Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 1
2004  MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A BREYTINGAR Á MÓTAFYRIRKOMULAGI Í HANDKNATTLEIK / C4 Nú hefur komið í ljós að það erekki bara ég sem hef sett mig upp á móti þjálfaranum heldur eru nær allir leikmenn liðsins andvígir því að hann verði áfram. Þeir gengu á fund stjórnarinnar og sögðust ekki vera sáttir við störf hans. Stjórnin sagðist ætla að taka þetta til greina en málið er að klúbburinn er ekki fjársterkur og það yrði mjög kostn- aðarsamt fyrir liðið að reka Finnann þar sem hann á tvö ár eftir af sínum samningi. Það gæti því vel farið svo að hann verði áfram og þá eru dagar mínir taldir hjá Örgryte,“ sagði Tryggvi við Morgunblaðið í gær. Tryggvi segir að hann geti farið frá Örgryte á frjálsri sölu. „Þeir tjáðu mér í vikunni að ef eitthvert félag sýndi áhuga á að fá mig þá yrði ekki vandamál fyrir mig að fara. Það hefur hins vegar ekkert verið til- kynnt um þjálfaramálin hjá Örgryte og fyrr vil ég ekki taka neina ákvörðun. Þetta er því mjög skrýtin staða sem ég er kominn í.“ Tromsø hefur þegar sett sig í samband við Örgryte um að fá Tryggva í sínar raðir en Tryggvi hóf atvinnumannaferil sinn hjá norska liðinu og lék með því við góðan orðs- tír í þrjú ár. Spurður hvort komi til greina að fara aftur til Tromsø segir Tryggvi; „Já og nei. Ég veit að hverju ég geng hjá Tromsø en ég hef sagt for- ráðamönnum liðsins að það yrði að vera góður heildarpakki í boði ef ég ætti að fara þangað aftur. Staðsetn- ingin á liðinu er ekki sú besta og ég hef verið að mjaka mér smátt og smátt suður á bóginn.“ Útilokar ekki að spila á Íslandi Tryggvi segir að lið frá Svíþjóð og Danmörku hafi verið með fyrir- spurnir til umboðsmanns síns og þá hafi í það minnsta þrjú félög úr ís- lensku úrvalsdeildinni rætt við sig. „Ég vil alls ekki útiloka að ég spili hér heima í sumar. Maður er alltaf að verða spenntari og spenntari að koma heim og ef mér líst ekki á neitt sem mér býðst er alveg inni í mynd- inni að ég komi heim. Maður vill nú samt helst hanga úti eins lengi og mögulegt er.“ Tryggvi má fara frá Örgryte SÆNSKA knattspyrnuliðið Örgryte ætlar ekki að standa í vegi fyrir Tryggva Guðmundssyni landsliðsmanni kjósi hann að yfirgefa liðið. Tryggvi á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið en verði finnski þjálfarinn Jukka Ikäläinen áfram við stjórnvölinn ætlar Tryggvi að róa á önnur mið og hugsanlega fleiri leikmenn. Morgunblaðið/Kristján Sigurður Örn Karlsson, leikmaður Hauka, er hér tekinn föstum tökum af varnarmönnum KA. / C3 Eiður Smári Guðjohnsen og fé-lagar í Chelsea eru einnig komnir áfram en í kvöld leikur Man- chester United við Arsenal og Totten- ham við Liverpool. Heiðar skoraði með skalla á 24. mín- útu og skoti á 57. mínútu, og átti síð- an drjúgan þátt í þriðja markinu. Watford hefur þar með skellt tveim- ur úrvalsdeildarliðum í keppninni en liðið vann Southampton, 5:2, í 16 liða úrslitum og þá skoraði Heiðar eitt markanna. Hann hefur þar með gert 10 mörk á tímabilinu. „Það má segja að sigurinn hafi aldrei verið í hættu hjá okkur. Portsmouth var miklu meira með boltann en ógnaði sjaldan okkar marki, og við vorum hættulegir í hvert skipti sem við sóttum hratt. Við höfum spilað mjög vel í þessari keppni en leikurinn okkar við South- ampton var enn betri því þá réðum við ferðinni allan tímann.