24 stundir - 09.02.2008, Side 7
Heimsdagur á Vetrarhátíð
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og félagsmiðstöðinni Miðbergi,
laugardaginn 9. febrúar, kl. 13.00 - 17.00.
Á Heimsdeginum fá börn og unglingar tækifæri til að taka þátt í listmiðjum
tengdum menningu framandi landa. Listsmiðjurnar eru opnar frá kl. 13.00 -
16.00. Lokadagskrá Heimsdagsins hefst kl. 16.00 í samkomusal Gerðubergs
þar sem afrakstur listsmiðjanna er sýndur.
Fjölbreyttar uppákomur á göngum Gerðubergs og Miðbergs;
Móðurmálskór barna af erlendum uppruna, sýning á bardagalistinni
Akido, kvennahópur frá Ghana sýnir þjóðdansa og konur frá
Filipseyjum dansa bambusdans.
Listsmiðjur:
Maracas hristusmiðja
Komið og búið til ykkar eigin maracas hristur eins og notaðar eru í
suður-amerískri tónlist.
Skosk danssmiðja
Skosk fótafimi og hraður taktur. Líflegur dans sem öll fjölskyldan getur dansað
saman.
Lífræn kviksjá
Upplifðu ævintýraheim ljóss og skugga. Risastór kviksjá gerir manneskjuna að
lítilli ögn og ný form myndast þegar stigið er inn í kviksjána.
Oki Haiku Dan fjöllistasmiðja
Franski fjöllistahópurinn Oki Haiku Dan er þekktur fyrir að skapa magnaðan heim
töfra með dansi, fimleikum og látbragði. Komdu og lærðu ótrúleg sirkusbrögð og
brellur.
Víkinga- og vopnasmiðja
Búið til sverð og skjöld og lærið að skylmast að hætti alvöru víkinga.
Origami smiðja
Lærðu að búa til listaverk úr pappír eftir reglum japönsku pappírslistarinnar
Origami.
Japönsk leturgerð
Lærðu að skrifa nafnið þitt með skrautlegum japönskum táknum.
Salsa dans fyrir fjölskylduna
Þessi taktfasti dans frá Suður-Ameríku heillar alla aldurshópa. Taktu sporið!
Letursmiðja Sri Lanka-búa
Lærðu að skrifa leturskrift Sri Lanka-búa og kynnstu litríkum menningarheimi.
Skuggaleikhússmiðja
Skuggaverur bregða á leik í bókasafninu í Gerðubergi kl. 13:30 í sýningunni
„Sólarsögu”. Eftir sýninguna geta áhorfendur búið til sínar eigin skuggaverur.
Hiphop danssmiðja
Þessi vinsæli götudans þróaðist á götum New York á 8. og 9. áratugnum.
Lærðu nokkur vel valin spor við takstfasta hiphop tónlistina.
Töfrabragðasmiðja
Töframaður leyfir gestum að kynnast leyndarmálum töfrabragðanna og kennir
nokkur skemmtileg „trix”.
„Allt í plati!” sýningin úr söguheimi Sigrúnar Eldjárn verður opin gestum á
Heimsdeginum sem og ljósmyndasýningin „Hið breiða holt”.
Andlitsmálning handa börnum og opin föndurstofa í tengslum við
sýninguna „Allt í plati!”.
Heimsdagurinn er samstarfsverkefni Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs,
félagsmiðstöðvarinnar Miðbergs, Kramhússins, Alþjóðahússins, Borgarbókarsafns
Reykjavíkur og Höfuðborgarstofu.
Kynntu þér dagskrána á www.vetrarhatid.is Athugið, allir útiviðburðir eru háðir veðri
Dagskráin í dag, 9. febrúar
11.00 - 14.00 Vísindasmiðja „Ljós og hreyfing”. sérstök vísindasmiðja fyrir börn á
öllum aldri þar sem unnið er með ljós og fjölbreytilegan efnivið til byggingar.
