Eintak - 28.04.1994, Page 20
S ko ö a n a k ö n n u n Skáls fyrir eintak
EINTAK hefur náð
ul 58 þúsund lesen
Samkvæmt könnuninni er EINTAK frekar lesið afþeim yngri og þeim tekjuhærri
og fremur af körlum en konum. Meirihluti telur EINTAK vera betra blað en Pressuna.
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar sem Skáís gerði um
síðustu helgi hafa 31,1 prósent þeirra
sem eru eldri en 18 ára lesið EINTAK
á undanförnum vikum. Þetta jafn-
gildir því að blaðið hafi náð til
58.300 manna eftir að hafa komið út
í fjórtán vikur eða rétt rúrna þrjá
mánuði.
Niðurstöður könnunarinnar
benda til þess að Eintaksé frekar les-
ið af þeim tekjuhærri en þeim sem
minni hafa tekjurnar, að það sé
fremur lesið af yngra fólki en eldra,
og að karlar séu dyggari lesendur
blaðsins en konur.
Auk þess sem þátttakendur voru
spurði um lestur á Eintaki voru þeir
beðnir að segja til um hvort viku-
blaðanna sem koma út á fimmtu-
dögum væri betra, Eintakeða Press-
an. Meirihluti þeirra sem gerði upp
á milli blaðanna taldi Eintak betra
blað.
58.300 lesendur eftir
aðeins þrjá mánuði
Könnunin var gerð samhliða
könnun um fylgi listanna sem bjóða
fram til borgarstjórnarkosninga.
Sökum þess voru Reykvíkingar ein-
ir spurðir um lestur á blaðinu og
skoðun sína á fimmtudagsblöðun-
um tveimur. Samkvæmt tölum um
sölu Eintaks í nágrannasveitarfélög-
um Reykjavíkur og úti á lands-
byggðinni má hins vegar gera ráð
fyrir að niðurstöðurnar hefðu orðið
keimlíkar ef úrtakið hefði náð yfir
landið allt. Þannig er til dæmis hlut-
fallslega sama sala á blaðinu á Akur-
eyri, í Hafnarfirði og í Reykjavík.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
í ljós i könnuninni að ungt fólk hef-
ur tekið Eintaki vel. Það liggur
nokkurn veginn í hlutarins eðli að
ungt fólk sé opnara fyrir ungum
blöðum.
Þar sem spurt var um afstöðu til
framboðslista samhliða spurning-
um um lestur á blaðinu var einung-
31,1 prósenti svarenda. Eintak var
síðan lesið af 20,7 prósentum þeirra
sem voru eldri en fimmtugir.
Þrátt fyrir að elsta fólkið hafi lesið
Eintak minna en það yngra fer því
fjarri að það sé ekki viðunandi að ná
til fimmta hvers landsmanns sem er
eldri en fimmtugur. Það er hins
kemur í ljós að blaðið er meira lesið
af þeim sem hafa meira en miðl-
ungstekjur en af þeim sem lægri
hafa tekjurnar. Reyndar komu þeir
sem sögðust hafa mjög lágar tekjur,
eða minna en 35 þúsund krónur á
mánuði, sterkt út - 36 prósent
þeirra sögðust lesa Eintak. Þetta má
sögðust hafa 90 til 109 þúsund
krónur á mánuði í tekjur - 37 pró-
sent þeirra sögðust lesa Eintak. Þar
næst komu þeir sem sögðust hafa
130 til 149 þúsund krónur á mánuði
- 36 prósent þeirra sögðust lesa
Eintak. Þá komu þeir sem sögðust
hafa meira en 150 þúsund krónur í
unarinnar sögðust 31,1 prósent að-
spurða hafa lesið Eintak á undan-
förnum vikum. Samkvæmt því hafa
um 58.300 manns lesið Eintak á
þessum tíma.
Það verður að teljast sérlega við-
unandi árangur hjá blaði sem byrj-
aði að koma út 20. janúar síðastlið-
inn og fór í beina samkeppni við
annað blað sem hafði setið eitt að
markaðinum á fimmtudögum frá
því á haustdögum 1988. Til saman-
burðar má geta þess að samkvæmt
nýjustu könnun Gallups á blaða-
lestri mældist lestur á Pressunni eina
tiltekna viku vera 15 prósent. Miðað
við sama aldurshóp og könnun
Eintaks náði til jafngildir það því að
28 þúsund manns hafi séð blaðið.
Ungt fóik tekur
blaðinu vel
Það þarf ef til vill ekki að koma
neinum á óvart þótt það hafi komið
EINTAK fíytur um mánaðarmótin
Vegna vaxtar á fyrstu þremur mánuðum útgáfunnar og fyrirhug-
aðrar mánudagsútgáfu EINTAKS hefur útgáfufyrirtækið Nokkrir Is-
lendingar ákveðið að fiytja starfsemi sína af Vatnsstíg 4 og i það
sögufræga hús Vesturgötu 2.
