Eintak - 28.04.1994, Síða 32
Kristín Blöndal og Ingibjörg Hauksdóttir
hafa opnað samsýningu í Listhúsinu við
Tryggvagötu. Kristín sýnir olíumálverk en Ingi-
björg sýnir bróderuð börn og eru verkin unnin
úr bleyjugasi, undanrennu og kartðflumjöli. Þær
stöllur útskrifuðust saman úr MHÍ fyrir tveimur
árum og deila nú vinnustofu svo þeim fannst
viðeigandi að setja upp sýningu saman. Auk
þess segir Kristín þær eiga það sameiginlegt að
vera báðar mjög feminískar f listhönnun sinni.
Sýningunni lýkur á sunnudaginn.
Art-hún heldur sýningu i Listhúsinu Laugardal.
Hópinn skipa þær Elínborg Guðmundsdóttir,
Sigrún Gunnarsdóttir, Helga Ármanns, Erla B.
Axelsdóttir og Margrét Gunnarsdóttir. Þær sýna
leirlist, grafík og málverk til sunnudags.
Sýning stendur yfir í Gallerí Greip á smáhillum
og borðum eftir Gunnar Magnússon innan-
húshönnuð. Húsgögnin eru til sölu.
Freydís Kristjánsdóttfr sýnir myndasögur og
bókaskreytingar (katfistofu Hafnarborgar og ber
sýningin yfirskriftina Rómantík. Teikningar
Freydísar hafa meðal annars birst f GlSP-blað-
inu sáluga og (bókum sem Námsgagnastofnun
hefur gefið út. Jón Thor Gíslason sýnir olíu-
málverk f Hafnarborg og Annette Ackermann
temperamyndir í Sverrissal. Sýningarnar standa
til 2. maf.
Bandaríkjamaðurinn Richard Tuttle sýnir f
sýningarsalnum Önnur hæð sem er til húsa að
Laugavegi 37.
Um helgina lýkur sýningu Drafnar Frið-
finnsdóttur í Listasafni ASI, en þar sýnir hún
stórar tréristur.
Hulda Hákon sýnir málverk og skúlptúra á
Kjarvalsstöðum. Sýningin er nokkuð frábrugöin
því sem við eigum a venjast frá Huldu, en hún
er skemmtilega heildstæð og Iffleg. Ólafur
Gislason sýnir líka á Kjarvalsslöðum og er yf-
irskrift sýningarinnar Vernissageeto „Opnun
listsýningar" og hefur áður verið sett upp í nor-
rænu listamiðstöðinni á Sveaborg. Seðlabank-
inn er hér með hvattur til að kaupa óþvegnu
rauðvínsglösin hans Ólafs. Loks hangaverk
Kjarvals sjálfs að sjálfsögðu Ifka uppi.
Listasafn Háskóla islands er með sýningu á
nýjum verkum í eigu safnsins á öllum hæðum í
Odda.
Jóhann Sigmarsson stendur fyrir sýningunni
Drögaö veggtóöriá Mokka.
Anton Einarsson sýnir málverk á Veitinga-
staðnum Laugavegi 22. Nokkuð glúrinn bara.
Lýsingar Barböru Árnason við Passíusálma
Hallgríms Péturssonar hanga uppi í Listasafni
íslands — býsna góðar bugmyndir færrar lista-
konu. Yfirlitssýningin á verkum Jóns Gunnars
Árnasonar stendur líka enn í Listasafninu.
Guðbergur Bergsson kallar Jón Gunnar galdra-
dreng og segir sýninguna einstæða. Sýningarn-
ar í Listasafninu standa til 8. maí.
Hugmynd-Höggmynd heitir sýning í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar þar sem sjá má úrval
verka frá ólfkum tímabilum f list Sigurjóns,
meðal annars olíumálverk sem safninu var ný-
lega gefið, en það málaði Sigurjón af bæjarhús-
upum á Kolviðarhóli þegar hann var á ferming-
araldri. Sýningin stendur alveg fram á vor.
FYRIR BÓKELSKA
Látið aldrei bókasafnsbækurnar
frá ykkur fyrr en í fulla hnefana.
