Vikublaðið - 29.10.1993, Page 12
Munið
áskriftarsímann
17500
Friðarverðlaun Nóbels í ár
hljóta tveir ákaflega ólíkir
menn. Annar þeirra; de
Klerk, hinn hvíti forseti Suður -
Afríku, hefur nú, eítir að hafa
um árabil staðið sem fúlltrúi að-
skilnaðarstefnunnar, séð að tím-
inn er kominn og sest að samn-
ingaborði með fulltrúum Afríska
þjóðarráðsins. Það er einmitt
frægasti fúlltrúi þess, hinn sjötíu
og fimm ára gamli Nelson
Mandela sem deilir verðlaunun-
um með de Klerk. Tim Maseko
sem starfar fyrir Afríska þjóðar-
ráðið finnst þetta kaldhæðnis-
legt og sambærilegt við það að
páfinn þyrfti að deila friðarverð-
laununum með Saddam Huss-
í heimsókn sinni hingað til lands
í síðustu viku ávarpaði Maseko
þing Verkamannasantbandsins, var
við setningu Iðnnemasambands-
þings og talaði á Kirkjuþingi. Tim
Maseko átti einnig viðræður við
Þröst Olafsson aðstoðarinann ut-
anríkisráðherra. Þetta er í annað
skipti sem Tim Maseko kemur
hingað, en hann var hér í fyrra
skiptið fyrir þremur árum.
Það er vel við hæfi að fúlltrúi
Afríska þjóðarráðsins ávarpi þing
Verkamannasambandsins því
VMSI og verkamenn í Dagsbrún
börðust einmitt fyrir því á sínumtí-
ma að viðskiptabanni við Suður -
Afríku væri ffamfylgt. Slíkt bann
og æ meiri einangrun Suður-Aff-
íkustjórnar á alþjóðavettvangi eru
ein stærsta ástæða þess að eftir ára-
tuga kúgun hvíta minnihlutans á
svörtum og lituðum þegnum Suð-
ur-Afríku hillir nú loks undir lok
aðskilnaðarstefnunnar.
Viðskiptahagsmunir
vesturvelda
Það hefur ekki gengið allt of vel
að ffamfylgja viðskiptabanninu.
Þau skötuhjú Margareth Thatcher
og Ronald Reagan voru innilega
sammála um að ekki væri rétt að
setja á og ffamfylgja slíku banni,
það myndi aðeins verða til þess að
kjör svertingja í Suður-Afríku
versnuðu. Talsmenn þeirra voru ó-
sammála og töldu þessa umhyggju-
semi eiga sér aðrar orsakir, t.d. við-
skiptahagsmuni og áherslu á að
’ berjast gegn vinstrisinnuðum
stjórnum í nágrannaríkjunum
Angólu og Mosambique. Við-
skiptahagsmunir
Breta, Frakka og
Bandaríkjamanna í
Suður-Afríku eru
heilmiklir. Það þýð-
ir að þessum þjóð-
um eða a.m.k. pen-
ingamönnum innan
þeirra hefur ekki
verið sérlega mikið í
mun að einangra
Suður-Afríku eða
banna viðskipti við
hana. Suður-Afríka
er ákaflega ríkt land,
"t.d. af málmum í
jörðu. Kúgun hvíta
minnihlutans og
arðrán hans á öðr-
um íbúum landsins
hefur gefið svo mik-
ið af sér að þjóðar-
framleiðsla á hvem
íbúa er frekar há,
það há að ef miðað
er við hana telst
Suður-Affíka ekki
til þriðja heims ríkis
Komið og
sjáið lýðræð-
ið fæðast!
Fulltrúi Afríska þjóðarráðsins er bjart-
sýnn á framtíð Suður-Afríku
i * *...
i 4 ( é í *
141*1*
klli
i
Tim Maseko segir Islendinga geta aðstoðað hina nýju Suður-Afríku á sviði
sjávarútvegs. Mynd: Ol.Þ.
- landið er velferðarríki - fyrir hvíta
þegna þess. Aðrir lifa hins vegar í
ólýsanlegri eymd og þar að auki við
bæði ófrelsi og óöryggi sem fylgir
aðskilnaðarstefnunni.
