Vikublaðið - 26.11.1992, Side 2

Vikublaðið - 26.11.1992, Side 2
VIKUBLAÐIÐ 2 Fimmtudagur 26. nóvember 1992 MUBLAÐIÐ Útgefandi: Alþýðubandalagið Ábm: Einar Karl Haraldsson Ritstjóri: Hildur Jónsdóttir Blaðamaður og augl.: Ólafur Þórðarson Ritstjóm og afgreiðsla: Laugavegur 3 (4. hæð) ÍOI Reykjavík Sími á ritstjórn: (91) - 17 500. Fax: 17 5 99 Áskriftarsími: (91) - 17 500 Prentvinna: Prentsmiðjan Oddi hf. Áskriftarverð kr. 1000 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 250. 6 aðalatriði Ef reynt er að draga saman í ör- stuttu máli kjamann í því sem ríkis- stjórnin hefur nú ákveðið, má nefna sex þætti: I fyrsta lagi er því hafnað að fara leið þjóðarsáttar til að ráða fram úr þessum mikla vanda okkar Islend- inga. Friðurinn er slitinn við samtök launafólks og önnur stjórnmálaöfl í landinu. I öðru lagi er hafnað þeirri leið sem bæði við í Alþýðubandalaginu, Alþýðusamband Islands og aðrir hafa lagt til: að herkostnaðurinn af þessum aðgerðum væri fyrst og fremst borinn af fjármagnseigendum og hátekjufólkinu í landinu. Þessu er hafnað. Fjármagnseigendur verða á næsta ári algerlega stikkfrí eins og í ár. Þeir leggja ekki krónu í þennan pott. Hátekjuaðallinn í landinu fær á sig byrðar sem eru svo litlar að þær mælast varla meira en upp í nös á ketti. í staðinn er ákveðið að hækka almennan tekjuskatt, lækka bama- bætur, lækka vaxtabætur og leggja stórfelldar auknar byrðar á almennt launafólk í landinu, fólk með 70-90 þús. kr. mánaðartekjur. í stað þess að láta fjármagnseigendur og hátekju- fólkið bera fórnarkostnaðinn af þess- um aðgerðum er hann lagður á al- mennt launafólk í landinu. I þriðja lagi eru engar sérstakar nýjar aðgerðir til atvinnuskapandi framfara í landinu á næsta ári. Við í Alþýðubandalaginu lögðum fram til- lögur sem fela í sér möguleika á því að hér yrðu sköpuð 1.200-1.800 ný störf á næstu 8-12 mánuðum. Slíkum tillögum er hafnað. Það eina nýja sem er í texta forsætisráðherra em 500 millj. sem hann segir að eigi að fara í einhvers konar aðgerðir á þessu sviði og þó kemur það ekki skýrt fram hvort það eru 500 millj. kr. til viðbótar við það sem búið var að ákveða áður. Allt annað sem hann las upp hefur áður verið tilkynnt og ákveðið. Það er ekkert nýtt sem tekin var ákvörðun um á þessum nætur- fundum til að skapa aukna atvinnu. Stefna helgarinnar og næturinnar leiðir til þess að atvinnuleysið mun því miður halda áfram að aukast. Það er ekkert í þessum aðgerðum sem stöðvar aukningu atvinnuleysis- ins á íslandi. I fjórða lagi er alveg ljóst að að- gerðirnar rjúfa stöðugleikann. Þær stefna í hættu þeim mikla árangri sem við höfum náð í baráttunni gegn verðbólgunni. Verðbólguhugsunar- hátturinn byrjar í dag. Hækkana- hugsunarháttur gamla tímans byrjar í dag. Gengisfellingarhugsunarháttur gamla tímans byrjar í dag. Koll- steypuhugsunarháttur gamla tímans byrjar í dag. Óstöðugleikinn þar sem menn bíða eftir næstu gengisfellingu byrjar í dag. Á einni helgi, á einni nóttu er kippt grundvellinum undan þeim mikla árangri sem við höfum náð í sameiningu, síðasta ríkisstjórn og launafólkið í landinu, og sem þessi ríkisstjórn hafði fram að þess- ari helgi sagt að hún mundi standa við. Nú veit enginn lengur hvað verð- ur hér í næstu viku, næsta mánuði eða byijun næsta árs í þessum