“ Hann kvaðst ekkert hafa heyrt af vangaveltum um áhuga Crystal Pal- ace á sér en eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær var úrvals- deildarliðið sagt hafa áhuga á honum í enskum vefmiðli. „Ég ætla ekki að velta mér neitt upp úr því sem gæti gerst. Ef eitthvað þessu líkt kemur upp, þá tek ég afstöðu til þess, ann- ars hugsa ég bara um að standa mig áfram með Watford, enda líður mér afskaplega vel hjá félaginu.“ Brynjar Björn Gunnarsson lék fyrri hálfleikinn með Watford en fór síðan af velli. „Hann fann fyrir eymslum í læri undir lok hálfleiksins og vildi ekki taka neina áhættu með því að halda áfram,“ sagði Heiðar. Heiðar með tvö gegn Portsmouth „Best að fá Tottenham“ „ÞETTA var reglulega sætur sigur og skemmtilegt að ná að skora tvö mörk. Það er frábært að vera komnir í undanúrslit keppninnar og auðvitað dreymir mann um að fara alla leið í úrslitaleikinn, en það er hins vegar ljóst að við fáum enn erfiðari mótherja næst. Ætli það væri ekki best að fá Tottenham,“ sagði Heiðar Helguson, lands- liðsmaður í knattspyrnu, við Morgunblaðið í gærkvöld. Hann skor- aði þá tvö mörk fyrir Watford sem vann óvæntan stórsigur á úrvals- deildarliði Portsmouth, 3:0, og er komið í undanúrslit ensku deildabikarkeppninnar. Eftir Víði Sigurðsson ■ Heiðar / C2 KVENNALIÐ KR í körfu- knattleik hefur fengið liðs- styrk og veitir víst ekki af því liðið situr í neðsta sæti 1. deildarinnar án stiga eftir sjö leiki. Leikmaðurinn sem KR- ingar hafa gert samning við heitir Cori Williston og er hún frá Bandaríkjunum. Williston er 22 ára gömul og leikur í stöðu leikstjórnanda og skotbakvarðar. Á heima- síðu KR-inga kemur fram að hún hafi leikið í fjögur ár fyrir Oral-háskólann og á ferli sín- um hafi hún sett skólamet fyr- ir bestu þriggja stiga nýtingu og vítanýtingu og hafi í þrí- gang verið valin í úrvalslið Mid Continent-deildarinnar. Williston til kvenna- liðs KRTRYGGVI Bjarnason, knatt- spyrnumaður úr ÍBV, leikur annaðhvort með Eyjamönnum eða KR-ingum næsta sumar. Tryggvi sagði við Morg- unblaðið í gærkvöld að hann ætti eftir að taka ákvörðun, möguleikarnir væru um það bil jafnir en endanleg nið- urstaða lægi fyrir á næstu dögum. „Ég er búinn að af- skrifa möguleikana á að leika erlendis, allavega í bili. Mér gekk ekki nógu vel hjá Wat- ford þegar ég var þar til reynslu og það hefur ekkert komið út úr hinu tvennu sem var inni í myndinni, Cardiff í ensku 1. deildinni og Häcken í Svíþjóð. Þetta er erfið ákvörð- un, ég er uppalinn í KR en hef átt tvö frábær ár í Eyjum.“ Tryggvi með ÍBV eða KR LÍKURNAR á að Guðjón Þórðarson þjálfi hér á landi á næsta keppnistímabili virðast fara minnkandi. Í gær rann út sá frestur sem Keflvík- ingar gáfu honum til að svara umleitunum um að hann tæki við liði þeirra og Guðjón er ekki leng- ur efstur á blaði hjá Grindvíkingum. Þeir ein- beita sér að viðræðum við Milan Stefán Jankovic þessa dagana. Skýrt var frá því á Stöð 2 í gærkvöld að Guð- jón myndi ekki þjálfa lið Keflavíkur. Ekki náðist í neinn forsvarsmanna félagsins í gærkvöld til að fá þetta staðfest og heldur ekki í Guðjón sjálfan. Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnu- deildar Grindavíkur, sagði við Morgunblaðið að hann hefði ekkert heyrt frá Guðjóni. „Við höfum fyrst og fremst rætt við Milan Stefán undanfarna daga og þær viðræður eru langt komnar. Við lokum þó engum dyrum,“ sagði Jónas. Heimkoma Guðjóns ólíkleg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.