24 stundir - 27.05.2008, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Ég hjóla 5-10 kílómetra á dag,“
segir Oddný Sturludóttir sem
notar bílinn sama og ekkert dags-
daglega.
„Ég nota hjólið aðallega til
samgangna, ekki í íþróttalegum
tilgangi. Stundum er ég í miklu
stuði og fer í lengri ferðir, en á þó
eftir að toppa Reykjavík - Gríms-
nes sem ég hjólaði þegar ég var 14
ára með Ólöfu Júlíusdóttur!“
Oddný segir hjólreiðarnar hafa
góð áhrif á sig. Þolið hefur aukist
og stressið líður úr henni eftir
langan vinnudag. „Lærvöðvarnir
eru þó helsti plúsinn – alveg
ómótstæðilegir.“
Aðspurð um hvaða leiðir hún
fari segist Oddný mest hjóla um
Þingholtin og miðbæinn.
„Stundum hjóla ég upp í Borg-
artún og vestur í bæ.
Ég skrönglast upp og niður
gangstéttarkanta, „sikksakka“
milli gangstétta og gatna en hjóla
þó oftast á götunni. Ég hjóla auð-
vitað á sérstökum hjólaleiðum
þar sem þær bjóðast. Og það er
nú ekki víða.“
Oddný er á hjólinu allt árið um
kring og leggur því ekki í verstu
vetrarveðrunum.
„Ég hjóla í djúpum snjó jafnt
sem sumarblíðu. Mæli með gróf-
um dekkjum.“
Oddný segir enda kostina við
að vera á hjólinu mikla umfram
að nota bílinn.
„Hjólreiðum fylgir minni
kostnaður, meiri útivera og ég
þarf aldrei að leita mér að stæði.
Að auki skipta hjólreiðar miklu
fyrir samfélagið. Ég menga lítið
og skila auðu í svifryksframleiðslu
sem er orðin verulegt vandamál í
Reykjavík.“
En hvað með manninn hennar
Oddnýjar, Hallgrím Helgason.
Stígur hann ekki á hjól?
„Hann á hjól. En notar það lít-
ið því hatturinn fýkur alltaf af
honum.“
Stökk höfrungsins
„Ég hjóla á hverjum degi og æfi
brögð og stökk og þess háttar,“
segir Björgvin Helgi Hjartarson
sem setti Íslandsmet í stökki á
hjóli í Bunny hopp-stökkkeppni á
BMX-hjólum á vegum Hjólreiða-
félags Reykjavíkur í febr-
úarmánuði síðastliðnum. Björg-
vin Helgi, öðru nafni
Höfrungurinn, sigraði í keppn-
inni og stökk 102 cm. Þar með
setti hann Íslandsmet og sló um
leið eigið met sem var 97 cm. „Ég
er kallaður höfrungurinn vegna
ískurs sem heyrist í bremsum á
hjólinu. Ég er á hjóli sem heitir
Mirraco, Black Pearl,“ bætir
Björgvin við og útskýrir nánar að
það sé hjól sem henti vel í ýmiss
konar stökk, svokallað BMX-hjól.
„Ég vildi óska að það væri betri
aðstaða hér á landi fyrir hjóla-
sportið, okkur vantar torg svipað
og hjólabrettasvæði, en stærra.“
Hjólar alla daga í vinnu
„Ég hjóla í vinnuna og heim
nærri alla daga,“ segir Guðný
Steina Pétursdóttir í sjávarútvegs-
ráðuneytinu. „Fyrst voru það bara
góðviðrisdagarnir sem ég ákvað
að nota til að hjóla til vinnu en
svo bara rigndi ekki og ég var eig-
inlega farin að bíða eftir rigning-
unni,“ bætir hún við og hlær.
„Nú finnst mér þetta þægilegt og
ég hef gott af útiverunni og hreyf-
ingunni.“ Guðný segir leiðina
niður í bæ beina og greiða.
„Ég hjóla í gegnum Elliðaárdal-
inn. Ég vil ekki hjóla á götunni og
finnst betra að nota hjólreiða-
stíga. Það tekur mig um hálftíma
að hjóla þessa leið úr Selási niður
í miðbæ. Maðurinn minn vinnur
líka niðri í miðbæ þannig að
stundum hjólum við saman.“
24stundir/Golli
Sikk sakk Oddnýjar, hjólstökk „höfrungsins“ og seigla Guðnýjar
Hjólað í borginni
Oddný Sturludóttir,
Guðný Steina Péturs-
dóttir og Björgvin Helgi
Hjartarson nota öll hjól á
hverjum degi. Þau hafa
hvert sinn háttinn á.
Björgvin Helgi, sem kall-
aður er höfrungurinn af
félögum sínum, stekkur
um og leikur listir sínar á
BMX-hjóli, Oddný sikk-
sakkar um miðbæinn í
öllum veðrum og Guðný
Steina hjólar langa leið til
vinnu á hverjum degi.
Hjólar allt árið um kring
Oddný segist sikk sakka um
götur miðborgarinnar.
Hjólalistir á BMX
Björgvin, öðru nafni
höfrungurinn, stekk-
ur um á hjólinu.
Hjólar alla daga Guðný
Steina hjólar í gegnum
Elliðaárdal á hverjum
degi til vinnu.
Sérfræðingar
í saltfiski
466 1016
- Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu
- Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar
- Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur
- Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
LÍFRÆNIR SAFAR
Fæst í heilsubúðum og helstu
matvöruverslunum landsins
HAFNAFJARÐARLEIKHÚSINU
FIM 29. MAÍ NÆST SÍÐASTA SÝNING
SUN 1. JÚN SÍÐASTA SÝNING
2 SÝNINGAR EFTIR
Fær hugann til að fljúga og kemur
tilfinningum á rót”
M.K MBL
Falleg, fyndin,sönn og kvenleg”
V.G Bylgjunni
“Ég hvet fólk til að drífa sig
á leikinn og njóta”
Jón Viðar DV