Eintak

Eksemplar

Eintak - 28.04.1994, Side 9

Eintak - 28.04.1994, Side 9
Ami Sigfusson brigslar Sigrúnu Magnúsdóttur um annariegar hvatir vegna fyrirspumar í borgarráði um ráðgjafarstörf Ingu Jónu Þórðardóttur Ráðgjafarstörflngu Jónu Þórð- ardóttur, viðskiptafræðings og þriðja manns á lista Sjálfstæðis- flokksins fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar, voru aftur til umræðu á fundi borgarráðs á þriðjudag. Þá svaraði Ámi Sigfússon borgar- stjóri ítrekaðri fyrirspurn Sigrúnar Magnúsdóttur oddvita Reykja- víkurlistans um það í hverju vinna Ingu Jónu fyrir borgarstjóra á árinu 1992 var falin. Sigrún vill fá að sjá greinargerð hennar um þá vinnu en af svari Árna má ráða að engin slík skrif séu til. í viðtali við EINTAK 14. apríl síðastliðinn sagði Inga Jóna hins vegar að á reglulegum fundum með Markúsi Erni An- tonssyni, þáverandi borgarstjóra, hefði hún lagt fram minnisblöð og greinargerðir en það væri mál Markúsar hvað hann gerði við þessi plögg. Enn hafa þau elcki verið lögð fram í borgarráði. Eins og kunnugt er snýst deilan um það að borgarsjóður greiddi 2,4 milljónir króna fyrir ráðgjöf Ingu Jónu sem sneri meðal annars að einkavæðingaráformum Sjálfstæð- isflokksins. Minnihlutinn krefst þess að fá að sjá tillögur hennar og greinargerðir. Árni endurtók fyrra svar að mestu og nefndi nokkur atriði sem var að fmna í minnispunktum Markúsar Arnar Antonssonar sem lagðir voru fram á fúndi borgarráðs 12. apríl. í svarinu segir að veruleg hagræðing hafi þegar náðst vegna vinnu Ingu Jónu sem hafi verið grundvöllur að ýmsum fram- kvæmdaverkefnum borgarstjóra. í því sambandi bendir Árni á mal- bikunarstöð og grjótnám, útboð á eldsneytiskaupum, leiguakstri og öryggisvörslu, breytingu á rekstri bílastæðasjóðs og fleira. Síðan segir orðrétt: „Augsýnilegt er að gagnrýni borgarfulltrúans byggir annað hvort á þekkingar- leysi á vinnu ráðgjafa og nútíma stjórnarháttum eða er sett fram til þess að skapa tortryggni í garð borgaryfirvalda hjá þeim sem þekkja ekki til slíkrar vinnu. Vilji borgarfulltrúinn halda áfram slík- um starfsháttum er hún hvött til að stunda þá utan borgarráðs." 1 bókun sinni sagði Sigrún meðal annars: „Borgarstjóri lýsir nú yfir að engin greinargerð eða skýrsla sé til um störf verktakans Ingu Jónu Þórðardóttur, heldur einungis minnispunktar sem Markús Örn setti saman eftir minni. Þessi full- yrðing borgarstjóra stangast á við orð verktakans.“ Þá sagði hún að við svar borgar- stjóra yrði ekki unað. „Ég tel mig vera að sinna starfi mínu sem borg- arráðsmaður þegar ég óska eftir gögnum, sem unnin eru fyrir yfir- stjórn borgarinnar. Ég minni enn á að borgarráð fer með fram- kvæmdastjórn borgarinnar ásamt borgarstjóra og eigum við því sama Arni Sigfússon Segir um fyrirspurn Sigrúnar: "Vilji borgarfulltrúinn halda áfram slíkum starfsháttum er hún hvött til að stunda þá utan borgarráðs. “ SlGRÚN MAGNÚSDÓTTIR Svarar Árna: „Ég tel mig vera að sinna starfi mínu sem borg- arráðsmaður þegar ég óska eft- ir gögnum, sem unnin eru fyrir yfirstjórn borgarinnar." Inga Jóna Þórðardóttir Hún segist hafa lagt fram greinargerðir um ráðgjafar- störfsín á fundum með Mark- úsi Erni Antonssyni en hvorki hann né Árni Sigfússon hafa lagt þær fram. rétt til að kynna okkur tillögur sem leiða kunna til betri stjórnarhátta eða hagræðingar í rekstri. Þá vil ég benda borgarstjóra á að hjá hinurn ýmsu stofnunum og fýr- irtækjum borgarinnar er oft leitað til sérfræðinga eða verktaka, sem ávallt ljúka vinnu sinni með þvi að senda álitsgerðir.“ Greinilegt er á þessum orða- skiptum að kosningabaráttan er farin að setja mark sitt á fundi borgarráðs. © Gífurlegur samdráttur í fjárfestingum hérlendis Samdrátturínn nemur 23 pró- sentum á síðustu tveimur árum Gífurlegur samdráttur hefur orðið í fjárfestingum hérlendis á undanförnum tveimur árum og nemur hann samtals tæpum 23 prósentum. 