Morgunblaðið - 27.11.2004, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk
sími 004532975530 • gsm 004528488905
Kaupmannahöfn - La Villa
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra
Julefrokost
Hótelgisting og julefrokost við allra
hæfi í nóv. og des.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
www.gisting.dk
sími: 0045 3694 6700
Ódýr og góð gisting
í hjarta Kaupmannahafnar
Meðganga ertími breyt-inga í lífi
hverrar konu. Daglegt
líf snýst nú ekki aðeins
um eigin þarfir heldur
einnig um þarfir annars
einstaklings. Heilsu-
samlegt mataræði og
rétt meðhöndlun mat-
væla skiptir því sjaldan
meira máli fyrir heilsu
og líðan en einmitt á
þessum tíma.
Venjulegur, góður og
næringarríkur matur
Ekki er þörf fyrir
neitt sérfæði á með-
göngunni. Venjulegur,
góður og fjölbreyttur
matur fullnægir bæði
þörfum barnsins og
móðurinnar með fáein-
um undantekningum.
Helstu sérþarfirnar
eru þær að öllum kon-
um sem geta orðið
barnshafandi er ráðlagt
að taka 400 míkró-
gramma fólasíntöflu
daglega fyrir meðgöngu og fyrstu
12 vikur meðgöngu, auk þess sem
þeim er ráðlagt að borða fólasín-
ríkar matvörur til að draga úr
hættu á alvarlegum fósturskaða á
miðtaugakerfi.
Barnshafandi konum, eins og
raunar landsmönnum öllum, er ráð-
lagt að taka D-vítamín aukalega, til
dæmis með teskeið af þorskalýsi.
Ekki er þó æskilegt að taka meira
magn en sem nemur ráðlögðum
dagskammti af vítamínum á með-
göngunni. Þetta á ekki síst við um
A-vítamín.
Konum yfir kjörþyngd er ráðlagt
að þyngjast nokkuð minna en hinum
sem eru í eða undir kjörþyngd fyrir
þungun. Öllum konum er hins vegar
eðlilegt að þyngjast á meðgöngunni
og of lítil þyngdaraukning er ekki
síður óæskileg en of mikil aukning.
Rétt meðhöndlun matvæla
Hreinlæti við mat og matargerð
skiptir ævinlega máli, en fær aukið
vægi á meðgöngu þar sem skaðleg-
ar bakteríur og sníkjudýr geta haft
áhrif á heilsu bæði móður og fóst-
urs. Sérstaklega er varað við að
borða hrá matvæli eins og hráan
fisk, hrátt kjöt, hrá egg eða drekka
ógerilsneydda mjólk. Í bæklingn-
um, sem sagt er frá hér í lokin, er
fjallað nánar um það sem kemur
fram hér í pistlinum, m.a. er fjallað
um mataræði á ferðalögum erlend-
is, þar sem hugsanlega þarf að var-
ast einstaka fæðutegundir vegna
aðskotaefna, mengunar eða sýking-
arhættu.
Hollir lífshættir á meðgöngu
Hæfileg hreyfing og næg hvíld
eru lykilatriði á meðgöngu. Notkun
hvers kyns vímugjafa er hins vegar
varhugaverð og best að sleppa notk-
un þeirra algjörlega. Áfengi og tób-
ak skaða beinlínis fóstrið og lyf,
fæðubótarefni eða náttúruefni ætti
heldur ekki að taka án þess að ráð-
færa sig við lækni.
Njóttu meðgöngunnar
Borðaðu góðan og næringarríkan
mat.
Hreyfðu þig reglulega eins og þér
líkar best.
Mundu að barnið er öruggara án
áhrifa áfengis, tóbaks eða ann-
arra vímuefna.
Finndu slökunarleið sem hentar
þér og þú getur fléttað inn í dag-
legt líf, t.d. lestur, tónlist, hug-
leiðslu, leikfimi, gönguferðir eða
böð.
Gerðu eitthvað sérstakt fyrir
sjálfa þig eða barnið, eitthvað
sem þér finnst gott og skemmti-
legt.
Notfærðu þér þjónustu mæðra-
verndar.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Lýðheilsustöð
Hollt mataræði
á meðgöngu
Nýlega kom út á vegum Lýð-
heilsustöðvar, Miðstöðvar mæðra-
verndar og Umhverfisstofnunar
bæklingur þar sem fjallað er um
helstu atriði sem vert er að hafa í
huga, bæði varðandi undirbúning
meðgöngu og lífshætti á sjálfri
meðgöngunni. Hægt er að panta
bæklinginn hjá Miðstöð mæðra-
verndar (mm@hr.is) og kostar
hann 100 kr.
Tenglar: www.lydheilsustod.is,
www.hr.is, www.ust.is.
Bryndís Eva Birgisdóttir
næringarfræðingur.
Laufey Steingrímsdóttir sviðsstjóri
rannsókna, Lýðheilsustöð.
