Vikublaðið - 29.10.1993, Side 6
6
Jafnréttið
VIKUBLAÐIÐ 29. OKTOBER 1993
s
gegnum tíðina hefur það
einkennt vinnumarkaðinn
að þegar vinnuafl vantar eru
konur kallaðar til en á kreppu-
tímum ýtt aftur inn á heimilið.
I umræðum um stefhuræðu
forsætisráðherra fyrir nokkru
vitnaði Kristín Astgeirsdóttir
Kvennalistakona í finnskan for-
stjóra sem sagði að konur ættu
að hafa skilning á kreppunni og
víkja af vinnumarkaðnum. I
Finnlandi er þó mun meira at-
vinnuleysi en hér. En er þessi
hugsunarháttur ríkjandi á Is-
landi ? Vikublaðið ræddi þessi
mál við þær Margréti Frímanns-
dóttur, Láru V. Júlíusdóttur og
Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur.
Dagvistarmál brenna
á konum líkt ogfyrir
20 árum
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
sagnfræðingur segir atvinnuleysið
bitna meira á konum þar sem að yf-
irvinna minnki meira hjá þeim.
„Hugmyndafræðin er enn að karlar
séu fyrirvinnur. Þá eru konur Iátn-
ar nrinnka við sig. Innan fyrirtækja
sernja konur jafhvel sín á milli til að
sem fæstum þurfi að segja upp.
Karlarnir halda hins vegar sinni
vinnu."
Lára.V- Júlíusdóttir formaður
■ Jafnréttisráðs og framkvæmdastjóri
■ Alþýðusambands íslands segir töl-
ur um .vinnuffamlag kvenna sýna
að það sé enn að aukast. „En það er
áberandi að í atvinnuleysi mæta
konur ýmsum hindrunum sem þær
hafa vissulega mætt í gegnum tíð-
ina en, árekstrarnir verða hastar-
Iegri í atvinnuleysinu." Hún tekur
.dagvistarrými sem dæmi. „Astæðan
Margrét Frímannsdóttir: Verði
konum núna ýtt út úr námi og
af vinnuntarkaðnum þá munu
þær íframtíðinni standa verr að
vígi á öllum sviðum þjóðlífsins.
fyrir því að úr dagvistunarvandan-
um er ekki bætt er sú að þá er hægt
að senda konur heim með litlum
fyrirvara og þær eiga auðveldara
með að réttlæta að vera heiina. Mér
finnst dagvistarumræðan vera orð-
in þreytt og ég verð voðalega leið
þegar ég er farin að ræða þau. Samt
sem áður er þetta það sem brennur
á konum í dag alveg eins og fýrir 20
árum.“
Lára segir konur þurfa að finna
úrræði í barnagæslu frá því að sex
mánaða fæðingarorlofi lýkur allt
þar til börnin eru þriggja ára og
komast á leikskóla hálfan daginn.
Hagkvæmnissjónarmið ræður því
jafhvel hvort konan fer út á vinnu-
markaðinn á þessum tíma eða ekki.
Hún segir konur dragast fljótt aftur
úr og þær upplifi menntun sína úr-
Jafnréttisráðs og framkvœmda-
stjóri ASI telur starfsfólk
sjúkrahúsa ekki eiga að njóta
forgangs á leikskólunum.
elta. „Þegar konur koma aftur út á
vinnumarkaðinn verða þær jafhvel
skotspónn samstarfsfólks á vinnu-
stað vegna þess að þær hafa ekki
fylgst með. Það eru sagðar sögur af
kvenlæknum sem eru að koma til
starfa aftur eftir nokkur ár og eru
látnar panta rannsóknir sem ekki
eru til. Það er bara verið að gera
grfn að þeim.“
Hentar syo vel til að
hafa stjóm á konum
Dagvistarmálin halda áfram að
vera vandamál jafnvel eftir að
skólaganga barnanna hefst. Fyrst í
vetur er vísir að heilsdagskóla í
boði fyrir grunnskólakrakka. Lára
segir þá skýringu vera gefna að
konur séu atvinnulausar og heils-
dagsskóli sé atvinnuskapandi fyrir
Sigriður Ingibjörg segir dag-
vistarþjónustuna vera hag-
stjómartœki sem notað sé til að
halda aftur afkonum.
konur. „Raunverulega ástæðan er
sú að það eru sveitarstjórnarkosn-
ingar næsta vor. Þetta er pólitískur
leikur meirihlutans í Reykjavík en
tilgangurinn helgar meðalið. Við
skulum líta framhjá því og vona að
það komi hið besta út úr þessari til-
raun.“ Lára spyr samt hvers vegna
ekki hafi verið hægt að gera þetta
fyrir 10-15 árum, foreldranir borgi
hvort sem er og örugglega hefði
mátt fa starfsfólk. Svarið segir hún
vera að pólitískan vilja hafi skort.
