Morgunblaðið - 08.12.2004, Blaðsíða 4
DRÍFA Skúladóttir, landsliðs-
maður í handknattleik, er til
reynslu hjá danska úrvalsdeild-
arliðinu SK Århus um þessar
mundir, en systir hennar
Hrafnhildur hefur leikið með
liðinu síðan í haust. Drífa gekk
í sumar til liðs við þýska 2.
deildarliðið SV Berliner VG 49,
en mun ekki hafa líkað vistin
þar og er laus undan samningi.
SK Århus hefur ekki gengið
sem best á keppnistímabilinu
og er um þessar mundir í næst-
neðsta sæti í úrvalsdeildinni
með 4 stig að loknum tíu leikj-
um. Þjálfari liðsins leitar að
leikmanni í stað Julie Transel
sem sleit krossband í hné á
dögunum. Er vonast til að
Drífa geti fyllt það skarð sem
Transel skilur eftir sig. Telji
þjálfari SK Århus svo vera býð-
ur hann Drífu samning út leik-
tíðina næsta vor. Þessi mál
ættu að skýrast eftir æfinga-
leik sem Drífa tekur þátt í
kvöld en þá mætir Árósar-liðið
Silkeborg/Voel í æfingaleik.
Drífa til
reynslu hjá
SK Århus
Da Costa heldur því fram aðRoman Abramovich, eigandi
Chelsea, og Peter Kenyon fram-
kvæmdastjóri hafi hitt Mourinho og
umboðsmann hann, Jorge Mendes, í
apríl á veitingastað í smábænum
Apuila, 40 kílómetrum frá Porto, og
þar hafi framtíð Mourinhos verið
ákveðin. Da Costa segir að Mendes
hafi staðfest þetta við sig.
„Ég var mjög undrandi á því að
þetta skyldi eiga sér stað kvöldið fyr-
ir leik Mónakó og Chelsea og tveim-
ur dögum áður en við lékum við De-
portivo La Coruna í undanúrslitum.
Chelseamenn tóku það síðan upp hjá
sjálfum sér að tapa 3:1 í Mónakó og
gera 2:2-jafntefli á heimavelli til að
forðast að UEFA færi að skoða þá
stöðu að annað úrslitaliðið hefði þeg-
ar samið við þjálfara hins liðsins,“
segir da Costa meðal annars í bók-
inni.
Ræddi ekki við Abramovich
fyrr en 28. maí
Forráðamenn Chelsea segja ekk-
ert hæft í þessum ásökunum og
benda á að Porto hafi aldrei kvartað
yfir því að félagið hafi nálgast Mour-
inho á ólöglegan hátt. Mourinho gaf
sjálfur út bók fyrr á þessu ári og þar
fullyrðir hann að hann hafi ekki hitt
Abramovich fyrr en 28. maí, tveimur
dögum eftir að Porto vann Mónakó í
úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
„Ég var boðaður á fund hjá Liver-
pool kvöldið fyrir úrslitaleikinn en
hafnaði því. Ég vildi einbeita mér al-
farið að Porto og svaraði öllum fé-
lögum og umboðsmönnum því til að
ég væri ekki til viðræðu fyrr en tíma-
bilinu væri lokið,“ sagði Mourinho í
sinni bók.
Fagnaði lítið sem ekkert
En hann vakti mikla athygli eftir
úrslitaleikinn en þar fagnaði hann
ekki mikið með leikmönnum liðsins.
Hann útskýrði það síðar að hann
hefði fengið morðhótun fyrr um dag-
inn og vildi Mourhino láta fara lítið
fyrir sér eftir leikinn.
Ásakanir frá forseta Porto á hendur Chelsea
„Töpuðu viljandi
fyrir Mónakó“
NUNO Pinta da Costa, forseti portúgalska knattspyrnufélagsins
Porto, fullyrðir í nýútkominni bók að Chelsea hafi tapað viljandi fyr-
ir Mónakó í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu síðasta vor.
