24 stundir - 09.02.2008, Blaðsíða 11
24stundir LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 11
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Das Auto.Akranesi - Akureyri - Ísafirði - Reyðarfirði - Reykjanesbæ - Selfossi.
Frumsýning á Volkswagen Tiguan teygir sig allan hringinn kringum landið um helgina.
Opið laugardag kl. 10–16 og sunnudag kl. 12–16.
Komdu til umboðsmanna HEKLU um land allt og skoðaðu sportjeppann sem breytir öllu.
Tiguan. Hann breytir líka öllu um land allt.
Lögreglumenn frá Scotland Yard í
Bretlandi eru sannfærðir um að
Benazir Bhutto hafi látist af völd-
um sjálfsmorðssprengju þann 27.
desember síðastliðinn en ekki af
skothríð tilræðismanns. Bresku
rannsóknarlögreglumennirnir
munu hafa komist að þeirri nið-
urstöðu að Bhutto hafi látist
vegna meiðsla sem hún hlaut er
höfuð hennar slóst upp í bílinn,
sem henni var ekið í, vegna þrýst-
ings sem varð þegar sjálfsmorðs-
sprengjan sprakk.
Kenningar bresku lögreglunnar
styðja þar með yfirlýsingar
stjórnvalda Pakistans um at-
burðarásina.
Scotland Yard
Bhutto lést ekki
af völdum skots
Björgunarmenn í Castalian
Springs í Tennessee í Bandaríkjun-
um voru eiginlega búnir að gefa
upp alla von um að finna Kyson
Stowell, sem er 11 mánaða, á lífi
eftir hamfarirnar þar nú í vikunni.
Þegar björgunarsveitarmennirn-
ir komu auga á Kyson eftir margra
klukkustunda leit líktist hann lítilli
dúkku, að því er einn þeirra
greindi frá í viðtali við AP-frétta-
stofuna.
Nú telja björgunarsveitarmenn-
irnir að Kyson hafi lyfst upp frá
jörðinni og þeyst með skýstrókn-
um um 100 metra.
„Hann lá alveg kyrr. Svo tók
hann andköf og fór að gráta,“ segir
David Harmon björgunarsveitar-
maður.
Móðir Kysons litla lét hins vegar
lífið í náttúruhamförunum. Lík
móðurinnar, sem var 23 ára, fannst
nálægt pósthúsi í bænum Castalian
Springs. Unnusti hennar telur að
hún hafi reynt að vernda barnið sitt
og fórnað lífi sínu fyrir litla dreng-
inn. Kyson er nú kallaður litla
kraftaverkabarnið.
Náttúruhamfarirnar í suður-
hluta Bandaríkjanna í vikunni eru
þær verstu í 20 ár.
Skýstrókar skildu eftir sig slóð
eyðileggingar þar sem á sjötta tug
létu lífið. Hús hrundu og bílar fuku
langar leiðir.
Í Mississippi fauk hús ofan af
konu sem var nýfarin á fætur þar
sem hún hélt að eldur hefði komið
upp. „Allt í einu var húsið horfið,“
sagði konan í viðtali við CNN-
sjónvarpsstöðina. Skýstrókur í
Jackson eyðilagði tvo stúdenta-
garða. Nemendur lokuðust inni og
var þeirra leitað með sporhundum.
Nær 90 manns slösuðust, þar af
þrír alvarlega.
„Þetta er eins og á vígvelli. Bílar
og vöruflutningabílar hafa kastast
langar leiðir um svæðið,“ sagði
rektorinn David Dockery.
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði þjóðina biðja fyrir fórnar-
lömbum náttúruhamfaranna og
hét stuðningi ríkisins.
ingibjorg@24stundir.is
11 mánaða snáði tókst á loft með skýstrók í Tennessee
Á lífi eftir um 100 metra flug
AFPEyðilegging Gríðarlegt tjón varð af völdum náttúruhamfaranna.
Natascha Kampusch, sem fyrir
einu og hálfu ári slapp frá mann-
inum sem hélt henni fanginni í
kjallara í Vín í átta ár, íhugar nú
hvort hún eigi að höfða mál gegn
austurríska ríkinu.
Innanríkisráðuneytið liggur und-
ir grun um að hafa ekki árið 2006
látið kanna möguleg mistök við
rannsóknina á hvarfi Natöschu
árið 1998. Samkvæmt gögnum
austurrísku lögreglunnar fékk
lögreglan þegar 10 dögum eftir
ránið á stúlkunni vísbendingu
um mannræningjann. Þótt hann
hefði ekki haft neina fjarvist-
arsönnun rannsakaði lögreglan
ekki málið. Lögmaður Natöschu
segir að mál verði höfðað komi í
ljós að hægt hefði verið að frelsa
stúlkuna strax.