efnum. Töl- umar byija aftur að fara upp. f fímmta lagi rýfur ríkisstjórnin fyrirheitið um stöðugt gengi sem hún gaf samtökum launafólks í síð- ustu kjarasamningum. Samkvæmt texta kjarasamninganna hafa Al- þýðusamband íslands, BSRB og Kennarasamband ísiands fullan samningsbundinn rétt til að segja upp samningum nú þegar. Það er rík- isstjórnin í landinu sem hefur ákveð- ið að rifta kjarsamningunum með þessum hætti. Hún treystir kannski á það að launafólkið í landinu muni ekki notfæra sér ákvæði kjarasamn- inganna. En það er alveg ljóst að bú- ið er að brjóta meginhornstein síð- ustu kjarasamninga og innleiða á nýjan leik gömlu óvissuna á vinnu- markaðinum, gamla óstöðugleikann. Með þessari gömlu aðferð um slit á kjarasamningum er búið að skapa gamla ástandið um óvissu á vinnu- markaði. I sjötta lagi er það auðvitað eitt megineinkenni þessara aðgerða að þær fela í sér ávísun á nýja gengis- fellingu. Það hljóta allir að sjá, allir sem þekkja atvinnulífið í landinu. Allir menn með opin augu sjá að þessar aðgerðir eru boðskort að nýrri gengisfellingu. Það er bara spurning um einhverjar vikur eða mánuði hve- nær hún verður framkvæmd. Með öðrum orðum, hæstvirtur forsætis- ráðherra og hæstvirtur utanríkisráð- herra, þið eruð komnir inn á hina gömlu braut ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar þegar gengið var fellt og gengið svo aftur fellt og þannig koll af kolli. Það er ekki nokkur forystu- maður í íslensku atvinnulífi í dag sem trúir því að þessar ráðstafanir dugi atvinnulífínu. Því trúir enginn forystumaður í sjávarútvegi, enginn forystumaður í iðnaði. Eftir þetta næturverk er spurn- ingin bara: Hvenær kemur næsta gcngisfelling? UR SAMUELSBLOKK SJONARHORN Samúðarkveðjur til Styrmis Styrmir Gunnarsson, ristjóri Morgunblaðsins, hefur í mörg misseri ver- ið í forustusveit þeirra sem krafist hafa nýrrar fiskveiðistefnu. Hann hef- ur skrifað fjölda leiðara og Reykjavíkurbréfa í Morgunblaðið til að berj- ast fyrir því að kvótakerfið væri afnumið og í staðinn kæmi ný fiskveiði- stefna. Ritstjórinn hefur ekki látið það nægja að leggja Morgunblaðið undir þessa baráttu heldur hefur hann einnig ferðast um landið og flutt boðskapinn. Frægur er fundur hans með Einari Oddi Kristjánssyni á Flateyri þar sem Styrmir barðist gegn kvótakerfinu en Einar Oddur tók hann í karphúsið. Skólabræðurnir Styrmir Gunnars- son og Jón Baldvin Hannibalsson hafa staðið saman í þessari baráttu. Alþýðufiokkurinn gerði kröfu um afnám kvótakerfisins og nýja fisk- veiðistefnu að höfuðatriði um mynd- un ríkisstjómarinnar. Mánuð eftir mánuð hefur Styrmir síðan beitt Morgunblaðinu til að styðja kröfuna um afnám kvótakerfisins. Það er því mikill ósigur fyrir Styrmi Gunnarsson, Morgunblaðið og alla andstæðinga kvótakerfisins að Kristján Ragnarsson og Þorsteinn Pálsson koma sem sigurvegarar út úr aðgerðum ríkisstjórnarinnar um síð- ustu helgi. Niðurstaðan ersamkomu- lag Alþýðufiokksins og Sjálfstæðis- flokksins um óbreytt kvótakerfi. Kristján Ragnarsson fa^nar að von- um þessum tíðindum. I sárabætur á þessari sigurstund sægreifanna sam- þykkja Þorsteinn Pálsson og Kristján Ragnarsson að smávægileg gjald- taka, nokkur hundruð milljónir á ári - um það bil þriðjungur af þeim gjöldum sem ríkisstjórnin lagði á