24 stundir - 09.02.2008, Síða 49
24stundir LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 49
Elísabet Alba mælir með
Fonseca Bin 27. Heitt í nefi
með plómur, fíkjur og döðlur
sem helstu einkenni. Sætt í
munni, þó ekki væmið,
ásamt sólberja-, rúsínu- og
sultutónum. Langt þægilegt
eftirbragð með hrásykri í
lokin.
Land: Portúgal. Hérað:
Douro.
Skemmtilegt ís-parfite er auðvelt að
laga og getur gefið nýja vídd í eft-
irréttina með blönduðum ávöxtum
Hráefni:
150 g eggjarauður
20 g hunang
200 g Ivori, hvítt súkkulaði
450 g rjómi
250 g síróp (110 g vatn og 140 g
sykur) leyst upp
Aðferð:
Þeytið eggin yfir vatnsbaði, setjið
svo í hrærivélarskál og þeytið þar
til eggin eru köld.
Bætið þá bræddu hvítu súkkulaði
og þeyttum rjóma
(passið að súkkulaði sé um 40°C
eins og góður heitur pottur svo
kaldur rjóminn láti ekki súkku-
laðið stífna of snemma).
Setjið í form, flott er að setja
nokkra liti af lituðum sorbet eða
jarðarberjaís með, svo marmara
áferð fáist á ísinn
Framreiðið með jarðarberjasafa,
jarðarberjum og melónum.
Jarðarberjasafi
Hráefni:
(Jarðarber í dós)
1 askja fersk jarðarber
100 g sykur
Aðferð:
Sigtið berin úr dósinni eða látið
fersk jarðarber í örbylgjuofn í tvær
mínútur með ögn af sykri. Þá kem-
ur tær safi sem er lostæti, fram-
reiðið með ísnum.
Vatnsmelónur og fersk jarðarber til
skrauts.
EFTIRRÉTTUR
Súkkulaði-parfite með
blönduðum ávöxtum
Margir hafa lent í því að lamba-
lundirnar, sem eru einn besti vöðv-
inn á hryggnum, vilja verða ofeld-
aðar og þurrar þegar hryggurinn er
tilbúinn. Séu þær hins vegar teknar
af og notaðar til fyllingar ásamt
apríkósum, furuhnetum og cumin-
kryddi, þá er allur hryggurinn tilbú-
inn á sama tíma og kjötið safaríkt
eftir því. En hægt er að úrbeina
hrygginn og vefja hann inn í
parmaskinku eins og hér er gert eða
skera meðfram beinunum og stinga
fyllingunni undir hryggvöðvann og
gera hrygginn heilan, þá þarf meiri
eldunartíma en hér. En ef mikið á
að leggja í réttinn er hægt að hæg-
elda lambaöxl sem gerir réttinn ný-
tískulegan og framandi (en það er
ekki nauðsynlegt).
Hráefni:
1 stk. lambahryggur
nokkrar sneiðar, þunnt skorin
parmaskinka
10 stk. apríkósur
50 g furuhnetur
3 g cumin
salt og pipar
Aðferð:
Skerið meðfram beininu ofan frá,
fjarlægið filet ofan frá og lundirnar
neðan af hryggnum, fyllið með
apríkósum, og furuhnetum. Vefjið í
parmaskinku, kryddið með salti,
pipar og cumin-kryddi. Bakið í ofni
við 220°C í 6 mínútur og lækkið
svo niður í 150°C í um 3-5 mínútur
(getur verið breytilegt eftir ofnum)
eða þar til kjarnhiti nær 62°C.
Hægelduð lambaöxl
Hráefni:
1 stk. fremsti hlutinn af framparti
blandaður grænmetisafskurður
salt og pipar
Aðferð:
Lambaöxlin er vafin þétt inn í
plastfilmu með grænmetisafskurði
ásamt kryddi að eigin vali og elduð
í potti í minnst 6-8 tíma. Allt kjöt er
rifið af beinunum og kryddað með
salti og pipar og Nam Prik-
apríkósudressingu.
Nam Prik-apríkósudressing
Þessi dressing er tilvalin á eldað kjöt
því vatnið fer inn í kjötið og skilur
eftir ferskt bragð og er því alveg
fitulaus.
