Morgunblaðið - 08.12.2004, Síða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 2004 C 3
ÞÝSKA handknattleiksliðið Wallau
Massenheim, sem Einar Örn Jóns-
son landsliðsmaður leikur með, á
yfir höfði sér að verða vikið úr
þýsku bikarkeppninni í handknatt-
leik, en það er nú komið í átta liða
úrslit.
Lið Wallau Massenheim hefur
orðið uppvíst að broti á reglum. Að-
eins má tefla fram tólf leikmönnum
í leik í þýsku bikarkeppninni, en
það var með fjórtán á leikskýrslu
þegar það vann Köndringen-Ten-
ingen, 40:27, í 16-liða úrslitum á
dögunum.
Reglurnar skýrar
Köndringen-Teningen var einnig
með fjórtán leikmenn á skýrslu í
leiknum og getur því ekki tekið
sæti Wallau í keppninni komi til
þess að því verði vikið úr keppni.
Í leikjum í 1. deildinni má hafa 14
leikmenn á skýrslu, þar af verða
tveir leikmenn að vera 23 ára eða
yngri.
„Reglurnar eru skýrar og hafa
fyrir löngu verið kynntar forráða-
mönnum allra félaga,“ segir Uwe
Stemberg hjá þýska handknatt-
leikssambandinu í samtali við þýska
netmiðilinn sport1.de. í gær.
Wallau hefur nú hálfan mánuð til
að leita varna í málinu, takist það
ekki verður því vikið úr keppni og
Nordhorn kemst á auðveldan hátt í
undanúrslit. Wallau og Nordhorn
drógust saman í 8-liða úrslitum
þegar dregið var um síðustu helgi
og eiga að mætast þann 16. febrúar.
Wallau Massenheim
vísað úr bikarkeppninni?
ið
með
og
nn
þau
náð
r-
á
dag
im
n
nd
til
ali
i
er í
ði
r að
nn
við
kic.
að
ð
Liðin tólf sem eru komin áframeru: Juventus, Bayern
München, Manchester United,
Lyon, PSV, Arsenal, AC Milan,
Barcelona, Inter, Werder Bremen,
Chelsea og Porto.
Eiður Smári Guðjohnsen sat allan
tímann á varamannabekknum þegar
Chelsea sótti Porto heim til Portú-
gals. Damien Duff kom Chelsea yfir í
fyrri hálfleik. Ribas Diego jafnaði
metin eftir klukkustundarleik og það
var síðan S-Afríkubúinn Benni
McCarthy sem var hetja Evrópu-
meistaranna þegar hann skoraði sig-
urmarkið með skalla fimm mínútum
fyrir leikslok. Þetta var fyrsti tap-
leikur Chelsea í Meistaradeildinni í
ár og sigurinn var sætur fyrir leik-
menn og stuðningsmenn Porto enda
gamli þjálfari þeirra, Jose Mourinho,
við stjórnvölinn hjá Chelsea.
„Þetta var erfitt en okkur tókst
það. Lið mitt sýndi mikinn vilja og
baráttan hjá leikmönnum var til
fyrirmyndar,“ sagði Victor Fernand-
ez þjálfari Porto eftir leikinn.
Porto verðskuldað áfram
„Ósigurinn skerðir aðeins sjálfs-
álitið og stoltið en það breytir því
ekki að við erum komnir á næsta stig
keppninnar sem er það mikilvæg-
asta. Porto verðskuldar hins vegar
hamingjuóskir. Liðið var næst besta
í riðlinum og það hefði komið mér á
óvart ef það hefði setið eftir,“ sagði
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri
Chelsea.
Með sigri á CSKA Moskvu hefði
Paris SG komist áfram á kostnað
Porto en Rússarnir mættu grimmir
til leiks og innbyrtu 3:1 sigur. Í stöð-
unni 1:1 var einum leikmanni CSKA
vikið af velli en einum færri tókst
Rússunum að skora tvívegis og
tryggja sér þar með þriðja sætið í
riðlinum. Sergei Semak var hetja
Rússanna en framherjinn knái skor-
aði öll mörk sinna manna.
