Sunnudagsblaðið - 22.12.1963, Side 15
að rúmi forsprakkans, og þeg-
EITT Iiaust fóru sex menn í
eftirleit. Var fyrirmaður ferð-
arinnar hraustmenni og full-
hugi mikill. Þegar þeir voru
komnir í fjarlægustu leitir,
hrepptu þeir byl, svo þeir villt-
ust og vissu ekki, hvar þeir
fóru. Eftir langan tíma fundu
þeir, að halla tók undan fæti.
Komu þeir þá í dalverpi eitt
og fundu því næst bæ fyrir sér.
BÖrðu þeir að dyrum, Karl einn
kom til dyra, ljótur mjög og
illilegur. Kvað hann það ný-
lundu, áð menn sæktu til
byggða sinna og forvitnuðust
um þær, og leit hann óhýru
auga til gesta. Foringi þeirra
varð fyrir svörum. Sagði hann,
hvernig á stóð um ferðir
þeirra. Brauzt hann inn og þeir
félagar hans með honum, an
þess karl gjörði að leyfa það
eða banna. Þegar þeir höfðu
setið um stund, var þeim borið
kjöt á skálum, gjörði það kona
ein ungleg, en döpur mjög. —
Stóð karl á meðan í skáladyr-
um. Hún sagði í hálfum hljóð-
um: „Borðið þið við þann barm-
inn, sem frá ykkur snýr.” Þeir
þóttust sjá, að við þann barm-
inn var sauðakjöt, en manna-
kjöt við hinn. Síðan bar stúlk-
an af borði og dró af þeim vos-
klæði. Sagði hún þá enn í
hálfum hljóðum: „Verið þið
varir um ykkur, farið- ekki af
nærklæðum og sofnið ekki.” —
Um nóttina var tunglskin. Svaf
forsprakki eftirleitarmanna í
rúmi, sem skugga bar á, og
sagði hann lagsmönnum sínum,
að þeir skyldu ekki bæra á sér,
hvað sem á gengi, fýrr en hann
kallaði til þeirra.
Stundarkorni eftir að þeir
voru lagztir niður, kom karl
inn, gékk hann að rúmi eins
og þreifaði á brjósti hans og
sagði: „Magurt brjóst, þrek-
laust." Þannig tók hann á þeim
öllum og tautaði líkt fyrir
munni sér. Seinast kom hann
ar liann tók á honum, mælti
hann: „Feitt brjóst, hugmik-
ið.” Síðan brá hann sér út í
horn og greip þar öxi og snéri
að rúmi foringjans. Sá harin,
hvað verða vildi, og vatt sér
ofan úr rúminu, en karl hjó
í rúmið og missti hans. Greip
maðurinn þá öxina og náði
henni af karli. Karl æpti þá
og mælti: „Upp mínir tólf í
andskotans nafni.” Maðurinn
færði þá öxina í höfuð karls,
svo í heila stóð og hann féU,
og mælti: „Upp mínir sex í
Jesú nafni.” Þá opnaðist hurð
á gólfinu niðri, og kom upp
mannshöfuð, en hinn hjó það
af. Banaði hann þeim þar ÖU-
um tólf í kjallaradyrunum.
Síðan fundu þeir kvenmann
þann. er hafði þjónað þeim til
sængur um kvöldið. Var hún
bóndadóltir úr Eyjafirði, er
lcarl hafði stolið og vlldi neyða
til að eiga elzta són sinn, En
henni stóð stuggur af þeim,
mest fyrir þá sök, að þeir drápu
alla, er viUtust til þeirra, og
átu þá. Mikið fundu þeir þar
fémætt, og margt sauðfé var í
dalnum. Kéðist það af, að for-
ingi eftirleitarmanna varð eftir
við annan mann stúlkunni tll
skemmtiinar og til að gæta
fjárins, að það félli ekki um
veturinn, fyrir það að það væri
óhirt. Hinir eftirleitarmennirn-..
ir fóru lieim. Um vorið flutti
maðurinn stúlkuna norður og
átti hana síðan að ráði föður
hennar. Flutti hann síðan allt
það, sem í afdalnUm var, norð-
ur og reisti stórt bú og bjó
þar vel og'lengi.
Upp mínir sex
(Sagnakver
Skúla Gíslasonar).
§ v ALÞÍBUBLAÐJÐ - SUNNUDAGSBÞAU 231