Natascha Kampusch
Íhugar að höfða
mál gegn ríkinu
Búist er við að Kosovo-héraðið,
þar sem Albanir eru í meirihluta,
lýsi yfir sjálfstæði þann 17. febr-
úar næstkomandi. „Serbneska
stjórnin hefur fengið margar
marktækar vísbendingar um að
stjórnandi Kosovo, Hashim
Tchaci, lýsi ólöglega yfir einhliða
sjálfstæði Kosovo þann 17. febr-
úar,“ sagði serbneski ráðherrann
Slobodan Smardzic í gær.
Tchaci gerir ráð fyrir að um 100
lönd, þar með flest Evrópusam-
bandslöndin, viðurkenni strax
sjálfstæði Kosovo.
„Þetta er ákveðið. Allir vita það.
Engin yfirvöld í Belgrad geta
komið í veg fyrir það þessa já-
kvæðu þróun,“ sagði Tchaci með-
al annars.
Sjálfstæði Kosovo
Yfirlýsingar
brátt að vænta
Fjórir milljarðar evra, eða tæp-
lega 400 milljarðar íslenskra króna,
hafa farið í framkvæmdir sem
framkvæmdastjórar Evrópusam-
bandsins geta ekki gert grein fyrir.
Þetta þýðir að eftirlitsnefnd með
fjárlögum sambandsins mun ekki
samþykkja reikningana, að því er
greint er frá á fréttavef Fyens
Stiftstidende í Danmörku.
„Ég get ekki notað orðið svindl
því ef til vill hafa verið byggðar brýr
og gerðar hafnir fyrir peningana.
En við vitum það ekki því það eru
ekki til nein gögn um það,“ segir
Dan J¢rgensen sem er formaður
eftirlitsnefndarinnar.
Viðurkenni Evrópuþingið ekki
reikningana er mögulegt að öll
framkvæmdastjórnin þurfi að
víkja. Slíkt gerðist árið 1999 vegna
ásakana um spillingu.
J¢rgensen útilokar ekki að það
endurtaki sig en hann telur mjög
líklegt að þeir sem beri ábyrgð
verði látnir víkja en það munu vera
Danuta Hübner frá Póllandi og
Vladimir Spidla frá Póllandi.
„Ég vona hins vegar að við fáum
fullnægjandi skýringu á því í hvað
milljarðarnir hafa verið notaðir,“
segir Dan J¢rgensen.
Formaður eftirlitsnefndarinnar
er undir auknum þrýstingi frá að-
ilum innan Evrópusambandsins
sem finnst hann vera of harður, að
því er segir á fréttavefnum.
ibs
Nýtt hneykslismál í uppsiglingu innan ESB
Gögn vantar um
hundruð milljarða
Vladimir Pútín Rússlandsforseti
segir að nýtt vopnakapphlaup sé
hafið í heiminum. Forsetinn vill
ekki að Rússland taki þátt í kapp-
hlaupinu og segir Vesturlönd
ekki hafa tekið áhyggjur Rúss-
lands til greina.
Hann gagnrýnir bæði Nató og
Bandaríkin fyrir aukin hernaðar-
umsvif við landamæri Rússlands.
Í ræðu í Kreml í gær lagði Pútín
Rússlandsforseti áherslu á að
fjárfestingar erlendis, hækkuð
laun og sigurinn yfir uppreisn-
armönnum í Tjétséníu væru sér
að þakka, að því er erlendir fjöl-
miðlar greindu frá. Pútín sagði
jafnframt enn mikið ógert.
Pútín Rússlandsforseti
Vopnakapp-
hlaup hafið
Staða manna meðal starfsfélag-
anna á kránni hefur áhrif á stöðu
þeirra í vinnunni. En þótt föstu-
dagsbjórinn auki framamögu-
leikana getur hann einnig úti-
lokað menn frá vinnufélögunum,
að því er kom fram á ráðstefnu
um faldar ógnanir í atvinnulífinu
í Bergen í Noregi.
Þeir sem ekki geta farið með á
krána að lokinni vinnu á föstu-
dögum vegna þess að þeir þurfa
að sækja börn úr daggæslu eiga á
hættu að missa af næstu stöðu-
hækkun. Þess vegna getur föstu-
dagsbjórinn leitt til slæms and-
rúmslofts á vinnustaðnum, að því
er einn fyrirlesaranna hélt fram.
Föstudagsbjórinn
Eykur mögu-
leikana á frama