Morgunblaðið - 19.11.2004, Side 4

Morgunblaðið - 19.11.2004, Side 4
 HÖRÐUR Gunnarsson, formaður Glímudómarafélags Íslands, var á dögunum valinn í æðstu stjórn Al- þjóða fangbragðasamtakanna. Þá var honum veitt sérstök heiðursviður- kenning fyrir einörð störf að fang- bragðamálum. Herði var einnig feng- ið sæti í heiðurshofi samtakanna.  GYLFI Gylfason skoraði fjögur mörk fyrir Wilhelmshavener þegar liðið vann 2.deildarliðið OHV Aurich, 39:30 í æfingaleik í fyrrakvöld. Robertas Pauzolis, fyrrverandi leik- maður Hauka, lánaðist ekki að skora en hann leikur einnig með Wilhelms- havener.  WINFRIED Schäfer, þýskur landsliðsþjálfari Kamerúna, var rek- inn úr starfi í gær. Kamerún tapaði 3:0 í fyrrakvöld fyrir Þjóðverjum og fannst þá forráðamönnum liðsins komið nóg, en hann hefur verið landsliðsþjálfari síðan 2001 og gerði liðið m.a. að Afríkumeisturum 2002.  TIGER Woods virðist vera að ná sér á strik á ný eftir fremur erfitt gengi á golfvellinum á þessu ári. Hann tekur nú þátt í Dunlop mótinu í Japan og í gær lék hann fyrsta hring- inn á fimm höggum undir pari, 65 höggum og er með þriggja högga for- ystu. „Ég man ekki eftir að hafa haft forystu á einu einasta móti í ár þann- ig að þetta er góð tilfinning,“ sagði Woods.  RIGNING gerði kylfingum erfitt fyrir, en Woods lék samt án þess að fá skolla. Sem dæmi um þekkta kylf- inga sem gekk illa má nefna að Alex Cejka og Todd Hamilton léku á 73 höggum og Thomas Björn á 75.  RUUD van Nistelrooy, sóknar- maður Manchester United, er von- góður um að geta leikið með liði sínu gegn Hermanni Hreiðarssyni og fé- lögum í Charlton í ensku úrvalsdeild- inni á laugardaginn. Van Nistelrooy meiddist á mjöðm í leik Hollands gegn Andorra í fyrrakvöld. „Þetta var bara högg, ekkert alvarlegt,“ sagði van Nistelrooy á vef Manchest- er United í gær.  LEICESTER City, lið Jóhannesar Karls Guðjónssonar, hefur fengið markvörðinn Stuart Taylor lánaðan frá Arsenal í einn mánuð. Taylor er nýstiginn upp úr meiðslum og hefur ekkert spilað með Arsenal í vetur. FÓLK Undanúrslit karla hefjast í kvöldmeð leik Snæfells og Grindavík- ur sem hefst kl. 18.30. Snæfell lagði Val og KR á leið sinni í Höllina og Grindavík Breiðablik og Skallagrím. Síðari leikur kvöldsins er síðan ná- grannarimma Keflvíkinga og Njarð- víkinga sem hefst klukkan 20.30. Keflavík lagði Ármann og ÍR til að komast í úrslitin og Njarðvíkingar Þór Þorlákshöfn og Hauka. Snæfell og Grindavík mættust í deildinni hinn 8. október og höfðu Grindvíkingar betur á sínum heima- velli, unnu 90:80 og gerði Darrel Lew- is 35 stig fyrir Grindavík. Justin Mill- er, sem fór frá Grindvíkingum í vikunni gerði 12 stig og tók auk þess 20 fráköst. Hlynur Bæringsson tók hins vegar 22 fráköst fyrir Snæfell og gerði 19 stig í þessum leik og gæti hugsanlega átt náðugri dag undir körfunni þar sem Miller er farinn. Snæfell er sem stendur í 3. sæti deildarinnar en Grindvíkingar í því sjöunda. Leikir Keflvíkinga og Njarðvíkinga eru alltaf skemmtilegir og oftast spennandi. Liðin hafa ekki mæst í deildinni í vetur en gera það 