Vikublaðið


Vikublaðið - 03.11.1995, Side 2

Vikublaðið - 03.11.1995, Side 2
2 VIKUBLAÐIÐ 3. NÓVEMBER 1995 Útgefandi: Alþýðubandalagið Ritstjóri og ábm.: Páll Vilhjálmsson Fréttastjóri: Friðrik Pór Guðmundsson Púsundþjalasmiður: Ólafur Þórðarson Auglýsingasími: 551 7500- Fax: 551 7599 Ritstjórn og afgreiðsla: Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík Sími á ritstjórn-. 551 7500 - Fax: 551 7599 Útlit og umbrot: Leturval Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðjan hf. Viðbrögð við snjóflóðum Þegar snjóflóð fellur með óbætanlegu manntjóni og miklu eignatjóni skiptir miklu að þannig sé brugðist við að það horfi til bóta fyrir ffamtíðina. Margt er nú vel gert, og sjálf- sagt betur en lengstum áður, í því að hugga og styðja. Hins vegar bendir ákvarðanatakan í ffamhaldi af mannskaðaflóð- um í Neskaupstað, í Tungudal og í Súðavík ekki til þess að pólitíkusar í sveitarstjómum og á Alþingi hafi þrek til þess að takast á við það verkefhi að verjast flóðum. Nokkuð er um þau viðbrögð nú að enginn hafi getað bú- ist við öðru eins flóði og féll á Flateyri. Það hafi sýnt sig að snjóflóðavamir séu með öllu gagnslausar. Allt sem gert hafi verið hingað til sé gagnslaust og ónýtt og byrja þurfi upp á nýtt. Þá séu að verða slíkar stórbreytingar í veðurfari að annað eins hafi ekki þekkst. Þetta em ekki yfirveguð við- brögð. Staðreyndin er sú að Flateyri er einn þeirra staða á land- inu sem hægt væri að verja gegn snjóflóðum með ffam- kvæmdum sem eru innan skynsamlegs fjárhagsramma. Þetta hefur lengi verið vitað og þeir vamargarðar sem reist- ir vom hafa sannað gildi sitt. Það hefur og verið vitað að garðana þyrffi að stækka og lengja. Það er hins vegar mis- skilningur að tilraunahólar, sem Vegagerðin lét gera til þess að verja vegastæði, séu eiginlegar snjóflóðavamir fyrir byggðina, sem bmgðist hafi í þessu flóði. I landi þar sem gera verður ráð fyrir eldgosum, jarðskjálft- um og aftakaveðram verður seint hægt að tryggja fólki og fénaði fullkomið öryggi. En hús em samt sem áður treyst og reynt er að fylgjast með skjálffa- og eldvirkni. Sömuleið- is er mikilvægt að verja fjármunum í að auka rannsóknir á snjóflóðum, bæta hættumatslíkön og fá hingað alla þá þekk- ingu sem tdl boða stendur ffá fjallaþjóðum. Eftdr snjóflóðið í Neskaupstað fýrir rúmum 20 ámm vom fengnir sérffæðingar frá sömu stofhunum í Sviss og Noregi og verið er að leita til í dag tdl þess að leggja á ráðin. Bæjar- stjórn Neskaupstaðar og þingmenn Austurlands, einkum Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson, svo og Rannsókn- arráð ríkisins unnu margháttað starf í ffamhaldi af þessu og lagðar vom ffam tdllögur um skipulag snjóflóðavama og rannsókna. Sannleikurinn er sá að fé og efdrfylgni hefur skort til þess að hrinda því í ffamkvæmd sem augljóslega þurffi að gera á mörgum stöðum á landinu, svo sem í Neskaupstað, Hnífs- dal, Bolungarvík, Súðavík, á Seyðisfirði, Patreksfirði, Tálknafirði, Bfldudal, ísafirði, Súgandafirði, Flateyri, og Siglufirði. Þá er það staðreynd að á kunnum snjóflóðasvæð- um hefur byggðin verið þanin út að ítmstu mörkum, jafnvel þó að niðurstöður úr rannsóknum hafi annað hvort ekki legið fyrir eða hvatt tdl varúðar. Snjóflóðavamir fela í sér byggingu og viðhald mikilla mannvirkja. Þær geta líka falið í sér flutning byggðar eða á- kvarðanir um að leggja af byggð á tilteknum stöðum eða svæðum. Hvers konar viðvörunar-, rýmingar- og almanna- vamarkerfi em einnig liður í snjóflóðavömum. Allt