Einu sinni á tveggja eða þriggja
ára fresti auglýsir Borgarbóka-
safnið sérstaka skiladaga þar
sem vanskilafólki á bækur er
boðið að koma með bækurnar
og skila þeim án dagsekta. Það
er því algerlega tilgangslaust
að skila bókum á réttum tíma
þegarþað er algjörlega öruggt
að maður þarf ekki að borga
sektir ef maður dregur það
nógu lengi að skila þeim. Þá er
nær að hafa þær hjá sér ef
maður vildi grípa til þeirra
seinna. Það eru bara fífl sem
skila bókum á réttum tíma.
bundið bárujárn af gamla skólan-
um. Munurinn er helst sá að
söngvarinn kann að öskra rámur
sitt „Óúúúú-jeejeee!“ og þeir eru
lunknir við að hoppa á sviðinu
strákarnir, og af því. Ef Chris Corn-
ell söngvari og gítarleikari hefði
haft meira vald á lagasmíðum hefði
hann með smá heppni getað tekið
við af David Lee Roth sem konung-
ur þungarokksins. En vegna landa-
fræðinnar fylgdi Soundgarden Nir-
vanasprengingunni og sló þar af
leiðandi í gegn hjá grungu kynslóð-
inni. Superunknown er stútfull af
þessum frægu jarðskjálftagítarriff-
um sem lyftu sveitinni upp úr með-
almennskunni og aldrei þessu vant
eru lagasmíðarnar nokkuð áheyri-
legar. Svona plata getur ekki annað
en höfðað til þeirra sem finnst
Eddie Vedder vera helst til væminn
en hafa ekki þorað að stíga rokk-
skrefið til fulls með því að kynna
sér Celtic Frost. Soundgarden eru
komnir með bílpróf. ©
Sjónvarp
SIGURJÓN KJARTANSSON
Sumar á Sýrlandi
SöNGVAKEPPNl
FRAMHALDSSKÓLANNA
RfKISSJÓNVARPINU
iWr
A N 0 G
Ef maður vill fylgjast með
Söngvakeppni framhaldskólanna er
gott að horfa á hana á myndbandi
og hafa fjarstýringuna við hendina
svo hægt sé að hraðspóla áfram.
Þetta sparar manni bæði tíma og
stundum óæskilegt eyrna-áreiti
sem vill skapast í keppnum sem
þessari. Er ég þó ekki að segja að
keppnin sé af hinu illa því að inn á
milli mátti heyra stórefnilega
söngvara brýna raustina í fyrsta
sinn opinberlega og veitir keppnin
þeim vissulega ómetanlegt tækifæri
til að heyja frumraun sína á söng-
sviðinu. Hinir hæfileikaminni eru
kannski að þessu bara til að vera
með, svona rétt eins og í maraþon-
hlaupi, en hvort þeir hafi þar með
skapað sér rétt til þess að eyðileggja
LANDIÐ
kvöldið fyrir saklausum sjónvarps-
áhorfendum (og -áheyrendum) er
hinsvegar spurning. Það verður að
segjast að „maraþonhlaupararnir"
voru í meirihluta þetta árið, en hver
gæti svo sem búist við því að það
komi snillingur frá hverjum skóla?
Verkefnaval keppenda var óhemju
einhæft eins og fyrri ár; nánast
undantekningarlaust lög með Stuð-
mönnum eða Trúbrot - dettur
framhaldsskólanemum aldrei neitt
frumlegt í hug? Sumir klæddu sig
nákvæmlega eins og fyrirmyndirn-
ar og voru jafnvel með sömu
brandarana á takteinum. Þetta gekk
stundum svo langt að maður fór að
velta því fyrir sér hvort þetta væri
eftirhermukeppni.
En fátt er svo með öllu illt að ei
boði nokkuð gott, og ég var alveg
hæstánægður með úrslitin. Söng-
konan sem sigraði var bara mjög
góð og hafði auk þess nokkuð sé-
stakan raddkarakter. Ekki spillti
það fýrir hve gullfalleg hún var, en
það er orðið sjaldgæft meðal ís-
lenskra söngkvenna. En framhalds-
skólanemar: Látið ykkur detta eitt-
hvað nýtt í hug fyrir næsta ár! Og
þið sem eruð laglausir: Ekki syngja!
Takk fyrir. ©
Popp
ÓTTARR PROPPÉ
Pönk og sýra
fara ilV í nýra
The Ramones:
Acid Eaters
★
Pönkið kom og pönkið fór. Nú
er pönkið komið aftur. The Ramo-
nes var af mörgum talin fyrsta
pönkhljómsveitin. Þeir ullu
sprengingu í rokkheiminum þegar
þeir byrjuðu fyrir tuttugu árum og
veltu pönkinu af stað. Gerilsneitt
spretthlauparokkið var svo full-
komið að Ramones-bræður hafa
ekkert breyst síðan en eru samt vin-
sælli í dag en nokkru sinni fyrr. Ac-
id Eaters er nostalgíuplata þar sem
sveitin rifjar upp gömul uppáhald-
slög frá sýrutímanum. En það er
eins og eitthvað hafi klikkað.
