Morgunblaðið - 08.12.2004, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 C MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
ÍR, Valur, Haukar og KA verða að
öllum líkindum í fjórum efstu sæt-
um úrvalsdeildar karla í handknatt-
leik, DHL-deildinni, þegar keppni á
Íslandsmótinu hefst á ný í febrúar,
að lokinni heimsmeistarakeppninni
í Túnis. Þar leika átta efstu liðin úr
forkeppninni, fjögur úr hvorum
riðli, og að þessu sinni taka þau
með sér innbyrðis viðureignir sínar
og mætast ekki aftur.
ÍR, Valur, Víkingur og ÍBV eru
komin áfram úr suðurriðlinum. ÍR
er með 8 stig úr innbyrðis leikjum
þessara liða, Valur 6, Víkingur 4 og
ÍBV 2. Valsmenn eiga eftir að mæta
bæði ÍBV og ÍR og gætu því náð 10
stigum, og ÍR sömuleiðis með því að
vinna Val. Víkingar hafa leikið alla
sína leiki við hin þrjú liðin og fá því
ekki fleiri stig.
Haukar og KA eru komin áfram
úr norðurriðlinum en HK, Fram og
Þór berjast um hin tvö sætin. HK
stendur þar mjög vel að vígi, er
þremur stigum á undan Fram og
Þór, en á eftir að mæta báðum lið-
um. Fram á leik til góða, gegn
Haukum í kvöld.
Ef HK og Fram fara áfram, eins
og meiri líkur eru á, eru Haukar og
KA með 7 stig hvort, HK 4 og Fram
2 stig, en Fram á eftir að mæta
bæði Haukum og HK.
Ef HK og Þór fara áfram eru
Haukar og KA með 7 stig, HK 4 og
Þór 2 en Þór á eftir að mæta bæði
Haukum og HK.
Sem sagt, nákvæmlega eins
staða.
Ef Fram og Þór fara áfram eru
Haukar með 7 stig, KA með 5, Fram
með 5 og Þór 3 stig en Haukar eiga
þá eftir leikina við Fram og Þór og
gætu farið áfram með 11 stig, og
hæfu þá úrvalsdeildina í efsta sæti.
ÍR, Valur, Haukar og
KA í efstu sætunum
GÍSLI Kristjánsson, fyrrverandi
leikmaður með Gróttu/KR, fær lof-
samleg ummæli á heimasíðu liðs
síns, Fredericia, sem hann leikur
með í dönsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik. Þetta er annað tímabil
hans hjá félaginu sem er í tíunda
sæti af fjórtán liðum í deildinni.
Gísli lék stórt hlutverk í liði sínu á
sunnudag þegar það vann Silke-
borg/Voel, 28:21. Hann skoraði þrjú
mörk og átti stórleik í vörn Fred-
ericia þar sem hann „pakkaði sam-
an“ einum besta leikmanni deildar-
innar, Heinz Kart Petersen, eins og
sagt er á heimasíðu félagsins.
Þar er ennfremur fjallað sérstak-
lega um Gísla í dálki sem heitir
„leikmaður vikunnar“. Aðalstyrkur
Fredericia er sagður vera sterk
liðsheild, án stórstjarna, og þar leiki
Gísli stórt hlutverk. Hann sé ótrú-
lega öflugur í varnarleiknum, og
gefi ekkert eftir á línunni í sóknar-
leik liðsins.
Nick Rasmussen, þjálfari Frede-
ricia, segir að það mættu vera fleiri
leikmenn eins og Gísli í handbolt-
anum. „Gísli hefur þróast mikið sem
handboltamaður síðan hann kom til
okkar og hann vinnur markvisst og
kerfisbundið að því að bæta sinn
leik. Hann hefur ekki skorað eins
mikið í vetur og hann gerði í fyrra
en hann er okkur geysilega mikil-
vægur í sóknarleiknum vegna
góðra staðsetninga. Hann hefur um
leið geysilega góðan leikskilning og
er útsjónarsamur,“ segir Rasmus-
sen.
Gísli „pakkaði saman“
besta leikmanni Dana
ZORAN Lukic hefur verið ráðinn þjálfari
sænska úrvalsdeildarliðsins Örgryte í stað
Jukka Ikäläinens, en eins og sagt hefur veri
frá var Tryggvi Guðmundsson, sem leikur m
liðinu, mjög ósáttur við finnska þjálfarann o
sagðist ekki verða áfram hjá liðinu yrði han
við stjórnvölinn.
„Ég er mjög sáttur við þjálfaraskiptin og
sýna að félagið hefur metnað. Lukic hefur n
góðum árangri og ég er ánægður með að for
ráðamenn félagsins hafa greinilega hlustað
okkur leikmennina. Þetta gerðist nú bara í d
[í gær] þannig að ég hef ekkert heyrt frá þe
úti, en sá í viðtali við nýja þjálfarann að han
ætlar að nota næstu daga til að hafa samban
við leikmenn. Maður bíður þá bara eftir að
hann hringi, nú eða hann geymir þetta þar t
við hittumst í janúar,“ sagði Tryggvi í samta
við Morgunblaðið í gær.