Hráefni:
50 ml sykursíróp (50 ml vatn og
30 g sykur)
safi og börkur af 1 límónu
1 rif, fínt saxaður hvítlaukur
4 stk. apríkósur
½ kjarnhreinsaður chili-pipar
salt og pipar
ferskt kóríander (má sleppa)
nokkrar furuhnetur
Aðferð:
Rífið hvítlauk og börkinn af límónu
með fínu rifjárni. Blandið í sykur-
sírópið ásamt límónusafa og fínt
söxuðum kjarnhreinsuðum chili-
pipar, furuhnetum og apríkósum.
Framreiðið með lambaöxlinni.
Meðlæti
Rjómasoðið sumargrænmeti eins
og aspas, spínat og sveppir.
Sósa og kartöflur að eigin vali.
AÐALRÉTTUR
Lambahryggsrúlla vafin í parma-
skinku með framandi lambaöxl
Elísabet Alba mælir með
San Michele – Eppan Pinot
Nero St. Valentin 2003.
Aðlaðandi angan af pipar,
ristuðum hnetum, mokka
og svörtum skógarberjum.
Hindber og brómber eru
áberandi í munni, þroskuð
tannín og fínleg sýra.
Þægilegur hiti fylgir
löngum rjómakenndum
endi. Þrúga: Pinot Nero
Land: Ítalía Hérað: Alto
Adige
Saltfiskur er eitt okkar besta hrá-
efni og gaman er að elda á suð-
rænan hátt á köldum vetrar-
kvöldum.
Hráefni:
300 g saltfiskur
100 ml ólífuolía
1 sítróna,
1 hvítlauksrif
(1matarlímsblað)
Aðferð:
Marinerið í ólífuolíunni og sí-
trónusafanum og eldið í olíunni
við vægan hita í ofni við 100°C
þar til hann dettur í sundur ef
hann er meðhöndlaður með
hörku. Hægt er að raða lagskipt í
form og framreiða kalt (þá er
uppleystu matarlími blandað við)
Tómatsulta
Hráefni:
1fínt saxaður skarlottulaukur
1 hvítlauksrif
5 kjarna og hýðishreinsaðir
plómutómatar
1msk. tómat-puré
2 msk. ólífuolía
sjávarsalt
smá flórsykur
Aðferð:
Allt sett í pott og eldað í potti í 2
mín. og svo sigtað, því næst
þurrkað í ofni við 100°C í eina
klukkustund með smá flórsykri.
Saltfiskstappa
Hráefni:
300 g saltfisksafskurður
500 ml mjólk
hálft hvítlauksrif
ein grein garðablóðberg
eitt lárviðarlauf
100 ml jómfrúarolía
50 ml rjómi
10 stk. saxað kóríander.
Aðferð:
Saltfiskurinn er soðinn í mjólk-
inni og tekinn og sigtaður og
hrærður með ólífuolíu og rjóma
(hægt að setja í hrærivél til að
auðvelda lífið). Kryddað með
svörtum pipar og kóríander.
FORRÉTTUR
Hægeldaður saltfiskur
Árvakur/Golli
Elísabet Alba Valdimarsdóttir vínþjónn mælir með Yalumba Maw-
sońs Wrattonbully Cabernet Sauvignon 2004. Rósapipar og stein-
efni í nefi ásamt hindberjum og svörtum kirsuberjum. Létt í
munni með plómum, kirsuberjaböku og kryddjurtum. Heit, silki-
mjúk tannín með meðallöngum ávaxtaríkum endi. Þrúga: Caber-
net Sauvignon Land: Ástralía. Hérað: South Australia – Barossa.
Leður sófasett
Hornsófasett
Sófasett með skemli
Tungusófar
Tungu hornsófar
Stakir sófar
Borðstofuborð og
stólar
Skenkar
Sófaborð
Eldhúsborð
Rúmgaflar
Leðursófasett áður 239,000
Nú 119,900
Hornsófar tau áður 198,000
Nú 103,000
Hornsófar leður áður 249,000
Nú 149,000
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
HÚ
SG
AG
NA
-
L
AG
ER
SA
LA HÚSGAGNALAGERSALA
VERÐDÆMI
Opnunartími
mán-fös 9.00-18.00 lau 11.00-16.00
ALLTAF FRÁBÆRT VERÐ!
www.airfree.com • www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Airfree lofthreinsitækið
• Byggir á nýrri tækni sem eyðir
ryki, frjókornum og gæludýraflösu
• Eyðir ólykt, bakteríum, vírusum, myglu og öðrum örverum
• Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt – tilvalið í svefnherbergið og á skrifstofuna
Betra
loft
betri
líðan