24 stundir - 13.12.2007, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2007 24stundir
Leikfangaverslunin Just4Kids hefur ákveðið að efna
til verðstríðs við ToysRUs á íslenskum leikfangamark-
aði.
Verslunin hefur boðað verðlækkanir á bilinu þrjátíu
til áttatíu prósent og heitir því jafnframt að vera ávallt
með lægsta verðið á öllum leikföngum, eins og segir í
tilkynningu frá fyrirtækinu.
Þar segir jafnframt að starfsfólk leikfangaverslunar-
innar muni fylgjast grannt með verðþróun á mark-
aðnum og þá gildi einu hver viðbrögð samkeppnisað-
ilans verði, verslunin muni ávallt bjóða lægra verð.
„Maður hlýtur að velta vöngum yfir því þegar hægt
er að lækka verð svona verulega, hvort álagning sé þá í
upphafi svona há eða hvort sterkur aðili standi á bak-
við,“ segir Jóhannes Gunnarsson formaður Neytenda-
samtakanna. „Ég hlýt að gleðjast yfir aukinni sam-
keppni, en hún má ekki ganga út í öfgar þannig að
samkeppnisaðilar þurfi að gefast upp, en aukin sam-
keppni á þessum markaði hlýtur að vera gott mál fyrir
neytendur. Ég vona bara að lækkanirnar skili sér að
mestu fyrir jól, því það er ekki síst þá sem leikföng eru
hvað mest keypt.“ aegir@24stundir.is
Just4Kids boðar verðstríð á íslenskum leikfangamarkaði
Lofa að vera alltaf lægstir
Verðstríð Formaður Neytendasamtakanna gleðst
fyrir hönd neytenda vegna aukinnar samkeppni
Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur
thorakristin@24stundir.is
Grunnur tillagna ASÍ í komandi
kjaraviðræðum er sá að tryggð
verði 150 þúsund króna lágmarks-
framfærsla fyrir alla. Þetta kom
fram á fundi ráðherra og forsvars-
manna ASÍ í gær þar sem sam-
bandið kynnti þær áherslur sem
það mun leggja í komandi kjara-
viðræðum.
Þannig er m.a. lagt til að skerð-
ingarmörk barnabóta verði hækk-
uð í 150 þúsund og að grunnat-
vinnuleysisbætur verði sama
upphæð.
Lagt er jafnframt til að lág-
marksviðmið í velferðarkerfinu
verði tengd við tekjuþróun í land-
inu og er miðað við að það verði
ávallt 50% af miðgildi teknanna.
Aðspurður um álit sitt á 150
þúsundum sem viðmiðun segir
Geir H. Haarde forsætisráðherra:
„Lágmarksbætur einstaklinga eru á
bilinu 125-130 þúsund og ríkis-
stjórnin hefur verið með hug-
myndir um að gera enn betur á því
sviði. Þá er spurningin sú hvernig
hægt er að láta þetta ganga upp og
passa saman þannig að það sem
gert er nýtist því fólki sem lægstar
hefur tekjurnar.“
20 þúsund í persónuafslátt
Ein af dýrari tillögum ASÍ er að
sérstökum mánaðarlegum per-
sónuafslætti verði komið á. Hann á
að vera 20 þúsund fyrir þá sem hafa
lágmarkslaun, eða 150 þúsund, og
fara svo lækkandi eftir því sem laun
fólks eru hærri. Áætlað er að þessi
aðgerð muni kosta ríkið um 14
milljarða.
Menntun starfsmanna aukin
ASÍ vill að sameinast verði um
þá stefnu að aðeins 10% starfs-
manna á vinnumarkaði verði án
viðurkenndrar starfs- eða fram-
haldsskólamenntunar árið 2020.
Þessi hópur er nú um 40% vinn-
andi manna.
Meðal tillagna þessa efnis er að
hálfum milljarði verði varið í fram-
lög til starfsmenntunar og fullorð-
insfræðslu, réttur fólks til fram-
haldsskólanáms á kostnað ríkisins
verði lögbundinn og að settar verði
reglur sem heimili fólki yfir 25 ára
aldri að fá námslán til náms á
framhaldsskólastigi, óháð tekjum.
Ávinningur
Ávinningur hjóna með tvö börn
og 300 þúsund í sameiginlegar
mánaðartekjur yrði um 545 þús-
und á ári ef tillagður persónuaf-
sláttur yrði tekinn upp ásamt
breytingum á barnabótum sam-
kvæmt útreikningum ASÍ.
Ef þessi sömu hjón hefðu 500
þúsund í mánaðartekjur yrði
ávinningurinn rétt undir 200 þús-
undum.
„Þessi dæmi sýna að tillögurnar
gagnast mest þeim sem minnst
hafa. Hins vegar vantar hér ávinn-
ing af ýmsum öðrum aðgerðum
sem við leggjum til, s.s. hækkun
skerðingarmarka á vaxtabótum og
hækkun húsaleigubóta,“ segir
Ólafur Darri Andrason, hagfræð-
ingur hjá Alþýðusambandinu.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Fundur ASÍ kynnti ráðherr-
um áherslur sínar á fundi í
Ráðherrabústaðnum í gær
Sérafsláttur
á lágu launin
Ein dýrasta aðgerðin kostar 14 milljarða Vilja tengja lágmarks-
bætur tekjuþróun Nýtast best þeim sem minnst hafa, segir ASÍ
➤ Aðgerðir í skattamálum: 20þús. mánaðarlegur persónu-
afsláttur, skerðingarmörk
barna- og vaxtabóta hækkuð,
húsaleigubætur hækkaðar.
➤ Áherslur í menntamálum: að-eins 10% vinnandi manna
verði án starfs- eða fram-
haldsskólamenntunar eftir 12
ár, að launafólk hafi raunhæf-
an möguleika á menntun, að
aðstaða til verk-og bóknáms
verði jöfnuð.
➤ Velferðarmál: m.a. að at-vinnuleysisbætur verði hækk-
aðar og uppsagnir rök-
studdar.
MEGINÁHERSLUR ASÍ
24stundir/Golli
Serblad 24 stunda jolablad
14 des 2007
Kolbrun S.510 3722 Kolla@24stundir.is Katrin s.510 3727 Kata@24stundir.is