Tryggvi sagðist ekki vita hvort hann væri
inni í framtíðaráformum þjálfarans, en „ég
það minnsta sáttur við ráðningu hans“, sagð
Tryggvi.
Lukic segir í samtali við Aftonbladet í gæ
hann hafi lesið mikið um félagið og leikmen
þess. „Ég mun ræða við alla leikmenn og í
framhaldi af því verður ákveðið hvaða leik-
menn við viljum halda í og hvaða leikmenn v
teljum okkur ekki hafa not fyrir,“ sagði Luk
Hann hefur áður þjálfað í úrvalsdeildinni
sænsku og gerði meðal annars Djurgården a
meisturum 2002 og 2003.
Lukic
tekur við
Örgryte
Brasilíski varnarmaðurinn Ro-berto Carlos hjá Real Madrid
segir leikinn á Ólympíuleikvangin-
um í Róm í kvöld vera mikilvægasta
leik Real Madrid á leiktíðinni. Liðið
megi ekki fyrir nokkurn mun mis-
stíga sig gegn Rómverjum sem hafa
ekki riðið feitum hesti frá leikjum
keppninnar til þessar. Ekkert nema
sigur kemur til greina hjá Real
Madrid, ekki er hægt að treysta á
jafntefli og að Dynamo Kiev vinni
Leverkusen í Þýskalandi.
Engir áhorfendur verða á Ólymp-
íuleikvanginum að þessu sinni þar
sem leikmenn Roma hafa enn ekki
bitið úr nálinni með framkomu
stuðningsmanna sinna fyrr á leiktíð-
inni þegar þeir köstuðu kveikjara í
andlit dómara í leik við Dynamo
Kiev.
„Leikmenn Roma munu leika upp
á heiðurinn, þetta er þeirra síðasti
möguleiki til að sýna hvers þeir eru
megnugir. Leikurinn verður síður
en svo auðveldur fyrir okkur, allir
sem leika gegn okkur leggja sig al-
veg sérstaklega fram og vilja vinna
okkur,“ sagði Calos í gær en hann
var einn þeirra sem fékk frí um síð-
ustu helgi þegar Real Madrid gerði
markalaust jafntefli við Villareal í
spænsku deildinni.
Carlos segir þó engan kvíða vera í
herbúðum Madrídarliðsins. Þar á
bæ telji menn að þeir séu komnir yf-
ir erfiðasta hjallann á leiktíðinni og
liðið sé farið að leika betur en það
gerði í haust. „Við erum ekki
áhyggjufullir, en vitum að þetta
verður ekki auðveldur leikur í Róm.
Markmið okkar er það sama og
áður, að komast í úrslitaleik Meist-
aradeildarinnar.“
Ekkert er um alvarleg meiðsli hjá
Real Madrid og reiknað með að
Spánverjar stilli upp sínu sterkasta
liði að þessu sinni. Flestir eru einnig
heilir heilsu hjá Roma, aðeins
markahrókurinn Antonio Cassano
er meiddur.
Talsvert er einnig undir í viður-
eign Leverkusen og Dynamo Kiev.
Tapi annað hvort liðið getur það þýtt
að það verði að fara í UEFA-keppn-
ina, að því tilskildu að Real Madrid
reki af sér slyðruorðið í Róm. „Við
ætlum að leika til sigurs á útivelli,
ekkert annað kemur til greina,“ seg-
ir Badr El-Kaddouri, hinn marokk-
óski leikmaður Kænugarðsliðsins.
„Ef við töpum, förum við tómhentir
frá þessari keppni, við lítum svo á
UEFA-keppnina, hún er ekki merki-
leg í okkar augum.“
Upp á líf og dauða á Anfield
Hjá Liverpool kemur heldur ekk-
ert annað en sigur til greina til að
tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum.
Liðið er sem stendur í þriðja sæti
riðilsins með 7 stig og verður að
vinna efsta liðið, Olympiakos a.m.k.
2:0. Komist Liverpool ekki áfram
verður litið á það sem slys í her-
búðum félagsins. „Við leggjum
höfuðáherslu á að komast í 16 liða
úrslit,“ segir Steve Finnan, varnar-
maður Liverpool. „Við erum komnir
svo nálægt næstu umferð keppninn-
ar að það væru okkur gríðarleg von-
birgði að hafna í öðru sæti og þurfa
að fara í UEFA-keppnina, með allri
virðingu fyrir henni,“ segir Finnan.