Valencia féll á heimavelli
Hreinn úrslitaleikur var á Meist-
alla í Valencia þar sem Spánarmeist-
ararnir tóku á móti Þýskalands-
meisturum Werder Bremen.
Spánverjarnir urðu að sigra til að
fylgja Inter áfram en Þjóðverjarnir
voru ekkert á þeim buxunum. Þeir
náðu að knýja fram 2:0 sigur með
mörkum frá Nelson Valdez á síðustu
átta mínútum leiksins. Valdez var
skipt inná á 81. mínútu og tveimur
mínútum síðar var hann búinn að
koma sínum mönnum yfir.
„Lið mitt átti skilið að komast
áfram og ég er feikilega stoltur af
því. Nelson Valdez er frábær leik-
maður sem sýndi enn einu sinni snilli
sína,“ sagði Thomas Schaaf þjálfari
Bremen eftir leikinn.
Flugeldasýning á Highbury
Englandsmeistarar Arsenal buðu
upp á flugeldasýningu á Highbury
þar sem þeir tóku norsku meistarana
í Rosenborg í kennslustund og sigr-
uðu, 5:1, eftir að hafa gert fjögur
jafntefli í röð. Jose Antonio Reyes
opnaði markareikning Arsenal á 3.
mínútu og þar með varð ekki aftur
snúið hjá Englandsmeisturunum.
Henry, Fabregas, Pires, og Van
Persie bættu við fjórum mörkum en
Erik Hoftun gerði mark Rosenborg
og lagaði stöðuna í 3:1. Arsenal og
PSV, sem beið lægri hlut fyrir Pan-
athinaikos, 4:1, urðu efst og jöfn í
riðlinum með 10 stig en Arsenal
vann riðilinn þar sem þeir höfðu bet-
ur í innbyrðisviðureignum liðanna.
„Þegar Rosenborg minnkaði mun-
inn greip um sig smá taugaveiklun
en mínir menn brugðust hárrétt við.
Þeir sýndu styrk sinn og höfðu full-
komna stjórn á leiknum. Við settum
okkur markmið fyrir vikuna. Það
fyrsta var að sigra, annað að komast
áfram og það þriðja er þegar við
mætum Chelsea um helgina,“ sagði
Arsene Wenger, stjóri Arsenal.
Celtic gerði markalaust jafntefli
við AC Milan í Glasgow en það dugði
skosku meisturunum ekki til að ná
þriðja sætinu sem gefur sæti í
UEFA-keppninni. Þar sem Shaktar
Donetsk lagði Barcelona á heima-
velli sínum, 2:0, komust Úkraínu-
mennirnir upp fyrir Celtic í þriðja
sætið.
Reuters
Nelson Valdez skoraði bæði mörk þýska liðsins Werder Bremen í Valencia í gær og tryggði liðinu
sæti í 16-liða úrslitum. Santiago Canizares, markvörður Valencia, kom engum vörnum við.
Porto, Arsenal og Werder Bremen komust í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar
McCarthy hetja
Evrópumeistaranna
EVRÓPUMEISTARAR Porto náðu að tryggja sér sæti í 16-liða úrslit-
um Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu með 2:1 sigri á Chelsea í
lokaumferð H-riðilsins. Englandsmeistarar Arsenal og Þýskalands-
meistarar Werder Bremen komust einnig áfram og þar með hafa
tólf lið tryggt sér farseðilinn í 16-liða úrslitin og í kvöld fæst úr því
skorið hvaða fjögur lið til viðbótar komast áfram.
DUSAN Jaic, 25 ára knattspyrnu-
maður frá Serbíu-Svartfjallalandi,
er genginn til liðs við Þróttara, nýlið-
ana í efstu deild, Landsbankadeild-
inni, í knattspyrnu. Jaic hefur leikið í
Færeyjum undanfarin tvö ár og verið
lykilmaður í varnarleik Skála sem
kom mjög á óvart í ár og hafnaði í
þriðja sæti 1. deildar.