Þetta hús hefur verið nefnt Bryggjuhúsið. Þegar það var reist lá
fjörukamburinn þar sem nú er Tryggvagata. Á húsinu miðju voru
undirgöng sem þeir sem komu sjóleiðina að Reykjavík gengu um á
leið sinni í bæinn. Það var þvi nokkurs konar borgarhlið Reykjavik-
ur. Og þetta hús er miðdepill Reykjavikur i öðrum skilningi, þvi frá
þvi eru öll húsnúmer i Reykjavík talin.
EINTAK mun flytja starfsemi sína á aðra hæð hússins upp úr
næstu mánaðarmótum og verða þeir flutningar auglýstir rækilega.
is þeim sem voru efdri en átján ára
gefinn kostur á að svara. Skáís skipti
svarendum síðan í þrjá flokka. Þá
sem eru 18 til 29 ára, þá sem eru 30
til 49 ára og þá sem eru fimmtugir
eða eldri. I yngsta hópnum, þeim
sem eru 18 til 29 ára, var Eintak mest
lesið, eða af 46,1 prósenti þeirra sem
svöruðu. I miðhópnum, þeim sem
voru 30 til 49 ára, var Eintak lesið af
vegar einkar glæsilegt að ná til 46,1
prósents þeirra sem eru yngri en
þrítugir, aðeins þremur mánuðum
eftir að blaðið hóf göngu sína.
Eintakþ arf ekki að óttast framtíðina.
Blaðið meira lesið af
þeim tekjuhærri
Þegar þeim sem sögðust hafa les-
ið Eintak er skipt eftir tekjuhópum
sjálfsagt skýra af lágum meðalaldri
lesenda Eintaks og af því að hér sé
frekar um nemendur að ræða en
heimavinnandi fólk eða lífeyris-
þega.
Sá tekjuhópur sem kom sterkast
út voru þeir sem sögðust hafa 110 til
129 þúsund krónur á mánuði - 46
prósent þeirra voru lesendur
Eintaks. Næstir komu þeir sem
EiNTAKeykur við útgáfuna
ár
\ mai
Frá og með miðjum maí kemur blaðið út tvisvar í viku, á fimmtudögum og á mánudagsmorgnum
Útgáfufélag EINTAKS hefur
ákveðið að auka við útgáfú blaðsins
og gefa blaðið út tvisvar í viku frá
og með miðjum maí, á fimmtudög-
um eins og nú en auk þess á mánu-
dagsmorgnum. Gengið var frá
samningum um prentun mánu-
dagsblaðsins í gær.
Eins og áður sagði mun mánu-
dagsútgáfa Eintaks koma út um
morguninn. Fréttaþyrstir geta því
lesið helstu fréttir helgarinnar með
morgunkaffinu áður en þeir halda
til vinnu en þurfa ekki að bíða fram
eftir degi. Mánudagsútgáfan mun
draga dám af útgáfutíma sínum.
Hún verður líkara fréttablaði en
fimmtudags-Eintak, sem er að
hálfu fréttablað og að hálfú helgar-
blað.
I mánudagsútgáfunni verður
boðið upp á stóran pakka af
íþróttafréttum helgarinnar í bland
við viðtöl við íþróttafréttamenn,
greinar um málefni íþróttafélag-
anna og ýmislegt skemmtiefni tengt
íþróttum. Með mánudagsútgáf-
unni mun fréttadeild Eintaks líka
breikka svið sitt og taka fýrir fleiri
málaflokka en hún hefur bingað til
gert. Það mun aftur hafa þau áhrif
að fimmtudagsblaðið mun taka
fyrir fjölbreyttara efni.
Á sama hátt og útgefendum
Eintaksvar ekkert launungarmál að
þeir ætluðu í samkeppni við Press-
una þegar þeir hófu útgáfu
fimmtudagsblaðsins er þeim engin
launung á því nú að með útgáfu
mánudagsblaðs fara þeir í beina, og
vonandi harða og gefandi, sam-
keppni við DV á mánudögum. 1
raun er sú samkeppni óumflýjanleg
þar sem öðrum blöðum er ekki til
að dreifa á þessum vikudegi.
Fyrsti útgáfudagur mánudags-
blaðsins hefur ekki enn endanlega
verið ákveðinn. Þó er ljóst að blaðið
mun ekki koma út seinna en um
eða uppúr miðjum maí. Þá kemur í
ljós hvaða erindi þessi útgáfa á til
lesenda. ©
tekjur á mánuði - 28 prósent þeirra
sögðust vera lesendur Eintaks.
Með þeim sem sögðust hafa
minni tekjur en 35 þúsund varð
heildarhlutfall þeirra sem höfðu
minna en 69 þúsund krónur í tekjur
29 prósent, en af þeim sem höfðu 70
til 89 þúsund krónur í tekjur sögð-
ust 25 prósent lesa Eintak.
