24 stundir - 20.11.2007, Blaðsíða 18
Markaðs-
hlutdeild
Vodafone
hefur vaxið á
hverju ári,
bæði á ein-
staklings-
markaði og fyrirtækja-
markaði.
Vegna fréttar á bls. 22 í dag-
blaðinu 24 stundum á föstudag,
undir fyrirsögninni Vodafone og
Síminn kjósa kyrrstöðuna á
markaðnum, vill Vodafone koma
eftirfarandi á framfæri:
Allt frá stofnun hefur Voda-
fone leitt samkeppni á íslenskum
fjarskiptamarkaði. Sú samkeppni
hefur verið hörð og skilað neyt-
endum miklum ávinningi. Hún
hefur m.a. birst í aukinni þjón-
ustu við neytendur og mun
lægra verði.
Markaðshlutdeild Vodafone
hefur vaxið á hverju ári, bæði á
einstaklingsmarkaði og fyrir-
tækjamarkaði. Nýlegir samningar
Vodafone við mörg af stærstu
fyrirtækjum landsins, t.d. Glitni
og Reykjavíkurborg, eru til
marks um það en slíkir samn-
ingar eru aðeins gerðir að und-
angengnum útboðum þar sem
hart er barist um viðskiptin.
Hörð samkeppni
Samkeppnin á einstaklings-
markaði hefur einnig verið hörð,
þar sem verð á fjarskiptaþjón-
ustu hefur lækkað og þjónustu-
stigið hækkað. Hingað til hefur
sú samkeppni þó að mestu ein-
skorðast við suðvesturhluta
landsins, en fyrirhuguð sókn
Vodafone á landsbyggðina mun
hreyfa við markaðnum þar sem
neytendur hafa ekki getað valið
milli þjónustuaðila. Reyndar hafa
íbúar á völdum svæðum þegar
notið góðs af slíkri breytingu,
enda hefur Vodafone að und-
anförnu boðið þjónustu sína víð-
ar en áður.
Örugg farsímaþjónusta
Dylgjur um samráð keppi-
nauta á fjarskiptamarkaðnum
eru fráleitar en að öðru leyti ekki
svaraverðar.
Vodafone á Íslandi er fjar-
skiptafyrirtæki í eigu Teymis hf.
sem skráð er í Kauphöll Íslands.
Starfsmenn Vodafone eru um
350 talsins og þjónusta við-
skiptavini á heimilum og hjá fyr-
irtækjum um land allt með far-
síma, síma, nettengingar og
sjónvarp. GSM-dreifikerfi Voda-
fone nær til 98 prósent lands-
manna og með samstarfi við
Vodafone Group, eitt öflugasta
fjarskiptafyrirtæki í heimi, er
viðskiptavinum Vodafone tryggð
örugg farsímaþjónusta um allan
heim.
Höfundur er forstöðumaður
almannatengsla Vodafone.
Dylgjur um samráð fráleitar
UMRÆÐAN aHrannar Pétursson
Síminn óskar þess að fá að koma
að sínum sjónarmiðum vegna
greinarskrifa Þórðar S. Júlíussonar í
24 stundum föstudaginn 16. nóv-
ember um samkeppni á fjarskipta-
markaði á Íslandi. Auk þess mót-
mælum við harðlega þeim
órökstuddu sleggjudómum sem
Einar Kristinn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hive, setur fram í
blaðinu undir þeim formerkjum að
Síminn og Vodafone séu með „klárt
samráð í gangi“ eins og ein millifyr-
irsögn greinarinnar gefur til kynna.
Grein Þórðar:
Hann segir í grein sinni að minni
leikendur á markaði ásaki stóru fyr-
irtækin um vítaverðar samkeppnis-
hömlur. Við viljum taka skýrt fram
að engar slíkar kærur hafa verið
bornar á Símann til þessa enda eng-
ar forsendur fyrir slíkum kærum.
Undir millifyrirsögninni „Hægt,
dýrt og takmarkað“ er því haldið
fram að gæði nettenginga á Íslandi
séu með því minnsta sem þekkist á
meðal OECD-ríkjanna. Þessum
niðurstöðum erum við hjá Síman-
um ekki sammála. Síminn byrjaði
að veita ADSL-þjónustu árið 1999
en þá þótti mönnum 256 kb/s ásætt-
anlegur tengihraði og mest var hægt
að veita 8 Mb/s. Árið 2005 var
ADSL-kerfið uppfært í kerfi sem
nefnt er ADSL2+ og er mesti hrað-
inn þar 25 Mb/s. Nú eiga 83 prósent
af heimilum á Íslandi kost á að
tengjast ADSL2+ kerfi Símans.