Lára telur samt að börn starfs-
fólks á spítölum eigi ekki að hafa
forgang á leikskólum umfram önn-
ur börn, dagvistun sé réttur allra
barna. „Heilbrigðisstofhanir verð-
ur að jnanna með öðrum hætti en
að freista mæðra ungra barna sér-
staklega fil þessara starfa. Auðvitað
á að skaffa næg dagvistarrými í
þjóðfélaginu svo allir geti unnið
við það sem þeir eru menntaðir til
og hugurinn girnist. Leikskólana á
ekki að nota sem hagstjórnartæki
þeirra sem stjórna fyrirtækjum,
hvað þá spítulum. Það er fárán-
legt.“
Sigríður Ingibjörg kallar dag-
vistarrýmin einnig stjórntæki
vinnumarkaðarins. „Með því að
bjóða bara 4-6 tíma vistun vinna
konur oft bara hálfan daginn.
Vinnumarkaðurinn fær þannig
arðbærasta vinnuaflið, það hindrar
konur í launa- og starfsframa en
leiðir til hámarksnýtingar á vinnu-
afli þeirra. Dagvistarstefnan hentar
svo vel til að hafa stjórn á konum,
meðvitað eða ómeðvitað."
„Mér finnst tregðan í dagvistar-
og skólamálum endurspegla það
ríkjandi viðhorf í þjóðfélaginu að
konur eigi að vera heima og passa
börnin. Konur hafa komist upp
með að fara út á vinnumarkaðinn
vegna þess að það hefur ríkt skiln-
ingur á fjárhagslegri þörf á vinnu-
framlagi beggja foreldra," segir
Lára. Hún telur það ekkert frekar
tengjast kreppunni, en það sjónar-
inið - að konur eigi að víkja af
vinnumarkaðnum - geti auðvitað
orðið meira áberandi í auknu at-
vinnuleysi.
Niðurskurður kemur
jyrr niður á konum
„í hugum þeirra sem nú stjórna
landinu eru dagvistarmál, upp-
bygging fyrir aldraða, fatlaða eða
alvarlega veik börn, ekki inálefni
sem hafa forgang,“ segir Margrét
Frímannsdóttir, þingmaður AI-
þýðubandalagsins. „Eg held reynd-
ar að þessi ríkisstjórn hafi engan
forgangslista. Einkavæðingarbrjál-
æðið og þjónustugjöld er það eina
scm kemst að þrátt fyrir að fólk
hafi margsinnis greitt þjónustu rík-
isins með sköttum. Kratarnir
ganga þar fram fyrir skjöldu þó
merkilegt kunni að virðast og eru
enn verri en hinir. Þar undansldl ég
þó félagsntálaráðherrann sem
heldur til haga jafnréttissjónarmið-
um.“
Margrét segir þann mikla niður-
skurð sem orðinn er í mennta- og
heilbrigðiskerfinu koma verr við
konur en karla. „Eg held að þetta
sé meðvitað, því menn gera sér
fulla grein fyrir afleiðingunum.
Þegar dagvistarstofnunum er lokað
og dregið úr uppbyggingu annarra
fara konur fyrr heim til að gæta
barna og heintilis en karlar.“
Sigríður Ingibjörg segist sjá ým-
is teikn á lofti sem beini konum inn
á heimilið. „Lögregluvarðstjóri
nokkur sagði fyrir nokkrum miss-
erum í viðtali að ofbeldi í miðbæn-
um væri tilkomið vegna þess að
konur væru úti á vinnumarkaðn-
urn. Það hentar mjög vel að vekja
samviskubit hjá mæðrum yfir að
vera ekki hjá börnuin sínuin og á
þessu er hamrað. A meðgöngu og
eftir fæðingu flæða yfír móðurina
bældingar og tilboð um allra handa
námskeið, brjóstagjöf, ungbarna-
nudd, ungbarnasund, ég kann ekki
að nefna allt sem á að mynda tengsl
milli móður og bams. A sama tíma
er konan kannski með barnið á
brjósti fimin sinnum á sólarhring.
Aldrei er minnst á nauðsyn þess að
mynda tengsl milli föður og barns.
Móðirin á að vera svo mikil móðir
að hún getur vart nokkuð annað og
hefur stöðugar áhyggjur yfir að
falla á prófinu.“
Einstceðar mæður hætt-
ar í námi
Eftir að ný lög unt Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna tóku gildi vor-
ið 1992 fækkaði konum á lánum
tvisvar sinnurn meira en körlum. í
fjárlögum 1994 er gert ráð fyrir
140 milljóna lækkun á framlagi til
Lánasjóðsins frá því á árinu 1993
vegna fækkunar lánþega. Ilvað
þýðir þetta fyrir konur ?