Framlag lslands skiptir
líka máli
I fundi sem haldin var í Lækjar-
brekku síðastliðinn laugardag lýsti
Tim Maseko því sem hefur gerst í
málefnum Suður-Affíku síðan
hann var hér síðast og þeirri bjart-
sýni sem nú ríkir um að takast megi
að koma á breytingum. Maseko
sagði einangrun Suður-Affíku svo
sannarlega hafa haft áhrif og talaði
um að þar hefði framlag lítils lands
eins og Islands líka skipt máli og að
viðskiptabannið og alþjóðlegur
þrýstingur hefði orðið til þess að
Nelson Mandela var látinn laus úr
fangelsi árið 1990. Maseko talaði
um þá breytingu sem hefði orðið í
heiminum, spennan milli austurs
og vesturs væri að engu orðin, þó
að enn væri við mörg vandamál að
glíma. Hann sagði líka að ANC
fagnaði þeirri þróun í átt til friðar
sem væri að verða fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
Maseko sagði að síðustu þrjú ár
hefði ofbeldi verið vandamál í Suð-
ur-Afríku, elcki aðeins milli svartra
annars vegar og hvítra hins vegar,
heldur einnig og því miður milli
svartra innbyrðis. Þetta sagði Ma-
seko vera afleiðingu aðskilnaðar-
stefnunnar og þeirrar eymdar sem
hún hefur kallað yfir svarta íbúa
Iandsins „Hvíta ríkisstjórnin vill
ekki lýðræði og reynir að etja svert-
ingjum hverjum gegn öðrum,“
sagði hann og bætti við: „Breyt-
ingu frá einni þjóðfélagsgerð til
annarrar fylgja alltaf átök.“
Suður-Afríka tilheyrir
öllum íbúum landsins
Maseko sagði að iniklar vonir
væru bundnir við kosningarnar
sem halda á í apríl á næsta ári.
Afríska þjóðarráðið, sem Maseko
vill ekki kalla stjórnmálaflokk held-
ur stjórnmálahreyfingu, mun taka
þátt í kosningunum sem verða þær
fyrstu með þátttöku allra kynþátta
í Suður-Afríku. Maseko taldi að
Afríska þjóðarráðið eða ANC, eins
og enska heiti þess er skammstafað,
myndi ná meirihluta og sagði það
njóta mikils stuðnings í Suður-Afr-
íku. Hann sagði að þó væru marg-
vísleg vandamál fýrirsjáanleg. í því
sambandi benti hann á að af þeim
tuttugu og tveimur milljónum
Suður-Afríkubúa sem væru á kjör-
skrá væru nítján milljón svartir -
þar af væru 60% ólæsir. Af þessum
sökum þyrfti að leggja mikla á-
herslu á að mennta hina væntan-
legu kjósendur og sagði Maseko að
nú væri hafin herferð í því skyni.
Verkalýðshreyfingin, kirkjan og
Afríska þjóðarráðið standa að
þessarri menntunarherferð, ríkis-
stjórnin tekur ekki þátt í henni.
Tim Maseko sagði að þó Afríska
þjóðarráðið fengi meirihluta í
kosningunum í aprfl þýddi það ekki
að aðrir fengu ekki að taka þátt í
stjórn landsins. „Jafnvel þó að við
vinnum þá verður þetta þjóðstjórn.
Þetta verður ekki svört stjórn,"
sagði Maseko og bætti því við að sú
stjórn sem tæki við að loknum
kosningunum í apríl yrði að hafa
fuiltrúa ólíkra íbúa Suður-Afríku
innanborðs. „Við höfum alltaf sagt
að Suður-Afríka tilheyri öllum íbú-
um landsins.“
Komið ogjylgist með
kosningunum
Það hljómar ekki mjög líklegt að
það takist að mynda stjórn með
fulltrúuin ólíkra kynþátta eftir allt
sem á undan er gengið. Hinir nýju
Nóbelsverðlaunahafar hafa fengið
að reyna að samningar við hinn að-
ilann eru ekki alltaf það vinsælasta í
þeirra hópi. Hægrisinnar í hópi
hvítra finnst de Klerk hafa gengið
allt of langt í að láta að kröfuin
svartra og hann nýtur nú aðeins
fylgi 30% hvítra Suður-Afríkubúa.
