Vikublaðið


Vikublaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 11

Vikublaðið - 12.11.1993, Blaðsíða 11
VIKUBLAÐIÐ 12. NOVEMBER 1993 11 Rithöndin Falslaus og rausnarlogur ú ert samkvæmt skriftinni skapstór, tilfinninganæmur og viðkvæmur. Einnig stór- látur, bjartsýnn og gerir þér ntildar vonir um það sent þú tekur þér fyr- ir hendur. Og venjulega fleytir bjartsýni þín því áfram. Þú vilt vera vel að þér og hefur þegar safnað að þér mikilli þekkingu á áhugamál- um þínum. En þú átt til að vera dá- lítið fljótfær og skemmir það smndum fyrir þér. Sviðsljós Góð- verkin kalla! - átakasaga Leik- félag Akureyrar setur upp splunku- nýjan og hlátur- vænan gleðileik með söngvum Snemma í sumar hófst samn- ing nýs gleðileiks sem verður frumsýndur hjá Leikfélagi Akureyrar á jólum. Leynd hefur hvílt yfir höfundi og hann gengið undir dulnefninu „Heiðursfélagi" en nú hefur hulunni verið svipt af honum. Bak við höfundarnafhið leynast þrír menn, þeir Armann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirs- son og Þorgeir Tryggvason, en þeir hafa vakið athygli sem hand- ritahöfundar hjá hinu óborganlega áhugaleikfélagi Hugleik. Leiðir þremenninganna lágu fyrst saman í Menntaskólanum á Akureyri, þar sem þeir skelltu sér í leikfélagið og sömdu m.a. grín- Þú rnunt vera glaðlyndur og rómantískur, finnst garnan að um- gangast fólk og fólk kann líka vel við þig. I lelstu vandræði þín gæm verið varðandi skoðanaskipti við fjölskyldu eða yfirmenn. Þar virðist smndum vanta eitthvað upp á skilning hjá báðum aðilum og get- ur því komið upp ruglingur. Þú virðist hreinskilinn og laus við allt fals, en svo undarlegt sem það er gemr þetta iíka valdið vandræðum. þætti fyrir árlega skemmtidagskrá leikfélagsins sem flutt var á árshá- tíð skólans. Eftir að þeir voru allir komnir til náms í Reykjavík fundu þeir sér nýjan vettvang fyrir sam- vinnuna í Hugleik, þar sem þeir m.a. sömdu Stúmngasögu í sam- vinnu við Iljördísi Hjartardóttur, en sagan sú var sýnd við ffábærar undirtektir á síðasta vori. Góðvcrkin kalla! átakasaga ger- ist í iitlum bæ, Gjaldeyri við Ysmnöf. Þar eru starffækt hin ýmsu líknarfélög og klúbbar og hafa sig helst í frammi Lóðarís- klúbburinn og Dívans-hreyfingin ásamt kvenfélaginu Sverðliljunum. Standa þessi félög fyrir mildu söfh- Þú ert gjöfull og þá rausnarleg- ur. Röskur, gerir þér ekki rellu út af smámunum. Nokkuð mikið fyri r breytingar og hagræðingar en hag- ræðingarnar vilja smndum renna út í sandinn og breytingamar verða öðruvísi en þær átm að vera. Var- aðu þig á þessu. Þú átt ágæta möguleika en ættir að slaka oftar á og hugsa þitt ráð, leggja meiri á- herslu á heildarsýn. Einhverskonar opinber störf eða jafnvel leiklist uríarátaki vegna 100 ára afmælis sjúkrahússins og leiðir átakið til mikilla átaka. Góðverkin kalla! - átakasaga er sérstaklega samið fyrir leikarana sem fara með hlutverkin, en þeir eru: Sigurður Hallmarsson, Saga Jónsdóttir, Rósa Guðný Þórsdótt- ir, Aðalsteinn Bergdal, Sigurveig Jónsdóttir, Dofri Hermannsson, Sigurþór Albert Heimisson, Arna María Gunnarsdóttir og Skúli Gautason. Leikstjóri er Hlín Agn- arsdóttir. Leikmynd og búninga gerir Su'gur Steinþórsdóttir og lýsingu hannar Ingvar Björnsson. munu líldega henta þér best þar sem þú átt ekki í neinum vandræð- um með að koma ffam og tala við hvern sem er. Gangi þér vel. RSE. Hreyfill í Igær, nákvæmlega upp á dag, var hálf öld liðin frá stofnun Samvinnufélagsins Hreyfils. A affnælinu gám borgarbúar skoðað gamla og nýja bíla á Hreyfilsplan- inu við Fellsmúla, auk þess sem vegleg veisla var haldin fyrir starfs- menn og velunnara fyrirtækisins. Félagið stofnuðu 130 leigubíl- stjórar í Reykjavík og var tilgang- urinn að reka bifreiðastöð þar sem hver félagsmanna ætti sína bifreið og nyti þannig arðsins af eigin vinnu í sem ríkusmm rnæli. Fyrsm árin var aðstaða Hreyfils við Kalkofhsveg neðan Arnarhóls en árið 1951 flutti félagið aðalaðsemr sitt á Hlemm. Hreyfilsmenn hófu húsbyggingaffainkvæmdir undir starfsemi sína við Fellsmúla árið 1958. Þaðan er öll starfsemi félags- ins rekin í dag, bifreiðaafgreiðsla, skrifstofur, félagsheimili, bensín- sala og bílaþvottastöð. Asgeir Matthíasson, verkfrceðingur. hálfa öld Margvísleg önnur starfsemi hef- ur ætíð verið á vegum Hreyfils í skemmri eða lengri