Enska félagið hafi brugðið á það ráð til að forðast rannsókn UEFA,
Knattspyrnusambands Evrópu, vegna þess að Chelsea hefði þegar
verið búið að semja við Jose Mourinho, þáverandi þjálfara Porto, og
það hefði litið illa út ef Chelsea hefði síðan mætt Porto í úrslitum.
Fleiri fylgja í kjölfarið til aðstyrkja Ólöfu Maríu þegar hún
leggur land undir fót á næsta ári
enda kostar sitt að
spila meðal þeirra
bestu og lengra hef-
ur íslenskur kylf-
ingur ekki náð.
Talsverð breyting verður á högum
kylfingsins, sem byrjaði að æfa
golf hjá Keili 13 ára gömul. „Stökk-
ið er stórt og þetta er allt annar
heimur. Það er í mörgu að snúast
og verður örugglega allt öðruvísi
en hingað til en ég get ekki beðið
eftir að byrja,“ sagði Ólöf María,
hvergi bangin, enda þekkt fyrir allt
annað en gefast upp. „Ég er með
gríðarlegt keppnisskap, mátti helst
ekki tapa í ólsen-ólsen þegar ég
var yngri og vil alltaf vinna svo að
fyrsta markmiðið var að verða Ís-
landsmeistari en svo varð að setja
hærri markmið. Mig hefur dreymt
um frá fimmtán ára aldri að gerast
atvinnumaður í golfi. Síðan fór ég
að spila erlendis og sá að það var
mögulegt svo stefnan var alveg
sett á það. Ég ákvað að byrja á
Evrópumótaröðinni og það gekk
eftir. Á næsta ári ætla ég að festa
mig í sessi þar en stefnan er samt
sett á að komast á LPGA innan
tveggja ára. Ég stefni alltaf á að
setja mér raunhæf markmið og
þetta er það.“
Ólöf María gerir sér grein fyrir
að það verður ekki auðvelt að
standa sig en það heldur ekki aftur
af henni. „Ég er að vinna í tveimur
tæknilegum atriðum núna en svo
þarf að huga að sálfræðinni. Það
gerði ég á síðasta móti á Ítalíu með
betri árangri þótt hann hafi ekki
verið alveg eins góður og ég vildi.
Ég finn ekki fyrir neinni pressu ut-
an að heldur set ég hana á mig sjálf
til að ná markmiðum mínum. Þetta
verða mikil viðbrigði og mikið um
ferðalög en ég reikna með að taka
þrjú mót og koma svo heim í viku-
frí svo að maður fari ekki yfir um.“
Ekki hefur enn verið birtur op-
inberlega listi yfir mótin hjá kon-
unum á evrópsku mótaröðinni en
búast má við að þau fyrstu verði í
febrúar eins og í fyrra, en þá voru
fyrstu tvö mótin haldin í Ástralíu.
Ólöf María býr sig
undir átökin í Evrópu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ólöf María Jónsdóttir, GK, Íslandsmeistari í golfi, er tilbúin í slaginn á evrópsku mótaröðinni.
MIKIÐ var um dýrðir í golfskála
Golfklúbbsins Keilis í Hafn-
arfirði á mánudaginn þegar
klúbburinn hélt veislu til heið-
urs Íslandsmeistaranum Ólöfu
Maríu Jónsdóttir fyrir að kom-
ast inn í evrópsku mótaröðina
en sem kunnugt er náði hún
þeim áfanga á dögunum. Vel-
unnarar hennar og fjölskylda
mættu á staðinn auk þess sem
styrktaraðilar lögðu sitt af
mörkum með því að greiða fyrir
fyrstu þrjú mótin.
Stefán
Stefánsson
skrifar
GUÐRÚN Sóley Gunnarsdóttir,
landsliðskona í knattspyrnu úr KR,
varð um helgina bandarískur háskóla-
meistari. Lið hennar, Notre Dame,
vann þá UCLA í vítaspyrnukeppni,
4:3, eftir að liðin skildu jöfn, 1:1, í úr-
slitaleiknum. Guðrún Sóley varð fyrir
því að skora sjálfsmark en samherji
hennar með íslenskulegt ættarnafn,
Katie Thorlakson, jafnaði metin.