Ramones hafa alltaf tekið lög ann-
arra á plötum sínum og þau hafa
hljómað alveg eins og þeirra eigin
lög. Það er kannski það að sum lög-
in á þessari plötu eru orðinn svo
gegnþvæld í útvarpsorgíunni að
þeim er ekki viðbjargandi svo að
flest lögin á Acid Eaters virka þreytt
og jafnvel lummó. Líklegra er þó að
í þetta skiptið hafi Ramones tekið
pönkið aðeins of bókstaflega -
nokkuð sem þeir hafa einmitt látið
vera hingað til. Það er mjög sniðugt
að taka Slade-lög í pönkuðum út-
setningum en það er óþarfi að spila
þau vitlaust ef útkoman er verri en
á originalnum. Það er hæpið að
hörðustu ramones-fíklar slefi yfir
þessari plötu. Hún er meiri bíl-
skúrsvinna en góðu hófu gegnir.
Manni finnst líklegra að síðasta „al-
vöru“ Ramones-platan, Mondo
Bizarro, verði látin sitja áfram í
spilaranum. En það er alltaf von til
þess að einhver sem hefur verið
límdur við sýruna taki við sér og
uppgvöti ellismellina í rifnu leður-
jöldcunum og það væri vel. Því í
Ramones-heimi er best að lifa.
HEY HO! LET’S GO! ©
Bíó
JÚLÍUS KEMP
Konumynd um
Kínakonur
Leikur hlæjandi láns
Bíóhöllin
**
Kvikmyndin Joy Luck Club sem
sýnd er i Sambíóunum er byggð á
samnefndri metsölubók, en ein-
hverjir kaflar úr henni virðast hafa
verið skildir eftir þegar ráðist var í
gerð myndarinnar. Sagan er byggð í
kringum fimm konur sem hittast
reglulega til að spila en í upphafi
myndarinna fellur ein þeirra frá.
Það kemur í hlut dóttur hennar að
hlaupa í skarðið, en allar spilakon-
urnar eiga dætur og sögur mæðgn-
anna eru raktar í myndinni.
Mömmurnar eru allar fæddar í
Kína en fluttust til Bandaríkjanna í
kjölfar mismunandi óláns sem þær
urðu fýrir i heimalandi sínu. Eins
og aðrar mæður hengja þær vænt-
ingar sínar til lífsins á dætur sínar
og metast um þær sín á milli. Dæt-
urnar eiga það sammerkt að þjást af
samviskubiti gagnvart mæðrum
sínum en í rauninni er verið að
segja sömu söguna fimm sinnum
hvort sem það var ætlunin eður ei. f
myndinni rekst saman mismun-
andi hugsunarháttur sem tengist
ólíkum menningarheimum og kyn-
slóðum en samskipti foreldra og
uppkominna barna í Bandaríkjun-
um eru kapítuli út af fyrir sig. Það
virðist vera sama hvaða Ameríkani
er spurður um foreldra sína —•
beyskjan og sárindin eru aldrei
langt undan og myndin féll því í
í Listhúsinu Ófeigi stendur ennþá yfir samsýn-
ingin Stefnumót. Listamennirnir sem þar sýna
eru þeir Þorri Hringsson, Finninn Jouni
Jappinen, Helga Magnúsdóttir. Bandaríkja-
maðurinn Robert Bell, Siguröur Þórir og
Hringur Jóhannesson
Þórdís Zoega húsgagnahönnuður sýnir stóla í
Stöðlakoti. Þar á meðal eru stólarnir Stelkur og
Tjaldur sem koma á markað innan skamms.
B
I
I
N
BIOBORGIN
Full á móti GrumpyOldMen -kk Bessi og
Árni þeirra Ameríkana, Jack Lemmon og Walt-
her Matthau, í filtölulega saklausu og góðlát-
legu gríni sem gengur ekki mjög nærri hlátur-
faugunum. En það má stundum brosa.
Óttalaus Fearless+kk Mynd um efni sem fá-
ir leikstjórar komast lífs frá, sjálfan dauðann.
Weir tekst þó að búa til sterka mynd og sleppur
næstum óskaddaður. Rosie Perez leikur frábær-
Hús andanna The House otthe Spirits
Frábær leikur. Myndin verður aldrei leiðinleg
þrátt fyrir þriggja tfma setu.
BIOHOLLIN
Hetjan hann pabbi My Father the Hero kkk
Huggulegasta gamanmynd með ágætum leik
Depardieu.
Pelikanaskjalið The Pelican Brietkk Þráft
fyrir ágælt efni kemst þessi mynd aldrei á flug.
Bókin er betri. I þaö minnsta fyrir þá sem hafa
þokkalegt ímyndunarafl.
Leikur hlæjandi láns The Joy Luck Club
kkk Indæl mynd um kínverskar konur.
Himinn og jörð Heaven and Earth kk Síðasti
hlutinn af trflógíu Olivers Slone um Vfetnam.
Hér reynir hann að segja mikla sögu en nær
aldrei tökum á henni.
