Morgunblaðið - 25.11.2004, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.11.2004, Qupperneq 24
JPV útgáfa hefur sent frá sér nýja skáldsögu eftir Guðberg Bergsson sem ber heitið Löm- uðu kennslukon- urnar. Þetta er fyrsta skáldsaga Guðbergs í 10 ár. Heim kominn frá námi í útlönd- um uppgötvar sjálf vonarstjarna og stolt móður sinnar að hans bíður ekkert við sitt hæfi á Íslandi, heldur situr hann fastur í teppalyktinni í samliggjandi stofum þeirra mömmu og pabba eftir að hafa baðað sig frjáls í sólinni hjá stærri og meiri þjóðum. Hjá Almenna bókafélaginu er komin út Eyjólfur sundkappi. Ævintýraleg saga drengs af Grímsstaðaholt- inu eftir Jón Birgi Pétursson. Eyjólfur Jónsson vakti gríðarlega athygli og aðdáun á sínum tíma fyrir sjósund sín en hann synti meðal annars frá Reykjavík til Akraness. Hjá Máli og menningu er komin út Svartur á leik eftir Stefán Mána. Svartur á leik er glæpa- saga sem mark- ar tímamót í íslenskri glæpa- sagnaritun. Hér dregur höfundur upp afar trúverð- uga og ótrúlega sannfærandi mynd af undirheimum Reykjavíkur, sem er byggð á umfangsmiklum athugunum. Hraði og spenna eru í fyrirrúmi, lesturinn er sannkölluð rússibanareið gegnum íslenska glæpi síðustu áratuga og engin leið fyrir lesanda að leggja bókina frá sér fyrr en hún er á enda. Úr koppalogni í hvirfilbyl segir endurminningar Guðmundar G. Halldórssonar frá Kvíslarhóli á Tjörnesi. Guðmundur hefur frá mörgu skemmtilegu að segja, enda brallað margt um ævina. Hann hefur meðal annars starfað sem bóndi, sjómaður, útgerðarmaður og heildsali, auk þess að vera liðtækt skáld. Þá mun Guðmundur líklega vera eini maðurinn á Íslandi sem staðið hefur varðskip að ólöglegum veiðum! Pjaxi gefur út. Raggi litli í jólasveinaland- inu eftir Harald S. Magnússon er skemmtileg barnabók. Hér segir frá Ragga litla sem einn daginn vaknar upp í helli Grýlu, Leppalúða og Jólasveinanna. Þar gengur ýmislegt á. Pjaxi gefur út. Hjá Vöku- Helgafelli er komin út heim- ildaskáldsagan Baróninn eftir Þórarin Eldjárn. Árið 1898 kom til Íslands franskur aðalsmaður, bar- ón Charles Gauldrée Boilleau, stórættaður heimsborgari og hámenntaður lista- maður sem vonaðist til að finna sjálfan sig í íslenskri sveit. Hver var þessi maður og hvað gekk honum til? Þórarinn Eldjárn hefur sett sam- an áhrifamikla og margbrotna heimildaskáldsögu um baróninn á Hvítárvöllum, eins og Íslendingar kalla hann jafnan. ❊ nýjar bækur Ingólfsstræti 6 s. 561 4000 Opið í dag frá kl. 10 - 18. Heitt á könnunni. Bútasaumsefni, heimagallar, prjónagarn, hespulopi, náttföt, bækur og fl. Opnunartilboð á bútasaumsefnum Ný verslun SÍMI 562 1166 - 587 8044 15% afsláttur af barnamyndatökum helg in V I K U L E G A auglýsingasími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.