Vikublaðið


Vikublaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 5

Vikublaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 5
VIKUBLAÐIÐ 12. NOVEMBER 1993 5 Haustráðstefna kjördæmisráðs Alþýðu- bandalagsfélaganna í Reykjavík: Stefnumótun í upphafi langrar ferðar Anæstu 18 mánuðum verða tvennar kosningar. Eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor er aðeins eitt ár í alþingis- kosningar, að því gefnu að ríkis- stjórn Davíðs Oddssonar haldi velli. Haustþing Alþýðubandalags- félaganna í Reykjavík, sem eftit var til síðustu helgi á Hótel Esju, markar upphaf vetrarstarfs Al- þýðubandalagsfélaganna og þar voru línurnar lagðar í upphafi langrar ferðar. Þá bar það til tíð- inda á fundinum að Sigurjón Pét- ursson, borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, lýsti því yfir að hann myndi ekki sækjast eftir kjöri borg- arfulltrúa við kosningarnar í vor. Arni Þór Sigurðsson, formaður kjördæmisráðs, setti þingið og sagði verkefni þess tvíþætt, að fara yfir pólitísk verkefni framundan og ræða borgarmál með tilliti til kosn- inganna í vor. Arni Þór gaf þinginu yfirlit yfir umræður um sameigin- legt framboð minnihlutaflokkanna í borgarstjórn. Ilann taldi málið hafa spilast þannig að lítil von væri til þess að af sameiginlegu fram- boði yrði. Arthur A'lorthens tók við fundarstjórn og kynnti drög að stjórnmálaályktunum þingsins. Hann kvað nauðsynlegt að halda viðræðum við minnihiutaflokkana áífam jafhvel þó að fáir væru trúað- ir á sameiginlegt framboð. Olafur Ragnar Grímsson fékk næstur orðið til að ræða um stefnu- mörkun Alþýðubandalagsins. Efnahagslegt sjálfstæði ao veði Olafur Ragnar rifjaði þáð upp að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks var reist á grundvelli hugmyndafræði frjálshyggjunnar sem var að renna sitt skeið á enda víðast hvar í heiminum þegar stjórnin var mynduð í Viðey fýrir hálfu þriðja ári. - Síðan hefur ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hrakist af markaðri leið frjálshyggjunnar, eins og sést á að- gerðum stjórnarinnar í vaxtamál- um í síðustu viku, sagði Ólafur. Formaður Alþýðubandalagsins tel- ur þjóðina standa ffammi fyrir því verkefni að tryggja efnahagslegt sjálfstæði sitt á næstu árum. Er- lendar skuldir væru orðnar það miklar að það hlyti að vera for- gangsverk að móta stefitu sem tæki á skuldasöfnuninni en tryggði jafn- ffamt góð lífskjör. Olafur Ragnar sagði að í íslensk- urn stjórnmálum væri í meginatrið- um boðaðar þrjár leiðir í efnahags- málum. I fyrsta lagi samdráttarleiðin þar sem hert er að ýmsum þáttum jit- vinnulífsins í þeirri von að efna- hagskerfið hreinsi sig. Þetta væri leið ríkisstjórnar Davíðs Oddsson- ar sem sækir fyrirmynd til frjáls- hyggjustjórna í Bretlandi og Bandaríkjunum á síðasta áratug. I öðru lagi þensluleiðin sem byggir á því að auka peningamagn í umferð með erlendum lánum. Olafur sagði að dærni væru um að þessi leið hafi gengið upp en í öðr- um tilfellum hefðu þensluaðgerðir mistekist, til að mynda í ríkjum Suður-Ameríku á síðasta áratug. Olafur taldi framsóknarmenn og kvennalistakonur tala of gáleysis- lega um erlendar lántökur. I þriðja lagi sé unt að ræða út- flutningsleiðina sem felur í sér uppstokkun hagkerfisins með það fyrir augurn að veita útflutnings- og samkeppnisiðnaði forgang. Danir og Hollendingar hafa náð góðum árangri með slíkum áhersl- um þar sem aukin verðmætasköp- un situr í fyrirrúmi. Stefnumótun Alþýðubandalagsins tekur