Rokna Túli *** Það er komið íslenskt tal við
þessa mynd sem hefur fengist nokkuð lengi á
vídeóleigunum. Börnin mæla með henni.
Á dauðaslóð On Deadiy Ground kSteven
Segal fær málið og heldur barnalegar einlægar
ræður um umhverfisvernd á milli þess sem
hann drepur umhverfissóða. í næstu mynd fer
hann á hvalaslóðir og kviðristir Halldór Ás-
grímsson og Kristján Loftsson.
Beethoven 2 ★Annar þáttur með fleiri hund-
um en færri og þynnri bröndurum.
Mrs. Doubtfire kkkk Gasalega fyndin
mynd.
HASKOLABIO
Robocop 3 ■* Vondur endir á annars góðri
séríu um mann- vélmennið í löggunni sem seg-
ir reyndar upp f þessari mynd og slæst f lið með
þeim sem ekki einu sinni löggan nennir að
vernda.
Leitin að Bobby Fischer Searching forBob-
byFischerkk Vandvirknislega gerð mynd um
dreng sem á erfitt með að slanda undir þeim
miklu kröfum sem gerðar eru til hans.
Listi Schindlers Schindler's List ****
Verðskulduð Óskarsverðlaunamynd Spielbergs.
(Allir skila sínu besta og úr verður heljarinnar
mynd. Meira aö segja Polanski braut odd af of-
læti sínu og fór á ameríska mynd (en hann er nú
reyndar gyðingur og missti mömmu sína í hel-
förinni).
Eins konar ást The Thing CalledLove
kk Glöð mynd um ungt fólk í Ameríku, létt yfir-
bragð og fallegir leikarar.
Litli Búdda Litle Buddha kk Þrátt fyrir glæsi-
legan búning vantar einhvern neista í þessa til-
raun Bertoluccis til að búa til mikla epíska sögu.
Blár Blue kk Kieslowski-myndirnar verða
þynnri og þynnri eftir því sem þær verða fleiri
og fleiri.
Beethoven 2 AMeira gelt en hlátur..
Líf mitt MyLile'kk ílúgguleg tilraun tiláð
búa til mynd um venjulegt fólk,
í nafni föðurins In the Name otthe Father
kkkk Mögnuð mynd um réttarmorð t Eng-
landi. Umdeild fyrir tilfærslur á smáum atriðum
sögunnar en ísköld og sönn engu að síður.
LAUGARÁSBÍÓ
8 sekúndur 8 Seconds k Amerísk goðsögn
sem fær hjörtun í miövesturríkjunum til að tifa.
Hefur minni áhrit í Laugarásnum.
Tombstone ★ Myndin er lengi I gang en svo
loks þegar þeir byrja að skjóta þá verður hún
eins og verið sé að sýna úr fimm vestrum í einu.
Leiftursýn BlinkkÁ gæt tæknivinna en engin
hugsun.
REGNBOGINN
IP5 ** Falleg mynd en ekki mjög góð. Verður
minhst fyrir að vera síðasta myndin sem Yves
Montand lék í. Og hann þarf ekki aö skammast
sín fyrir að hafa dáið frá þessum leik.
Píanó *** Óskarsverðlaunaður leikur í aöal-
og aukahlutverkum. Þykk og góð saga.
Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol-
ate kkk Ástir undir mexíkóskum mána.
Farvel, frilla mín FarwellMy Concubine
kkk Glæsileg mynd.
Hetjan Toto Toto Le Heros *** Vel gerð
stríðsárasaga frá Belgíu.
Lævís leikur MalicekSérdeilis bjánaleg
mynd. Ætlar aö gabba áhorfandann með því að
byggja upp söguþráð en henda honum svo
skyndilega og taka upp nýjan.
STJÖRNUBÍÓ
Fíladelfta Philadelphia **** Frábærlega
leikin. Það hafa allir gott af að sjá þessa mynd
og ekki kæmi á óvart þótt hún yrði notuð sem
kennsluefni f alnæmisvörnum þar til annað
betra býðst.
Dreggjar dagsins Remains ofthe Daykkkk
Magnað verk.
Morðgáta á Manhattan Manhattan Murder
Mysterykkk Allen er fyndinn í þessari mynd.
Hún er ekki ein af hans bestu en sannar að það
er skemmtilegra aö eyða tímanum undir Allen-
mynd en undir annars konar myndum.
SÖGUBÍÓ
Fingralangur taöir Fa/fter /YooGt*Leiöinleg
mynd um leiðinlegan pabba og enn leiðinlegri
börn.
Sister Act 2 *Nunnurnar hafa skipt út af fyrir
krakka á glapstigum. Söngurinn er enn poppað-
ur gospel. Sagan enn þunn en börnum finnst
gaman af þessari mynd.
32
FIMMTUDÁGUR 28.