Vikublaðið


Vikublaðið - 22.10.1993, Blaðsíða 1

Vikublaðið - 22.10.1993, Blaðsíða 1
Pólitísk og falleg Toni Morrisson er ekki aðeins fyrsta svarta konan sem fær bókmenntaverðlaun Nóbels heldur líka fyrsti bandaríski svertinginn. Bls. 4 Fjölmiðlar og valdið Islenskir blaðainenn eru háttvísir í umgengni sinni við valdamenn og hefðir blaðamennsku hér á landi hlífa spilltum valdhöfum við gagnrýni. Bls. 5 Aðför að ölkum Ríkið ætlar að innheimta sjúk- lingaskatt af alkóhólistum sem leita í meðferð. Skatturinn mun koma harðast niður á þeim sem eru verst leiknir af þessum sjúkdómi. Bls. 6-7 41. tbl. 2. árg. 22. október 1993 Ritstjóm og afgreiðsla: sími 17500 250 kr. Verkalýðsstéttin sáttarkjörum en sj álftökuliðið fer sínu fram Verkamannasamband Islands þingar um stefnu verkalýðshreyfmgarinnar í ljósi van- efnda ríkisstjórnarinnar og aukins launamismunar í þjóðfélaginu: Við viljum réttlæti s setningarræðu sinni á 17. þingi Verkamannasambands Islands, sem hófst á þriðju- dag, notaði Bjöm Grétar Sveins- son fomiaður þá líkingu að á meðan verkalýðshreyfingin hef- ur haldið sig á braut þjóðarsáttar þá hafa aðrir hópar í þjóðfélag- inu keyrt utan vegar „vel tækj- um búnir.“ - Þetta er til umhugsunar, ekki síst vegna þeirrar umræðu í efri lögum þjóðfélagsins um að 180 þúsund króna laun séu skammar- lega lág, 100 þúsund króna hækkun á 250 þúsund króna mánaðariaun sé sjálfsögð og 4 - 5 milljón króna farartæki séu bara eðlilegur hluti af starfskjörum, sagði Björn Grétar. I umræðum um kjara- og atvinnu- Verðandi vill Ingi- björgu Sólrúnu Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir þingkona Kvennalistans er stjómmálamaður sem gæti sameinað íélagshyggjufólk í Reykjavík. Stjóm Verðandi, samtaka ungs alþýðubandalagsfólks og óflokksbundins félags- hyggjufólks, samþykkti í vik- unni ályktun þar sem farið er fram á það við forystumenn félagshyggjuaflanna í Reykja- vík að þeir taki af skarið og leiti eftir því við Ingibjörgu Sólrúnu að hún verði borgar- stjóraefni félagshyggjuflokk- anna. mál á þingi Verkamannasambands- ins kom ítrekað fram hneykslun og reiði á framferði „hinnar þjóðar- innar,“ eins og velmegunarstéttirn- ar eru kallaðar. Réttlæti og jafn- rétti voru orð sem margir þingfull- trúar tóku sér í munn. Snær Karlsson hjá Dagsbrún benti á að sjálftökuliðið sé ekki allt í hópi embættismanna heldur sé það líka að finna innan raða at- vinnurekenda. - Er það ekki verkalýðshreyfing- Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra neitar að hafa lögboðið samráð við ut- anríkismálanefhd Alþingis vegna viðræðna íslenskra stjómvalda við bandarísk hemaðaryfirvöld um framtíð herstöðvarinnar á Miðnesheiði. I utandagskrár- umræðum á Alþingi sagði Jó- hann Arsælsson þingmaður Al- þýðubandalagsins að utanríkis- ráðherra með blessun ríkis- stjómarinnar leiti allra ráða að tjaldabaki til að koma í veg fyrir að hcrinn fári úr landi. Olafur Ragnar Grímsson for- maður Alþýðubandalagsins hóf ut- andagskrárumræðuna á þriðjudag og sagði að utanríkisráðherra hefði ítrekað neitað að upplýsa utanríkis- málanefnd þingsins um gang við- ræðnanna við bandarísk hernaðar- yfirvöld. I byrjun ágúst á þessu ári lögðu Bandaríkjamenn fram tillög- in senr hefur skilið efrir svigrúm fyrir jeppakónga og sjálftökumenn úr hópi atvinnurekenda? spurði Snær. - Sjálftakan og eigingirnin hefur vaxið hjá sumum í þessu þjóðfélagi, sagði Hrafnkell A. Jónsson, for- maður Arvakurs á Eskifirði. Þing- fulltrúar töldu almennt að ríkis- stjórnin hefði svikið þríhliða kjara- samning verkalýðshreyfingar, at- vinnurekenda og ríkisvaldsins með því að leggja fram fjárlagafrumvarp ur um breytingar á starfsemi bandaríska hersins á Keflavíkur- flugvelli. Nokkru síðar lögðu ís- lensk stjórnvöld fram sínar tillögur án þess að hafa samráð við