Hraðinn á ADSL fer eftir því hve
símalínurnar eru langar, á stuttum
línum er hægt að ná miklum hraða
en litlum á löngum línum. Símalín-
ur í þéttbýli á Íslandi þykja afar
stuttar sem þýðir að meirihluti
heimila getur fengið meira en 15
Mb/s með ADSL2+ tækni. Með svo-
nefndri VDSL-tækni getur hraðinn
farið yfir 100 Mb/s en þá þurfa lín-
urnar að vera mjög stuttar. Hægt er
að setja VDSL-búnað upp í götu-
skápum sem eru mjög nálægt heim-
ilum og veita þannig mikinn tengi-
hraða án þess að valda nokkru
jarðraski, enda eru fyrirliggjandi
símalínur nýttar. Síminn hefur þeg-
ar hafið tilraunir með VDSL-teng-
ingar á höfuðborgarsvæðinu sem
lofa góðu.
Fá ekki auglýstan hámarks-
hraða
Skýrsla OECD, sem nokkuð hef-
ur verið til umræðu, byggir niður-
stöður sínar á auglýstum bitahraða
frá fjarskiptafyrirtækjum og teljum
við það einkennilega aðferðafræði
því hún segir ekkert um raunveru-
legan meðalhraða í hverju landi.
Enda kemur skýrt fram hjá OECD
að viðskiptavinir fái almennt ekki
þennan hámarkshraða sem auglýst-
ur er. Einnig er sá hraði sem aug-
lýstur er aðeins aðgengilegur á
ákveðnum stöðum. Þrátt fyrir að Ís-
land sé eitt mesta dreifbýli í heimi er
aðgengi að ADSL-þjónustu með því
mesta í heimi eða 94 prósent. Að-
gengi að ADSL2+ er líklega það
mesta í heimi, eða 83 prósent, en
slík tækni gefur við bestu aðstæður
allt að 25Mb/s eins og fram er kom-
ið. Einnig er fjöldi ADSL-viðskipta-
vina á hvert heimili sá mesti í heimi.
Verðlagningin tekur mið af miklu
dreifbýli þar sem þrír íbúar eru á
ferkílómetra, mjög litlum markaði
og háum fjarfestingakostnaði. Ekki
má gleyma því að kostnaður við int-
ernet-útlandasamband er allt að 10
sinnum meiri en á meginlandi Evr-
ópu.
Í grein sem birtist í 24 stundum
þann 8. nóvember er kvartað yfir
því að hér á landi sé einsleit tækni
notuð og ekki samkeppni milli
tæknilausna enda vanti hér kapal-
kerfi. Þessu má í raun snúa við og
fagna því að hér séu ekki kapalkerfi
enda eru internettengingar um kap-
alkerfi mun lakari en um DSL. Þar
ríkir miklu meiri samnýting band-
víddar, sem veldur lakari upplifun
viðskiptavina.
Íslendingar almennt ánægðir
Vísað er til þess að Ánægjuvog
Capacent hafi lækkað um 2,2 pró-
sentustig frá árinu 2000 til 2007 á
farsímamarkaði. Hérna viljum við
benda á að árið 2005 gerði Capacent
veigamiklar breytingar á fram-
kvæmd Ánægjuvogarinnar þar sem
bæði spurningum og kvarða var
breytt. Það hafði í för með sér veru-
lega lækkun gilda fyrir nær alla
markaði. Ánægjuvogin á farsíma-
markaði var í 61,9 stigum árið 2005
en hækkaði upp í 64,4 stig árið 2006
sem gefur til kynna að viðskiptavin-
ir á Íslandi séu almennt ánægðari
með farsímafyrirtækin árið 2006 en
2005, sem er afar ánægjuleg þróun.
Nýlega kom fram í Þjóðarpúlsi
Gallup könnun á því á hvaða svið-
um fólk teldi mesta samkeppni
ríkja. Var íslenski fjarskiptamarkað-
urinn þar í fyrsta sæti á undan mat-
vörumarkaðnum, flugsamgöngum
til og frá landinu, banka-, trygginga-
og eldsneytismarkaðnum. Upplifun
almennings virðist því alveg öfug
við fullyrðingar sem fram komu í 24
stundum.
