24 stundir - 09.02.2008, Page 57
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ
Sóttvarnalæknir Austurströnd 5 • 170 Seltjarnarnes • Sími 5101900 • www.influensa.is • www.landlaeknir.is
1. Þvoðu þér reglulega um hendurnar –(einkum fyrir máltíðir)
Handþvottur verndar gegn beinni og óbeinni snertingu við inflúensuveiruna. Bein snerting
er m.a. að taka í höndina á sýktum einstaklingi sem hefur snert munn sinn eða nef eða
haldið fyrir vitin til að hósta eða hnerra. Óbein snerting felst í að snerta hluti sem smitaður
einstaklingur hefur handleikið, t.d. hurðarhún eða notaða bréfþurrku.
2. Notaðu bréfþurrkur til að hylja munn og nef þegar þú hnerrar og hóstar
Úðadropar úr vitum berast aðeins stutta leið, innan við einn metra. Þeir sem standa næst
einstaklingi sem hnerrar eða hóstar án þess að halda fyrir vitin eru í hvað mestri smithættu.
Að halda fyrir munn og nef dregur úr líkum á smiti.
3. Hentu notuðum bréfþurrkum beint í ruslið
Inflúensuveirur geta lifað tímabundið utan líkamans og hægt er að smitast með því að
snerta hluti sem nýlega hafa mengast, s.s. vasaklúta eða bréfþurrkur, eða með því taka í
hönd smitaðs einstaklings. Bein eða óbein snerting, t.d. við bréfþurrku, sem smitaður ein-
staklingur hefur nýlega notað til að snýta sér með eða hnerra á, getur skapað smithættu.
4. Haltu fyrir vitin ef bréfþurrkur eru ekki til taks
Þegar bréfþurrkur eru ekki við hendina skaltu halda fyrir munn og nef og þvo hendurnar
strax á eftir eða hnerra á handlegginn eða í olnbogabótina til að hindra dreifingu veiranna.
5. Vertu heima meðan veikindi vara
Inflúensa er mest smitandi fljótlega eftir að sjúkdómseinkenni byrja. Enda þótt veirurnar
haldi áfram að dreifast í allt að fimm daga frá upphafi veikinda (sjö daga hjá börnum)
dregur smám saman úr fjölda þeirra og þar með minnkar smithættan. Ráðlegt er að vera
heima frá því að einkenna verður vart. Ef þér versnar skaltu leita læknis.
Hvað er inflúensa?
Inflúensa – í daglegu tali kölluð flensa – er árlegur
faraldur. Hún stafar af inflúensuveirum sem sýkja
öndunarfærin (nef, háls, berkjur og stundum lungun).
Flensa smitast frá manni til manns með úðadropum
sem berast úr öndunarfærum smitaðra þegar þeir
hósta og hnerra eða með snertingu þegar veirurnar
eru á höndunum. Sjúkdómurinn getur staðið yfir í
meir en viku með tiltölulega vægum einkennum en
hann getur líka valdið alvarlegum veikindum.
Einkenni: Skyndilegur sótthiti, beinverkir, höfuðverkur
og almenn vanlíðan. Einnig geta komið fram einkenni
eins og þreyta, hósti, hnerri, nefstífla og erting í nefi,
augum, hálsi og eyrum.
Forðumst flensuna