þetta kostar marga milljarða króna ef vel á að vera. En á hitt er að líta að Islendingar em að verja milljörðum króna í uppbygg- ingu á stöðum þar sem skaði er þegar orðinn. I einni svipan verður að taka ákvörðun um fjárfestingu í milljarðastíl í plássum þar sem sveitarsjóðir velta aðeins nokkmm tugum milljóna á ári og hafa ekki fengið krónu ffá hinu opinbera tdl þess að nota í dugandi snjóflóðavamir svo ámm skiptdr. Snjóflóð hafa hirt 120 mannslíf á þessari öld. Milli áranna 1930 og 1970 var veðurfarið þó þannig að snjóflóð vom ekki tíð. Nú er tíðin aftur orðin eins og elstu menn muna til að hafi verið. Akvarðanataka verður að vera í samræmi við það, bæði í sveitarstjómum og í rfldsstjórn. Skilaboð til nýrrar forystu Á landsfúndi Alþýðubandalagsins sem haldinn var nýverið, var framtíð vinstri hreyfingar nokkuð rædd og fundarmenn veltu fyrir sér mögulegu samstarfi eða samfylkingu félags- hyggjufólks hér á landi. I þeim umræð- um kom það í ljós sem margan hefur svo sem grunað lengi, að innan Alþýðu- bandalagsins eru vægast sagt mjög skiptar skoðanir um slíkar hugmyndir. Það sem gladdi hjartað í þessum um- ræðum var að sjá, að innan flokksins rúmast margar skoðanir og að við sýn- um hvert öðru það umburðarlyndi að bera virðingu fyrir þeirri staðreynd. Það segir enn og aftur að það er ekld ó- mögulegt fyrir vinstri menn á Islandi að starfa saman, hvar í flokki sem þeir standa. En þrátt fyrir skiptar skoðanir, voru niðurstöður landsfundar ótvíræðar. Á fundinum var samþykkt stjómmálaályktun og í henni má sjá kröfur um það að flokkurinn beiti sér fyrir sam- starfi við aðra félagshyggju- flokka. I ályktuninni segir m.a.: ,Á næstu misserum þarf að mynda skýran valkost við rík- isstjóm Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, ríkisstjóm kyrrstöðu og satndráttar. Al- þýðubandalagið mun af á- byrgð og hugkvæmni sinna því verkefni. I stefnuskránni sem samþykkt var á lands- fundi Alþýðubandalagsins 1991 var því lýst yfir að flokk- urinn myndi vinna að víð- tækri samfýlkingu allra félags- lega sinnaðra og framsækinna afla í landinu. í síðustu alþingiskosningum sýndum við þennan vilja í verld með því að mynda samstarf við óháða liðsmenn úr röðum félagshyggjufólks sem tóku formlega þátt í því að mynda framboðs- heild með Alþýðubandalaginu. Alþýðu- bandalagið mun halda áffam á þessari braut. Við emm reiðubúin til viðræðna við samtök og flokka, einstaklinga og hópa sem aðhyllast hugsjónir jafnaðar, samvinnu og félagslegs réttlætis með það að markmiði að mynda breiðfýlk- ingu allra þeirra sem vilja veita jafnaðar- stefnunni og nýrri framtíðarsýn braut- argengi í íslenskum stjómmálum." Landsfundur Alþýðubandalagsins beinir þeim tilmælum til þingflokks Al- þýðubandalagsins og óháðra að hann beiti sér fyrir náinni samvinnu þing- flokka stjómarandstöðuflokkanna fjög- urra og sýni þar með þjóðinni í verki vilja til að mynda raurthæfan valkost gegn ihaldsöflunum. Þá felur lands- fundurinn nýkjömum formanni og stjóm flokksins að hefja viðræður við forystumenn annarra stjómarandstöðu- flokka í því skyni að undirbúa sameigin- lega og opna umfjöllun um samfýlldngu félagshyggjuafla í stjómmálum á Is- landi. Slalaboðin em skýr, æðsta vald í málefnum flokksins beinir þeim tilmæl- um til flokksforystunnar að leita eftir samvinnu við aðra félagshyggjuflokka, jafiit á þingi sem utan þess. Þetta varð hin lýðræðislega niðurstaða fúndarins, eftir miklar umræður um efnið. Foryst- unnar bíður það verkefúi