Viðtal við Einar:
Framkvæmdastjóri Hive fer vís-
vitandi með rangt mál hvað viðvík-
ur umfjöllun hans um HÍN. Til-
gangur HÍN er að annast skráningu
fluttra símanúmera og er ekki gerð
krafa um arðsemi af rekstri félags-
ins. Öllum fjarskiptafélögum, sem
hafa heimild til fjarskiptastarfsemi
og hafa fengið úthlutað símanúm-
erum hjá PFS, stendur til boða að
gerast hluthafar í félaginu á jafnrétt-
isgrunni, þ.e. með jafnan eignarhlut
á við þau sem fyrir eru. Nýlega gerð-
ist Nova ehf. einn þriggja eigenda
HÍN með kaupum á hlutafé í félag-
inu. Nova á þriðjungshlut í félaginu,
jafnmikið og Síminn og Vodafone.
HÍN hefur átt í viðræðum við Hive
og fleiri aðila sem hefur verið boðið
að eignast hlut í félaginu á sömu
forsendum og Nova. Ásakanir um
yfirverð eru því ekki á rökum reistar.
Aðgangur að farsímakerfi
Því er haldið fram að Síminn beiti
samkeppnishindrandi aðgerðum
gegn því að aðrir noti farsímakerfi
hans. Síminn hefur um árabil veitt
farsímafyrirtækjum aðgang að far-
símakerfi sínu með gerð reikisamn-
inga. Síminn hefur birt viðmiðunar-
tilboð um reiki sem stendur öllum
farsímafyrirtækjum til boða. Þá er
fjarskiptafyrirtækjum mögulegt að
veita NMT-þjónustu með gerð end-
ursölusamnings við Símann. Í ná-
lægri framtíð mun Síminn svo bjóða
fjarskiptafyrirtækjum að gera samn-
ing um sýndarreiki (MVNO) og
möguleika á endursölusamningi um
GSM-þjónustu Símans. Því má
segja að fjarskiptafyrirtæki geti valið
úr leiðum vilji þau bjóða farsíma-
þjónustu yfir farsímakerfi Símans.
Staðhæfing um að Síminn hindri
aðgang annarra fyrirtækja að far-
símakerfi sínu á því ekki við rök að
styðjast.
Höfundur er forstöðumaður
samskiptasviðs Símans
Engar kærur bornar á Símann
UMRÆÐAN aLinda Björk Waage
Þrátt fyrir að
Ísland sé eitt
mesta dreif-
býli í heimi er
aðgengi að
ADSL-þjón-
ustu með því
mesta í heimi eða 94 pró-
sent.
24stundir/Sverrir
Gott aðgengi Aðgengi að
ADSL2+ er líklega það mesta
í heimi, eða 83 prósent, en
slík tækni gefur við bestu að-
stæður allt að 25Mb/s .
18 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 24stundir
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
73
5
Heimsferðir bjóða þér nú til glæsilegrar vetrarveislu á Kanaríeyj-
unni vinsælu Tenerife í lok janúar og byrjun febrúar. Tenerife,
sem er stærst Kanaríeyjanna, býður frábærar aðstæður fyrir
ferðamanninn; fallegar strendur, glæsilega gististaði, fjölbreytta
afþreyingu og stórbrotna náttúru. Við bjóðum glæsilegar ferðir
á ótrúlegum kjörum og vinsæla gististaði.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta og íbúða í boði
á þessu verði!
39.995 kr.
verð frá aðeins
- Ótrúleg sértilboð á síðustu sætunum29. janúar og 5. febrúar
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
0
73
6
Vetrarveisla á
Tenerife
*
Ótrúlegt verð
El Cortijo – íbúðir
Kr. 39.995
*) Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára, í viku, 29. janúar.
Brottför 5. feb. kr. 4.000 aukalega.
Kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð í viku,
29. janúar. Brottför 5. feb. kr. 4.000
aukalega.
Aguamarina Golf - íbúðir
Kr. 43.895
Netverð á mannm.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára, í viku 29. janúar. Brottför 5. feb.
kr. 4.000 aukalega.
Kr. 55.490
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð í viku, 29.
janúar. Brottför 5. feb. kr. 4.000 aukalega.
Hotel Jacaranda
með hálfu fæði
Kr. 69.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með
hálfu fæði, 29. janúar, vikuferð. Brottför
5. feb. kr. 4.000 aukalega.
Hotel Bahia Principe
með allt innifalið
Kr. 89.190
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með
öllu inniföldu, vikuferð, 29. janúar. Brottför
5. feb. kr. 4.000 aukalega.
Sértilboð!