem fundizt hafa í ísgröfunum frá Pasyrik. Þar má sjá dreka og vængjuð tígi'isdýr, þar eru stíl- gerð undradýr við hliðina á ná- kvæmum myndum náttúrlegra dýra. Hér víkja allar listastefnur fyrir einföldum staðreyndum. Og hér sjáum við í sömu gi'öf og úr sama efni, dýriaskreytingar frá ýmsum tímabilum og. ólíkum. Einkum virðast elgur og hjört- ur hafa verið uppáhaldsfyrir- myndir listamanna þeirra. Oft eru þeir myndaðir í voldugu stökki, þar sein höfuðið með geysilegu hoi'naflúri, er reist upp ogf aftur .. . . Framh. á bls. 607.

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.