14. des- ember í Njarðvík. Hins vegar hafa lið- in mæst tvisvar en eru nokkuð breytt frá þeim leikjum. Keflavík vann 101:84 í Reykjanesmótinu en Njarð- vík vann 105:79 í Meistarakeppninni. „Leikurinn leggst vel í okkur Njarðvíkinga. Þetta er auðvitað draumaleikur því það er alltaf stór- leikir þegar þessi lið mætast og ég á ekki von á neinni breytingu þar á núna,“ sagði Einar Árni Jóhannesson, þjálfari meistara Njarðvíkur, í sam- tali við Morgunblaðið. „Staðan í deildinni og það sem á undan er gengið í vetur skiptir auðvit- að engu máli þegar komið er í þennan leik. Þá er það dagsformið sem ræður. Keflvíkingar leika nokkuð þétt þessa dagana og ég held að leikurinn við Bakken láti þá hafa dálítið fyrir hlut- unum í kvöld [í gærkvöldi] en vona auðvitað að Keflavík vinni. En ég held það sé okkur ekkert til tekna að Kefl- víkingar leiki mikið þessa dagana. Um hinn leikinn þá reikna ég svona fyrirfram frekar með sigri Snæfells. Grindvíkingar hafa ekki verið nógu sannfærandi það sem af er vetri og ekki bætir úr að Miller farinn frá þeim. Þetta getur hins vegar verið fínt tækifæri fyrir þá að þjappa sér saman því þeir ættu að geta komið nokkuð afslappaðir til leiks þar sem pressan er ekki á þeim,“ sagði Einar Árni. Bæði lið hafa sigrað í þessari keppni, sem nú er haldin í níunda sinn. Keflvíkingar fjórum sinnum en Njarðvíkingar, núverandi meistarar, tvívegis. Grindavík hefur einu sinni sigrað í keppninni, 2001, en Snæfell- ingum hefur ekki tekist að hampa bik- arnum. Konurnar í undanúrslitum Þau lið sem sigra í kvöld mætast síðan í úrslitaleik í Höllinni á morgun klukkan 16. Konurnar hefja leik í Höllinni á há- degi á morgun þegar ÍS og Haukar mætast en þau áttust einmitt við í vik- unni og þar fóru Haukakonur nokkuð óvænt með sigur, 72:77. Stúdínur lögðu Tindastól á leið sinni í undan- úrslit og Haukar höfðu betur gegn KR. Keflavík og Grindavík mætast klukkan 14 og það verður að segjast eins og er að Keflvíkingar eru sigur- stranglegri, hafa ekki tapað leik í vet- ur. Unnu meðal annars Grindavík í Grindavík 71:54 hinn 27. október. Þetta er í fimmta sinn sem keppt er í Hópbílabikar kvenna, KR sigraði fyrsta ári, þá Grindavík en síðustu tvö árin hafa Keflvíkingar fagnað sigri. Leikmenn Bakken byrjuðu leik-inn af miklum krafti. Þeir hittu vel fyrir utan þriggja stiga línuna og spiluðu pressu- vörn. Svo virtist sem að lætin í leik- mönnum Bakken kæmu Keflvíkingum á óvart og tóku þeir ekki við sér fyrr en Sigurður Ingimundarson tók leikhlé. Bakken skipti yfir í 2:3 svæðisvörn og fengu Keflvíkingar mikið af opnum skotfærum fyrir ut- an en skotin rötuðu ekki rétta leið. Það var ekki fyrr en undir lok fyrsta leikhluta að Sverrir Þór Sverrisson og Arnar Freyr Jónsson komu inná að meira líf hljóp í Kefl- víkinga. Vörnin skerptist hjá þeim og meira flæði kom í sóknina, Kefl- víkingar skoruðu 23 stig gegn að- eins 6 á sjö mínútna kafla og voru komnir með 11 stiga forystu. En Bakken Bears hleyptu þeim aldrei lengra frá sér en það og und- ir lok hálfleiksins skoruðu þeir þrjár þriggja stiga körfur