Félagi hans, Jamie Carragher, bæt-
ir því við að fyrir leiktíðina hafi
menn verið sammála um að þeir
yrðu að vinna heimaleikina til þess
að komast í 16 liða úrslit. „Nú erum
við í þeirri stöðu að verða að vinna
síðasta heimaleikin og þá verðum við
að gera það, hver svo sem andstæð-
ingurinn er.“
Mónakó vann umdeildan sigur á
Liverpool fyrir hálfum mánuði með
ólöglegu sigurmarki. Mónakó mætir
Deportivo á Spáni og þarf að vinna
til að skjótast upp fyrir Liverpool og
Olympiakos, vinni Liverpool á An-
field.
„Ég er ekkert hrifinn af því að
þurfa að leika upp á líf eða dauða við
Liverpool á þeirra heimavelli, en við
því er ekkert að gera. Ef við ætlum í
næstu umferð keppninnar er eins
gott að taka þennan slag og búa okk-
ur þannig undir leikina í 16 liða úr-
slitum sem eru upp á allt og ekkert,“
segir Dusan Bajeic, þjálfari Olym-
piakos. Hann lofar mörkum í leikn-
um. „Við mætum ekki á Anfield til
þess að leika upp á markalaust jafn-
tefli, því get ég lofað.“
Olympiakos hefur aldrei unnið
leik í Evrópukeppni á Englandi.
Milan Baros kemur inn í lið Liver-
pool eftir meiðsli og ætti þar með að
styrkja verulega sóknarleikinn.
Allt undir
hjá Real
ÞAÐ verður víða spenna í lofti þegar flautað verður til leiks í Meist-
aradeild Evrópu í kvöld þar sem línur eru ekki skýrar í A- og B-riðli.
Liverpool verður að vinna efsta lið A-riðils, Olympiakos, á Anfield til
þess að eiga möguleika á að komast áfram úr A-riðli og síðan
standa leikmenn stórliðs Real Madrid ekkert alltof vel í B-riðli þar
sem þeir verða einnig að í heimsókn sinni til Rómarborgar þar sem
þeir sækja Roma heima. Í C- og D-riðli er ljóst að Juventus, Bayern
München, Manchester United og Lyon eru örugg um sæti í 16 liða
úrslitum sama á hverju dynur hjá þeim í lokaumferðinni.
HANDKNATTLEIKUR
Íslandsmót karla, DHL-deildin, Norður-
riðill:
Framhús: Fram – Haukar....................19.15
Bikarkeppni HSÍ, SS-bikarkeppnin, 8-liða
úrslit karla:
KA-heimilið: KA - ÍBV..........................19.15
Leikurinn átti að fara fram í gærkvöldi,
en var frestað. Ekki var flogið frá Eyjum.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar, 16 liða úr-
slit karla:
Ásgarður: Stjarnan – UMFN ..............20.30
1. deild kvenna:
Keflavík: Keflavík – UMFG .................19.15
Í KVÖLD
KÖRFUKNATTLEIKUR
Bakken Bears – Keflavík104:90
Árósar, Danmörku, Evrópubikarinn, vest-
urdeild, A-riðill, þriðjudaginn 7. desember
2004.
Stig Keflavíkur: Magnús Gunnarsson 27,
Anthony Glover 26, Jón Nordal Hafsteins-
son 16, Nick Bradford 9, Elentínus Mar-
geirsson 7, Gunnar Einarsson 3, Sverrir
Sverrisson 2.
CAB Madeira – Reims ...........................73:95
Staðan:
Bakken 6 4 2 474:477 10
Keflavík 5 3 2 486:454 8
Reims 6 2 4 503:495 8
Madeira 5 2 3 404:435 7
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
New Jersey – Toronto ........................... 88:86
Atlanta – Philadelphia ........................... 96:92
Chicago – San Antonio........................... 75:91
Dallas – Detroit .................................... 85:101
Denver – Orlando............................... 115:102
Utah – Miami ........................................ 80:100
LA Clippers – Charlotte........................ 99:93
Golden State – Boston ....................... 110:106
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL:
Arsenal – Rosenborg .................................5:1
Reyes 3. Thierry Henry 24., Fabregas 29.
Robert Pires (vsp.) 41., Robin Van Persie
84. - Erik Hoftun 39. - 35.421
Panathinaikos – PSV Eindhoven.............4:1
Dimitrios Papadopoulos 30., Markus Münch
(vsp.) 45., 57., Lucian Sanmartean 81. -
DaMarcus Beasley 37. - 10.196.
Lokastaðan:
Arsenal 6 2 4 0 11:6 10
PSV 6 3 1 2 6:7 10
Panathinaikos 6 2 3 1 11:8 9
Rosenborg 6 0 2 4 6:13 2
Arsenal og PSV í 16-liða úrslit, Panathin-
aikos í UEFA-bikarinn.