sjávarútveginn á árinu 1992 - verði greitt inn í nýjan kommissarasjóð sem fulltrúar sægreifanna fá til ráð- stöfunar. Svo sár er Styrmir Gunnarsson á þessari stund ósigursins að hann grípur til þess örþrifaráðs að reyna að gera þetta smágjald að kjarnanum í efnahapsráðstöfunum ríkisstjómar- innar!! Á forsíðu Morgunblaðsins sl. þriðjudag er birt fimm dálka fyrir- sögn með upphafsstöfum á tveimum hæðum þar sem þetta lítilfjörlega gjald er gert að höfuðatriði. Forsíða Morgunblaðsins er nær Ljós í vestri? Hvað vilja hagfræðingar Clintons? Hver er umhverfisstefna Gores? Björn Guðbrandur Jónsson líf- fræðingur og Már Guðmundsson hagfræðingur em framsögumenn á opnum fundi Birtingar um ný við- horf í Vesturheimi eftir kosningasig- ur demókrata í Bandaríkjunum. Sér- stök áhersla verður lögð á líkleg um- skipti í hagfræðilegum efnum og umhverfismálum. Fundurinn er haldinn í Lækjar- brekku (á loftinu) í kvöld, fimmtu- dagskvöld 27. nóvember, og hefst kl. 20.30. Björn Guðbrandur Jónsson er fyrrverandi framkvæmdastjóri Nor- ræns umhverfisárs á íslandi,‘og dvel- ur nú í Baltimore við framhaldsnám í umhverfisfræðum. Hann fjallar á fimmtudagskvöld um þær umhverf- iskenningar sem Albert Gore, verð- andi varaforseti Bandaríkjanna, hef- ur dregið saman og sett fram í pólit- ískri stefnuskrá. Már Guðmundsson er hagfræð- ingur við Seðlabankann og var efna- hagsráðunautur Ólafs Ragnars Grímssonar í fjármálaráðuneytinu. Hann fjallar um hagfræðistefnu Björn G. Jónsson Már Guð- mundsson Reichs, hagfræðiráðunautar Clin- tons, og fieiri nýstefnuhagfræðinga vestanhafs. Á fundinum verður kannað hvað kunni að vera í vændum í Bandaríkj- unum, hver áhrif það hafi á heims- byggðina, og hvaða lærdóm við ís- lendingar kynnuin að geta dregið af nýjum pólitískum straumum vestan- hafs í hagstjórn og umhverfispólitík. Styrmir Gunnarsson. ætíð eingöngu lögð undir erlendar fréttir. Þar eru fimm dálka fyrirsagn- ir með upphafsstöfum á tveimur hæðum eingöngu helgaðar stórtíð- indum utan úr heimi. Það sýnir best sárindi ritstjórans að faglegt frétta- mat fýkur út um gluggann og þessi minniháttar gjaldtaka, sem Kristján Ragnarsson tekur með brosi á vör eins og hverjum öðrum smáskatti, fær styrjaldarletur á forsíðunni. Aumingja Styrmir. Smáskattur af aflaheimildum sem renna á í hinn nýja sjóð sægreifanna, Davíðssjóð, verður að mikilli sigurstund í barátt- unni gegn kvótakerfinu. Það hefði nú verið meiri manndómsbragur á því að viðurkenna að skólabróðirinn Jón Baldvin hafi einfaldlega gefist upp í baráttunni gegn kvótakerfinu og Morgunblaðið hafi tapað þessari lotu fyrir Kristjáni Ragnarssyni eins og öllum hinum. Um leið og Vikublaðið sendir rit- stjóra Morgunblaðsins samúðar- kveðjur getur það fullvissað hann um það að þótt Morgunblaðið hafi gefist upp í baráttunni fyrir breyttri fiskveiðistefnu mun Vikublaðið halda því merki hátt á loft. FRA FLOKKNUM Alþýðubandalagsfélag Keflavíkur-Njarðvíkur Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Keflavíkur-Njarðvíkur verður hald- inn laugardaginn 5. desember næst- komandi kl. 14:00 í Ásbergi, félags- heimili Alþýðubandalagsins, Hafn- argötu 26 í Keflavík. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar fjölmennið. Stjórnin

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.