að fýlgja þess- um tilmælum úr hlaði. Á landsfundinum var lagt fram skjal eitt sem hleypti miklu h'fi í umræðuna, en þar sagði skýrt og skorinort að sam- einingartafið væri „kjaftæði”! Mörgum þótti þama ansi sterkt til orða tekið og bent var á að umræðan væri síst deyj- andi og krafan um samvinnu með öðr- um féíagshyggjuöflum yrði sífellt há- værari. Ahugafólk um samvinnu og sameiningu er stór hópur í Alþýðu- bandalaginu og ég trúi því að hann fari stækkandi, ekki síst fýrir tilkomu sam- starfsins í borgarstjóm Reykjavíkur. Fólk hefur skynjað hve inikið er hægt að gera ef fólk með sömu grundvallar- hugsjónir vinnur saman að sameigin- legum markiniðum. Nú er það ekki endilega víst að samstarf á landsvísu þurfi að gerast í einni svipan, eða vera eins upp byggt og það sem við búum við í borginni, enda landsmálapólitíkin um margt ólík sveitarstjómarpólitík- inni. Þvert á móti tel ég að við eigum að taka skref fýrir skref og sjá hvert það leiðir okkur. Eins og einhver sagði á landsfundinum, þá er ekki nauðsynlegt að við sjáum það alfarið fýrir hvar við lendum. Það kemur í ljós. Niðurstaðan verður annað hvort sú að samstarfið gengur, eða það gengur ekki. Alyktun landsfundar Alþýðubanda- lagsins snertir kjama málsins, við erum tilbúin að vinna með þeim sem aðhyll- ast hugsjónir jöfnuðar, samvinnu og fé- lagslegs rétdætis. Við höfum þá skyldu gagnvart kjósendum okkar að gera það sem í okkar valdi stendur til að koma þessum hugsjónum okkar í framkvæmd og samvinna við aðra er ein Ieið til þess. Þeir kjósendur sem aðhyllast þær hug- sjónir sem við stöndum fyrir áttu ein- faldlep um of marga og líka valkosti að ræða í síðustu kosningum og niðurstað- an varð flóra smáflokka sem allt of litlu fær áorkað. En hvað vilja kjósendur? Það þarf ekla að gera annað en að h'ta á niður- stöður síðustu Alþingiskosninga til að átta sig á því hvað þeir vilja. Niðurstöð- ur kosninganna urðu mörgum sár von- brigði, en þær gáfú skýr sldlaboð um það að kjósendur eru orðnir þreyttir á að verja atkvæði sínu í litla flokka, sem vart eiga möguleika á því að komast að stjómartaumunum. Framsóknarflokk- urinn sem hefur skilgreint sig æ meir til hægri á síðustu misserum sópaði að sér atkvæðum og bætti við sig 4,4 prósenm- stigum, Sjálfstæðisflokíairiim undi glaður við sitt og var fýlgistap hans frá kosningunum 1991 varla. marktækt, þótt hann hafi setið í ríkisstjóm síðustu árin. Alþýðubandalagið gerði h'tið meira en að halda sjó, þrátt fyrir að hafa verið í stjómarandstöðu síðasta kjör- tímabil, Álþýðuflokkurimi missti 4,1 prósentustig frá síðusm kosningum, Kvennalisti var nálægt því að þurrkast út á tímabili og nússti 2 af fimm þing- mönnum sínum (fýlgistap upp á 3,4 prósenmstig) og dramnur Þjóðvaka- manna um öflugt stjómmálaafl varð að engu á kosninganóttina. Niðurstaðan varð rúmlega 7% fýlgi. Sam- anlagt fengu Alþýðubanda- lag, Alþýðuflokkur, Kvenna- fisti og Þjóðvaki um 38% at- kvæða, sem er ríflega það fýlgi sem Sjálfstæðisflokkur- inn fékk í síðusfu kosningum og um 15 prósentustigum meira en fýlgi Framsóknar- flokksins. Enginn þessara smáflokka getur tafist sigur- vegari kosninganna. Eg leyfi mér að fullyrða að alhr félags- hyggjuflokkamir svokölluðu hafi verið óánægðir með úr- sfitin, þótt fólk hafi borið sig mannalega. Og kjósendur okkar geta varla verið ánægð- ir heldur, efúr að ríkisstjóm kyrrstöðunnar var stofúuð í kjölfar þessara úrshta. En svona er nú véruleikinn samt. Þegar félagshyggjuflokkana á Islandi ber