F-RIÐILL:
Celtic – AC Milan........................................0:0
- 59.228
Shakhtar Donetsk – Barcelona................2:0
Julius Aghahowa 14., 22. - 25.000.
Lokastaðan:
AC Milan 6 4 1 1 10:3 13
Barcelona 6 3 1 2 9:6 10
Shakhtar 6 2 0 4 5:9 6
Celtic 6 1 2 3 4:10 5
AC Milan og Barcelona í 16-liða úrslit,
Shakhtar í UEFA-bikarinn.
G-RIÐILL:
Inter Mílanó – Anderlecht ........................3:0
Julio Cruz 32., Obafemi Martins 60., 63. -
30.000.
Valencia – Werder Bremen ......................0:2
Nelson Haedo Valdez 83., 90. - 40.000.
Lokastaðan:
Inter 6 4 2 0 14:3 14
Bremen 6 4 1 1 12:6 13
Valencia 6 2 1 3 6:10 7
Anderlecht 6 0 0 6 4:17 0
Inter Mílanó og Werder Bremen í 16-liða
úrslit, Valencia í UEFA-bikarinn.
H-RIÐILL:
Porto – Chelsea ..........................................2:1
Ribas Diego 60., Benni McCarthy 85. -
Damien Duff 33. - 42.409.
París SG – CSKA Moskva .........................1:3
Fabrice Pancrate 37. - Sergei Semak 29.,
64., 70. - 40.000. Rautt spjald: Bernard
Mendy, París 90., Deividas Semberas,
CSKA 54.
Lokastaðan:
Chelsea 6 4 1 1 10:3 13
Porto 6 2 2 2 4:6 8
CSKA 6 2 1 3 5:5 7
París SG 6 1 2 3 3:8 5
Chelsea og Porto í 16-liða úrslit, CSKA í
UEFA-bikarinn.
England
1. deild:
Wolves – Millwall ........................................1:2
Staðan:
Wigan 22 12 8 2 41:15 44
Ipswich 22 12 7 3 42:25 43
Sunderland 22 12 4 6 29:17 40
Reading 22 11 5 6 30:22 38
West Ham 22 11 4 7 28:24 37
QPR 22 11 3 8 32:31 36
Sheff. Utd 22 9 8 5 28:28 35
Millwall 22 9 5 8 22:21 32
Leicester 22 7 10 5 26:20 31
Stoke City 22 8 7 7 16:17 31
Derby 22 8 6 8 31:30 30
Burnley 22 7 9 6 18:19 30
Plymouth 22 8 5 9 28:28 29
Crewe 22 8 5 9 39:42 29
Preston 22 8 5 9 28:33 29
Watford 22 6 10 6 28:24 28
Wolves 22 7 6 9 31:31 27
Coventry 22 6 8 8 28:35 26
Leeds 22 6 7 9 24:23 25
Brighton 22 7 4 11 17:29 25
Cardiff 22 5 7 10 24:29 22
Nottingham F. 22 4 8 10 22:31 20
Gillingham 22 5 3 14 19:40 18
Rotherham 22 1 8 13 13:30 11
2. deild:
Blackpool - Torquay ...................................4:0
Ólafur Gottskálksson var varamaður í liði
Torquay.
Bournemouth - Bradford ...........................2:0
Brentford - Luton .......................................2:0
Colchester - Barnsley.................................0:2
Doncaster - Bristol C..................................1:1
Milton Keynes Dons - Peterborough........1:1
Oldham - Chesterfield ................................4:1
Port Vale - Tranmere .................................3:1
Walsall - Hartlepool....................................2:1
Wrexham - Stockport .................................2:1
Staðan:
Luton 20 13 3 4 39:21 42
Tranmere 20 11 5 4 30:23 38
Hull 19 11 2 6 31:25 35
Bournem. 20 10 4 6 35:24 34
Bradford 20 10 2 8 30:30 32
Bristol City 20 8 7 5 38:28 31
Brentford 20 9 4 7 24:26 31
Sheff. Wed. 19 8 6 5 31:24 30
Chesterfield 20 8 6 6 25:21 30
Hartlepool 20 9 2 9 30:34 29
Swindon 19 8 4 7 32:28 28
Doncaster 20 7 7 6 26:29 28
Walsall 20 7 6 7 29:32 27
Wrexham 19 7 6 6 22:27 27
Huddersfield 19 7 5 7 29:25 26
Colchester 20 7 5 8 28:24 26
Port Vale 20 8 2 10 24:31 26
Oldham 20 7 4 9 30:30 25
Barnsley 20 6 6 8 26:26 24
Peterborough 20 5 6 9 24:21 21
Torquay 20 5 6 9 24:35 21
Blackpool 19 4 6 9 23:26 18
MK Dons 20 3 6 11 22:38 15
Stockport 20 2 4 14 17:41 10