Vikublaðið - 29.10.1993, Blaðsíða 7
VIKUBLAÐIÐ 29. OKTOBER 1993
7
Bergþór
Bjarnason
finna hundrað ástæður fyrir því af
hverju kona verður ekki ráð-
herra. Hins vegar þarf aldrei að
finna neina rétdætingu fyrir því
af hverju þessir drengir verða
ráðherrar.“ Hún segir að gerðar
séu miklu meiri kröfur til kvenna
en karla í stjórnmálum og ef kon-
ur geri mistök gleymist það aldr-
ei. „Ég get ekki kallað það ncitt
annað en ofsóknir sem Jóhanna
verður fyrir. Slíkur er óhróður-
inn og fyrirlitningin sent sam-
starfsráðherrar sýna henni.“
Sigríður Ingibjörg segir ein-
kennilega lítið gert úr Jóhönnu
Sigurðardóttur. „Gagnrýnin sem
beinist að konum í stjórnmálum
er gagnrýni sem vitað er að snert-
ir þær verst og beinist að þeim
sem konum. Ekki verkum
þeirra."
Margrét tekur undir að konur
fái annars konar gagnrýni en
karlar í stjórnmálum. „Ef ekki er
hægt að segja að þær séu á breyt-
ingarskeiðinu og eigi í erfiðleik-
um þess vegna þá eru þær frekjur
og fýlupúkar. Ég held að sú
gagmýni semjóhanna Sigurðar-
dóttir verður fyrir sé alveg dæmi-
gerð. Það er nánast allt gert til að
hrekja hana úr ráðherrastólnum,
meira að segja af hennar eigin
flokksmönnum. Hún er margbú-
in að sanna sig og er jafnhæf eða
hæfari mörgum þeiin karlmönn-
um sem hafa setið á ráðherra-
stól.“
„Það er gefið í skyn að Jóhanna
sé ekki að berjast fyrir málunum
eins og karlamir gera eða að sýna
geðbrigði líkt og þeir heldur sé
með hótanir og fylu þó svo að
hún hagi sér nákvæmlega eins og
hinir ráðherrarnir,“ segir Lára.
Skýringamar telur hún vera að
karlar séu hræddir um að missa
völd til kvenna og að þeim stafi
ógn af auknum áhrifum þeirra.
Trúverðug stefna í
ríkisfjármálum ?
í frumvarpi til fjárlaga fyrir ár-
ið 1994 segir: „Lykilatriði í efn-
hagsste'fnu ríkisstjórnarinnar er
að fylgt verði trúverðugri stefnu í
ríkisfjármálum".
Viðmælendur Vikublaðsins
em sammála um að ýmislegt sé
að forgangsröðun í ríkisútgjöld-
um. I hámarki niðursveiflunnar
þarf að senda 11 rnanns á fund
Alþjóðabankans í Washington.
„Almenningur er tilbúinn til að
spara,“ segir Lára, „en ekki nema
stjómvöld gangi á undan með
góðu fordæmi. Við búum við ut-
anferðahvetjandi kerfi. Ráðherr-
ar fá ekki aðeins allan ferðakostn-
að greiddan heldur fulla dagpen-
inga meðan á ferð stendur."
Sigríður Ingibjörg nefnir sér-
staklega laun hæstaréttardómara,
biðlaun Guðmundar Árna og
laun bankastjóra. „Ef við föram
út fyrir ríkisgeirann má nefha
laun verkalýðsforystunnar. Ég
skil ekki hvernig menn eins og
Benedikt Davíðsson og Ög-
rnundur Jónasson geta komið
fram kinnroðalaust fyrir alþýð-
una verandi ineð hærri laun en
ráðherrar."
I fjárlagafrumvarpinu á blað-
síðu 250 segir: „Ahersla er lögð á
arðsöm verkefni sein ekki leiða til
aukins rekstrar- kostnaðar þegar
til lengri tíina er litið.“ A sömu
síðu segir að ekki verði veitt
framlög úr Framkvæmdasjóði
fatlaðra og aldraðra til að koma á
fót nýjum stofnunum á næsta ári.