á góma, vill brenna við að oft sé vís- að tíl fom'ðar í leit að skýringuin á þeirri flokkaflóm sem við okkur blasir. Slíkt er nauðsynlegt, en eitt er að nota tilvísun- ina til að leita skýringa og annað er að nota hana tfl rétdætingar á núverandi ástandi. Nauðsynlegt er að skoða vand- lega hversu mikfll hluti ágreiningsins hefur verið hugmyndafiræðilegur og mgla því ekki sarnan við átök á milh einstaklinga. Á það verður ekki lagður dómur hér, en þess í stað lagt til að meiri áhersla verði lögð á að horfa tfl framtíðar vinstri hreyfingar í landinu en verið hefúr. Nýkjörinn fonnaður flokksins, Margrét Frímannsdóttir hef- ur nefnt þann möguleika áð reyna sam- eiginlega þingflokksfúndi, t.d. annan hvem mánuð, sem fýrsta skref í átt til samstarfc stjómarandstöðuflokkanna og vil ég taka undir þær hugmyndir. En hvort sem þær fá hljómgrunn eða ekki, þá verður sú staðreynd ekld umflúin að krafan uni samstarf eða sameiningu vinstri manna á íslandi er ekki að deyja út. Hún verður þvert á móti sífellt há- værari og á meðan við speglum okkur í gerbreyttri heimsmynd undanfarinna ára, þá verður flokkaflóran á vinstri vængnum ósldljanlegri. Hinn hug- myndafræðilegi ágreiningur verður æ óskýrari, því lengra sem h'ður frá kalda- stríðsumhverfinu og möguleikinn á samstarfi verður raunhæfari urn leið. Bryndís Hlöðversdóttir þingmaður Þegar félagshygqjuflokkana á íslandi ber á góma, vill brenna við að ofl sé vísað til fortíðar í leit að skýringum á þeirri Jlokkaflóru sem við okk- ur blasir. Slíkt er nauðsyn- legt, en eitt er að nola tilvísun- ina til að leita skýringa og annað er að nota hana til rétl- lœtingar á núverandi ástandi Nauðsynlegl er að skoða vandlega hversu mikill hluti ágreiningsins hefur verið hugmyndafrœði- legur og rugla því ekki saman við átök á milli ein- staklinga. Á það verður ekki lagður dómur hér, en þess í stað lagt til að meiri áhersla verði lögð á að horfa til Jramtíðar vinstri hreyftngar í landinu en verið hefur. Pólitízkan Smáborqarar og púöurdósir Minnihluti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjóm, meö Áma Sigfús- son í broddi fylkingar, hamast á því að borgaraleg ferming skuli hafa verið leyfð í Ráðhúsi Reykjavík- ur. Hinir siðprúðu fulltrúar borgara- stéttarinnar hamast þar i meintri hagsmunagæslu fyrir kristnina og Þjóðkirkjuna og standa sig út af fyrir sig betur en í „púðurdósamál- inu" gegn Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra. Það er sem sagt bjargföst trú Árna og fé- laga að hið opinbera, í þessu tilfelli borgin, eigi ekkert að hafa meö svona hluti að gera. Og borgarstjór- inn má alls ekki ávarpa borgaraleg fermingarbörn. Nú hljóta sjálfstæð- ismenn að vilja vera samkvæmir sjálfum sér og því bíðum við spennt eftir tillögum um að fulltrúar sýslu- mannsembætta hætti þegar f stað að gifta fólk. Sameiginlegur þingflokksfundur stjórnarandstööu? Að tillögu Margrétar Frímanns- dóttur samþykkti þingflokkur Al- þýðubandalagsins að fara þess á leit við aðra þingflokka stjórnar- andstöðunnar að haldinn yrði sam- eiginlegur þingflokksfundur. Á fund- inum yrði m.a. rætt um velferðar- kerfið og fjárlagafrumvarpið. Á fund- inn yrðu fengnir fulltrúar stofnana og hagsmunasamtaka sem að málið varðar. Jóhann formabur oq Bryndís Hlööversdóttir varaformabur Á fyrsta fundi nýkjörinnar fram- kvæmdastjórnar Alþýðubanda- lagsins var Jóhann Ársælsson kjörinn formaður og Bryndís Hlöðversdóttir varaformaður.

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.