24 stundir - 09.02.2008, Qupperneq 72
24stundir
PICANTO GEFUR LÍFINU LIT
SKEMMTILEGUR SMÁBÍLL FYRIR FÓLK Á ÖLLUM ALDRI
KIA Laugavegi 172 Reykjavík s ími 590 5700 www.kia. is
KIA á Ís landi er í e igu HEKLU
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Nýr Picanto 1.1 EX, dísil, beinsk. 75 hö.
Verð frá kr. 1.590.000.-
Nýr Picanto 1.1 EX, bensín, sjálfsk. 65 hö.
Verð frá kr. 1.540 000.-
Komdu á frumsýningu á nýjum Picanto um helgina. Picanto er ekki bara skemmtilegur
smábíll, heldur er hann líka hagkvæmur í rekstri, fæst í fjölda lita og er á frábæru verði.
Komdu, reynsluaktu og upplifðu litríkan Picanto.
BÍLASTÆÐASKÍFA
FYLGIR NÝJUM
BEINSKIPTUM
DÍSIL PICANTO
N
Ý
R
FRUM
SÝNI
NG
UM H
ELGIN
A
OPNUN
ARTÍMA
R UM H
ELGINA
:
LAUGA
RDAGU
R FRÁ
KL. 10:
00 TIL
16:00
SUNNU
DAGUR
FRÁ K
L. 12:0
0 TIL 1
6:00
Ó
!
·
1
1
1
2
8
? Skömmu eftir heimsstyrjöldina síð-ari kom hingað til lands bandarískurbyggingaspesíalisti í „skemmtiferð“.Ekki veit ég hvernig honum datt það íhug, en hann fékk sér göngutúr umborgina og skoðaði „húsagerðarlistina“.Eftir upplifunina sagði hann við ís-lenskan blaðamann: „Djöfull hafið þið
farið illa út úr stríðinu maður!“ Hann
gapti af undrun þegar honum var tjáð
að það hefði engin sprengja fallið á
borgina önnur en sú sem býr í íslensku
smekkleysi.
Nú er búið að ákveða að eyða millj-
arði í kaup og samantjöslun á tveimur
þeim aumustu og stagbættustu óþverra-
vinnuskúrum sem sést hafa á byggðu
bóli að skaðbrenndum indíánatjöldum
meðtöldum. Í kjölfarið á svo að friða
allt annað aldargamalt fúaspýtnarusl og
bárujárnsdrasl sem finnst við Laugaveg
og víðar, fyrir ófáa milljarða.
Á sama tíma og húsafriðunaræði
ríður húsum þá er verið að buffa og
brytja fólk í smátt í miðbænum og á
eftirlitsmyndavélalausum Laugaveg-
inum því það eru ekki til peningar í
almennilega löggæslu. Taðreyktir hipp-
ar væla um að það beri að friða ein-
hverja rottuholu sem kallast Sirkus og
fatta ekki að borgin er einn allsherjar
Sirkus.
Væri nokkuð galið að byrja á því að
friða fólkið í bænum áður en við för-
um að friða hjallana í bænum? Við eig-
um ekki að friða kofana fyrr en við
höfum efni á að friða fólkið því kof-
arnir eru til fyrir fólkið en ekki öfugt.
Bárujárnsbyltingin ríður húsum
Sverrir Stormsker
hefur ekki smekk fyrir
íslensku smekkleysi
YFIR STRIKIÐ
Hvort er
meira virði,
fólk eða hús?
24 LÍFIÐ
Talið er að verk handritshöfunda í
Hollywood leysist í dag. Grey’s An-
atomy snýr brátt aftur
á skjá landsmanna.
Handritshöfundar
snúa aftur til vinnu
»63
Skemmtistaðurinn Sirkus gæti ver-
ið á leið á safn í London, en Árbæj-
arsafn vill ekki sjá húsið
á sínum slóðum í Árbæ.
Safn í Lundúnum
vill varðveita Sirkus
»70
Utandeildarlið á Ísafirði fékk
10.000 króna styrk frá Baugi. Liðs-
menn harma að hafa
ekki beðið um meira.
Hefði frekar átt að
biðja um milljón
»70
● Um Janice „Ég
hef alltaf verið hrif-
inn af Janice Jopl-
in, enda er hún frá
þeim tíma sem
stendur mér nærri,“
segir Ólafur Hauk-
ur Símonarson rit-
höfundur, sem
skrifar nú leikrit um söngkonuna
sem söng hátt og af innlifun, lifði
hratt og dó ung. Verkið verður sýnt
í Íslensku óperunni í ágústmánuði
og heitir verkið 27, sem er tilvísun
í aldur söngkonunnar þegar hún
lést. Ekki er útséð með aðal-
hlutverkið ennþá, en valið stendur
á milli þriggja stúlkna. Hljómsveit-
arstjóri verður Jón Ólafsson.
● Aðstoðar Ólaf
„Að sjálfsögðu býst
ég við að sinna
þessu starfi lengur
en þrjá mánuði,“
segir Ólöf Guðný
Valdimarsdóttir
en hún hefur verið
ráðin aðstoð-
armaður Ólafs F. Magnússonar
borgarstjóra í Reykjavík.
„Mér líst mjög vel á að starfa með
Ólafi, við höfum unnið mikið
saman á sviði umhverfismála. Ég
hlakka bara til að vinna með Ólafi,
ég þekki hann og veit að hann
vinnur af einlægni og málefnalega
að sínum málum,“ segir Ólöf
Guðný sem notaði gærdaginn til
að skoða sig um í ráðhúsinu.
● Góðlátlegt grín
Örn Árnason,
leikari og
skemmtikraftur,
vill ekki meina að
Villi og Óli spili
stóra rullu í þætt-
inum í kvöld,
enda segir hann
að þeir hafi fengið sterk viðbrögð
frá fólki um að þeir ættu ekki að
vera grimmir heldur bjóða upp á
góðlátlegt grín. „Þess vegna tökum
við nú upp ný atriði sem nefnast
Góðlátlega grínhornið og vonum
að þau fari vel í landann,“ sagði
Örn en líklegt má teljast að margir
sakni hins flotta gervis sem Ólafur
F. Magnússon fékk.
Ritstjórn
Sími: 510 3700
ritstjorn@24stundir.is
Auglýsingar
Sími: 510 3700
auglysingar@24stundir.is
Hvað ætlar þú að
gera í dag?
- kemur þér við