SALOME Tómasdóttur, skíðakonu
frá Akureyri, hefur gengið vel á mót-
um síðustu dagana. Hún varð í 13. og
14. sæti í svigi fyrir helgina á ung-
lingameistaramótinu á Ítalíu og fékk
83 og 78 FIS punkta fyrir það en var
með 100 á síðasta lista þannig að um
verulega bætingu er að ræða hjá
henni. Á sunnudaginn varð hún í 5.
sæti í stórsvigi og fékk 81 FIS stig og
bætti árangur sinn mikið, var áður
með 102 punkta.
GRÉTAR Hjartarson, markaskor-
ari knattspyrnuliðs Grindavíkur und-
anfarin ár, skoraði sitt fyrsta mark í
búningi KR í fyrrakvöld. KR-ingar
sigruðu þá 1. deildarlið Fjölnis, 3:1, í
æfingaleik í Egilshöll. Arnar Gunn-
laugsson og Sölvi Sturluson skoruðu
hin tvö mörkin fyrir KR.
GLENN Hoddle var í gær ráðinn
knattspyrnustjóri enska 1. deildar-
liðsins Wolverhampton Wanderers.
Hann tekur við af Dave Jones sem
var sagt upp störfum fyrir skömmu
en Úlfarnir, sem féllu úr úrvalsdeild-
inni í vor, eru neðarlega í 1. deild.
Hoddle hefur verið atvinnulaus í eitt
ár, síðan hann hætti störfum hjá Tott-
enham, en áður stýrði hann Swindon,
Chelsea, enska landsliðinu og South-
ampton. Samningur Hoddle við Úlf-
ana er til næsta vors.
LOMANA LuaLua, framherji
Portsmouth, var í gær ákærður af
aganefnd enska knattspyrnusam-
bandsins fyrir ósæmilega hegðun í
garð stuðningsmanna Middles-
brough á leik Portsmouth og
Middlesbrough í október. LuaLua á
yfir höfði sér keppnisbann eða sekt
vegna atviksins en hann hefur frest til
varnar til 22. september.
RAYMOND Goethals, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Belga í knattspyrnu,
lést í gær 83 ára gamall. Goethals
þjálfaði belgíska landsliðið á HM 1970
og á EM 1972 þegar það hafnaði í
þriðja sæti. Hápunkturinn á hans ferli
var þó þegar hann stýrði Marseille til
sigurs í Evrópukeppni meistaraliða,
nú Meistaradeild Evrópu, árið 1993.
FORRÁÐAMENN enska 1. deild-
arliðsins Leeds hafa hrundið af stað
rannsókn á því hverjir réðust að eig-
inkonu og 14 mánaða gömlum syni
Sean Gregan, leikmanns liðsins, eftir
leik liðsins við Leicester um síðustu
helgi. Fékk árásin svo mjög á konuna
og drenginn að það lá við taugaáfalli.
„Við ætlum að hafa upp á þessum
mönnum og senda þá í ævilangt bann
frá leikjum Leeds,“ segir Bill Morris,
talsmaður Leeds.
BRYAN Robson, knattspyrnu-
stjóra neðsta liðs ensku úrvalsdeild-
arinnar, WBA, hefur verið heitið því
að hann fái peninga til þess að styrkja
leikmannahóp liðsins þegar opnað
verður fyrir kaup á leikmönnum í
næsta mánuði. Ekki er þó sopið kálið
hjá Robson því honum hefur einnig
verið sagt að hann verði að fækka í
leikmannahópnum, úr 31 í 25, til að
draga úr launakostnaði. Það eru því
fyrirséðar talsverðar breytingar á
leikmannahópi WBA sem aðeins hef-
ur unnið einn leik í deildinni á leiktíð-
inni.
COLIN Heath hefur verið lánaður
til Cambridge frá Manchester Unit-
ed, en hann er nýkominn úr láni frá
Antwerpen í Belgíu. Heath, sem er
framherji, hefur leikið allnokkra leiki
með varaliði Manchester United en
ekki tekist enn að spila með aðallið-
inu.
FÓLK