Sunnudagsblaðið - 03.04.1960, Blaðsíða 1
llllÉI&i::
í %
FORSÍÐUMYNDIN okkar er að þessu sinni frá
Kína og gæti vakið okkur til umhugsunar, áður en við
setjumst við matborðið og snæðum ríkulega sunnu-
dagsmáltíð. Maðurinn er að seðja hungur sitt á trjá-
berki og svipbrigði hans segja okkur meir en orð fá
lýst.
Þó að mömium kunni að þykja það ótrúlegt, er
það staðreynd, að 600 milljónir af 900 milljónum
barna í heiminum svelta. Aðeins þriðjungur barn-
anna getur borðað sig södd dag hvern. Og þó er sult-
urinn ekki eina hörmungin, sem þjáir þessi óham-
ingjusömu börn. Þau eiga oft við harðneskjuleg skil-
yrði að búa, hafa naumast leppana utan á sig og
þjást tíðum af ýmiss konar sjúkdómum.
Helmingur mannkynsins býr í Asíu, sem er að-
eins 16% af flatarmáli jarðarinnar. Það er einmitt
þarna, sem hungrið er mest, enda eru tekjur allra
Asíubúa aðeins 10% af heildartekjum mannkynsins.
Af þessum sökum verður margur Asíubúi að naga
trjábörk til þess að verða ekki hungurvofunni að
bráð.
• • •-Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur fengið
það hlutverk að létta böl sveltndi og þjáðra barna og
búa í haginn fyrir þau í framtíðinni. Hún var sett á
stofn 1946 til þess fyrst og fremst að hjálpa 40 mill-
jónum evrópskra barna, sem stríðið hafði leikið grátt.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur unnið gott
verk, en þrátt fyrir alla viðleitni sveltur enn þriðja
hvert barn í heiminum.
SVERFUR AÐ...
HAUSTNÓTT
SÖKKÓLFSDAL
Fiúsögu'páiiur eítir Jón Helgason á hls. 6 og 7