Sunnudagsblaðið - 30.08.1964, Síða 2

Sunnudagsblaðið - 30.08.1964, Síða 2
BEYGUR EFTIR SKRÁM Úti sit ég aldinn gestur, ei'nn á berri fjarðarströnd. Rauð er sólin sigin vestur sokkin bak við hafsins rönd. Áttavilltan enn í heimi angra lífsins idimmu él, líkt og sollinn sjúkling dreymi sóttarþunga, bvöl og hel. Greint ég fæ ei gróna landið, gegnum dökkan næturhjúp. Sær og loft er sorta blandið, siíur hel við innsta djúp. Ótti sár og illur geigur inni fyrir hug minn sker. Græskumanna banabeigur brandi hefur stefnt að mér. Glapstíg ár frá æskudögum orna lítt á kaldri nótt. Synd ei hlýðir settum lögum, sæt og römm af likri gnótt. Ævidagur unaðsstunda upp í hrelldum muna rís, innst í minnum fornra funda fylgir naðran paradís. Gekk ég eigi götu rétta, gegnum lífsins fögrudyr. Leyndar hvatir löngum flétta lýgi þeim, sem aldrei spyr: Ert þú sjálfur öðrum betri? A þinn vilji rétt á sér? Mátt þu gera vor að vetri veslings barni, er treystir þér? Kröpp er aida á köldu djúpi, kafið hinzta mun ei glæst. Saltur þari svörtum hjúpi setzt þá mínum vitum næst. Eilíf sæla er öllu að gleyma, engin kvöl og þjáning meir. Æðstur d'rottinn, allra heima og allt hans Ijós í myrkri deyr. 602 bUNWDAOSatAÖ - ALÞVUUÉSAOia

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.