utanrík- ismálanefhd. I stjórnskipunarlög- um segir að utanríkisinálanefhd sé samráðsaðli ríkisstjórnarinnar. -Það er tvímælalaust lögbrot af hálfu utanríkisráðherra að neita að upplýsa utanríkismálanefnd urn til- lögur íslenskra stjórnvalda í þess- um viðræðum, sagði Ólafur Ragn- ar. Olafur Ragnar rifjaði upp frétt Morgunblaðsins síðastliðinn laug- ardag þar sem sagt var frá hug- myndum bandarískra yfirvalda um ffamtíð Keflavíkurstöðvarinnar. Hann benti á að utanríkisráðherra og forsætisráðherra hefðu ekki treyst sér til að neita fréttinni beint heldur gripið til þess ráðs að snúa út úr henni. - Það er ekki hægt að búa við það þar sem gert er ráð fyrir launaskatti og heilsukortaskatti. - Ríkisstjórnin á bara eftir að svíkja það að lækka matarskattinn og ég veit að það er fullt af fólki á stjórnarheimilinu sem er tilbúið til þess, sagði Hrafnkell A. Jónsson frá Eskifirði en hann er varaþingmað- ur Sjálfstæðisflokksins á Austur- landi. I drögum að ályktun um kjaramál segir að þau „fyrirheit sem launafólki voru gefin við gerð „þjóðarsáttarsamningsins" hafi að blaðamenn Morgunblaðsins hafi betri upplýsingar um þetta mikilvæga mál en Alþingi, sagði Ólafur Ragnar. Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra bar fyrir sig loforð sem íslensk stjórnvöld hefðu gefið samningamönnum Bandaríkjanna og sagði þess vegna ekki hægt að upplýsa utanríkismálanefnd um málið. Steingríinur J. Sigfússon þingmaður Alþýðubandalagsins benti á að það væri eðlismunur á því að halda upplýsingum leyndum fyrir almenningi og hinu að leyna utanríkismálanefnd upplýsingum sem nefndin hefur rétt til að fá. Jóhann Arsælsson þingmaður Alþýðubandalagsins sagði að ís- lensk stjórnvöld væru í kyrrþey að konia í veg fyrir að herinn færi úr landi. Hann sagði engin rök fyrir því að Bandarikjamenn haldi áfram rekstri herstöðvarinnar á Keflavík- ekki gengið eftir“ og í framhaldi er minnt á að verkalýðshrcyfingin hafi við lok samningsgerðarinnar í vor lýst því yfir að hún „myndi líta á allar aðgerðir ríkisvaldsins, scm legðu auknar byrðar launafólk, sér- staklega þá lægstlaunuðu, sem ó- gildingu á forsendum kjarasamn- inga.“ Verkalýðsfélagið Eining á Akur- eyri lagði ffam drög til ályktunar um kjaramál þar sem kveðið var mun fastar að orði: „17. þing urflugvelli. En í stað þess að íslensk stjórvöld fögnuðu þeirri langþráðu smnd að herinn fari úr landi „er send hver betlinefndin eftir aðra til Ameríku til að væla í amerískuin stjónrvöldum unr að draga sem Verkamannasambandsins telur, að ekki verði hjá því komist að segja upp kjarasamningum og beita afli samtakanna til að knýja fram rétt- látari skiptingu þjóðartekna" segir meðal annars í ályktunardrögum Einingar. 17. þingi Verkamanna- sambandsins lýkur í dag og þá verða afgreiddar ályktanir þingsins. Auk kjara- og atvinnumála var starfsmenntunarstefna Verka- mannasambandsins til umræðu á þinginu og sömuleiðis reglur um minnst úr umsvifum hersins.“ - Eg trúi því ekki að íslenska þjóðin sé svo lítilþæg að hún sé samþykk þessum ölmusuferðuin ís- lenskra ráðamanna til Ameríku, sagði Jóhann. Herferð gegn mannshvörfum Æ'annréttindasamtökin XTJLAmnesty Intemational efna til alþjóðlegrar herferðar gegn pólitískum morðum og „mannshvörfum.“ Samtökin segja að fyrirheit um nýja heimsskipan þar sem ríkis- stjórnir væru ábyrgar gagnvart þegnum sínum og virtu mann- réttindi hafi ekki verið efnd. Tugir þúsunda manna eru enn myrtir árlega eða látnir „hverfa" fyrir tilstilli útsendara ríkis- stjórna eða andspyrnuhópa. Am- nesty telur þessa herferð vera þá mikilvægustu í sögu samtakanna enda eru „mannshvörf1 og póli- tísk rnorð ein helsta ógnun við mannréttindi á yfirstandandi ára- tug. Utanríkisráðherra í bak- tjaldamakki við herinn

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.