Sunnudagsblaðið - 01.11.1959, Side 12

Sunnudagsblaðið - 01.11.1959, Side 12
604 SUNNUDAGSBLAÐIÐ irinn og þrýsti hönd mína inni- lega. — Leyfið mér að þreifa á slagæðinni. .. Sjáum til! Þér hafið sótthita ... en þó er ekki hægt að sjá það á svip yðar. Að- eins meiri gljái í augum yðar en venjulega. Allt í einu kom skriða af lausa- grjóti niður fyrir fætur okkar með miklum hávaða. Hvað var nú þetta? Grúsnitskí hafði hras- að. Grein er hann hélt sér í, hafði látið undan og hann hefði fallið aftur yfir sig, ef aðstoðarmenn hans hefðu ekki gripið í hann og stutt hann. — Gætið yðar! kallaði ég til hans. — Fallið nú ekki of snemma niður fyrir. Þetta var illur fyrir- boði. Minnist Júlíusar Sesars. Loksins vorum við allir komnir upp á þennan þverhnípta klett. Staðurinn var þakinn fínum sandi og kjörinn til einvígis. Allt í kringum okkur hófust fjalla- tindarnir eins og ótölulegir her- skarar, huldir gullinni morgun- þoku til hálfs. Og í suðurátt reis Elbrús, hið mikla hvíta bákn og lokaði síðasta hlekknum í keðju ísi bryddra brúna, en milli þeirra hrönnuðust skýin á hægri ferð til vesturs. Ég gekk fram á brúnina og gægðist niður. Það lá við að mig sundlaði, niðri í gjánni var allt dimmt og kalt, eins og í dauðra manna gröf. Mosavaxnir urðar- jaxlarnir sem óveður og líðandi stund hafði dreift út, um allt þar niðri, virtust bíða bráðar sinnar. Staður sá, er einvígið skyldi fara fram á, var svo að segja rétt- ur þríhyrningur. Frá horni því er að gjánni vissi, mældum við sex skref og ákváðum að sá er fyrr ætti að mæta skoti andstæðings- ins, skyldi standa fremst á klett- nefinu og snúa baki að gjánni. Svo framarlega sem hanp félli j. ,',.Tíf!>.Ú'Iv ekki, áttum við að skipta um stöður. Ég hafði einsett mér að láta Grúsnitskí hafa öll forréttindi. Ég ætlaði að reyna hann. Verið gat að í huga hans kviknaði neisti af göfuglyndi, og færi svo, myndi allt snúast á hinn bezta veg .. . Ég ætlaði að ávinna mér fullan rétt til að sýna honum enga vægð, ef hamingjan yrði mér hliðholl. Og myndu þeir ekki vera fleiri, sem hefðu hugsað máiið á sama hátt? ... En hégóma girnin og skapleysi hans sátu í fyrirrúmi, því var nú verr. — Viljið þér varpa hlutkesti, læknir? sagði höfuðsmaðurinn. Læknirinn tók silfurpening upp úr vasa sínum og hélt honum á loft. — Töluna! kallaði Grúsnitskí fljótmæltur, eins og maður, sem vakinn er með vinsamlegu hnippi. — Krónuna, mælti ég. Peningurinn flaug upp í loft- ið og féll glamrandi niður, allir þyrptust utan um hann. — Þér höfðuð heppnina með yður, sagði ég við Grúsnitskí. — Þér eigið að skjóta fyrst. En minnist þess, að ef þér ekki drep- ið mig, þá mun mínu skoti ekki geiga, — það legg ég' drengskap minn við. Hann roðnaði, hann skammað- ist sín fyrir að skjóta niður vopn- lausan mann, Ég horfði hvasst í augu honum, og andartak virtist hann vei’a að því kominn að fleygja sér fyrir .fætur mér og biðja mig fyrirgefningar. En hver skyldi geta komið sér að því að kannast við svo forsmán- arlega fyrirætlan? Hann átti þess eins úrkosta, — að skióta út ídoftið: Ég' var sanm;. færðpr um a.ð. hann myndi taka þann þost.' Það vár ekki nema áðeins eitt, sem varnað gát hon- um þess, að beita slíkri aðferð. Óttinn við að ég myndi þá krefj- ast nýs einvígis. — Nú er tækifærið, hvíslaði læknirinn og kippti í ermi mína. — En ef þér segið þeim nú ekki að okkur séu kunnar fyrirætlanir þeirra, er allt glatað. Sjáið þér, nú er hann farinn að hlaða byss- una ... Ef þér segið ekkert sjálf- ir, þá geri ég það .. . — Nei, ekki fyrir nokkra muni, læknir, svaraði ég og hélt hendi hans fastri. — Þá mynduð þér eyðileggja allt saman. Þér hafið lofað mér því að viðlögðum dreng skap, að blanda yður ekki í þær sakir ... Skiptið yður ekkert af því. Hver veit nema ég óski þess, að vera skotinn? ... Hann leit forviða á mig. — Já, það væri annað mál! . • • En þá rriegið þér ekki áfellast mig í öðrum heimi... Höfuðsmaðurinn var nú búinn að hlaða skammbyssurnar og fékk Grúsnitskí aðra, um leið og hann hvíslaði einhverju brosandi að honum. Hina fékk hann mér. Ég tók mér stöðu á klettnefinu, * spyrnti vinstri fæti fast í klett- inn og laut ofurlítið áfram, til þess að falla ekki aftur á bak, ef svo kynni að fara að ég særðist að- eins lítið eitt. Grúsnitskí tók sér stöðu and- spænis mér og þegar merki var gefið, tók hann að lyfta byssunni- Knén skulfu undir honum. Hann miðaði beint á enni mér. Það sauð nið'ri í mér ósegjan- leg heift. Alit f einu iækkaði hann byssU- hlaupið' og sneri sér að einvígiS' votti sínum, en andlit hans Val' náhvítt sem kalkaður veggur. —Ég get það ekki, mælti hann með hljómlausri röddu. — Ragmenni, svaraði höfuðS' maðuripn. Allt í einu hljóp' skotið úr bysS' unni;. Kúlan stráukst "við hnéð á mér. Ég steig ósjálfrátt eitt’ eða í

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.