Á hinn bóginn finnst ungum og
róttækum barráttumönnum meðal
svertingjanna breytingar í átt til
ffelsis og affiáms aðskilnaðarstefii-
unnar ganga allt of hægt og að í
raun sé lítil ástæða til þess að semja
um það sem þeim finnst - og auð-
vitað er - sjálfsagður réttur þeirra.
Mangosudiu Buthelezi, höfðingi
Zulumanna, sem fulltrúar ANC,
þ.á in. Maseko, segja vera strengja-
brúðu hvíta minnihlutans og hafa
lítið fylgi meðal svertingja, hefur
ekki tekið þátt í viðræðuin uin
kosningar á næsta ári og flokkur
hans hefur hótað að trufla þær með
öllum ráðum.
Maseko heitir á þá Islendinga
sem hafa áhuga á að stuðla að því
að niðurstöður kosninganna verði
virtar að koma til Suður-Afríku í
apríl og fylgjast ineð framkvæmd
þeirra - og ekki aðeins þá: „Heim-
urinn verður að koma til Suður-
Afríku og fylgjast með því að kosn-
ingarnar verði frjálsar og lýðræðis-
legar.“ Maseko Ifldr lýðræði í
Suður-Afríku við ófætt barn: „Þið
verðið að koma og fylgjast með því
koma í heiminn."
Friður er lykill að
þróun
Það verður hvorki létt verk né
löðurmannlegt að stjórna Suður-
Affíku, jafnvel þó kosningarnar fari
vel og friðsamlega ffam og það tak-
ist að mynda starfhæfa stjórn að
þeim loknum. Um árabil hefur
efnahagskerfi Suður-Affiku byggst
á óréttlæti þar sem meirihluti þjóð-
arinnar er notaður sem vinnudýr til
þess að byggja upp auð fyrir minni-
hlutann - alveg eins og þrælarnir í
Bandaríkjunum forðum. 87% alls
lands er í eigu eins áttunda íbúanna
- hinna hvítu. Það er besta landið.
Hvítir eiga líka framleiðslutækin,
þeir eiga námurnar, verksmiðjurn-
ar, stórbýlin, fyrirtækin, allt. Þeir
hafa fengið menntunina, heilsu-
gæsluna, tækifærin.
Þrátt fyrir auð hvítra hefur með
tímanum myndast hvít milli- og
lágstétt. Hvítir inenn sem vinna
sömu störf og svartir fá allt upp í
tuttugu sinnum hærra kaup að ekki
sé minnst á öll réttindin sem þeir
hafa umfram svarta. Það verður því
ekki auðvelt fyrir nýja stjórn að
koma á jöfnum rétti allra kynþátta,
því hvítir vilja ekki missa forrétt-
indi sín. Þrátt fyrir þessar stað-
reyndir segir Maseko að ekki verði
gripið til þjóðnýtingar eigna hinna
hvítu.
Hins vegar geti reynst nauðsyn-
legt að kaupa húsnæði sem ríkið
þarf tdl þjónustustarfsemi, t.d. fyr-
ir sjúkrahús, enda er heilsugæsla
fyrir hinn kúgaða meirihluta í mol-
um. I þeim tilfellum verði samið
um kaupin.
Maseko sagði Suður-Afríku
þarfnast menntunar og sérfræði-
kunnáttu Islendinga á sviði sjávar-
útvegs og einnig á sviði inenntunar
af öllu tagi. Aðspurður um hvort
bjartsýni ríki í Suður-Afríku sagði
hann: „Við erum sannfærð um að
eftir kosningarnar muni meirihluti
íbúa Suður-Afríku hafa það betra.“
Ilann bætir við: „Við vitum að það
verða ýmis vandamál, þetta verður
ekkert himnaríki, en breytingarnar
munu koma smám saman.“ Ma-
seko sagði að Suður-Afríka mundi
örugglega þurfa á erlendri aðstoð
að halda, ekki síst til þess að
mennta þjóðina. Hann segist vona
að breytingarnar fari friðsamlega
frain og segir að lokum: „Friður er
lykill að þróun, án hans gerist ekk-
ert.“
Ingibjörg Stefánsdóttir
Gouda 26% kg/stk.
R U IVI L E G A
15%
LÆKKUIM!
VERÐ NU:
599 kr.
kílóið.
VERÐ AÐUR:
ÞU SPARAR:
kílóið.
110 kr.
á hvert kíló.
OSTA OG
SMJÖRSALAN SH