1 heildina drógust fjár- festingar saman um 11,2 prósent ár- ið 1992 og 11,6 prósent í fýrra. Að sögn Þórðar Friðjónssonar for- stöðumanns Þjóðhagsstofnunar þarf að leita aftur til sjöunda ára- tugarins til að finna sambærilegar tölur. Þessi samdráttur í fjárfesting- um er talinn ein af orsökum hins mikla atvinnuleysis sem nú hrjáir landsmenn. Fjárfestingar sem hlut- fall af landsframleiðslu eru lægstar á íslandi meðal OECD ríkjanna. Þannig nemur þetta hlutfall á fyrr- greindum árum rúmlega 15 pró- sentum hvort árið, en að meðaltali er hlutfallið 20-22 prósent hjá öðr- um OECD ríkjum. Ef litið er á einstaka liði hefur samdráttur í fjárfestingum orðið mestur hjá atvinnuvegunum eða rúmlega 40 prósent, þar af 12,8 pró- sent árið 1992 og 29,4 prósent í iýrra miðað við fast verðlag ársins 1990. íbúðarbyggingardrógust saman um 7 prósent ífyrra. Alls námu fjárfestingar atvinnuveg- anna rúmlega 31 milljarði króna ár- ið 1991 en þær duttu niður í 28 milljarða árið eftir og í fýrra námu þær aðeins 21,5 milljörðum króna. Mesta breytingin varð í fjárfesting- um í fiskveiðum en þær drógust saman um 119 prósent milli áranna 1991 og 1992 og samdrátturinn milli 1992 og 1993 nam 67 prósentum. I flutningstækjum nam samdráttur- inn 46 prósentum árið 1992 og 65 prósentum í fyrra. Samdráttur í íbúðarhúsnæði varð töluvert minni á fýrrgreindum tímabilum. Þannig drógust íbúða- byggingar saman um 3,3 prósent árið 1992 og um 7 prósent í fýrra. Fjárfestingar hins opinbera jukust hinsvegar nokkuð í fýrra eða urn tæp 8 prósent á móti 14 prósent samdrætti árið áður. Þórður Friðjónsson segir að þótt samdrátturinn í fjárfestingum hér- lendis á síðustu tveimur árum sé mjög mikill megi nefna að ísland er ekki einsdæmi hvað þetta varðar meðal. nágra.nnaþjóðanna. Ne.fnjr hann sem dæmi að víðlíka hlutir hafi verið að gerast meðal annars í Finnlandi og Svíþjóð. „Ástæðan fýrir þessum samdrætti hérlendis er einkum sú að hér hefur ekki verið hagvöxtur að ráði síðan árið 1987 og á þessum tíma hefur ríkt stöðn- un í efnahagslífmu,“ segir Þórður. „Mikil deyfð hefur verið í fjárfest- ingum og það hafa verið fá arðbær tækifæri til fjárfestinga miðað við það sem í boði er.“ Bjartara framundan Samkvæmt spám Þjóðhagsstofn- unar fyrir þetta ár er búist við að nokkuð dragi úr þeim samdrætti sem ríkt hefur tvö síðastliðin ár. Þannig er gert ráð fyrir að í heildina dragist fjárfestingar saman um 1,9 prósent, að mestu hjá hinu opin- bera þar sem samdrátturinn mun nema urn 6,5 prósentum. Hinsveg- ar er gert ráð fyrir að fjárfestingar hjá atvinnuvegunum aukist um 2 prósent og fjárfestingar í íbúðahús- næði standi í stað. © Sagt er að forsendur fyrir upp- SÖgn JÓNASAR JÓNASSONAR dagskrárstjóra Stöðvar tvö hafi verið að hann ferðaðist á Saga Class með Flugleiðum á heimleið frá útlöndum á dögunum. Það fór fyrir brjóstið á Páli Magnússyni sjónvarpsstjóra í kjölfar boðaðara sparnaðaráaetlanna. Nú hefur heyrst að Jónas hafi ferðast á al- mennu farc fengið að s ókeypis á f Class því v var fullbóki Því hafi ver um hreina sýndar- mennsku hjá sjón- varps- stjóranum að ræða að víkja Jói 1- asi úr embætti. Hann hafi verið bú- inn að segja honum að sitja afturí á ferðalögum sínum en hann hafi greinilega ekki tekið það nógu al- varlega. Það sem staðfestir söguna er að Páll sagði á fundi með starfs- mönnum í fyrradag að ekkert væri upp á Jónas að klaga ... Mikill urgur er meðal starfs- fólks Stöðvar 2 og það er orðið þreytt á skyndiupp- hlaupum sjónvarpsstjórans. Upp- sögn Jónasar segir það að hafi ver- ið byggð á tylliástæðu en getgátur eru uppi um hvað sé henni að baki. Sumir segja að Páll hafi bæði verið að senda skilaboð til starfsfólksins og sýna stjórninni að hann væri in control með því að sýna svona töff- heit. Aðrir segja að Jón Ólafsson sem situr í stjórninni hafi verið að þrýsta á um niðurskurð á dagskrár- deildinni sem Jónas hefur staðið harður gegn. Niðurskurður þýðir aðeins eitt fyrir Jón, en það er að hann komi meiru af því drasli sem hann hefur umboð fyrir í loftið ... Þriðja kenningin er sú að Jón Ólafsson og SlGURJÓN SlG- hvatsson hafi viljað losna við Pál Magnússon. Jón kom Jón- asi í stöðu deildarstjóra en sá síðar- nefndi og Sigurjón eru einnig góðir vinir. Páll hafi ályktað sem svo að Jón og Sigurjón hafi séð eftirmann sinn í Jónasi og því gripið til þess örþrifaráðs að láta hann fjúka við ..fyrsia.tækifæri................... FIMMTUDAGUR 28. APRIL 1994 9

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.