„Breytingarnar koma náttúru-
lega elcki síður niður á körlum en
konum, þær eru kynhlutlausar,"
segir Lára. „En laun kvenna em
Iægri en karla. Staðreyndir um Iaun
háskólakvenna valda þyí að konur
eru ekkert að leggja á sig lang-
skólanám með ærnum tilkostnaði
ef þær sjá ekki fram á að hagnast
hvað launin varðar. Launamunur
kynja er kannski hvað mestur með-
al háskólagengins fólks. Tilvist
Lánasjóðsins á mikinn þátt í því
hversu margar konur hafa farið í
nám. Þar hefur jafnréttisbaráttan
gengið mjög vel.“
„Vextir á námslán eru algjörlcga
óeðlilegir,“ segir Sigríður Ingi-
björg. „Þorsteinn Þorsteinsson
framkvæmdastjóri Stúdentaráðs
Háskóla íslands segir að þær konur
sem hafi hætt í námi séu einstæðar
mæður eða konur í sambúð með
börn. Konur ineð börn hafa gefist
upp.“
Margrét Fríinannsdóttir tclur
einnig að samsetning námsmanna
sem taka námslán hafi breyst.
„Einstæðar mæður og konur í sam-
búð með börn hafa farið heim. Það
þykir eðlilegra en að faðirinn fari
heim og hugsi unt börn og heimili.
Ég held að svona sé hugsanagang-
urinn alntennt í þjóðfélaginu. Við
sjáum þetta gerast í pólitík. Mönn-
um er ckkert sárt um þó einhver
konukind í áberandi stöðu innan
stjórnmálaflokks dragi sig í hlé. Ef
konunt er ýtt út af vinnumarkaðn-
um og úr menntakerfinu og þannig
komið í veg fyrir að þær fái mennt-
un eða starfsþjálfun þá rýrir það
mjög möguleika kvenna í fraintíð-
inni til þess að hasla sér völl í at-
vinnulífinu."
Ofsóknir á hendur
Jóhónnu
Margrét segir þróunina í jafn-
rétdsmálum vera stopp um þessar
mundir en hún vill ekki fullyrða að
þróunin sé að snúast við. „Konur
hafa tekið virkari þátt í stjórnmál-
um á undaförnum árum. Kvenna-
listinn átti auðvitað stóran þátt í að
hvetja konur til að fara inn á þenn-
an vettvang. Sérframboð gegna
ákveðnu hlutverki í ákveðinn tíma
en ég hef þá trú að því hlutverki sé
nú lokið eða að ljúka og það sem nú
þurfi til árangurs sé aukin sam-
vinna kvenna og karla. Spurningin
er hins vegar hvað karlmenn eru
tilbúnir að ganga langt í jafnréttis-
átt, ekki í orði heldur verki.“
Þegar minnst er á konur og
stjórnmál nefha þær Lára, Margrét
og Sigríður allar mál Jóhönnu Sig-
urðardóttur að fyrra bragði. Lára
lýsir miklum áhyggjum yfir hve illa
konum gangi að ná árangri í stjórn-
málum. Það sé með ólíkindum að
Jóhanna Sigurðardóttir skuli vera
þriðja konan sem gegnir ráðherra-
embætti frá upphafi. „Alltaf má
Kínversk heimspeki, og þó sérstaklega
konfúsísk heimspeki, hefur smndum
verið kölluð þessa heims heimspeki
vegna þess hversu jarðbundin hún er. Konfús-
ískir hugsuðir einbeitm sér fyrst og fremst að
siðferðislegum vandamálum. Þeir gáfú ítarlegar
leiðbeiningar um hegðun en létu sig minna
varða um dulspekileg vandamál eins og upp-
runa alheimsins, tilgang tilverunnar og önnur
tilverustig.
Taoistar sýndu samt mun meiri áhuga á slík-
um grundvallarspurningum en fylgismenn
Konfúsíusar eins og Bókin um Veginn ber með
sér. En það er athyglisvert að duispekilegur á-
hugi taoista hefur í raun nytsemismarkmið.
Þeir töldu góðan skilning á eðli umheimsins
forsendu fyrir því að fólk vissi hvernig það ætti
að hegða sér til að líf þeirra yrði sem auðveld-
ast.
Þetta á bæði við um almenning og ríkisleið-
toga.
6. brot úr Bókinni um Veginn
Andi dalsins er ódauðlegur. Hann er nefiid-
ur kvenveran dulúðuga.
Anddyri hinnar dulúðugu kvenveru er sagt
undirrót bimins ogjarðar.
Pað mótar naumast fyrir fonnlausri tilveni
hennar.
Notkun slítur henni aldrei út.
Skýringar
Líklega á Laotse við frumeðlið, Tao,
þegar hann talar um anda dalsins og kven-
veruna dulúðugu. Með dalnum er hugsan-
lega átt við veröldina.
J
Umritun þýðanda
Frumeðli veraldarinnar, Tao, líður aldrei
undir lok. Ekkert nafn getur lýst því með réttu
en samt má líkja því við dulúðuga kvenveru
enda er hún uppspretta þess ferlis sem tilvera
veraldarinnar verður rakið til.
Hún á sér enga áþreifanlega birtingarmynd
en það örlar samt alls staðar á áhrifum hennar,
sem þverra ekki með tímanum heldur eru ávallt
fyrir hendi.
ÞvðanHi Raoriar RnlHnrccnn.