mið af þessari leið enda hefur hún margt umfrain hinar tvær. Ólafur Ragnar sagði þessa stefnu byggja á tveim þáttum. Annars vegar verndun um- hverfis og hugmyndum um sjálf- bæra þróun og hinsvegar þeirri sannfæringu að maðurinn sjálfur sé mikilvægasta auðlindin. Menntun og starfsreynsla liggja verðmæta- sköpun til grundvallar. Alþýðubandalagið sam- nefnari fyrir það besta Tvær aðrar megináherslur eiga heirna í stefnmótun Alþýðubanda- lagsins, sagði Ólafur Ragnar. Fyrri áherslan er á jöfnuð og réttlæti í velferðarkerfinu. - íslenska vel- ferðarkerfið er ekki komið að endi- ntörkum, eins og oft er haldið fram. Islenskar fjölskyldur og börn eiga að geta búið við svipuð kjör og þekkjast í nágrannalöndum okkar. Við eigum ekki að sætta okkur við samanburð við fátækari ríki Suður- Evrópu, sagði Ólafur Ragnar. Síðari áherslan er á umbætur í stjórnkerfinu sem rniðar að heil- brigðari stjórnsýslu og siðaðri stjórnmálamenningu. A síðustu misseruin hafa margsinnis komið til umfjöllunar siðbrestir ráða- manna þar sem þeir hygla flokks- gæðingum þegar skipað er í opin- ber embætti á kostnað almennra sjónarmiða um hæfni umsækjenda. Ráðherrar hafa talið sig undan- þegna almennum siðaboðum með því að taka til sín meira en þeim ber. Ólafur sagði að Alþýðubanda- lagið hefði forystu í umræðunni um siðvæðingu stjórnkerfisins og þessi umræða yrði mikilvægari eft- ir því sem á liði. - Við búum í fjölmiðlaþjóðfélagi og nálægðin milli stjómvalda og al- mennings er orðin áþekk því sem hún er í þorpssamfélaginu þar sem hreppstjórinn er ekld aðeins dæmdur afverkum sínum í hrepps- nefnd heldur líka af framkomu sinni á öðram vettvangi. Olafur lauk máli sínu með þeirn orðum að stefnumótun Alþýðu- bandalagsins fæli meðal annars í sér að safna hugmyndum og á- bendingum frá öllum þeim sem hefðu hug á að leggja þeirri vinnu lið að endurreisa íslenskt þjóðfélag. Mótun nýrrar hug- myndafræði Steingrímur J. Sigfusson vara- formaður Alþýðubandalagsins sagði pólitísku verkefnin framund- an annarsvegar draga dám af því að ríkisstjórnin væri úrræðalaus og lifði ffá degi til dags og hinsvegar að efiiahagslegar aðstæður væru erfiðar vegna tekjusamdráttar. Onnur ytri skilyrði eru þau að um skeið hefur verkalýðshreyfingin háð varnarbaráttu og að Alþýðu- bandalagið hefur um árabil haft Viðjmrfitm að ræða opið og hreinskilið um stefnumóttm flokksins og safiia liði til stuðnings við málefnin, sagði Svavar Gestsson. vindinn í fangið. - Það er eftirspurn eftir nýrri hugmyndafræði og sú stefna sem við hljómm að leggja áherslu á byggir á jöfnuði og er raunsæ og á- byrg, sagði Steingrímur. Hann kvað stefnumótunina þurfa að taka mið af vaxandi atvinnuleysi í land- inu, of mikilli erlendri skuldasöfh- un og bölmóðinum sem einkenndi andrúmsloftið. - Við gerum vel í því að hafa í huga þrjú lykilorð: Island, Alþýðu- bandalagið og framtíðina, sagði varaformaðurinn. I almennum umræðum tók Gísli Gunnarsson fyrst til máls og sagði nauðsynlegt að ná sem víðtækastri samstöðu gegn íhaldinu í borgar- stjórnarkosningunum. Gunnar Karlsson lýsti sig óánægðan með flokkinn vegna þess hversu seint og illa hann ályktaði um sameiningu sveitarfélaga og sömuleiðis með hitt að fjölmiðlar hafa dregið upp þá rnynd af herstöðinni á Keflavík- urflugvelli að nauðsynlegt sé að hún verði starfrækt áffam vegna at- vinnusjónarmiða. Alþýðubanda- lagið hefur ekki komið því nógu vel til skila að herstöðinni skuli loka og flokknum ber að mótmæla