Á það skal bent hér að það ætti
ekki að koma neinum á óvart þótt
lestur á Eintaki mælist meiri meðal
þeirra tekjuhærri og þeirra sem hafa
góðar miðlungstekjur. Þrátt fýrir að
Eintak sé ágætt blað eru þeir fáir
sem velja það sem sitt eina firétta-
blað. Hjá flestum er Eintak blað
númer tvö og jafnvel þrjú á effir
dagblöðunum. Það er þvi skiljanlegt
að þeir sem hafa þrengri auraráð láti
það síður eftir sér að kaupa tvö eða
þrjú fréttablöð en þeir sem hafa ríf-
legri tekjur.
Karlar lesa Eintak
oftar en konur
Karlar lesa Eintak ffekar en kon-
ur. Alls sögðust 37,9 prósent þeirra
karla sem spurðir voru hafa lesið
Eintaken 24,4 prósent kvenna. Þrátt
fýrir að karlar lesi fréttablöð al-
mennt meira en konur þá er þetta
ívið meiri munur á milli kynjanna
en almennt gerist.
Og þegar þetta tvennt fer saman,
meiri lestur af hálfú karla en kvenna
og meiri áhugi ungs fólks en eldra,
þá eru ungir karlar að sjálfsögðu
dyggustu lesendur blaðsins. Af körl-
um á aldrinum 18 til 29 ára sögðust
55 prósent lesa Eintak. Og ef haldið
er áfram að skipta svarendum eftir
aldri og kyni þá koma tveir hópar
næstir og jafnir, konur á aldrinum
18 til 29 ára og karlar á aldrinum 30
til 49 ára - 37 prósent af þessum
tveimur hópum sögðust lesa Eintak.
Næstir koma karlar eldri en fimm-
tugt - 26 prósent þeirra sögðust lesa
Eintak. Og loks koma konur eldri
en fimmtugt, en þær höfðu minnst-
an áhuga á Eintaki - 16 prósent
þeirra sögðust þó hafa lesið Slaðið.
Meirihlutinn telur
Eintak betra blað
en Pressuna
Auk þess að spyrja um lestur á
Eintaki vildu forsvarsmenn blaðsins
fá samanburð við Pressuna, blaðið
sem Bmfðklagði út í samkeppni við.
Þátttakendur voru spurðir hvort
blaðið þeim þætti betra.
Af þeim sem svöruðu sögðu 48,2
prósent blöðin álíka og vildu ekki
gera upp á milli þeirra, 24,7 prósent
sögðu Pressuna betri en 27,1 prósent
sögðu Eintak betra en Prcssutia. Ef
aðeins eru teknir þeir sem gerðu
upp á milli blaðanna er niðurstaðan
sú að 47,7 prósent sögðu Pressuna
betri en 52,3 prósent sögðu Eintak
betra.
Eins og áður sagði eru aðeins rétt
rúmir þrir mánuðir síðan Eintak
hóf göngu sína og verður það því að
teljast góður árangur að hafa skotið
Pressunni, sem hefur komið út í
Ijögur og hálft ár, ref fyrir rass þótt
munurinn sé ekki meiri enn sem
komið er.
Og ef til vill má skýra það hversu
munurinn er lítill einmitt með því
hversu lengi Pressan hafði setið ein
að markaðinum áður en Eintak hóf
göngu sína. Ætla má að einhverjir
þeirra sem keyptu Pressuna reglu-
lega eða voru áskrifendur að henni
hafi ekki talið ástæðu til að rjúka út
og kaupa nýtt blað til að athuga
hvort það kynni að vera betra. Og
það virðist einmitt koma í ljós þegar
niðurstöðurnar eru skoðaðar nán-
ar. Ef þeir eru reiknaðir saman sem
sögðu blöðin álíka og þeir sem
töldu annað betra en hitt kemur í
ljós að samanlagt eru það fleiri en
þeir sem sögðust hafa lesið Eintaká
undanförnum mánuðum. Og þar
sem það er ólíklegt að einhverjir
þeirra sem sögðu blöðin álíka góð
hafi ekki séð Eintak - og væru því
að dæma blaðið óséð - má ætla að
einhver hluti þeirra sem sagði Press-
una betri hafi einfaldlega ekki séð
Eintak. Það er alla vega líklegra en
að lesendur Eintaks viti ekki hvað
Pressan er eftir rúmlega fjögurra ára
útgáfu.
Af þessu má ráða að það væri
meiri munur á milli blaðanna ef að-
eins væru teknir þeir sem séð hafa
bæði blöðin. Þá má telja víst að
Eintak hefði haft Pressuna undir
með meiri mun en nú hefúr þó orð-
ið raunin.
Af öllu ofansögðu má vera ljóst
að Eintak er blað í sókn. Það hefúr
náð mjög vel til yngri kaupenda og
staða þess meðal þeirra eldri er
langt frá því óviðunandi. Eftir að-
eins fjórtán blöð er það skoðun
meirihluta fólks að Eintak sé betra
blað en Pressan sem þó ætti að
standa mun traustari fótum. ©
20
FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 1994