Skoðað er hvernig hægt er að nota ljós til að gefa byggingum annað líf,
hvernig sumt efni hleypir ljósi í gegnum sig og annað.
Ráðhús Reykjavíkur v/Vonarstræti.
12:00 - 15:00 Sögu vil ég segja stutta - Hugljómun.
Reykjavíkursögur - Frístundir í borginni. Gestir og gangandi rifja upp
eftirminnilega listviðburði í Reykjavík. Upptökur á vegum Miðstöðvar
munnlegrar sögu. Listasafn Íslands við Fríkirkjuveg.
12:00 - 17:00 Hönnuður dagsins. Fjóla María Ágústsdóttir töskuhönnuður.
Sigurður Flosason leikur fyrir gesti. Kraum, Aðalstræti 10.
12:00 - 06:00 Tangómaraþon - Tangó fyrir alla. Maraþonið hefst á hádegi á laugardag
og verður dansað fram á sunnudagsmorgun í Iðnó. Auk þess er boðið uppá
fjölbreytta dagskrá sem hentar öllum; kennsla fyrir byrjendur og lengra komna,
tangó leikþáttur, og ýmis tónlistaratriði. Iðnó, Vonarstræti 3.
13:00 - 17:00 START ART. Hrafnhildur Inga Sigurðuardóttir sýnir landslagsmálverk sem
vísa öll til veðurfarsins á landinu í haust og vetur. START ART, Laugavegi 12b.
13:00 - 16:00 Opið hús í Þjóðleikhúsinu. Kynnist Þjóðleikhúsinu yst sem innst.
Uppákomur af öllu tagi s.s. ljóðalestur, tónlist og kynningar af ýmsu tagi.
Heitt kakó á könnunni. Þjóðleikhúsið, Hverfisgötu 19.
13:00 - 15:00 Vetrarhjólreiðar, tómstundir og sterkasti maður Íslands.
Perlan, Öskjuhlíð.
13:30 Gott kvöld. Sprellfjörug barnasýning með brúðum og söngvum.
í Kúlunni - sviði unga fólksins á Lindargötu 7.
13.30 - 17.30 Skammdegissöngur á Vetrarhátíð. Opið hús og samfelld dagskrá,
samsöngur og röð einsöngstónleika. Veitingar á boðstólnum.
Snorrabúð - Tónleikasalur Söngskólans í Reykjavík, v. Snorrabraut.
14:00 - 18:00 Stompnámskeið fyrir foreldra og börn í safnaðarheimili Laugarneskirkju.
15:00 - 17:00 Hátíðardagskrá Eldriborgara í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
15:00 Barnatónleikar með lúðrasveit verkalýðsins. Lúðrasveit verkalýðsins
heldur sína árlegu barnatónleika. Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús.
15:00 Smásögur. Sara Vilbergsdóttir opnar sýninguna Smásögur í Hliðarsal
Gallerís Foldar, Rauðarárstíg 14-16.
16:00 - 18:00 Opið hús, spil og söngur í félagsmiðstöðinni Hvassaleiti 56.
17:30 Esjuljósaganga. Lagt verður af stað á Esjuna við sólsetur og gengið inn í
myrkrið. Rútuferðir verða frá malarbílastæði við Háskóla Íslands og
Orkuveituhúsinu kl. 17:30, gangan hefst kl. 18:00.
Nánari upplýsingar um gönguna má finna á www.toppfarar.is.
17:30 - 24:00 Myndbandsverk í glugga á þriðju hæð.
Gatnamót Bergstaðastrætis og Baldursgötu.
20:00 - 22:00 Kvöldvaka í Laugarneskirkju sem lýkur með tónleikum með Svavari Knúti
trúbador. Laugarneskirkja.
21:00 Lokatónleikar Vetrarhátíðar – Iva Nova. Ein áhugaverðasta hljómsveit
Rússa í langan tíma, stelpnahljómsveitin Iva Nova lýkur Vetrarhátíð með
glæsilegum tónleikum á Nasa við Austurvöll.