betli- ferðum íslenskra ráðamanna til Bandaríkjanna. Gunnar lagði til viðbót við stjórnmálaályktun þingsins uin herstöðvarmálið. Flokkafjandskapur Svavar Gestsson sagði brýnt að fara yfir grundvallaratriði stjórn- málanna og spurði hversu langt menn væru tilbúnir að ganga í átt til róttækrar jafhaðarstefhu. Hann varaði við því að skoða hugmyndir um útflumingsleiðina í efnahags- málurn í of þröngu samhengi og sagði hana ekki lausn eina og sér. Svavar sagði and- stöðu við stjórnmálaflokka aukast víða um þessar mund- ir og benti á að heill stjórn- málaflokkur hefði svo gott sem verið þurrkaður út í Kanada. fyrir skemmstu. Þá taldi hann fylgi Kvennalistans í skoðanakönnunum vera til marks um vantraust á stjórnmálaflokkum. - Við þurfhm að ræða opið og hreinskilið um stefhumótun flokksins og safha liði til stuðnings við málefhin, sagði Svavar. Garðar Mýrdal tók undir með Gunnari Karlssyni urn nauðsyn þess að fjaila um herstöðina í álykt- unum þingsins. Hann gerði bága ffammistöðu flokksins í skoðana- könnunum að umtalsefni og sagði ekki hægt að klappa fyrir 15% fylgi. Jafnffamt mæltist Garðar til þess að í ályktun um framboðsmál yrði með ótvíræðum hætti sagt að Alþýðubandalagið undirbúi G-lista framboð. Björn Guðbrandur Jóns- son sagði umræðu um stefnumörk- un of litla. Hann sagði pólitíska umræðu á vinstri kantinum snúast um tvenn andstæð sjónarmið, ann- arsvegar hagkvæmni og hinsvegar jöfnuð. Nún væri sögulegt tækifæri fyrir flokkinn að koma þessum sjónarmiðum saman þannig að á hvorugt halli. Þá lét hann í Ijós þá von að innanflokksástandið myndi lagast eftir þennan fúnd. Mikil tækifæri Hörður Bergmann sagði það stórt og krefjandi verkefni að end- urnýja hugmyndafræðina en sam- tímis fælist í því mikilvægt tækifæri vegna þess að valdaflokkarnir stæðu úrræðalausir gagnvart vist- kreppunni. Mörður Arnason sagðist eiga erfitt með að standa að stjórnmála- ályktun þar sem ekki væri fjallað um neytendamál og heldur ekki um kjördæmamál. Þá lýsti hann sig óánægðan með drög að ályktun um sameiningu sveitarfélaga. Hann spurði hvort kjördæmisráðið ætti að taka undir með þeirn sem leggj- ast þvert gegn sameiningu sveitar- félaganna. Mörður sagði höfuðmarkmiðið í borgarstjórnarkosningunum tví- þætt. í fyrsta lagi að fella íhaldið og í öðru lagi að efla fylgi Alþýðu- bandalagsins sem mest. Hann minnti á að í síðustu kosningum fékk Alþýðubandalagið 8,5% at- kvæða á meðan' Nýr vettvangur fékk 15%. Verkefhi Alþýðubanda- lagsins væri að laða til sín þá kjós- endur sem standa nærri flokknum en hafa af ýmsum ástæðum ekki kosið hann. Þess vegna ætti að halda þeim möguleika opnum að efna til samstarfs við aðra urn sam- eiginlegt framboð. Gunnar H. Gunnarsson dreifði útreikningum til fundarmanna sem sýndu að því fleiri framboð sem kæmu frarn gegn Sjálfstæðisflokkn- um í Reykjavík því erfiðara væri að fella meirihlutann. Tímamót Sigurjón Pétursson sagði það galla á drögum að stjórnmálaálykt- uninni að ekkert væri minnst á það hversu illa borginni hefur verið stjórnað hin síðustu ár. Urn fram- boðsmál sagði Sigurjón að pólitík væri ekki útreikningur og að Al- þýðubandalagið ætti ekki að leita eftir málsstað heldur kynna sín stefhumið og leita eftir stuðningi við þau á meðal fólksins. - Efdr sundranguna við síðustu kosningar er það ekki auðvelt, en það er hæg;. Eg ætla ekki að sækj- ast eftir kjöri í næstu kosningum en ég mun styðja G-lista fhamboð Al- þýðubandalagsins, sagði Sigurjón. Eftir