Sunnudagsblaðið - 22.12.1963, Side 18
HÍTARDALUR.....
Frh. af bls. 233
rausnarbúi í Hitardal og notið
virðingar í héraðinu. Enda ættin
göfug og auðsæl og Hítardalur
kostajörð.
Næsta dag eftir Mikjálsmessu,
hinn fimmta dag vikunnar, held-
ur Þorleifur Magnusi biskupi
veizlu mikla, hefur húsakostur
verið ærinn, því ætla má, að
þarna hafi verið saman kominn
fjöldi fólks, vart færra en á ann-
að hundrað manns. Er sennilegt,
að biskup hafi þá verið farinn að
húgsa til heimferðar og þetta
verið skilnaðarhófið. Situr biskup
í hásæti innst fyrir miðjum
skálagafli. Honum er svo lýst í
Hungurvöku: „Magnús var vænn
maðr at áliti ok heldr hár maðr
vexti, fagreygr ok vel limaðr,
þýðr ok þekkiligr ok ailra manna
sköruligastr í öllu yfirbragði ok
látgæði. Hann var ljúfr ok lítil-
látr við alla, stórlyndr ok stað-
fastr í skapi, fullræðasamr, frænd
rækinn, margfróðr ok málsnjallr.
Hann reyndist ok vel brugðinn
við. hvárttveggja, búnað ok farar,
ok var ávallt alla menn sættandi,
hvar sem hann var við mál
manna staddr, ok sparði þess
ekki, hvárki orð sín né auðæfi.”
' í veízíu þessari er.vfel veitt og
stórmannlega, mjöður er á borð-
uip; mikill og sterkur, og drukkið
fast, er líður á kveldið. Hefur
biskupi sem öðrum sjálfsagt þótt
drykkurinn góður og kunnað að
meta að verðleikum, enda ekki
með öllu óvanur slíkri risnu, sem
ráða má af frásögn, er varðveitzt
hefur, af veizlu, sem liann sjálfur
hélt Katli biskuþi Þorsteirissyni
á Hólum, og cr á þessa leið: „Én
þá er Ketill byskup var nú orð-
inn vel sjötugr að aldri, þá fór
hann til alþingis og fal sik und-
ir bænahaid allra lærðra manna
á prcstastefnu, ok þá bauð Magn-
ús byskup honum heim með sér í
Skálaholt til kirkjudags sins ok
brullaups þess, er þá skyldi* vera.
Sú veizla var svá mjök vönduð,
at slík eru sízt dæmi til á ís-
landi. Þar var mikill mjöðr bland-
inn ok öll atföng önnur sem
bezt máttu verða En föstudags-
aftan fóru byskupar báðir til
iaugar í Laugaás ■ eftir nátt
verð. En þar urðu þá mik-
il tíðeridi. Þar andaðist Ketill
byskup, ok þótti mönrium þat
mikil tfðindi. Mikill hrygg-
leiki var þar á mörgum mönnurh
í því heimboði, Þar. til er byskup
var grafinn ok um hann búit. En
með fortölum M.agnúss byskups
ok drykk þeim inum ágæta, er
rrienri áttú þar at drekka, þá urðu
menn nökkut afhuga skjótara en
elligar mundi.”
En sem veizlan í Hítardal
stendur sem hæst og líður að nátt-
málum, kemur skyndilega upp eld-
ur í bænum og verða menn hans
ei fyrr varir en ekki er lengur
útgöngu auöið um dyrnar. Veður
hefur nú skipazt til hins verra
,,með stórum vindi”, sem æsir hið
logandi bál. Læsir eldurinn sig
skjótt í drykkjustofuna, en menn
eru þá orðnir allölvaðir, ryðst
hver urn annari þveran og verður
seint til úrræða. Þó tekst um síð-
ir að rjúfa gat á þekju skálans
að baki biskupi, og eru nokkrir
menn dregnir þar út úr eldinum,
m. a. Þorleifur.beiskaldi, Kn þa^S
er af M:é?núsi 'biskttpí ’áð ''segja,
að hann lét sem ekki væri og
hreyfði sig hvergi úr s»ti, „vildu
menn að biskup hefði þar út far-
ið, en hann sagði að sér hæfði
eigi að rýma sitt sæti, því þetta
væri guðs vilji.” Má vera, að trú-
rækni biskups. hafi ráðið þessari
örlagaríku ákvörðun, hitt er þó
líklegra, að hinp sterki mjöður
hafi glapið honum sýn.
IV.
Það or ömurlegt um að litast í
Hítardal, þegar loks birtir af
degi hinn fyrsta október 1148. -—
Bæjarhús öll eru brunnin til
kaldra kola, sviðin skálaþekjan
hefur fallið niður á gólfið, þar
sem fyrir skemmstu var vettvang-
ur veizlugleðinnar, en ennþá rýk-
úr úr logandi rústunum og megn
brunaþefur og reykjarsvæla fyll-
ir loftið. Þeir, sem sloppið hafa
lifandi úr eldinum, stjákla fram
og aftur í grárri morgunskím-
unni, svefnvana og örvinglaðir,
og færa brunnin lík úr rústunum,
sum lítt sködduð, sum óþekkjan-
leg. Lík Magnúsar biskups er ó-
skaddað, „sat hann uppi óbrunn-
inn með öllu í sínu hásæti þá af
var eldurinn,” sömuleiðis lík
Tjörva prests Böðvarssonar, en
hann liafði þjónað Magnúsi allan
lians biskupsdóm og enn áður
biskupunum Þorláki og Gissuri,
mikill dýrðarniaður. „Þar létust
„Eftir á a3 hyggja. Líklega væri betra, að þér brostuð ekki.“
2|4 SUNNUDAGSBLAÐ - ALÞÝDUBLAÐID