Vikublaðið


Vikublaðið - 12.11.1993, Síða 12

Vikublaðið - 12.11.1993, Síða 12
Munið áskriftarsímann 17500 Gagnrýnin réttmæt en vantaði 4nnan Ltaði stuðningsvfirlýsingu vi verkalýðshreynngarinnar við konur Talsverður hvellur varð mcðal kvenna innan Iaunþegasamtakanna í kjölfar ályktunar landsfundar Kvennalistans um atvinnumál, en fundurinn var haldinn um síðustu helgi. I ályktuninni, sem birt er á bls. 9, var verkalýðs- hreyfingin gagnrýnd sérstaklega íyrir slælega frammistöðu í mál- efnum kvenna, einkum hvað launamisrétti milli kynja snertir. Nokkrar forystukonur innan verkalýðshreyfingarinnar tóku þessa gagnrýni mjög óstinnt upp og töldu hana beinast að þeirra framlagi sérstaklega. Þá vændu þær Kvennalistakonur um skort á stuðningi og töldu lítið frá þeim koma þegar verið væri að móta tillögur um lausn þess vanda sem blasti við hreyfing- unni. Guðrún Kr. Oladóttir, varafor- maður Sóknar segir að það sem hafi sært margar konur innan verkalýðshreyfingarinnar þegar þær heyrðu fréttir af ályktuninni var að ekki var vikið að því inikla **?fárfi sem konur þar inntu af hendi. - Við erum hérna hver og ein upp á hvern einasta dag að berjast fyrir því að halda í störf kvenna. Mér finnst hastarlegt að Kvenna- listakonur skyldu ekki hafa spurst fýrir um það hjá okkur hvað við erum að gera áður en ályktunin var samin, segir Guðrún. I sama streng tekur Sigríður Kristinsdóttir, formaður Starfs- mannafélags ríkisstofnana. - Það vantar inn í ályktunina stuðning við þær konur sem hafa unnið vel og dyggilega innan launþegahreyf- »--fnganna, segir Sigríður, en segist að öðru leyti fúllkomlega sammála því að heilmikið vanti uppá að launamálum kvenna sé þeim krafti sem þarf. sinnt af Gagnrýnin beinist að körlunum - Þau mál eru alls ekkert í lagi og auðvitað eru það karlarnir sem fýrst og ffemst eiga að taka þessa gagnrýni til sín, segir Sigríður. Þegar kemur að svokölluðum kvennamálum þá vantar mikið uppá að karlarnir sýni lifandi áhuga og viðurkenni að þau mál eru mál- efni hreyfingarinnar allrar. I álykt- un Kvennalistans kemur líka fram það sjónarmið að standa beri vörð um hreyfinguna og slíkur stuðn- ingur er mjög mikilvægur á þessum tímum þegar hreyfingin verður fýrir stöðugum árásum. - Mér þykir sérkennilegt að kon- ur innan launþegahreyfinganna skuli taka gagnrýni okkar til sín sérstaklega, segir Rristín Astgeirs- dóttir, þingkona Kvennalistans. Um áralangt skeið hafa karlar verið þar allsráðandi, jafnvel í blönduð- um félögum þar sem konur hafa verið í meirihluta. Flestar forysm- konur innan t.d. ASI hafa unnið mjög gott starf og þær ættu frekar að fagna því að hafa eignast banda- mann í þeirri baráttu að auka veg sinn og áhrif, segir hún og bætir við að hér á landi ríki sú undarlega þversögn að þrátt fýTÍr að við ætt- um margar sterkar og duglegar konur væru þær afskaplega valda- litlar í raun. Störfkarla betur varin en kvennastörfin Guðrún Oladóttir efast ekki um að áherslur verkalýðshreyfingar- innar í heild mættu vera aðrar þeg- ar konur eru annars vegar. Aðspurð Tveir nýir þingmenn Inóvember tóku tveir vara- þingmenn Alþýðubanda- lagsins sæti á Alþingi. Bryn- dís Friðgeirsdóttir, kennari og bæjarfulltrúi á Isafirði, tók sæti Kristins H. Gunnars- sonar og Einar Már Sigurðs- son, skólameistari og bæjar- fulltrúi í