og minnkuðu muninn í tvö stig, 43:41, og var það staðan í leikhléi. Keflvíkingar byrjuðu með látum í seinni hálfleik og skoruðu strax þrjár þriggja stiga körfur. Þar á meðal var ein frá Magnúsi Gunn- arssyni sem var nær miðlínu en þriggja stiga línunni og ætlaði allt að verða vitlaust á Sunnubrautinni. En greinilegt var að liðsmenn Bakken voru mjög einbeittir og létu þetta ekki mikið á sig fá. Þeir svör- uðu alltaf fyrir sig þótt Keflvík- ingar skoruðu mjög glæsilegar körfur og væru mjög ákafir í vörn- inni. Í byrjun fjórða leikhluta komu leikmenn Bakken ákveðnir til leiks og skoruðu fimm fyrstu stigin og var þá staðan orðin 70:65, Keflavík í hag, og leikurinn galopinn. Þegar ein mínúta var eftir komust Dan- irnir yfir í fyrsta skiptið í langan tíma, 79:78. Þegar hálf mínúta var eftir var brotið á Gunnari Einars- syni í þriggja stiga skoti og fékk hann þrjú vítaskot. Gunnar skoraði úr tveimur þeirra og þar með voru Keflvíkingar komnir yfir á nýjan leik, 80:79. Þegar 5 sekúndur voru eftir var brotið á Jeffrey Schiffner og fékk hann tvö vítaskot sem hann nýtti og þar með var Bakken komið yfir á nýjan leik, 81:80. Anthony Glover reyndi langa sendingu fram völlinn en leikmenn Bakken náðu að blaka boltanum frá. Gunnar Einarsson náði frákastinu og reyndi þriggja stiga skot sem geigaði og fögnuðu leikmenn Bakken gífurlega í leiks- lok. Leikmenn Bakken spiluðu frá- bæra vörn í fjórða leikhluta og héldu Keflvíkingum í aðeins tíu stigum allan síðasta leikhlutann. „Þegar tvö frábær lið eigast við verður annað liðið að vera með smáheppni með sér. Vörnin hjá okkur var frábær, sérstaklega í fjórða leikhluta og það var fyrst og fremst hún sem skóp þennan sigur hér í Keflavík,“ sagði Geoff Kotila, þjálfari Bakken Bears, við Morg- unblaðið eftir leikinn. Fyrsta tap Keflavíkur Víkurfréttir/Hilmar Bragi Bárðar Magnús Gunnarsson í hörðum slag við Jens Jensen og Sören Ege í leiknum í gærkvöld. KEFLAVÍK tók á móti dönsku meisturunum Bakken Bears í Evrópubikarnum í körfuknattleik í Keflavík í gærkvöld. Bakken sigraði með einu stigi, 81:80, í miklum spennuleik þar sem úr- slitin réðust ekki fyrr en á loka- sekúndunum. Keflvíkingar máttu þarna þola sinn fyrsta ósigur í keppninni og Danirnir náðu þeim fyrir vikið að stigum en liðin eru jöfn þegar keppnin er hálfnuð. Staða Bakken er hins vegar betri, liðið hefur spilað alla þrjá leiki sína á útivöllum og unn- ið tvo þeirra, á meðan Keflavík hefur spilað alla þrjá leiki sína á heimavelli, og unnið tvo þeirra. Davíð Páll Viðarsson skrifar Alltaf draumaleikur ÞAÐ verður nóg um að vera í körfuknattleiknum um helgina þó ekki sé leikið í efstu deildum. „Fjórir fræknu“ verða í Laugardalshöllinni en þar mætast fjögur lið í undanúrslitum og úrslitum fyrirtækjabik- arsins, Hópbílabikarsins. Snæfell og Grindavík mætast annars veg- ar hjá körlunum og Keflvíkingar og Njarðvíkingar hins vegar. Kon- urnar leika þó aðeins til undanúrslita, ÍS – Haukar og Keflavík – Grindavík, og úrslitaleikur þeirra verður viku síðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.