JAIC lék sem miðvörður með liði
Skála. Í heimalandi sínu spilaði hann
með liði Vozdovac og var samkvæmt
upplýsingum frá Þrótti fyrirliði þar
tvö síðustu árin sem hann lék þar. Ja-
ic hefur einnig leikið með Borac og
Hajduk í Bosníu.
ALLA Gorkorian, stórskyttan í Ís-
landsmeistaraliði ÍBV í handknatt-
leik, var í gær úrskurðuð í eins leiks
bann vegna útilokunar í leik ÍBV og
Hauka um síðustu helgi. Alla tekur
bannið út í leik gegn Víkingi um
næstu helgi.
AGANEFND HSÍ vísaði í gær frá
kæru Fram vegna máls Ingólfs Ax-
elssonar. Leikmaðurinn var dæmdur
í fjögurra leikja bann í síðustu viku
eftir uppákomu í leik Fram gegn Þór
á Akureyri. Framarar kærðu úr-
skurðinn en á fundi aganefndarinnar
í gær komst hún að sömu niðurstöðu.
STEFÁN Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson dæma síðari leik franska
liðsins Dunkerque og þýska liðsins
Gummersbach í 16-liða úrslitum
EHF-keppninnar í handknattleik
næsta laugardag. Þá hafa þeir Stefán
og Gunnar verið skipaðir dómarar á
leik Belgíu og Bosníu/Herzegóvínu í
undankeppni Evrópumóts landsliða
sem fram fer í Belgíu 12. janúar.
GUÐJÓN L. Sigurðsson og Ólafur
Örn Haraldsson dæma leik Ung-
verja og Ítala í undankeppni Evrópu-
móts landsliða sem fram er í Ung-
verjalandi 23. janúar. Þá hafa Anton
Pálsson og Hlynur Leifsson verið
skipaðir dómarar á leik dönsku lið-
anna Horsens og Randers í þriðju
umferð EHF-keppninnar sem fram
fer í Danmörku fyrstu helgina í jan-
úar.
RÓBERT Gunnarsson er sem fyrr
langmarkahæstur í dönsku úrvals-
deildinni í handknattleik. Róbert hef-
ur skorað 123 mörk í tólf leikjum År-
hus GF eða 10 mörk að meðaltali í
leik. Í öðru sæti á markalistanum er
annar Íslendingur, Hans Lindberg
en hann hefur skorað 96 mörk fyrir
Team Helsinge.
JASON Kidd lék sinn fyrsta leik
með New Jersey Nets á mánudaginn
en leikstjórnandinn hefur verið
meiddur á hné undanfarna mánuði.
Kidd var maðurinn á bak við sigur-
körfu liðsins sem Richard Jefferson
skoraði 7 sekúndum fyrir leikslok
gegn Toronto Raptors. Lokatölur
88:86. Kidd skoraði 10 stig, tók 6 frá-
köst og gaf 3 stoðsendingar á 21 mín-
útu.
FÓLKFORRÁÐAMENN norskaknattspyrnuliðsins Rosenborg
völdu óvenjulegan ferðamáta
á Highbury í fyrradag er liðið
hélt frá hóteli sínu og á æfingu
fyrir viðureign sína gegn
meistaraliði Arsenal. Norð-
mennirnir tóku neðanjarðar-
lest. Rune Bratseth, einn for-
svarsmanna liðsins, segir í
viðtali við Dagbladet að ferða-
lagið hafi aðeins tekið um 30
mínútur með neðanjarðarlest
og valið hafi því verið einfalt
þar sem það hefði tekið rúma
klukkustund að fara með rútu
frá hótelinu og í gegnum
miðbæ Lundúna á álagstíma.
„Það þekkti okkur enginn
og við vöktum ekki athygli.
Við vildum einnig fara með
lestinni í leikinn en reglur
UEFA bönnuðu okkur að gera
það og við vorum rúma
klukkustund með rútu á High-
bury,“ sagði Bratseth.
Bannað að
taka lestina á
Highbury