að almennum umræðum lauk bað Ólafur Ragnar Grímsson um orðið og sagði ákvörðun Sigur- jóns Péturssonar marka tímamót. Sigurjón hefði sem ungur trésmið- ur komið inn í borgarstjórnarflokk Alþýðubandalagsins árið 1970 og átta árum síðar leiddi hann flokk- inn til glæsilegs sigurs í borgar- stjórnarkosningunum 1978. Ólafúr lét í ljós þá ósk að forystusveit Al- þýðubandalagsins fengi að taka þátt í því að þakka Sigurjóni vel unnin störf í þágu Alþýðubanda- lagsins í Reykjavík. Páll Vilhjálmsson Húsbréf Ályktanir kjördæmisráðs Alþýðu bandalagsfélaganna í Reykjavík Um stjóm og stjórnarstefiu Kjördæmisráð Alþýðubandalagsfélaganna í Reykjavík ítrekar andstöðu við ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks. Afleið- ingar þeirra efiiahagsþrenginga sem steðja að þjóðinni og viðbragða stjórnvalda við henni birtast ekki síst í stórauknu atvinnu- leysi, hávöxtum, vaxandi misskiptingu og andfélagslegum áherslum í velferðarmálum. Þrátt fyrir að ytri skilyrði hafi verið þjóð- arbúinu óhagstæð um nokkurt skeið, hafa afskiptaleysi í atvinnumálum og bölmóður ríkisstjórnarinnar haft veruleg áhrif á þá kreppu sem hefur ríkt hér á landi undanfar- in tvö ár. Haustþing kjördæmisráðs mót- mælir harkalegum niðurskurði í velferðar- málum. Gjaldtaka í heilbrigðis- og mennta- málum bitnar þyngst á þeim sem hafa minnstar tekjur og síst skyldi. Kjördæmisráð Alþýðubandalagsfélaganna hafnar hug- myndum urn að selja aðgang að heilbrigðis- kerfinu og telur að undirstöðuþættir vel- ferðarþjónustunnar eigi að standa öllurn landsmönnum til boða og vera fjármagnaðir af almennum skatttekjuin. Herstöðvamiálið Umræður um herstöðvarmálið um þessar mundir sýna glöggt hve háskaleg herstöðv- arstefnan hefur reynst íbúutn Suðurnesja og reyndar landsmönnum öllum. í stað þess að byggja upp atvinnulíf á Suðurnesjum hafa stjórnvöld látið nægja að vísa Suðurnesja- mönnum á herstöðvarvinnu. Kjördæmisráð- ið telur brýnt að samdráttur í herbúnaði Bandaríkjamanna erlendis verði nýttur til hins ítrasta til þess að draga úr umsvifúm herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli og helst að loka henni með öllu. Kjördæmisráð- ið gagnrýnir sérstaklega þá leynd sem ríkt hefur í viðræðum um málið að undanförnu. Kjördæmamálið Kjördæmisráðið fagnar auldnni urnræðu um kjördæmamálið og tilhögun alþingis- kosninga og skorar á þingflokk Alþýðu- bandalagsins að beita sér fyrir samkomulagi í þinginu um jöfnun kosningaréttar og lýð- ræðislegra kosningakerfi. Framboðsmál Ilaustþing kjördæmisráðs Alþýðubanda- lagsfélaganna í Reykjavík samþykkir að hefja skuli nú þegar undirbúning að framboði Al- þýðubandalagsfélaganna vegna borgar- stjórnarkosninganna í Reykjavík 28. maí n.k. Kjördæmisráð felur stjórninni, í samræmi við 7. gr. laga ráðsins, að annast undirbún- inginn og leggja tillögur sínar um skipan ffamboðsmála fyrir kjördæmisráð sem fyrst. Utdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram áttundi útdráttur húsbréfa í 1. flokki 1991, fimmti útdráttur í 3. flokki 1991, fjórði útdráttur í 1. flokki 1992 og þriðji útdráttur í 2. flokki 1992. Koma þessi bréf til innlausnar 15. janúar 1994. Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði og í Alþýðublaðinu föstudaginn 12. nóvember. Auk þess liggja upplýsingarframmi í Húsnæðis- stofnun ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. cSg húsnæðisstofnun ríkisins HÚSBRÉFADEILO • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.