Margrét segir þessi orð segja
meira en margt annað um rík-
isstjórnina. I stofiiunum aldraðra
og fatlaðra er enga arðsemi að sjá
að mati ríkisstjórnarinnar.
VESTURLANDSKJÖRDÆMI
Ráðstefna um
kjördæmamálið
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vestur-
landi boðar til ráðstefnu um kjördæmamálið
sunnudaginn 31. október.
Ráðstefnan verður haldin í Rein Akranesi og
hefst kl. 14.
Meðal frummælenda verður Ragnar Arnalds
þingmaður.
Kjördæmisráð
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygg-
ingadeildar borgarverkfræðings, óskar eftir tilboð-
um í smíði húsgagna fyrir fjóra leikskóla: við Reyr-
engi, Viðarás, Vesturhlíð og Funafold.
Helstu magntölur eru 330 stólar, 68 borð, 82 hillu-
einingar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000.- skila-
tryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 9.
nóvember 1993, kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsfélaganna í Reykjavík
HAUSTÞING
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsfélaganna í Reykjavík
verður haldið á Hótel Esju laugardaginn 6. nóvember
nk. kl. 13-17.30.
Dagskrá:
13.00 Setning. Árni Þór Sigurðsson formaður Kjör-
dæmisráðsins
13.10 Tillögur að ályktunum. Arthúr Morthens vara-
formaður Kjördæmisráðsins
13.25 Stefnumörkun Alþýðubandalagsins. Ólafur
Ragnar Grímsson formaður
13.45 Pólitísk verkefni framundan. Steingrímur J.
Sigfússon varaformaður Alþýðubandalagsins
14.05 Umræður
15.00 Málefnavinna:
Hópstjórar:
Arthúr Morthens, Einar Gunnarsson, Guðrún
Kr. Óladóttir, Gunnlaugur Júlíusson, Kristinn
Karlsson, Sigurbjörg Gísladóttir, Sigþrúður
Gunnarsdóttir og Sjöfn Ingólfsdóttir
Niðurstöður hópa ræddar
16.15 Almennar umræður um ályktanir og afgreiðslu
þeirra
17.00 Alþýðubandalagið og borgarstjórnarkosningar
1994 Fulltrúar Alþýðubandalagsfélaganna í Reykja-
vík: Einar Gunnarsson, form. ABR, Kjartan
Valgarðsson, form. Birtingar, Sigþrúður
Gunnarsdóttir, í stjórn ÆFR og Verðandi
17.30 Þingslit. Árni Þór Sigurðsson
Atvinnumál - Félagsleg þjónusta - Fjárhags-
mál og stjórnkerfi borgarinnar - Skóla-,
æskulýðs- og menningarmál - Skipulags- og
umhverfismál
Kaffiveitingar framreiddar á meðan á hópvinnu
stendur.
Stjórnin
N ámsmannalínan
fyrir hugsandi fólk
Námsmannalína Búnaðarbankans er
fyrir alla námsmenn frá 16 ára aldri.
100% lánshlutfall
Allt að 100% lánshlutfall af væntanlegu láni frá LÍN
1% lægri vextir
1 % lægri vextir af framfærsluláni, ekkert lántökugjald
Yfirdráttarheimild
Yfirdráttarheimild, allt aö 50.000 kr. án viðskiptagjalds
Skipulagsbók
Skipulagsbók, einföld og þægileg
Námsstyrkir
Námsstyrkir á hverju ári
Námslokalán
Lánsréttur á lokaári
Gjaldevrisbjónusta
Gjaldeyrisþjónusta á námsmannakjörum
Flutningalán
Lán vegna búslóðaflutninga
NAMS
>
NAN A
BLJNAÐARBANKINN
- Traustur banki