Morgunblaðið/Ásdís
Áaðventunni eru jólamarkaðirhaldnir víðs vegar um heim-inn, m.a. í þeim löndum sem
Íslendingar heimsækja gjarnan.
Markaðirnir eru litlir og stórir og þar
er margt hægt að kaupa eða bara
ganga um og skoða. Oft eru uppá-
komur í tengslum við markaðina, eins
og t.d. tónleikar, og jólamatur hvers
lands skipar líka stóran sess á jóla-
mörkuðunum.
Fyrsti jólamarkaðurinn árið 1434
Aðventan er mikilvæg í Þýskalandi
og þar í landi eru um 2.500 jólamark-
aðir haldnir víðs vegar um landið í
nóvember og desember. Fyrsti jóla-
markaðurinn var t.d. haldinn í
Dresden árið 1434. Stærstu mark-
aðirnir eru í Köln, Bonn, Essen og
Berlín og er verið að opna flesta um
þessar mundir, að því er m.a. er
greint frá á vef norska Dagbladet.
Við dómkirkjuna í Köln er árviss
jólamarkaður frá 22. nóvember til 23.
desember. Fjórar milljónir heim-
sækja markaðinn við hina heims-
þekktu Kölnardómkirkju á hverju
ári. Í fæðingarborg Beethovens,
Bonn, er haldinn jólamarkaður ár
hvert á Münsterplatz og aðliggjandi
götum. Tónleikar með klassískri tón-
list, jólaljós og hátíðlegar skreytingar
eru einkennandi fyrir markaðinn.
Í Essen í Þýskalandi var jólamark-
aðurinn opnaður 18. nóvember og ár-
lega sækja hann um 4,5 milljónir
manns. Jólahefðir mismunandi landa
eru kynntar á þessum markaði. Í
Berlín verður jólamarkaðurinn á
Breitscheidplatz opnaður 22. nóv-
ember. Þessi hefðbundni markaður
er opinn fram á aðfangadag. Auk
þessara fjögurra stóru markaða eru
jólamarkaðir í fleiri þýskum borgum,
m.a. Flensborg, Hannover, Ham-
borg, Kiel, Rostock, Frankfurt og
München.
Handverk og jólaskraut
Jólamarkaðir eru víðar en í Þýska-
landi, m.a. í Svíþjóð, Finnlandi og
Tékklandi. Einn stærsti jólamark-
aður sem haldinn er innandyra í Sví-
þjóð er í Vadstena-höll í Östergot-
land. Hann er opinn 19.–28.
nóvember. Í Stokkhólmi eru haldnir
jólamarkaðir við Skansen og í Gamla
Stan. Á fyrrnefnda staðnum þrjár
fyrstu helgarnar í aðventu og í gamla
miðbænum 27. nóvember til 22. des-
ember. Á þeim markaði er aðallega
handverk og jólaskraut til sölu.
Í Finnlandi er hægt að fara á jóla-
markaði í Helsinki í byrjun aðventu. Í
Sveaborg Festning 27.–28. nóvember
og í Esplanade-garðinum 7.–9. des-
ember. Í Tékklandi stendur jóla-
markaður yfir á Ráðhústorginu í
Prag frá 4. desember til 6. janúar.
Kaupmannahöfn þekkja Íslend-
ingar vel. Nú hafa dyr Tívolísins í
Kaupmannahöfn verið opnaðar og
Tívolí í jólabúningi verður opið til
Þorláksmessu. Jólamarkaður er hald-
inn þar í ellefta skipti í ár og var opn-
aður strax 12. nóvember. Allt Tívolí
er skreytt með þúsundum ljósapera
og alls kyns jólaskrauti þessa dagana.
Í sölubásum er handverk og danskt
jólasælgæti til sölu og jólasveinar eru
komnir á kreik. Í Amagersafninu í
Dragør í 10 mínútna akstursfjarlægð
frá Kastrup verður haldinn jólamark-
aður 11. og 12. desember. Þar getur
maður séð hvernig jólin voru haldin
hátíðleg fyrir hundrað árum. Í Árós-
um verður haldinn jólamarkaður frá
27. nóvember til 22. desember þar
sem hægt verður að kynnast danskri
jólasögu síðustu 300 ár og hvernig jól-
in voru hjá þeim ríku og hjá þeim fá-
tæku. Í Álaborg verður jólamarkaður
á Gamle Torv opnaður 27. nóvember
og stendur fram á Þorláksmessu. Í
Óðinsvéum verður haldinn jólamark-
aður í nafni H.C. Andersen. Allur
gamli bæjarhlutinn í kringum safnið
sem kennt er við skáldið verður
skreyttur ljósum og sölubásum.
JÓLAMARKAÐIR
Jólastemning víða um heim
Morgunblaðið/Ómar
Jólamarkaðir eru í nær öllum borgum og bæjum í Þýskalandi.
Morgunblaðið/Ómar
Í Þýskalandi eru haldnir um 2.500 jólamarkaðir ár hvert.
DAGLEGT LÍF
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111