tíma, svo sem innlánsdeild, pönmnarfélag, blaða- útgáfa og menningar- og íþrótta- starf. Til dæmis hafa félagsmenn Hreyfils gert sönglistinni hátt und- ir höfði allar gömr frá 1952 þegar karlakórinn var stofhaður og bæði haldið úti knattspyrnufélagi, taflfé- lagi og bridgefélagi. Fyrsta bið- stöðin eða staurinn eins og þær voru kallaðar í daglegu tali var reist í Kleppsholti 1945. Þangað kom fljódega sími sem jrótti hið mesta þing, svo ekki sé talað um talstöðv- arnar sem komu í bílana á sjöunda áramgnum. Nú er öll afgreiðsla tölvuvædd og biffeiðastæði Hreyf- ils á höfuðborgarsvæðinu orðin 21. Hjá Hreyfli eru nú 210 leigubif- reiðarstjórar en auk þess starfa lið- lega 20 manns hjá félaginu. Ein af furðum nútíma arki- tektúrs eru tilraunir til að losna við veggi. Af einhverj- um mér óskiljanlegum ástæðum eiga íbúðir núorðið helst að vera einn geymur án þess nokkuð skilji að svefnherbergi, stofu, eldhús og bað. Eg held að þetta séu áhrif af bannsetmm Skandínavismanum sem Indriði hefur hamast gegn ára- _ mgum saman með litlum árangri. 1 Skandinavíu hafa menn nefnilega við og við gert hálf-krampakennd- ar tilraunir til að endurvekja ein- hverskonar baðstofulíf stórfjöi- skyldu. Allir eiga að sitja hálfvegis í fanginu hver á öðrum, vefa, skera út og nudda punginn, lesa húslest- ur eða leggja smnd á fagrar en þó heimilislegar listir. Þetta hefur aldrei almennilega virkað í Skand- inavíu og ekki heldur hér. Reyndar held ég að þetta sé ein ástæða skiln- aða og upplausnar í fjölskyldulífi og reyndar miklu mikilvægari skýr- ingarþátmr en útivinna kvenna, sem nú er enn orðið vinsælt að barma sér yfir. Enda atvinnuleysi. Eg bý í einni íbúð sem orðið hef- ur fyrir 'þessum Skandinavisma. Þar er varla nokkur veggur. Það var rétt með herkjuin að við gámin fengið að hafa vegg um baðher- bergið og svefnherbergin. „Hva, hafiði eitthvað að fela?“ sagði arki- tektinn. Allt annað er opið rými svo það er allt að því útilokað að fjölskyldumeðlimir geti dundað hver fyrir sig. Ef stelpan er að æfa sig á blokkflautuna þá þjást allir. Og þegar perversitetið kemur upp í ffúnni og hún vill horfa á einhv(UTri amerískan skilnaðarþátt þá er úti- lokað að helga sig Vikublaðinu eða fögrum bókmennmm. Stöðugt dynja á manni sömu óhljóðin: „Bang, bang, bang!“ „Oh my goooooooood!!“ „Babú, babú, babú.“ „Bang, bang, bang.“ Öll matseld bimar óhjákvæmi- lega á bókunum, sem farnar em að lykta af karrý, tómat og pepperoni. Maður opnar Þórberg og fær pizzu í andlitið. Og einhvern veginn er það þannig að Einar Ben nýmr sín alls ekki í lyktinni af kreólskuin rækjum. ** Og þá er reyndar komið að höf- uðvandamálinu í öllu þessu drama. Hvernig á maður að koma bókum fyrir í íbúð þar sem em engir vegg- ir? Þetta er alvarlegt vandamál hjá þeim okkar sem enn reyna að eign- ast bók og bók. Eg hef það þannig að bækurnar eru í bókstafsröð eftir höfundi. Nú kemur að því að ég eignast nýja bók og hún á að vera á stað X. Þá kemur upp það vanda- mál að þar er önnur bók fyrir. Það má að vísu leysa með því að færa þá bók á stað X+1. En þar er enn ein og þessi keðjuverkun bylgjast eftir öllu safhinu og þarf í sjálfu sér ekki að vera svo ýkja alvarlegt. Nema að þegar komið er að endastöðinni og“" færa á þá síðustu þá em hillur bún- ar og veggjúm lokið. Og hvern andsk... á maður þá að gera? Ég hef smngið upp á því við konuna að við múmðum upp í einn eða tvo glugga því þá mætti koma þar fyrir hillum. En hún vill ekki fallast á þessa annars einföldu lausn. Því velti ég vandamálinu yfir á herðar lesenda Vikublaðsins. Er einhver sem hefur til leigu íbúð ineð veggj- urn handa hókasöfnumm? Eidrt Reykvíkingar muna enn gömlu Hreyfilsafgreiðsluna við Kalkoýhsveg. Sagt með mynd Höfundar: Hjörtur Gunnarsson og Þuríður Hjartardóttir 49 Eins og við höfum sagt frá emm við hætt að draga úr innsendum ráðningum á verðlaunagámnni. Því höfum við ákveðið að birta rétta lausn verðlaunagámnnar strax í næsta tölublaði eftdr að hún birtist í stað þess að lesendur þurfi að bíða í tvær vikur eftir réttri lausn: Ráðning 48. myndagátu: „Tvímælalaust er Kasparoff nú langbesti skákmeistari veraldar." Höfiindar gleðileiksins Góðverkin kalla: Sievar Sigurgeirsson, Þorgeir Tryggvason og Armann Guðnmndsson.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.