Morgunblaðið - 11.12.2003, Qupperneq 26
matur
bruschetta með
balsamfíkjum og
gorgonzola-kremi
1 msk smjör
1/4 b balsamedik
2 tsk sykur
6 fíkjur, skornar í fernt
fylling:
250 g gorgonzola-ostur
1/3 b mascarpone
1 msk steinselja, söxuð
svartur pipar
bagetta, í sneiðum
Hrærið saman allt hráefnið í kremið og
smakkið til með pipar. Hitið smjör, bals-
amedik og sykur í potti og látið suðuna
koma upp. Setjið fíkjurnar út í, látið malla í
hálfa mínútu eða þar til þær eru þaktar
sykurhúð. Takið af hitanum. Grillið brauð-
sneiðarnar báðum megin þar til þær verða
stökkar. Notið hvítlauksrif sem skorið hefur
verið í tvennt til að smyrja sneiðarnar og
dreypið olíu yfir. Smyrjið kreminu á
brauðið, ekki spara það, og setjið fíkju
ofan á. Hitið bruschettuna undir grilli áður
en borið er fram. (24 stk)
engifermaríneraðar
risarækjur
20 risarækjur
1 hvítlauksrif, saxað
3 cm ferskt engifer, saxað
safi úr 1 sítrónu og fínrifinn börkur
safi úr 1 lime og fínrifinn börkur
3 msk soyasósa
3 msk olía
biti af engifer skorinn í fínar ræmur
olía til steikingar
Hrærið saman allt hráefnið í maríner-
inguna og leggið rækjurnar þar í. Látið
marínerast í nokkra tíma eða yfir nótt.
Steikið á pönnu í nokkrar mínútur. Steikið
engifer í olíu á pönnu þar til stökkt og
berið fram með rækjunum. (20 stk)
lifun