Sunnudagsblaðið - 01.11.1959, Blaðsíða 16

Sunnudagsblaðið - 01.11.1959, Blaðsíða 16
' 608 r*3 SUNNUDAGSBLAÐIÐ-' Fágætum forngripum úr sögu Egypta hinna fornu gerist nú ærið hætt í söfnum. Mikið reiðarslag var það í sum- ar, er veldissproti Tutank hamens hvarf í Kairo á- samt nokkrum öðrum velöisprotum. En nú frétiist að gullstytta af guðinum Set hafi verið stoiið ásamt 29 öðrum dýrgripum frá fornri frægðartíð úr safninu í Tounalgbal í Efra-Egypta landi. • • Kínverj ar hafa byrj að á tilraunum ' með bíla- framleiðslu. Þar hafa aldrei fyrr verið fram- leiddir bílar. Tilrauna- bíll þeirra eru 6 sæta fólksbifreið með 8 strokka vél. Tegundar- heitið er „Rauði fáninn“. • • Oka,sha, menntamála- ráðherra Egypta hefur boðið helminginn af öll- um gömlum minjum í Efra-Egyptalandi hverj- um þeim, sem fundið get- ur ráð. til að bjarga þeim frá þeirri hættu, sem bygging Aswanstíflunnar setur þær í. Hánn heíur einnig veiít sérstökum löndum leyfi til að grafa eftir fornminjum, þar sem ekki er hætta á ferð- um vegna stíflugerðar- innar, upp á þau kjör að mega eiga helminginn. • • Nú er hægt að fá að raka sig fyrir ekki neitt í leigubílum í NewYork. Bílstjórarnir hafa látið setja rakvél í bílana, og einnig er þar rakspegill, sem festur er með sþennu aftur fyrir hnakkann. — Þetta er gert fyrir önnum kafna kaupsýslumenn, — sem þurfa að mæta með nýrakaða kjálka á fund- um víðs vegar um borg- ina, en hafa nauman tíma. • • MIKLAR hörmungar dundu yfir í Indlandi í haust, er flóð eyddu þar byggðir. Eitt af því, sem þá gerðist óvanalegt var, að kona fæddi barn uppi í trjákrónu. Þangað hafði hún leitað til þess að forða lífi sínu, og komst ekki niður úr trénu vegna flóðanna. SUNNUDAGSBLAÐIÐ Fylgirit Alþýðublaðsins. : Hverfisgötu 8—10 — Sími 14900 Prentsmiðja Alþýðublaðsins ÞAÐ getur stundum verið ærið hættulegt að vinna við háar byggingar, eins og t. d. þessa, sem sést hér á mýndinni. Ilún ér 18 hæða skýjakljúfur í London. Miirg dæmi eru um, að menn hafi við slíka vinnu, hátt yfir jörð, misst fótanna og hrapað, og ]iá var ekki að spyrja að endalokunum. Eitt einasta andar- tak án fyllstu aðgæzlu og voðinn er vís. En nú er fárið að nota sérstök öryggisbelti, sem mennirnir eru með. Beltið er tryggilcga spennt um manninn miðj- an og fest um slár, sem ekki bila. Annar mannanna á myndinni hefur fjórum sinnum dottið fram af. Og hann mundi ekki. hafa fallið nema einu sinni, cf hann hefði verið beltislaus.

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.