Neskaupstað, leysti . j^Hjörleif Guttormsson af. Einar Már lagði fram í vik- unni fýrirspurn til viðskiptaráð- herra um stuðningsaðgerðir við dreifbýlisverslunina, en á síð- asta þingi lofaði þáverandi við- skiptaráðherra, Jón Sigurðsson, aðgerðum til stuðnings dreif- býlisversluninni. Þá lagði Einar Már fram fýrirspurn til félags- málaráðherra um framkvæmd alþjóðlegs samnings um rétt- indi barna. Einar Már Sigurðsson. Bryndís lagði frarn fýrirspum til kirkjumálaráðherra um ráðningu aðstoðarprests á Isa- Bryndís Friðgeirsdóttir. firði og til heilbrigðisráðherra um endurbætur á gamla sjúkra- húsinu á Isafirði. um hvort hún teldi að heildarsam- tökin hefðu t.d. brugðist við af meiri hörku þegar ræstingar í skól- um vom boðnar út á síðasta ári ef um hefðbundin karlastörf hefði verið að ræða svarar hún því ját- andi. - Það er ekkert vafamál að það hefði verið tekið öðmvísi á málum þegar ræstingarnar í skólunum voru boðnar út ef málið hefði snert hefðbundin karlastörf. Þetta mál varðaði hagsmuni mörg hundmð kvenna innan Verkakvennafélagsins Framsóknar og félagið hefði þurft að fá miklu öflugri stuðning frá heildarsamtökunum en raun varð á. Auðvitað þarf verkalýðshreyfingin að endurskoða starfshætti sína með tilliti til breyttra tíma. Við emm loksins að átta okkur á því sem margir vildu lengi ekki trúa, að nú er miskunnar- laust verið að reka konur út í atvinnuleysið og heim. I því Ijósi þarf að breyta um aðferðir, en á slíkum tímum víkja önn- ur málefni, eins og t.d. launamunur kynjanna, til hliðar. Kristín Astgeirsdóttir nefhir sem dæmi um rangar áherslur verka- lýðsforystunnar að þegar samið var við ríkisstjórn- ina um atvinnuskapandi aðgerðir- var fýrst og fremst unnið að því að skapa störf í hefðbundn- um karlagreinum. Sigríður Kristinsdóttir. - Þarna hefði verkalýðsforystan mátt bregðast af meiri hörku við þeirri staðreynd að atvinnuleysið. meðal kvenna er mun meira en meðal karla, en það er eins og þeim finnist það koma sér lítið við. Og Guðrún Kr. Óladóttir. varðandi þá gagnrýni að lítið komi frá Kvennalistanum þá vil ég minna á að þegar við kvennalista- konur höfúm flutt tillögur á alþingi um mál sem snerta vinnumarkað- inn, eins og t.d. um styttingu Kristín Astgeirsdóttir. vinnuvikunnar eða umönnunar- leyfi foreldra vegna veikra barna, þá hafa umsagnir ASI yfirleitt verið heldur neikvæðar. Það hefur valdið okkur miklum vonbrigðum. Þú greiðir aðeins 778 kr. í eitt skipti fyrir öll - ef síminn þinn er tengdur stafræna símakerfinu Já, það er rétt, því skráningargjald fyrir aðgang að sérþjónustu símans er 778 krónur og þú greiðir það aðeins einu sinni. Þá færðu aðgang að margskonar þjónustu og þegar þú notar hana er kostnaðurinn sá sami og við venjulega símanotkun. Einfalt og ódýrt. Fyrir 778 krónur getur þú notfært þér*: • Vakningu/áminningu • Símtalsflutning • hriggja manna tal • Símtal bíður *Ef þú pantaralla þessa þjónustu, en annars greiðir þú 778 krónur i hvert skipti sem þú pantar aögang. Þú færð allar nánari upplýsingar um sérþjónustu símans á bls. 16 og 17 í símaskránni. Hafðu samband við okkur hjá Pósti og síma í grænu númeri 99 6363 og láttu skrá þig í sérþjónustuna. Það er meira spunnið í símann þinn en þú heldur. * tt R SÉRÞJÓNUSTA SÍMANS PÓSTUR OG SlMI

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.