Sunnudagsblaðið - 03.04.1960, Blaðsíða 2
,sem var
brennd
ÞEGAR skáldsaga hinnar
ungu frönsku skáldkonu,
Christiane Rocheforts, „Le
repos du guereier" (Hvíld her-
mannsins) kom út í Frakk-
landi fyrir nokkru, varpaði
hún skugga á nýjustu bók
Francois Sagan. Sumir tóku
jafnvel svo djúpt í árina, að
þeir sögðu að bók Sagan væri
eins og skólastíll í saman-
burði við sögu Rocheforts.
Saga hennar var talin
hneyksli frá upphafi til enda.
Efni hennar er ósköp einfalt
— líf manns og konu, þar sem
hún tærist upp af þjáningu,
en hann af alkóhóli. Það var
heldur ekki efnið, sem olli
hneykslan, heldur meðferð
þess. Christiane Rocheforts
skrifar svo skýrt og raunsætt,
að lesendum verður hverft
við.
En það kom í ljós, að bók-
in er arinað og meira en
hneyksli og góður söluvar --
ingur, þegar vikublaðið ,-T
Express“, veitti' skáldkonu’ i
hin eftirsóttu verðlaun „F s
La Nouvelle 'Vague“. Ve -
laun þessi eru veitt ung- 1
rithöfundum, sem talið er í
hafi samið eitthvað verul *
frumlegt, eitthvað lífvænlr .
Verðlaunin hafa ekki aðeir í
för með sér heiður og fé l
handa höfundinum, hel ~
eykst salan á verðlauna! c
hans um meira en helminr
Danskur blaðamaður F i
fyrir skemmstu ChristL ?
Rocheforts í París og átt.i i
hana viðtal. Glefsur úr j. í
fara hér á eftir:
„Á Place de Ternes beif *
í meira en hálftíma, án þ ;
að koma auga á nokkurn, s \
kom heim við lýsingu ung' i
Rochefort á sjálfri sér. F i
hefur lýst sjálfri sér þanr :
Framh. á bJs.
Kðffisopinn indæll er...
ÞEIR sem sitja yfir kaffi-
bolla, er þeir líta í þessar
línur, hefðu kannski gaman
af að vita dálítið um þennan
ágæta og vinsæla drykk.
Kaffirunninn vex villtur
x Austur-Afríku, en er rækt-
aður víða um heim. Rauð
ber hans eru þurrkuð,
brennd og möluð, eins og
kunnugt er, en síðan er vatni
hellt yfir kaffið til þess að .
fá fram hið hressandi og ilm .
ríka efni, sem er f kaffi-
baununum. Efnin- í brawwhi-3"
kaffi eru þessi: 0,7—2 pct.
koffein, 4 pct klórógensýra,
15 pct fituefni, 15 pct eggja-
hvítuefni, 3 pct sykurteg-
undir, 4 pct aska og lítill
hluti af „æterískum olíum“
sem veldur ilm kaffisins.
Þetta er ekki svo lítið, sem
maður svolgrar ofan í sig,
ef maður hugsar um það
nánar, en hvað sem því líð-
ur hefur eiturefnið koffein
hressandi og upplífgandi á-
hrif. Það eyðir þreytu. Það
er varla mögulegt, að menn
verði algjörlega forfallnir
kaffineytendur, eins og til
dæmis brennur við, þegar
morfín og slík eiturefni eru
annars vegar. Það er líka
talið mjög ósennilegt, að
nokkrir bollar af kaffi á dag
hafi eyðileggjandi áhrif á
líffærin. /
Samt sem áður líður
mörgum undarlega og óþægi
lega, ef þeir fá ekki sitt kaffi
eins og þeir eru vanir.
Sama er að segja um te —
ævagamlan austurlenzkan
drykk, sem einnig inniheld-
ur koffein, 3,5—4 pct. Auk
.i blöðum terunn-
a«£dS-*iá$; pct af gervisýru,
4 pct kolefni,
6'þulT aMWU'g 10 pct sellulósi.
Því sterkara, sem menn laga
sitt kaffi eða te, því meira
eitur er í drykknum. í mörg
ár hafa menn álitið, að koff-
ein væri hættulegt fyrir
hjartað, en læknarnir álíta
nú, að það sé ekkert sem
heitið geti. Það er óhætt að
fullyrða, að kaffi og te sé
ekki sérlega skaðlegt, enda
þótt læknar, við suma sjúk-
dóma, til dæmis magasár,
banni sjúklingum að drekka
þessa drykki.
Mest eru áhrif drykkj-
anna á taugakerfið. Menn
verða hressir og endurnærð-
ir eftir að hafa drukkið
nokkra bolla af kaffi eða te
og það orsakast mestmegnis
af örvandi áhrifum koffeins-
ins á ákveðna ganga í heila-
berkinum. Prófessor War-
burg segir um áhrif kaffis-
ins:
„Það léttir mönnum á-
hyggjur, og gerir menn mál-
ugri, eykur hugsanatengsl
og ímyndunarafl. Koffeinið
kemur mönnum sömuleiðis
í þægilega stemningu. Ann-
ars eru áhrif þess mjög mis-
jöfn, eftir því hvernig menn
eru gerðir. Til eru þeir, sem
þamba kaffi þindarlaust, en
verða aldrei varir við nein
af ofangreindum áhrifum“.
Einn bolli af kaffi eða tei
inniheldur 5—8 sentígrömm
af koffein, en venjulega er
reiknað með, að á að. gizka
10 sentígrömm þurfi til þess
að áhrifanna gæti. Og þá ér
bezt að taka það fram undir
lokin, að þeir, sem drekka
óhemjumikið ,af kaffi, geta
fengið öðru hverju tíðan
hjartslátt, svita og svo fram
vegis, — með öðrum orðum,
kaffieitrun. Rithöfundurinn
Balzac dó, eins og kunnugt
er, úr kaffieitrun.
En hvað um það. „Kaffi-
sopinn indæll er, éykur fjör
og skapið kætir...“
£ Sunnudagsbíaðið