Sunnudagsblaðið - 22.12.1963, Page 15

Sunnudagsblaðið - 22.12.1963, Page 15
að rúmi forsprakkans, og þeg- EITT Iiaust fóru sex menn í eftirleit. Var fyrirmaður ferð- arinnar hraustmenni og full- hugi mikill. Þegar þeir voru komnir í fjarlægustu leitir, hrepptu þeir byl, svo þeir villt- ust og vissu ekki, hvar þeir fóru. Eftir langan tíma fundu þeir, að halla tók undan fæti. Komu þeir þá í dalverpi eitt og fundu því næst bæ fyrir sér. BÖrðu þeir að dyrum, Karl einn kom til dyra, ljótur mjög og illilegur. Kvað hann það ný- lundu, áð menn sæktu til byggða sinna og forvitnuðust um þær, og leit hann óhýru auga til gesta. Foringi þeirra varð fyrir svörum. Sagði hann, hvernig á stóð um ferðir þeirra. Brauzt hann inn og þeir félagar hans með honum, an þess karl gjörði að leyfa það eða banna. Þegar þeir höfðu setið um stund, var þeim borið kjöt á skálum, gjörði það kona ein ungleg, en döpur mjög. — Stóð karl á meðan í skáladyr- um. Hún sagði í hálfum hljóð- um: „Borðið þið við þann barm- inn, sem frá ykkur snýr.” Þeir þóttust sjá, að við þann barm- inn var sauðakjöt, en manna- kjöt við hinn. Síðan bar stúlk- an af borði og dró af þeim vos- klæði. Sagði hún þá enn í hálfum hljóðum: „Verið þið varir um ykkur, farið- ekki af nærklæðum og sofnið ekki.” — Um nóttina var tunglskin. Svaf forsprakki eftirleitarmanna í rúmi, sem skugga bar á, og sagði hann lagsmönnum sínum, að þeir skyldu ekki bæra á sér, hvað sem á gengi, fýrr en hann kallaði til þeirra. Stundarkorni eftir að þeir voru lagztir niður, kom karl inn, gékk hann að rúmi eins og þreifaði á brjósti hans og sagði: „Magurt brjóst, þrek- laust." Þannig tók hann á þeim öllum og tautaði líkt fyrir munni sér. Seinast kom hann ar liann tók á honum, mælti hann: „Feitt brjóst, hugmik- ið.” Síðan brá hann sér út í horn og greip þar öxi og snéri að rúmi foringjans. Sá harin, hvað verða vildi, og vatt sér ofan úr rúminu, en karl hjó í rúmið og missti hans. Greip maðurinn þá öxina og náði henni af karli. Karl æpti þá og mælti: „Upp mínir tólf í andskotans nafni.” Maðurinn færði þá öxina í höfuð karls, svo í heila stóð og hann féU, og mælti: „Upp mínir sex í Jesú nafni.” Þá opnaðist hurð á gólfinu niðri, og kom upp mannshöfuð, en hinn hjó það af. Banaði hann þeim þar ÖU- um tólf í kjallaradyrunum. Síðan fundu þeir kvenmann þann. er hafði þjónað þeim til sængur um kvöldið. Var hún bóndadóltir úr Eyjafirði, er lcarl hafði stolið og vlldi neyða til að eiga elzta són sinn, En henni stóð stuggur af þeim, mest fyrir þá sök, að þeir drápu alla, er viUtust til þeirra, og átu þá. Mikið fundu þeir þar fémætt, og margt sauðfé var í dalnum. Kéðist það af, að for- ingi eftirleitarmanna varð eftir við annan mann stúlkunni tll skemmtiinar og til að gæta fjárins, að það félli ekki um veturinn, fyrir það að það væri óhirt. Hinir eftirleitarmennirn-.. ir fóru lieim. Um vorið flutti maðurinn stúlkuna norður og átti hana síðan að ráði föður hennar. Flutti hann síðan allt það, sem í afdalnUm var, norð- ur og reisti stórt bú og bjó þar vel og'lengi. Upp mínir sex (Sagnakver Skúla Gíslasonar). § v ALÞÍBUBLAÐJÐ - SUNNUDAGSBÞAU 231

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.